Vísir - 14.08.1940, Blaðsíða 1
—-------------—-----------
Flitstjór!:
Kristján Guðiaygssorí
Skrifstoíur:
Féiagsprentsmiðjan (3. ttjeð).
30. ár.
Ritstjóri
Blaðamenn Simi:
Augtýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
185. tbl.
Hitler ætlaði að vera bnlnn
að taka LiOiidon á íiiorgfuu.
Ákafir loftbardagar háðir dag
hvern og bendlr margt til ad höfuð-
áhlaup ÞJóðv. standi fyrir dyrum.
98 þýskar flugvélar skotnar niðnr
<•
I gær en að eins 13 þreskar*
ElNKASKEYTI frá United Press. London í morguri.
Hver dagurinn líður nú af öðrum án þess nokkurt lát verði á loftbardögum.
Þjóðverjar senda hverja flugvélasveitina af annari yfir Ermarsund, til árása
á skipaflota og hafnarborgir Breta, en breski flugherinn tekur snarplega í
irióti, og undanfarna daga, er mest hefir verið barist, hafa Þjóðverjar mist yfir 60 flug-
yélar á dag eftir breskum skýrslum, og þótt fluvélatjón Breta sé einnig mikið, er það
miklum mun minna en Þjóðverja. Saka Bretar Þjóðverja um, að snúa við öllum
tölum, og segja, að jafnmargar breskar flugvélar hafi verið skotnar niður og Bretar
tilkynna að þeir hafi skotið niður þýskar o. s. frv. En hvað sem líður skýrslum Þjóð-
verja herða Bretar vörnina sem mest þeir geta. Sú skoðun er að verða almennari að
orustur þær sem daglega eru háðar, séu undanfari innrásarinnar, sem kunni að verða
reynd þá og þegar, en eitt sinn var það æílan Hitlers, að London félli í hendur Þjóð-
verja ekki síðar en 15. ágúst. Það vekur athygli í þessu sambandi, að fregnir hafa bor-
ist sem benda til, að Þjóðverjar séu farnir að prófa hinar langdrægu fallbyssur, sem
Jjeir hafa komið fyrir á Frakklandsströndum, því að hús á suðurströnd Englands hafa
orðið fyrir skemdum,annaðhvort af sprengi kúlum eða fallbyssukúlum, og er nú verið
að rannsaka kúlnabrot til þess að komast að raun um hvort hér sé um þýskar fallbyssu-
kúlur að ræða. Það er alment viðurkent, að ýmissa orsaka vegna sé það knýjandi nauð-
syn fyrir Þjóðverja, að knýja fram úrslit í haust. Hafa margar þær orsakir verið
raktar áður.
.Það var opinberlega tilkynt í London árdegis í dag, að 78
þýskar flugvélar hefði verið skotnar niður í loftbardögunum
við Bretland í gær. Voru það hinir áköfustu og hörðustu bar-
dagar, sem háðir hafa verið í lofti við strendur Bretlands enn
sem komið er. —
Þjóðverjar gerðu þrjár höfuðárásir á suður- og suðaustur-
strönd landsins.
Þrettán breskar orustuflugvélar voru skotnar niður, en 10
flugmönnum var bjargað og voru þrír þeirra særðir.
Mesta loftárásin var gerð á Southampton og voru þar skotnar
niður 22 þýskar flugvélar. Flestar voru skotnar niður af breskum
orustuflugvélum, en 3 urðu fyrir skotum úr loftvamabyssum.
Blöðin birta aðvaranir í þá átt, að úrslitastundin kunni nú að
vera að nálgast. — Þjóðverjar muni þá og þegar hætta á alt til
þess að knýja fram úrslit.
1 Times er komist svo að orði í ritstjómargrein, að frekari,
harðari loftárása megi vænta næstu daga, og svo geti farið, að
hámarki verði náð bráðlega, því að það sé orðið áliðið sumars,
innrásarhættan verði mest næstu 2—3 vikur, en svo dragi úr
henni því lengra sem Iíður.
Daily Herald segir, að Hitler kunni mjög bráðlega að taka
fullnaðarákvörðun sína um hvort gera skuli tilraun til þess að
setja lið á land í Englandi eða ekki.
Daily Express: Svo kann að fara, að innan skamms verði bar-
ist á ströndum Bretlands.
