Vísir - 08.08.1940, Síða 1
Ritstjóri:
KHstján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S línur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, fimtudaginn 8. ágúst 1940.
180. tbl.
Vaða Italir yfir
Sositali—
land?
Italir hafa tekifl hafnar-
borgina Zeiia 1 Breska
Somaliiandi.
MNKASKEYTI PRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
Fregn barst um það til London í gærkveldi, að ítalir
hefði tekið hafnarborgina Zeila í Breska Somalilandi.
Liggnr hún við Adenflóa, um 19 enskar mílur fyrir aust-
an landamæri breska og franska Somalilands. Borgin
var tekin s. 1. mánudag og virðist mótspyrna hafa verið
lítil. Hefir framsókn Itala verið miklu örari en séð varð
af fyrri fregnum, sem borist höfðu um innrás þeirra.
Sóttu þeir inn í landið á þremur stöðum, með miklu liði,
sem hafði ógrynni vélknúinna hergagna. Úlfaldaher-
sveitirnar í breska Somalilandi hafa‘ þegar gert Itölum
ýmsar skráveifur, en ekki tekist að hindra framsókn
þeirra.
Síðdegis í gær var talið, í fregnum sem bárust frá Egiptalandi
til Bretlands, að breska herstjórnin hefði tekið upp þá bardaga-
aðferð, að gera ekki tilraun til að stöðva Itali fyrr en þeir væri
komnir alllangt inn í landið, en framsóknin hefir verið svo ör
og liðsmunur svo mikill, að þetta hefir ekki tekist. ítalir hafa
unnið hér allmikinn sigur og það er Bretum allmikill hnekkir,
að missa þessa hafnarborg. Þó er hér ekki um óbætanlegt tjón
að ræða, og gera Bertar sér enn vonir um, að takast muni áð
stöðva sókn ítala til Berberi, aðalborgarinnar í landinu, en hún
liggur einnig við Adenflóa, en allmiklu austar.
Auk þess að ítalir hafa tekið Zeila, hafa þeir tekið Hargeisa
og nokkurar smáborgir.
Enn hafa ekki þorist áreiðanlegar fregnir um, að her sá, sem
ítalir hafa dregið saman við landamæri Egiptalands, sé kominn
á hreyfingu. Sagt er, að ítalir hafi þarna 250.000 manna her.
I London virðist fregnin um hina öru framrás ítala
i Breska Somalilandi hafa komið mönnum mjög á ó-
vænt. Bretar munu að vísu ekki hafa mikinn herafla
þar í landi, en hinir innfæddu hermenn þar eru prýði-
lega æfðir, og gera menn sér vonir um, að þeir muni
láta til sín taka, en svo er að sjá, sem menn geri ráð fyrir
þeim möguleika, að höfuðborg landsins, Berberi, falli
í hendur Itala. Times segir að Zeila hafi ekkimikla hern-
aðarlega þýðingu og jafnvel þó Italir tæki alt Breska
Somaliland mundi aðstaða þeirra í Afríku ekki batna
neitt, því að Bretar hafi valdið á sjónum.
STENDUR INNRÁSIN í EGIPTALAND
FYRIR DYRUM?
Það var tilkynt í London í dag, að engar breytingar
hefði orðið á öðrum landamærum í Afríku.
Blöðin í London ræða um hvort ítalir muni gera til-
raun til þess að ráðast inn i Egiptaland, og telja þau mikl-
ar líkur til þess. Bretar hafa mikinn her í Egiptalandi —
breskt setulið og hersveitir margar frá Ástralíu, Nýja
Sjálandi og Indlandi. —
700 milj. dollara til þess að
reisa skotfæraverksmiðjur
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Aðstoðarhermálaráðherra Bandaríkjanna skýrði frá því í gær,
að nauðsyn krefði, að Bandaríkin kæmi sér upp nægilega mörg-
um og stórum verksmiðjum til þess að tveggja miljóna her hefði
nægar birgðir af vopnum og skotfærum. Verða reistar 60 verk-
smiðjur í þessu skyni og er áætlaður kostnaður 700 miljónir
dollara, en þjéðþingið er þegar búið að veita 200 miljónir doll-
ara í þessu skyni.
