Vísir - 04.09.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 04.09.1940, Blaðsíða 1
 Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Féiagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Bíaöamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 30. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 4. september 1940. 203. tbl. B^ltm^artUrai tn »| árnvarð liðsiifl$« í Riftiifteiftiii Olía. BisBiidn ei'jum miiiheppna§t. Óeirðir og blóðsúthellingar víðsvegar um landið. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. F •i .7 nn o " n i “ c öðrum opinberum byggingum, en lögreglu og herliði tókst að bæla niður uppreistar- tilraun þessa, eftir harða viðureign. Samkvæmt skeyti, sem borist hefir frá hinni opinberu fréttastofu blaðamanna í Bucharest, hófst byltingartilraunin með því að maður einn hóf skothríð á lögreglu, sem hélt vörð framanvert við konungshöllina, og særði alvarlega tvo lögregluþjóna. Talið er af áreiðanlegum heimildum að með þessu hafi vakað fyrir járnvarðliðsmönnum að uppreistin skyldi hefjast, ekki aðeins í höfuðborginni sjálfn, heldur og í borgum og þorpum víðsvegar um landið. Aðalhvatamaður að uppreist þessari er fyrverandi ráðherra í rúmensku ríkisstjórn- inni Horian Sima, og ýmsir aðrir kunnir menn í rúmönskum stjórnmálum, og þá fyrst og fremst helstu foringjar járnvarðliðsins. siiiiieiar m arráðstaiiiir Breta ' Síðdegis í gær voru birtar op- inberar tilkynningar í London og Washington um mikilvægt samkomulag, sem Bretar og Bandaríkjamenn hafa gert með sér, en samkomulagsumleitanir hafa farið fram að undanförnu milli ríkisstjórnanna.Samkvæmt yfirlýsingunum hefir náðst sam- komulag um að Bretar leigja Bandaríkjunum flugvelii, flugbáta- og flota- stöðvar í nýlendum sínum í Norður- og Suður-Atlanst- hafi til 99 ára, en fá í staðinn 50 íundurspilla, og verða hin- ir fyrstu þeirra (8) afhentir i lok yfirstandandi viku, en aliir innan hálfs mánaðar. Eins og áður hfefir verið getið var það Pershing, herforingi Bandaríkjamanna á vestur- vígstöðvunum í heimsstyrj- öldinni, sem fyrstur hreyfði því opinberlega, að Bandaríkin ætti að láta Bretum í té 50 tundurspilla, en síðan hefir mál- ið verið mikið rætt vestra, og var viðurkent fyrir all-löngu, að það væri til íhugunar í Washing- ton, og síðar, að samkomulags- umleitanir færi fram. Roosevelt forseti sendi þjóð- þinginu sérstakt ávarp í tilefni af samkomulaginu. Ræddi hann mikilvægi samkomulagsins fyr- ir landvarnir Bandaríkjanna og öryggi allrar Vesturálfu og sagði, að hér væri „gefið af frjálsum huga og tekið á móti af gleði.“ Flotamálaráðherra Bretlands biríi einnig ávarp til þess að gera grein fyrir samkomulag- inu. Kvað hann báðum aðilum hinn mesta feng í því að samn- ingamir væru gerðir. Bretar gæti notað tundurspillana við fylgd kaupskipa í baráttunni gegn kafbátum Þjóðverja, en með því að láta Bandaríkin fá flota- og flugstöðvar væri aukið stórkostlega öryggi ekki að eins Bandaríkjanna, heldur og Pan- ama-skurðarins, Mið-Ameríku- Strax er atburður sá, er að ofan greinir hafði farið fram hóf- ust blóðugar óeirðir víðsvegar um borgina, en þó aðallega í kringum hinar ýmsu opinberu stöðvar. Járnvarðliðsmenn beindu sókn sinni fyrst og fremst að útvarpsstöðinni og síma- byggingunni, og tókst þeim að skera í sundur símaþræði og símaleiðslur, sem að byggingunni liggja. Urðu þarna allhörð átök, sem stóðu lengi yfir og bárust frá stað til staðar um borg- ina alla, og var herlið strax kvatt á vettvang til þess að halda ó- róaseggjunum í skef jum. Tókst lögreglu og herliði að bæla niður óeirðirnar, en þá höfðu margir særst og allmargir beðið bana, en engar opinberar til- kynningar liggja fyrir um manntjónið enn sem komið er. Til óeirða lcom í öðrum borg- um víðsvegar um landið, en þó getur fréttastofan sérstaklega um úppreistartilraunir í borgun- um Brasov og Constanza, þar sem kom til harðra átaka milli