Vísir - 13.08.1940, Page 1
fVitstjón:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Fóiagsprentsmiðjan (3. hæð).
_______________
30. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 13. ágúst 1940.
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S línur
Afgreiðsla
—a
184. tbl.
OCrUMÆtíAR I.OUTOItl ST-
IIR ¥1» BRETLMD í OÆR.
BræOslnsíldaraflinii ca.
95% meiri en i iyrra.
var á Portsmouth. - - 500 þýskar fiugvélar
tóku þátt í árásinni-----
126 þýikar flu^vélar
skotnar íiidiir á
2 dögrnm.
FJórir af kunnnstu
■iiöiiiiiiin Astralín
farast í flngrslysi.
EINKASKEYTI frá United Press. London i morgun.
Hinir ægilegustu loftbardagar voru háðir við Bret-
land í gær og í rauninni má segja, að ekkert
lát hafi orðið á viðureignum í lofti í gær og
fyrradag. Það er nú kunnugt, að samtals 126 þýskar
flugvélar voru skotnar niður þessa tvo daga, þar af 61
í gær. Bretar mistu 39 orustuflugvélar.
Þjóðverjar gerðu aðallega tilraunir til árása á flota-
höfnina í Portsmouth og tókst þeim að valda nokkuru
tjóni við höfnina, en um tjón á herskipum er ekki getið
í tilkynningunum í gær. Það hefir vakið mikla ánægju
í Bretlandi, að loftvarnabyssuskyttunum verður stöð-
ugt betur ágengt að granda flugvélum Þjóðverja. Alls
urðu sjö þýskar flugvélar fyrir skotum úr loftvarna-
byssum í gær og hröpuðu til jarðar eða í sjó niður.
Tií marks um það hvert kapp Þjóðverjar leggja nú í
sókn sína í lofti, er það, að þeir tefldu fram um 500
flugvélum í gær.
Bresk blöð fara ekki dult með það, að það sem nú er
barist um, er yfirráðin yfir Ermarsundi. En þau eru
vongóð um, að Bretum muni auðnast að halda þessum
yfirráðum. Flugfloti Bretlands eflist með degi hverj-
um og segja þau, að kapp það, sem Þjóðverjar nú leggja
í sóknina, sýni, að þeir muni ekki geta dregið öllu leng-
ur að gera lokatilraun til þess að knýja fram úrslit.
Þrátt fyrir hina áköfu bardaga yfir Portsmouth og
víðar við strendur landsins gerðu þýskar flugvélar
einnig árásir á staði inni í landi, m. a. í Wales, Kent og
Sussex. ' ’^!1!
Þótt Bretar verði að senda gífurlegan f jölda flugvéla
til varnar gegn þýsku flugvélunum halda þeir áfram
árásum sínum á hernaðarstaði í Þýskalandi og löndum
þeim, sem Þjóðverjar hafa hernumið.
Það er í þriðja skifti á 5 dögum, sem skotnar eru niður fyrir
Þjóðverjum 60 flugvélar á einum degi. Þrettán breskar flugvél-
ar voru skotnar niður í gær. — I hörðustu hríðinni, þeirri, sem
500 flugvélar tóku þátt í, var líka varpað sprengjum á staði við
Thamesárósa og víðar.
Það er einróma álit blaðanna, að bardagarnir í gær hafi verið
svo harðir, að fullyrða megi, að orustan um Bretland sé byrjuð.
í „Daily Mail“ eru fregnimar af loftorustunum birtar undir
fyrirsögninni „Leifturstyrjöldin er byrjuð“. Orustumar miklu,
sem nú eru byrjaðar geta haft úrslitaáhrif í styrjöldinni.
News Chronicle segir í ritstjórnargrein, að menn verði að bú-
ast við, að árásirnar verði harðari með degi hverjum og gerðar
víðar.
Daily Express segir, að frá og nteð deginum í dag verði hver
karl og kona á þessum eyjum að verða þátttakandi í stríðinu.
Hversu langt sem heimili yðar er frá Ermarsundi megið þér
búast við, að barist verði við bæjardyr yðar.