í sambandi við tjón það, sem varð á suðurströndinni, er þess
til getið, að þýskar flugvélar kunni að hafa gefið merki til þýskra
fallbyssubáta, sem hafi skotið á land. Er beðið með talsverðri
óþreyju eftir því, sem birt verður um rannsóknina á kúlna-
hrotunum.
12 breskar flugvélar eru ó-
komnar úr ánásunmn, sem
bresku sprengjuflugvélarnar
gerðu á ýmsa hernaðarstaði
Þjóðverja á meginlandinu í gær,
en fjögurra er saknað úr nætur-
leiðöngrum. Mikið tjón varð af
völdum þessara leiðangra. M. a.
urðu margar sprengingar í skot-
færageymslum í Helder í Hol-
landi. Árásir voru gerðaráBork-
umflugbátastöðina og höfn-
ina í Amsterdam.
Þýskur flugmaður, er bjarg-
aðist nauðulega í fallhlif, er
flugvél lians var skotin niður í
gær, hefir átt tal við blaða-
mann frá „Daily Telegrapli“ og
furðaði blaðamaðurinn sig á
þvi, hve vel Þjóðverjinn talaði
ensku.
Flugmaðurinn dáðist að flug-
fimi hinna ensku flugmanna, og
lét hann þess getið, að ef breski
flugherinn Iiéldi áfram árásum
sinum á Þýskaland, myndi þess
ekki langt að bíða, að Þjóðverj-
ar yrðu að biðja um frið.
„Flugvélar ykkar eru alveg
dásam.leg verkfæri“, sagði liinn
þýski flugmaður, „einkum Spit-
fire-flugvélarnar“.
Blaðamaðurinn átti tal við
annan þýskan flugmann, með-
an verið var að búa um sár hans
í liermannaspítala. „Eg þakka
mínum sæla fyrir að vera laus“,
sagði hann.
Margir hinna þýsku flug-
manna kunna ekki orð í ensku,
en sumir geta þó bjargað sér,
eins og t. d. sá, sem sagði á
bjagaðri ensku: „No more
fighting. English too good.“
Annar flugmaður, sem flogið
hafði Ileinkel 111-sprengju-
flugvél, sagði, þegar hann hafði
lent lieilu og höldnu i fallhlíf:
„Shell got port engine, shell
got middle engine, million
marlcs gone“. (Kúla hitti bak-
borðs-mótorinn, kúla liitti mið-
mótorinn. Miljón mörk töpuð).
„Hinar stórkostlegu loftárásir
Þjóðverja undanfarna daga eru
upþhafið að leifturstriðinu gegn
Bretlandi, sem þeir hafa svo
lengi verið að undirbúa“, segir
i foi-ystugrein i Times í morgun.
„Það hlýtur að hafa valdið
Þjóðverjum miklum vonbrigð-
um, hve lítið þeim hefir orðið
ágengt í viðureignum siðustu
daga, því noklcurnveginn sama
hlutfall hefir haldist i flugvéla-
tapi þeirra, þó að þeir liafi jafn-
an sent stærri og stærri flota
til Bretlands. Árásirnar hafa
magnast svo mjög, að heita má
að samfeldar orustur hafi geis-
að allan daginn í gær og standa
yfir enn, meðan verið er áð
skrifa þessa grein.
Það rekur nú loks að þvi, að
farið er að gera stanslausar á-
rásir á land vort, en það er ein-
mitt það, sem almenningur ótt-
aðist að verða myndi þegar frá
byrjun stríðsins.
Eitt af þvi, sem mesta athygli
vekur í sambandi við þessar við-
ureignir, er hið mikla ósam-
ræmi, sem er á milli tilkynn-
inga þeirra, er breska og þýska
herstjórnin gefa um tjón á flug-
vélum. Þetta ósamræmi getur
með engu móti átt rót sina að
relcja til mannlegrar óná-
kvæmni. Skýrslur þær, sem
gefnar eru út, eru svo ólíkar,
að það er eins og um alls ólíka
atburði sé að x-æða.