lögreglu og . herliðs og borgar- anna hinsvegar. Mikil ólga er í Transylvaniu og er rúmenski bændaforinginn dr. Maniu þang- að kominn. Hefir hann lýst vfir því að hann mUni halda uppi ó- trauðri barátfu lil þess að koma i veg fyrir ákvarðaða skiftingu Transylvaniu, og hefir honum orðið mikið ágengt í þvi að efla andstöðuna, og hefir nefnd verið stofnuð, sem stjórna skal and- róðrinum gegn afhendingu landsins. Gigurtu forsætisráðherra flutti útvarpsræðu til þjóðarinn- ar í gær og kvatti hana til þess að standa með ríkisstjórninni, og hefja ótrauð það Uppbygg- ingarstarf, sem fyrir höndum er. Talið er að nokkurs óróa gæti í Þýskalandi vegna ástandsins í Rúmeníu og fari þar fram við- búnaður til þess að grípa inn 1, ef þörf gerist. Hefir liðsauki ver- ið fluttur til rúmönsku landa- mæranna frá því sem getið var í skeytum í gær. ríkja og Canada og Newfound lands. í greinargerð sinni lagði ráð- herrann mikla áherslu á, að slíka samninga væri ekki hægt að gera, nenta alger eining væri ríkjandi þjóða milli. Samningarnir voru undirrit- aðir í Washington af Lothian lávarði, sendiherra Breta, og Mr. Cordell Hull, utanríkismálaráð- j herra Bandaríkjanna. Tundurspillarnir eru 1200 smálestir hver og flestir gamlir og var búið að taka þá úr notk- un, en voru síðar teknir (ií hlut- levsis gæslu. „iMi riti segir JLmeríku- maður í London Einkaskeyti frá United Press. London í niorgun. Edward Murrow, fréttamað- ur C. B. S. (Columbia Broad- casting System) í London talaði í útvarp vestanhafs frá London í gær. Hann sagði m. a.: „Eg lield, að liér sé verið að sýna ein 26 leikrit núna hér í London. Það er hetur að verið en í New York og aðsóknin er ágæl. Ef merki er gefið um loftárás um það hil, sem fólk ætlar heim úr leikhúsunum, þá dvelur það áfram í þeim og skemtir sér við dans, þar til merki er gefið um að liættan sé liðin hjá. Hér er enginn skortur á nauð- synjum eða matvælum. Eg liefi ekki orðið var við neinar hreyt- ingar á mataræði mínu og veit ekki af neinum, sem hefir þá sögu að segja. Fólk er rólegt í loftárásun- um. Hjón, sem eiga hörn, fara með þau í skýlin, en flestir vilja vera úti og liorfa á aðfarirnar. Þjóðin híður róleg næsta þátt- ar stríðsins. Hún er óttalaus en er ekki full af heimskulegu of- trausti. En allir eru vissir um, að Bretar muni sigra að lokum, hversu langt sem þess verður að híða. Sjálfboðaliðar. Síðastliðna viku gengu um 100 sjálboðaliðar frá Bandaríkjun- um í flugherinn í Kanada. Allir eru sjálfboðaliðar þessir æfðir ÞAÐ má segja með nokkurum sanni, að heróp ófriðarþjóð- anna sé: „Meiri oliu“. Flugvélahreyflar svelgja óliemju ósköp og aldrei minkar eftirspurnin. — Myndin er tekin í Przemysl, þar sem verið er að fylla þýska olíuflutningavagna með rúss- neskri olíu. Japanir krefjast leyfis til herflutnings um Indo-Kina Mafa þeÍF sent landssfjði*n- limi tij*slitakosti. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Frá Shanghai er símað að opinber tilkynning hafi borist þang- að frá Saigon, þar sem svo er frá skýrt, að stórnin í Indo-China hafi 2. þ. m. hafnað úrslitakostum Japana, sem fóru í þá átt, að Japönum skyldi heimilað að flytja herlið og hergögn yfir Indo- China. Kröfur þessar brutu gersamlega í bága við þau fyrirmæli, sem landstjóminni höfðu borist frá frönsku stjóminni í Vichy, og var því úrslitakostunum hafnað siklyrðislaust. Frá Tokyo simar fréttaritari , United Press hinsvegar, að tals- I maður japönsku herstjórnar- j innar liafi neitað því, að Japan- j ir hafi sent stjórnini í Indo- Kína úrslitakosti, vegna heim- ildar til flutnings japansks her- liðs yfir landið. Hafi því ofan- greind fregn ekki við nein rök að styðjast. Fréttaritari United Press i Hong-Kong liefir það eftir hresk- um heimildarmönnum þar, að Nishiharaherforingi og formað- ur japanska herráðsins í Hanoi, liafi tilkynt stjórn frönsku Indo China, að japanskar hersveitir muni hefja innrás í