í morgun var tilkynt, að
ntiklir loftbardagar liefði byrj-
að á ný snemma í morgun, og
liefði lent í loftorustu mikilli
yfir suðausturströndinni. — Að
minsta kosti sjö þýskar flugvél-
ar voru skolnar niður.
Bardögunum er ekki lokið.
Sögufélagið.
Aðalfundur þess verður haldinn
í lessal Þjóðskjalasafnsins í kvöld.
Hefst hann kl. g stundvíslega.
Byltingin i
Albanio.
London í morgun.
EINKASKEYT-I frá U. P. —
Óstaðfestar fregnir frá
Bélgrad herma, að 10.000
lleðal þeirra voru hermála- ogr
flngrmálaráðherra landsin§.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Sviplegt flugslys varð í nánd við Canberra í gær, er flugvél
hrapaði til jarðar nálægt flugstöðinni. Flugvélin var að koma
frá Melboume. Kviknaði í flugvélinni og fómst allir, sem í henni
voru. Þeir voru G. A. Street, hermálaráðherra, Fairbum, flug-
málaráðherra, Gallet, varaforseti framkvæmdaráðsins og Sir B.
White, foresti herforingjaráðsins. Auk þess nokkurir starfs-
menn þeirra og allir flugmennirnir.
Fundi stjómarinnar, sem halda átti í gær, var frestað! —
Þingið hefir verið kvatt saman til fundar á morgun.
•
Tillögnp Hoovers nm hjálp
gegn hungupsneyð í Evjpópu
Stjórnmálafréttaritari Times
ritar í tilefni af tillögum Hoov-
érs fyrv. Bandaríkjaforseta:
„Ef liinar opinberu skýrslur
Þjóðverja væru teknar sem
grundvöllur undir umræður um
tillögur mr. Hoovers virðist svo,
sem óþarfi sé að ræða yfirvof-
andi hungursneyð í Evrópu.
Þýsku yfirvöldin hafa livað eftir
annað kallað hafnbannið þjóð-
sögu og fullyrt að Þýskaland
ætti nógar matvælabirgðir. Þeir
segjast eiga yfir 7 milj. tonna
af kornvörum, en auk þess er
vitað að þeir hafa tekið meira
en 2 milj. tonna af kornvörum
frá löndum þeim, sem þeir hafa
lagt undir sig.
Breskir sérfræðingar vilja
heldur líta á ástandið eins og
það er. Innrásir Þjóðverja í ná-
grannalöndin hafa valdið stór-
kostlegum skemdum, uppsker-
an hefir eyðilagst í víðlendum
héruðum, landhúnaðarverka-
menn hafa verið teknir i
herþjónustu eða til fanga, og
flutningatækin hafa verið notuð
til hernaðarþarfa. Breskir sér-
fræðingar hafa sannfærst um
það, að nóg er til af matvæl-
um í Evrópu, ef Þjóðverjar geta
komið lagi á flutninga og merg-
sjúga ekki hin herteknu lönd.
Þýsk yfirvöld hafa árum saman
svikið sína eigin þjóð um lífs-
nauðsynjar. „Byssur í stað
smjörs“ var meira en upphróp-
un til þýsku þjóðarinnar, það
var bláköld staðreynd. Þýska
stjórnin reynir í stórum stil að
framleiða hergögn úr matvæl-
um. Þeir nota árlega um 1 milj.
tonna af kartöflum til að fram-
leiða hrensluspiritus. Glyserin
Albaniumenn taki þátt i
uppreistinni gegn ítölum.
Uppreistin dreifist út um
landið. Sagt er, að 400 Italir
liafi fallið í skærum við al-
banska uppreistarmenn.
og nytroglyserin er framleitt úr
feiti, ýmisleg efni til flugvéla-
framleiðslu er gert úr caseini,
—- það er aftur framleitt úr
undanrennu. Þjóðverjar liafa
jafnan gengið svo langt, að
flytja út matvæli til að fá éit-
lendan gjaldeyri. í stuttu máli
sagt eru matvæli þýðingarmikil
hernaðarvara og því meir sem
Þjóðverjar geta flutt inn af
þeim, þvi hetri aðstioðii liafa
þeir í stríðinu. Aulc þess er það
vitað, að alt aðrar reglur gilda
um skömtun matvæla í Þýska-
landi en í hinum herteknu lönd-
um. Þjóðverjar revna með ráðn-
um hug að fæða sjálfa sig á
kostnað hinna hertekqjix þjóða.
