Vísir - 12.09.1940, Side 1

Vísir - 12.09.1940, Side 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 30. ár. Reykjavík, fimtudaginn 12. september 1940. 210. tbl. Ný gerð loftvarnarbyssa tekin í notkun í London. Sigmrvegar!. Tjónið miklu yiiimisi í nótt, eii nndanfarnar nætnr. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Loftvarnimar í Ijondon voru með nokkuð öðrum hætti í nótt en undanfamar nætur. Vakti það athygli manna að skothríðin var miklu ákafari og lét hærra en nokk- uru sinni fyr. Er það upplýst að ný tegund loftvamabyssa hafi verið tekin í notkun, sem mun reynast þýsku flugvélunum skeinuhættari, en þær sem áður voru notaðar. Það vakti einnig athygli manna, að svo virtist, sem hik kæmi á þýsku flugsveitimar við skothríð þessa og mjög drægi úr sókn þeirra. Hefir hér farið að spám sérfræðinga, sem látið hafa það álit í Ijós að Bretar myndu auðveldlega finna upp örugg vamartæki gegn næturárásunum, er þeir hefðu kynst þeim nokkuð. Svo var hávaðinn mikill í loftvarnabyssunum að vart heyrð- ist til árásarflugvélanna, sem sveimuðu yfir borginni. Komu þær ekki í stórhópum, en höguðu sókn sinni þannig að þær dreifðu sér og flugu inn yfir borgina ein og ein, eða tvær saman. Kúlunum úr loftvarnabyssunum og sprengjum óvinaflugsveit- anna rigndi yfir borgina, en svo sem áður er getið lamaðist sóknin mjög við hina óvæntu skothríð. Verkamenn fóru árla í morgun um götur borgarinnar og söfnuðu saman kúlum og sprengjubrotum, sem á strætunum lágu. Flugsveitirnar þýsku beindu að þessu sinni, eftir að loft- varnaskothríðin var hafin, árás- um sínum á úthverfi Lundúna, en fáum sprengjum var varpað niður yfir miðhorgina, — miklu færri en undanfarnar nætur. Fréítaritarar United Press, sem fóru snemma í morgun víða um borgina, skýra svo frá að tjón af árásum þessum liafi orðið miklu minna en undanfarnar nætur. í gær mátti heita, að haldið væri uppi stöðugum árásum á London, og var þá varpaJð sprengjum yfir ýms liverfi, sem áður liöfðu sloppið hjá árásun- um. Var varpað niður mörgum ikveikjusprengjum og kom upp eldur víða. í fyrri nótt voru brunarnir svo miklir, að hálin blöstu við gluggunum í Fleet Street alla nóttina og ljómuðu þar alt upp. Sprengjum rigndi einnig yfir Westend og ollu þær þar verulegu tjóni. Er talið að í gær hafi sprengjum enn verið varpað á fæðingardeild, en manntjón varð þar ekkert. Konungur Bretlands og drotning fóru í gær um Lund- únaborg til þess að skoða skemdir þær, sem orðið höfðu, aðallega í Eastend. Meðan á Jæirri för stóð var ger loftárás og leituðu konungshjónin niður :í loftvarnabyrgi undir lögreglu- stöð einni. Var þar fjöldi fyrir, aðallega konur, sem liyltu kon- ungshjónin og létu í ljós, að Jiær óttuðust ekki árásir þær, sem gerðar yrðu, en myndu fyrir sitt leyti stuðla eftir mætti að framhaldandi vömum horg- arinnar. KonungshöIIin, Buckingham Palace, varð fyrir sprengju, og hrotnuðu súlur í höllinni og skemdir urðu á henni aðrar. Brotnuðu gluggar allir í norð- urhlið hallarinnar, en mann- tjón varð ekkert, með því að þjónustufólk alt hafði forðað sér í tæka tið. Var hér um tíma- sprengju að ræða, sem sprakk ekki fyr en alllöngu eftir að henni hafði verið varpað niður. Ræða Churchills. Mr. Churchill, forsætisráð- herra Breta, flutti ræðu i hreska útvarpinu í gær, og þótt hann gerði sér góðar vonir um bar- áttu Breta, lýsti hann ástand- inu svo, að það hvatti síst til ofmikillar bjartsýni. Hélt liann því fram, að Þjóðverjar undir- hj’ggju innrás sina sem ákafast, og mætti niarka það af skipa- ferðum þeim, sem þeir héldu uppi í skjóli fallhyssa sinna á Ermarsundsströnd Frakklands alt suður til Brest og jafnvel til Biskayaflóa.