Nú getur liver gert sér þær
hugmyndir, sem hann vill, um
áreiðanleik fregnanna. 1 voru
landi er fullkomið lýðfrelsi og
málfrelsi. Viðureignirnar fara
að jafnaði fram að viðstöddum
fjölda sjónarvotta. Heldur
nokkur lxeilvita maður, að al-
menningur í Englandi mundi
láta bjóða sér þá frétt, að 60—
70 flugvélar hefðu verið skotn-
ar niður fyrir Þjóðverjum, ef
sjónarvottar hefðu sannfæi’st
um, að ekki liefðu verið skotnar
niður nema 10—15? Eða mætti
ekki sjá minna grand i nxat sín-
um en Jxað, «ð 4—5 sinnum
fleiri flugvélar væru skotnar
niður fyrir Bretum, en flug-
málaráðuneytið vill viður^
kenna?
Nú er það vitað, að tilkynn-,
ingar flugmálaráðunaeytisins
ganga oftast nær miklu skeinra
en fullyrðingar þær, sem hafðar
eru eftir sjónarvottum. Það er
af því, að engin flugvél er talin
skotin niður fyrir Þjóðverjum,
ef það er ekki óyggjandi sann-
að, annaðhvort að liún hafi sést
falla til jarðar, eða að náðst
liafi Ijósmynd af því. Hinsvegar
telur í'áðuneytið það ekki sem
tap hjá Þjóðverjum, ef flugvél-
ar þeirra komast undan á flótta,
jafnvel þótt allir sérfræðingar
. séu sammála um, að flugvélin
hafi ekki nokkra 'möguleika til
að ná til heimahafnar.
Það er óþarfi að ræða full-
vrðingar Þjóðverja um flug-
vélatjón vort, því að um það
getur engum blandast hugur,
enda er ekki hægt að dylja það
tjón, sem verður. Hitt er skilj-
anlegt, að Þjóðverjar treysti sér
til að segja heima fyrir hvaða
tröllasögur, sem þeim dettur í
hug, því að almenningur þar í
landi gelur ekki fylgst með í
þessum viðureignum, má ekki
afla sér ei’lendra frétta og á það
S á hættu að lenda í fangelsi, ef
j einhver efi er látinn í ljós um
í hinar „opinberu tilkynningar“,
: sem kallað eru fréttir.“
AÖvaB'SftBBÍl* IM&l
lofíárásir í
Svisslandi.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
í skeyti frá Bern er sagt frá
þvi, að aðvaranir um loftárásir
hafi verið gefnar seint i gær-
kveldi og snemma i morgun. í
morgun voru öll ljós slökt í
borginni og kastljós tekin í not-
kun. — Samkvæmt tilkynningu
hermálaráðuneytisins var fyrsta
aðvörunin gefin vegna þess, að
óvinaflugvélar höfðu flogið yfir
Jurafjöll.
í Genf voru einnig gefnar að-
vai’anir um loftárásir tvívegis.
Heyi-ðist til flugvéla, sem flugu
yfir borgina.
Samkomulagsumleit-
anir um Transylvania
að byrja.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Frégn frá Bukarest hermir,
að rikisstjórnir Ungverjalands
og Rúmeníu liafi komið sér
saman um, að byrja samkomu-
lagsumleitanir um Transylvaníu
bráðlega. Viðræðurnar munu
fara fram í Turnu Severin og
byrja næstkomandi föstudag.
Malbikun Elliðaár- og
Haínarfjarðarvega byrjuð.
Sjö km. spotti verður malbikaður.
Byrjað er nú fyrir rúmri viku að malbika Hafnarfjarðar-
Og Elliðaárveginri. Munu vinna um 20 manns á hvorum
stað. -— Nokkur deiluatriði hafa risið út af kjörum verkamanna
á þessum vinruistoðum og eru þau í aðalatriðum þessi:
1. Ákveðið hafði verið að
greiða verkamönnum kaup sitt
hálfsmánaðarlega og hefir sú
regla gilt almetlt i végavinnu
úti á landi. En launagreiðslur
verkamanna hér í Reykjavík
fara franx vikulega, og óskuðu
verkamennirnir, sem vinna i
þessum tveim, vegum, eftir þvi,
að þeirri reglu yrði fylgt.
2. Þeir verkamenn, sem unn-
ið hafa í Elliðúárveginum, hafa
verið látnir viniia í 1214 klst. á
dag með það fyrir augum, að
þó að innilegudagar kæmu
vegna óveðurs, gætu verka-
mennirnir haldið sínu fulla
vikukaupi. En venja hefir verið
að vinna af sér slíka daga eftir
á og vildu verkamenn fá að
halda þeii’ri venju.