Ef menn skyldu vera i nokkrum
vafa um þetta, þarf ekki annað
en að lesa það, sem Völkischer
Beohacliter birti fyrir skemstu:
„Fyrsta skylda þýsku yfirvald-
anna er að sjá þýskum almenn-
ingi fyrir matvælum. Dettur
Englendingum virkilega i hug,
að Þjóðverjar fari að nota mat-
vælabirgðir sínar til að fóðra
Bretavinina á þeim í vetur?“
Daily Telegraph ritar um
matvælaástandið í Evrópu. Eng-
um kom til hugar hungursneyð
í Evrópu fyr en Hitler liafði
ráðist á öll nágrannaríki sín.
Það þarf ekki frekar vitnanna
við en minnast orða Hitlers
sjálfs, þegar hann sagði í ræðu
í Ríkisþinginu, að Þýskaland
ætti nógar matvælabirgðir,
hversu mjög sem ófriðurinn
drægist á langinn. Nú hafa
Þjóðverjar séð sér leik á borði
að auka hergagnaframleiðslu
sina, sem orðin var aðþrengd
vegna hafnbanns Breta, með
því að ræna matarbirgðum frá
hinum herteknu löndum. Þá
voru ekki flutningavandræðin,
þegar flytja átti vörur frá her-
teknu löndunum til Þýskalands,
þó að þau geri nii skjótlega
vart við sig, þegar til þess kem-
ur að skila þýfinu aftur.
Bv. Garðar hæstur með 15401 mál.
Tryggvi gamli -15253 m. - er næstur,
Bræðslusíldaraflinn var, skv. skýrslu Fiskifél. íslands, orð-
inn 1.590.551 hektolítrar á laugardagskveld. Þá um kveldið
var búið að salt í 10.216 tn., þar af 6906 matjessíld.
Sömu tölur í fyrra voru 814.707 hektólítrar í bræðshi 12.
ágúst og 50.189 tunnur í salt, en 13. ág. 1938 var bræðslu-
síldaraftinn orðinn 1.093.045 hL og söttunin nam 145 þús. tn.
Hæsta skip veiðiflotans er bv.
Garðar. Hann hafði á laugar-
dagskveld lagt á land í bræðslu
15.401 máL Næstur togaranna
er Tryggvi gamli með 15.253
mál. Þeir leggja báðir upp á
Djúpavík.
Af línuVeiðurunum er ólafur
Bjarnason hæstur með 14.984
mál, en næstur er Fjölnir með
11.183 mál.
. . Gunnvör er hæst mótorskip-
anna með 12.328 máL en næst
er Dagný með 12.314 mál.
Botnvörpungar:
Egill Skallagrímsson 5870,
Garðar 14401, Gyllir 4730, Kári
10986, Rán 12511, Skallagrím-
ur 6868, Surprise 9121, Tryggvi
gamli 15253.
Línugufuskip:
Aldan5238, Alden 3902, And-
ey 5694, Ármann 9418, Bjarki
8005, Bjarnarey 7119, Björn
austræni 4418 (94), Fjölnir
11183, Freyja 7131,Fróði 10321,
Hringur 4637, ísleifur 3700
(138), Málmey 4071, Ólaf 5354,
Ólafur Bjarnason 14984, Pjet-
ursey 5026, Reykjanes 8186,
Rifsnes 7389, Rúna 5849, Sig-
ríður 5789, Sigrún 4530 (223),
Skagfirðingur 3890, Sæborg
4630 (90), Sæfari 8109.
Mótorskip:
Aldan 2312, Ágústa 3447, Ari
1988 (92), Árni Árnason 5530,
Ársæll 2842, Arthur & Fannev
2716 (51), Ásbjörn 5189, Auð-
björn 4349, Baldur 4536 (72),
Bangsi 3552, Bára 3001, Birkir
4679 (135), Björn 6275, Bris
5164 (160), Dagný 12314, Dags-
hrún 726 (122), Dóra 5456, Eld-
ey 11136, Einar Friðrik 1749
(159), Erna 7293, Fiskaklett-
ur 5393 (129), Freyja 3347
(157), Frigg 2565, Fylkir 7983,
Garðar 7415 (47), Gautur 3076,
Geir 5893, Geir goði 6055, Glað-
ur 5622 Gotta 2934 (72), Grótta
Hefír borg með 3
þús. manns sópast
burt í fellibylnum
í U. S. A?