300 járnbrautar-
vagnar af skot-
færum springa í
loft upp.
Einkaskeyti frá United Press.
1 Vichy, aðsetursstað Pétain-
stjórnarinnar hefir verið gefin
út opinber tilkynning um stór-
bruna og sprengingar, sem urðu
í Miramas-vöruflutningastöð-
inni rétt hjá Marseilles.
Eldurinn braust út snemma á
mánudag og 5 mínútum eftir að
hans varð vart, var hann kom-
inn um alla stöðina. Þar stóðu
meðal annars 300 járnbrautar-
vagnar, sem voru fullir af skot-
færum fyrir fallbyssur og riffla.
íbúarnir í Miramas flýðu þeg-
ar og hefir ekki frést um neitt
manntjón. Ekki tókst að ráða
niðurlögum eldsins fyrri en síð-
degis á þriðjudag, og höfðu
sprengingar þá staðið látlaust i
sólarhring.
Allir íbúarnir eru nú komnir
aftur heim til sín, nema íbúar
eins borgarliluta, sem lögreglan
hefir afgirt.
Tjónið hefir orðið afar mikið,
og allar járnbrautarlestir, sem
eiga að fara til eða frá Marseilles
verða að fara stóran krók, til
þess að komast leiðar sinnar.
Italir gera loft-
árásir á Haifa.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Italskar sprengjuflugvélar
gerðu loftárás á Haifa í Pale-
stina í gær. Segja ítalir að
kviknað hafi í olíuleiðslum og
að skemdir liafi orðið á hafnar-
mannvirkjum.
Bretar viðurkenna, að nokk-
urt manntjón og eignatjón hafi
orðið.
Italir hafa nú gert nokkrar
árásir á Haifa og segja Bretar,
að tjón hafi orðið lítið í hinum
fyrri loftárásum.
Hergagnaverksmiðjur Breta eru nú í gangi alla daga vikunnar, allan sólarhringinn — 168
klst. á viku. Myndin sýnir verkamenn í skotfæraverksmiðju, sem eru að ljúka við að fram-
leiða fallbyssusprengjur.
EINKASKEYTI frá U. P. —
London í morgun.
De Gaulle herforingi, leiðtogi
þeirra Frakka, sem halda áfram
styrjöldinni með Bretum gegn
Þjóðverjum og Itölum, hefir
gert samninga við bresku
stjórnina, um samvinnu liinna
„frjálsu Frakka“ og Breta i
styrjöldinni. Samkvæmt samn-
ingum þessum veita Bretar De
Gaulle og liði hans fjárhagsleg-
an stuðning og eru sanmingarn-
ir i ýmsum atriðum svipaðir
þeim, sem Bretar og Pólverjar
gerðu með sér nýlega. N'erða
Frakkar æfðir sérstaklega, hafa
sína eigin einkennisbúninga o.
s. frv. Það er tekið fram í samn-
ingunum, að Frakkar skuli ekki
berjast gegn sínum eigin sam-
löndum.
Churchill skoðar
strandvirki.
Einkaskevti frá United Press.
London í morgun.
Winston Churchill skoðaði í
gær virki, sem gerð hafa verið
á suðausturströnd Englands. —
Hefir hann farið í nokkrar slik-
ar eftirlitsferðir að undanförnu.
Ýmsir herforingjar voru í fylgd
með honum.
Hertoginn af Kent, bróðir Ge-
Bretar bnast vid iim-
rái þá og: þegfar.
Varnarráðitafanirnar ankast mcð
liverjimi (legrÍKium.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í gær.