3. Verkamenn fóru fram, á
það, að fá að vinna af sér liálf-
an laugardaginn, eins og mjög
er farið að tíðkast hér í allri
opinberri vinnu.
4. Kvartað var undan þvi, að
utanbæjai’bill væri í vinnu við
Elliðaái’veginn og farið fram á,
að það yrði leiðrétt.
Stjórn Dagsbi’únar fór á fund
vegamálastjóra í gær út af þess-
um ágreiningsmálum og óskaði
Ieiðréttingar á þeim. Að sam-
komulagi varð: 1. Að verka-
m,eun fengju vikulega borgað
kaup sitt. 2. Að verkamenn
ynriu tíu tíma á dag, en ynnu
af sér innilegudaga eftir á, þeg-
er hægt væri að koma því við.
3. Að verkamenn ynnu af sér
hálfan laugardaginn. 4. Að ut-
anbæjarbíllinn yrði færðui’ í
vinnu utan bæjar, ef einhver
annar bill fengist i hans stað
liér úr Reykjavik, en undan-
farna daga hefir vei’ið skortur
á bílurn hér í bæ,
Vegamálastjóri gekk þannig
að öllum kröfum Dagsbrúnar,
án þess að til árekstra kæmi.
Sést hér liver lcostur það er fyr-
ir verkamenn, að hafa gætna
stjórn, sem reynir að jafna
deiluatriði friðsamlega með
fullri einurð i stað þess að skella
á vinnustöðvun, livað sem út af
ber.
Þjóðviljinn hefir fjasað mik-
ið um kaupkúgun við þessa
vinnu að undanförnu og reynt
að stofna til æsinga. Er slík
framkoma síst til þess fallin,
að gera friðsamlega lausn auð-
veldai’i.
•
Alls munu 7 km. af þessum
vegum verða malbikaðir og þar
af að líkindum 5% km, af
Hafnarfjarðarveginum og er
ráðgert að þetta muni kosta
um 200 þús. króna.
Umferðin liefir aukist gifur-
lega um alla vegi hér nærlend-
is, eins og leiðir af líkum, þar
sem farartækjum hefir fjölgað
svo mjög. Undanfarin sumur
hafa venjulega farið um 600
bilar að jafnaði á dag í júní-
mánuði yfir Elliðaárbrýrnar. í
sumar hefir meðalumferðin
aukist um 50% í 900 bíla á dag.
Suma daga hafa 1100 bílar far-
ið yfir brýrnar.
ítalir gera kröfur
til landamæra-
breytinga á
Balkan.
Einkaskeyti frá United Press.
ítölsk blöð eru faiin að ræða
um landamærabreytingar, sem
nauðsynlegt sé að gera á Balkan.
Hafa þau einkum rætt nauðsyn
þess, að Jugoslavar láti af liendi
við Albani þau héruð, sem næst
liggja Albaniu norðanverðri, og
að Grilckir láti af hendi héruðin
fyrir sunnan Albaniu, en þau eru
bygð bæði albönskum og grísk-
um mönnum.
Talið er að Italir séu að ympra
á þessum kröfum til þess að
breiða yfir erfiðleika þá, sem
þeir eiga við að stríða i Albaniu,
en þar fer andúðin gegn Itölum
stöðugt vaxandi, og hefir víða
brotist út í ljósum loga.
Sjötug
er í dag frú Kristín Jóhannes-
dóttir, Egilsgötu 14, hér i bænum.
Næturakstur.
Litla bílastöðin, Lækjartorgi,
simi 1380, hefir opi'Ö í nótt.
1 gær f anst hér í bænum
senditæki, sem maður að
naf ni Sigurður Finnboga-
sön hefir starfrækt und-
anfarið. Var það breska
herlögreglan, sem fann
sendistöðina og var Sig-
urður þegar handtekinn
og stöðin gerð upptæk.
Málið er í byrjunar-
rannsókn og verður ekki
gefin út nein yfirlýsing
af hálfu setuliðsstjórnar-
innar fyrri en rannsókn-
nni er að fullu lokið.
Ef tir því sem Vísir hef ir
heyrt munu bresku yfir-
völdin líta mjög alvarleg-
um augum á þetta mál.