landið föstu- daginn 6. þ. m., nema því að eins að landstjórnin verði við kröf- um Japana um frjálsa flutninga herliðs og liergagna fyrir þann tíma. Bretar og Bandarikjastjórn fylgjast vel með öllu því, sem þarna gerist og hafa flotamála- sérfræðingar í Washington látið það álit sitt í ljós að samkomu- lag það, er gert liefir verið af stjórnum Bretlands og Banda- flugmenn. - Ýmsar fregnir hafa borist um, að sjálfboðaliðar gefi sig fram í hundraðatali í Banda- ríkjunum, til þess að ganga í breska flugherinn. Að eins æfðir flugmenn eru teknir. ríkjanna um sameiginlegar hernaðarráðstafanir, geti einnig opnað leið til samkomulags um afnot Bandaríkjaflotans af her- skipahöfn Breta i Singapore. Biiast menn alment við að til mikilla tíðinda geti dregið, ef japanska herstjórnin heldur fast við kröfur sínar og úrslitakosti gagnvart Indo-China. IIpílpsaiL'stsftrf- senfti I Rftrcskuin borgnm. Eftirlitsmaður frá öryggis- málaráðuneytinu hefir gefið út skýrslu um ástandið meðal ó- breyttra borgara á þeim svæð- um í Norður-Egnlandi, sem orð- ið hafa fyrir loftárásum Þjóð- verja. Segir þar m. a. að í öllum borgum liafi verið komið upp almenningseldhúsum, þar sem þeir fá að horða, sem mist liafa hus sín. Eru þessi eldliús og mötuneyti í skólahúsum. Þar eru líka svefnskálar fyrir þá, sem þurfa. Hafa allir á þessum svæðum lagst á eitt um að gera þessa starfsemi sem fullkomnasta og fjöldi sjálfboðaliða starfar að henni. Sérstaklega gei-ir eflir- Sjódþurðin i Dagsrún Báðir hafa játað. VÍSIR fékk þær upplýs- ingar í morgun hjá sakadómara, að hinir hand- teknu, Einar Bjömsson og Marteinn Gíslason, hafi játað að vera báðir þátttakendur í sjóðþurðinni. Upphæðir þær, sem runnið hafa til Jhvors um sig eru sem hér segir: Til Einars 14.415.00 kr. — Marteins 6.291.96 — Þeir hafa gert grein fyrir því til hvaða hluta þeir hafi eytt verulegum upphæðum, en að svo komnu máli em ekki gefnar upplýsingar um það. Einar og Marteinn em enn í gæsluvarðhaldi. 40 notaðir bílar keyptir í Bretlandi. Samkvæmt fregnum, sem Vísi bárust í morgun, hefir Sveinn Ingvarsson, forst. Bif- reiðaeinkasölu ríkisins, fest kaup á 40 notuðum bifreiðum í Englandi, sem fluttar verða bráðlega hingað til lands og seldar bifreiðastöðvunum. Forstjórinn fór utan fyrir nokkru í þeim erindum, að kaupa nýjar hifreiðar, sem einkasölunni höfðu verið boðn- ar til kaups, en er til Lundúna kom, fóru þau kaup út um þúf- ur einhverra orsaka vegna. Bað forstjórinn þá um heimild til að kaupa notaðar bifreiðar, sem nú má fá í Englandi með að- gengilegu verði, og var sú lieimild veitt af islensku stjórn- inni. Um þetta er i sjálfu sér ekki margt að segja, ef valið á bif- reiðunum tekst vel, þannig að þær séu ekld verulega úr sér gengnár. — Hinsvegar hefir reynslan orðið sú, að bifreiðar, er keyptar hafa verið notaðar hingað til lands, hafa gefist mjög illa, og viðhald þeirra orðið óhemju kostnaðarsamt. Fyrir 2—3 árum voru nokkrar slíkar hifreiðar keyptar af einkasölunni, og segja bifreiða- stjórar, að strax fyrstu mánuð- ina liafi viðlialds og endumýj- unarkostnaður þeirra numið frá kr. 300.00 upp i kr. 1500.00, en viðhald þeirra nú er talið af lcuiinugum um kr. 1000.00 á ári hverju. Verði reynslan ekki önnur og hetri af liinum nýju hifreiðum, en sú sem fengist hefir, virðist hagnaðurinn af innkaupum á gömlum bifreiðum i fylsta máta vafasamur. Er það og athyglis- vert hve gífurlegri upphæð er varið til kaupa á varahlutum á ári hverju, en slik kaup spör- uðust verulega, ef nýir og not- hæfir bílar væru keyptir til landsins. litsmaðurinn sér tíðrætt um hvað samvinna væri sérstaklega góð í námubæjunum. í stærri bæjunum hafa verið stofnuð fé- lög, sem eiga sérstaklega að hæta samúð og vináttu meðal íbúanna. Að lokum sagði eftirlitsmað- urinn, að ef árásirnar yrði harð- ari, myndi fólk að eins fylkja sér faslar saman.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.