^ Stór skip og smá halda um sundið í hundraðatali og slíkum flota er ekki unt að halda þannig til lengdar á hættulegum stöðum, án þess að til innrásar komi svo fljótt sem unt er. Allmikill viðbúnaður er einnig í Noregi og má vænta, að einnig verði að verjast innrás þaðan. Taldi CliurchiII líkindi á því að innrás myndi þegar verða reynd í næstu viku, — í það minsta myndi liún verða örlagarik. Ghurehill hélt því fram, að Þjóðverjum liefði algerlega mishepnast að ná yfirráðunum í lofti. Þeir hefði gert liarða hríð til þess, með árásum sínum á flugstöðvar í Kent og öðrum liéruðum í nálægð London, en mist 3 flugvélar móti liverri, sem Bretar mistu, en 6 flug- menn móti hverjum, sem féll af liði Breta. Hann kvað engan þurfa að ganga þess dulinn, hversu hættulegur leikur þessi væri — með þessu áframhaldi væri þýski flugflotinn stórlam- aður eftir nolclcrar vikur, en að ætla sér að gera innrás í Bret- land án þess að Iiafa yfirráðin í lofti, væri stórhættulegt. Churchill sagði, að ýmsum getum mætti að því leiða live- nær innrásin yrði gerð, hvort hún yrði gerð á England, Skot- land eða írland eða öll löndin samtímis, en livað sem öllum getum liði, yrði menn að húast við innrás og það mjög bráð- lega. Churcliill ræddi varnir Bret- lands og sagði, að Bretar hefði nú í lieimalandi sínu miklu betri og fullkomnari her en nokkuru sinni. I lok ræðu sinnar sagði Ghur- chill, að menn í öðrum löndum mætti vera þess fullvissir, að hreska þjóðin mundi sýna hug- prýði og þrek í öllum raunum — í þjáningunum mundi hún öðlast þann styrk, sem leiddi hana til sigurs, ekki að eins fyr- ir hana sjálfa, heldur fyrir allar þjóðir og framtíð þeirra. Ilvatti Churchill þjóðina til haráttu og taldi góðar líkur á endanlegum sigri Breta og stuðningsþjóða þeirra. Fór hann liörðum orðum um Iiitler og alt hans athæfi, sem hann taldi að ætti fyrir sér að út- mást, þannig að Evrópa yrði bygð upp á nýjum og traustum grundvelli. Loftárásirnar. Þjóðverjar héldu áfram loft- árásum sínum á Bretland í gær- kveídi og fram eftir nóttu, og var tilkynt í London ld. 11.30 í gærkveldi, að 90 þýskar flugvél- ar hefði verið skotnar niður, en Bretar sögðust liafa mist 17. Ekki voru öll kurl komin til grafar, er þessi tilkynning var hirt. S. 1. mánudag biðu um 400 manns hana í London, en 1400 særðust, og í gærkvedi var kunnugt, að í gær höfðu 18 menn beðið bana en 286 særst. Mikill hluti þeirra, sem fórust í fvrradag, liöfðu safnast saman í skóla einum, og var Joetta fóllí, sem hafði áður orðið að flýja heimili sín vegna lofíárása. Þjóðverjar hófu skothríð í gær af hinum langdrægu fall- hyssum sínum við Doversund og var skotið af þeim yfir sundið með nokkuru millibili allan dag- inn og var skothríðinni ekki lok- ið seint i gærkveldi. Karol konungrnr á lelð til Ameríkn London i morgun. United Press. Samkvæmt fregn frá Lugano lagði Karol konungur ásamt frú Lupescu af stað frá Milano síð- astliðinn þriðjudag og fóru um Torino í gær. Elcki er vitað með vissu hvert ferðinni er lieitið, en talið er sennilegast, að konung- urinn muni legga leið sína um Frakkland og Spán til Portu- gals og þaðan til Ameríku. Berlínarfréttaritari Afton- bladet í Stokkliólmi símar hlaði sínu, að hernaðarsérfræð- ingar Jiar sé komnir á þá skoð- un, að ckki sé mögulegt að sigra Breta með loftflotanum og árásum hans. Aðeins með því að koma liði á land í stór- um stíl verði þetta mögulegt. Loftárás á Berlín. London í morgun. United Press. Loftárás var gerð á Berlín kl. 12,45 í nótt og enn önnur kl. 2,15. Var flogið yfir borgina í þremur bylgjum og komust tvær sveitirnar inn yfir hana miðja. Opinberlega er tilkynt í Ber- lín, að íkveikjusprengjum hafi verið varpað niður og hafi kom- ið upp eldur í íbúðarhúsum í nánd við miðsvæði borgarinn- ar. Ennfremur hafi sprengjunt verið varpað niður í Tiergarten og séu þar nokkrir smágígir. Samkvæmt skeyti, sem barst frá United Press seinni partinn í gær var sprengjum varpað í fyrrinótt yfir