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Fregn frá Washington
hermir, að Rauði Krossinn
óttist um íbúa bæjarins Beau-
fort í South Carolina, en það-
an hafa engar fregnir borist
frá því er fellibylurinn reið
þar yfir. 1 bæ þessum voru
um 3000 manns. Ástandið á
fellibylssvæðinu veldur, að
eltki hefir verið unt að kom-
ast þangað.
í
4647 (68), Guðný 1135 (96),
Gulltoppur 5025 (112), Gull-
veig 4150 (36), Gunnbjöm
4690, Gunnvör 12328, Gylfi
4363, Hafþór 1301 (101), Har-
aldur 3634, Heimir 5689, Helga
5838, Helgi 5788, Hermóður
3565, Hermóður, Rvík 3468,
Hilmir 4461 (76), Hjalteyrin
3066, Hrafnkel 1 goði 6056
(277), Hrefna 8122, Hrönn
5205 (167), Huginn I 8223,
Huginn II 8560, Huginn IH
8991, Hvítingur 3531, Höskuld-
ur 3720, ísleifur 2855, Jakob
2345, Jón Þorláksson 5145,
Kári 4385, Keflvíkingur 7371,
Keilir 6483 (152), Kolbrún 4854
(241), Kristján 9060, Leó 4997,
Liv 5020, Már 6317, Mars 2452,
(163), Meta 2841, Minnie 6906
(126) , Nanna 4374 (212), Njáll
3077 (104), Olivette 3637, Pilot
3457, Rafn 7304, Sigurfari 7624,
Sildin 4146, Sjöfn 3551, Sjö-
stjarnan 4776 (314), Sleipnir
4398, Snorri 3439, Skaftfelling-
ur 4884, Stella 6424, Súlan 9982
(45), Sæhjörn 5554 (12), Sæ-
finnur 10536, Sæhrímnir 8803,
Sævar 3841, Valbjörn 5109, Vé-
hjörn 5404 (53), Veslri 3046
(28), Víðir 2896 (206), Vöggur
4452, Þingey 3418 (96), Þorgeir
goði 4002 (177), Þórir 3753
(153), Þorsteinn 9401, Sæunn
3877, Sævar, Sigluf. 2149, Val-
ur 1120 mál.
Mótorskip 2 um nót:
Aage og Hjörtur Pétursson
4388 (200), Alda og Hilmir
3849, Alda og Stathav 4138
(276), Anna og Einar Þveræing-
ur 4409, Áshjörg og Auðbjörg
4139, Baldur og Björgvin 7372
(84), Barði og Vísir 5492,
Bjarni Ólafsson og Bragi 4073
(298), Björg og Magni 3797,
Björn Jör. og Leifur Eir. 6684
(127) , Bliki og Muggur 4328,
Brynjar og Skúli fógeti 2556,
Christiane og Þór 4184, Eggert
og Ingólfur 6305 (199), Einar
og Stuðlafoss 3332, Erlingur I
og Erlingur II 6221 (118),
Freyja og Skúli fógeti 3901
(319), Frigg og Lagarfoss 5628,
Fylldr og Gyllir 4540, Gísli J.
Johnsen og Veiga 6075, Gull-
toppur og Hafalda 4760 (25),
Haki og Þór 1649. Tlannes Haf-
stein og Helgi ITákonarson 4882,
Hvanney og Síldin 2745 (103),
íslendingur og Kristján 3450
(330), Jón Finnsson og Viðir
5090 (83), Jón Stefánsson og
Vonin 5836 (110), Karl og
Svanur 931 (70), Muninn og
Þór 1138, Muninn og Ægir 4310
(450), Óðinn og Ófeigur 6615,
Reynir og Víðir 2550 (207),
Snarfari og Villi 4581 (173),
Stigandi og Þráinn 4330.
■ i-Iirn
uðóg
ðiffiö
tíijlo
r mu