Mr. Greenwood gerði að umtalsefni í ræðu, sem hann flutti í
gær aðstöðuna til þess að verjast innrás Þjóðverja. Hann komst
svo að orði, að þjóðin yrði að vera við því búin, að Þjóðverjum
tækist að gera mikinn usla i hafnarborgum landsins, en þeim
mundi ekki talcast að svelta Breta inni. Sterk trú á fullnaðar-
sigur að lokum kom fram hjá Greenwood, eins og hjá öllum
helstu mönnum landsins, sem ræður hafa flutt.að undanförnu.
Landvarnaráðstafanirnar eru auknar dag frá degi. Fjöldi
nýrra virkja hefir verið gerður víða við strendur landsins 'og
er þar lið til varnar dag og nótt. Á þeim stöðum, sem innrájsar-
liættan er mest, hefir verið gripið til sérstakra öryggisráðstafana,
og verða menn að hlíta þar ýmsum ströngum reglum. Börn liafa
verið flutt, svo sejn áður hefir verið getið, frá ipestu hættustöðv-
unum á austurströndinni. Frekari brottflutningur barna mun
nú fara fram, til Bandarikjanna, vegna þeirra breytinga, sem
verið er að gera á hlutleysislögunum. Er búist við að Bandaríkja-
menn sendi flutningaskip mörg eftir börnum til Evrópu, aðal-
lega Bretlands, og verði skipin óvopnuð og njóti ekki fylgdar
lierskipa.
Undangengna daga hefir dregið úr loftárásum Þjóðverja á
Bretland að talsverðum mun eða alt síðan að loftorustan mikla
var háð yfir Dover. Daglega eru þt) gerðar árásir á skipaflota
og ýmsa staði, en til stórkostlegra loftárása hefir ekki komið.
I Bretlandi búast margir við, að þetta logn sé ekki góðs viti
og sóknin mikla kunni að verða hafin þá og þegar. Berast stöð-
ugt fregnir, sem sýna að Þjóðverjar búa sig undir innrásina af
hinu mesta kappi.
I flugvélaverksmiðjunum í ófriðarlöndunum vinna ltonur víða
sömu störf og karlar. Hér sjást breskar stúlkur að vinnu.
orgs Bretakonungs, fór í heim-
sókn til skipshafna af vopnuð-
um togurum, og ræddi lengi
við suma þeirra. Sögðu þeir
honum frá svaðilförum sínum
og ævintýrum.
nmjisyiiiianar
r.
Garðyrkjusýning liafði verið
fyrirhuguð á Akureyri nú á
þessu hausti. Voru það garð-
yrkjumenn þar á staðnum og í
nágrenninu, sem liugðu að
standa að henni. Höfðu þeir
þegar í vor hafið nokkurn und-
irbúning að sýningu og má gera
ráð fyrir að hún liefði orðið
þeim til sóma, svo framtaks-
samir sem menn eru þar nyrðra
á sviði garðyrkjunnar.
Nú hefir þessari sýningu ver-
ið aflýst og mun áslæðan eink-
um vera sú, að breski herinn,
sem aðsetur hefir á Akureyri,
mun hafa lagt undir sig húsa-
kynni þau sem ætluð voru til
sýningarinnar.
í>á kom og til orða að halda
garðyrkjusýningu hér í Reykja-
vík í haust en úr framkvæmd-
um num þó ekki verða og eru
svipaðar ástæður fyrir þvi og á
Akureyri, nokkur hluti setuliðs-
ins hefir aðsetur sitt í þeim
húsakynnum sem ætluð voru
fyrir sýninguna, hinum svokall-
aða markaðsskála við Ingólfs-
stræti. Auk þess hefir tíðarfar-
ið hér í sumar og ástand það
sem nú ríkir yfirleitt, gert sitt
til að draga úr þessum fram-
kvæmdum.
Garðyrkjusýningar eru á
venjulegum tímum nauðsynleg-
ur liður i þeirri fræðslu og út-
breiðslustarfsemi sem til þarf
eigi garðyrkjan að skipa þann
sess í þjóðarbúskapnum, sem
henni ber.