ríkisþingsbygg- inguna, Brandenburger Thor og hús rétt hjá aðsetri sendiherra Bandaríkjanna, sem skemdist þó ekki. II li rstfið, segir Roosevelí. London í morgun. United Press. Roosevelt hélt ræðu í gær í verkalýðsfélagasambandinu, og lét þar í ljós þá skoðun sína, að ltann teldi fráleitt, og til þess myndi aldrei koma, að Banda- ríkin háðu stríð utan Ameríku, nema því aðeins að á þau væri ráðist. Við munum hvorki senda landher, flota né lofther til ann- ara landa eða heimsálfa, til þess að taka þar þátt í stríði, og mun stefna mín í þeim málum verða hin sama og er yfirlýst stefna flokks míns. Bandaríkin munu að sjálfsögðu gæta hagsmuna sinna á hvern þann hátt, sem henta þykir best, en það sam- MfoSLaj- ~r Walther von Reichenau, hers- höfðingi nýtur nú meira álits lijá Hitler, en nokkur annar þýskur hershöfðingi. Ilann stjórnaði sókn Þjóðverja á hendur Pólverjum og í vor stjórnaði hann áttunda þýska hernum, sein hraust í gegnum Maginot-línuna og lil hafnar- borganna við Ermarsund. Vélbátar hætta síldveiðum. Fyrstu vélbátarnir komu af síldveiðum til Vestmannaeyja hinn 9. þ. m., og hafði veiðin gengið mjög að óskum, enda Iétu skipshafnir vel af. Eru bátarnir nú sem óðast að hætla veiðum. Dragnótaveiðar hafa að vanda verið stundaðar frá Eyjum, en liafa gengið treg- lega, enda hafa gæftir yerið mjög stirðar. rýmist ekki hagsmunum vorum né stefnu, að Bandaríkin blandi sér með vopnavaldi í annara þjóða deilur. Hinsvegar horfir málið alt öðru vísi við, ef ráðist verður á Bandaríkin. Þá mun stjórn þeirra ekki hika við að senda allan nauðsynlegan her- afla til annara landa og heims- álfa til þess að verja hlut sinn. JSSaE3ífflcra«-— Rússar og Svíar hafa gert með sér nýjan viðskiftasainn- ing. Kaupa Rússar stál, vélar o. fl. af Svíum, sem fá í staðinn korn, oliu o. m.'fl. Samsæti Guðm. Ásbjörnssonar. Svc sem getið var um í blað- inu í gær, efndu vinir og samr starfsmenn Guðmundar Ás- bjömssonar til samsætis hon- um til heiðurs, og komu menn saman í Oddfellowhöllinni kl. 7 síðd. Tómas Jónsson borgarritari stjórnaði hófinu og ávarpaði heiðursgestinn og samkomuna með nokkrum orðum i upphafi. Knud Zimsen fyrv. borgarstj. flutti aðalræðuna fyrir minni lieiðursgestsins og skýrði i stór- um dráttum frá ævi lians og störfum. Frú Guðrún Guðlaugs- dóttir flutti lieiðursgestinum. á- varpsorð í hundnu máli, er birt- ist hér í blaðinu í dag. Hjalti Jónsson konsúll liélt skemtilega ræðu, þar sem hann dró dæmi úr sjómenskunni, og síra Bjarni Jónsson vígslubiskup tók mjög í sama streng, en færði fram að lokum þakkarorð til Guð- mundar af liálfu K.F.U.M. Hall- grímur Benediktsson, formaður verslunarráðsins, þakkaði Guð- mundi unnin störf i þágu versl- unarstéttarinnar, og Magnús Jochumsson þakkaði störf hans í þágu Oddfellowa. Haraldur Guðmundsson tók til máls af hálfu minni hlutans i bæjar- stjórn, eins og hann orðaði það, og lýsti forsetastörfum Guð- mundar og sanngirni hans. Frú Anna Zimsen flutti afmælis- harninu þaklcir frá Rehekku- stúkunni og lolcs talaði prófess- or Bjarni Benediktsson og lýsti yfir því, að bæjarráð hefði sam- þykt að fá góðan málara lil að gera mynd af Guðmundi, sem skyldi geymd í salarkynnum bæjarstjórnar. Á milli ræðanna las borgar- ritari upp skeyti og kveðjur, sem borist höfðu og skiftu }>au hundruðum. Borðum var hrundið kl. 11, en því næst var dans stiginn fram til kl. 4. Ávarpaði Eggert Kristjánsson stórkaupm. þá af- mælisharnið, af hálfu kaup- manna og Jjakkaði unnin störf. Guðmundur Áshjörnsson á- varpaði að lokum samkomuna og þakkaði auðsýnda vináttu. Fód hófið að öllu leyti hið besta fram. mm ÞÝSKIR FANGAR. — Myndin viða í fangahúðum, en auk þess hér að ofan sýnir þýska fanga í Bretlandi. Eru þeir geymdir þar hafa margir þeirra verið flultir til Kanada.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.