Vísir - 13.09.1940, Page 1

Vísir - 13.09.1940, Page 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Ritstjóri Blaðamenn Sími: Augiýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 211. tbl. Tvær árásir gerðar í morgun og hin síð- ari, er hófst kl. 8.30, stendur enn yfir. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. BT oftárásunum á London er stöðugt lialdið áfram, og nú í morgun hafa þegar ver- J ið gerðar tvær árásir. Hófst hin fyrri kl. 6.30 og stóð alllengi yfir, en hin síðari kl. 8.30 og er barist enn af kappi yfir Lundúnaborg og heyrist dynurinn frá loftvamabyssunum um alla borgina. Þýsku flugsveitunum, sem lögðu af stað við birtingu í morgun, og stöðugt sækja að suðaustur Englandi og London, hefir tekist að varpa niður miklu af sprengjum, — mun meira en þeim hefir hingað til tekist í árásum sínum að degi til. Er þetta viður- kent í London og ástæðan talin sú að mjög er lágskýjað og því erfiðara um vamir en ella. Breskar flugsveitir réðust þegar gegn hinum þýsku, er þær nálguðust ströndina, og er nú barist yfir London og nágrenni borgarinnar. Er erfitt að fylgjast með því sem gerist í lofti yfir borginni, en vitað er að allmargar fiugvélar hafa þegar verð skotnar niður. Lundúnabúar sýna hina mestu rósemi þrátt fyrir hinar stöðugu árásir, sem gerðar eru á borgina, og í morgun hélt fólkið ótrautt til vinnu sinnar þótt loftvarnamerki væru gefin. Þótt stórfeidar tmflanir hafi orðið vegna hinna tíðu loftárása og borgararnir hafi litla hvíld og iítinn svefn fengið, er vamarþróttur þeirra enn óbilaður, og er unnið daga og nætur að björgunar- og hjálparstarfi. Þjóðverjar varpa stöðugi niður allmiklu af íkveikjusprengj- um, og kom þannig í nótt upp eldur víða í íbúðar- og verslunar- húsum, en talið er að slökkviliðinu hafi tekist að ráða fljótlega niðurlögum eldsins, — áður en verulegt tjón hafi af honum leitt. Þjóðverjar hafa þó af þessu, sem og ástandinu í London yfirleitt, alt aðra sögu að segja. Telja þeir sig hafa unnið stórkostlegt tjón á ýmsum hemaðarlega mikilvægum stöðum, svo sem olíu- stöð í Port Victoria, Spitfireverksmiðjunum í Southampton og víðar. Þjóðverjar telja ennfremur að erlendir fréttaritarar skýri svo frá, að ástandið í London sé hið hörmulegasta. Öll unv ferð megi heita stöðvuð og auð- ar og mannlausar götur. íbú- arnir, sem hafist mestan tíma sólarhringsins við i loftvarnar- byrgjum séu úrvinda af þreytu og svefnleysi, og óskipulegur flóttamannastraumur Iiggi stöðugt frá borginni. Telja þeir að 1% miljón manna liafi þeg- ar flúið borgina, og geri nú stjómin ráðstafanir til þess að varna borgurunum að flýja. Verslunarhverfið milli Guild- liall St. Pauls liggi algerlega í rústum og hafi eyðst af brun- um. Umferð liggi að heita má með öllu niðri millum ákveð- inna borgarbluta, og stórkost- legir erfiðleikar séu svo að segja á öllum, sviðum atbafna- lífsins. Vekja Þjóðverjar at- hygli á þvi, að með því að yfir- vinna London og eyðileggja þar belstu mannvirki, hafi þeir stig- ið drjúgt spor í þá átt að sigra Breta. Mikill hluti útflutnings og innflutningsverslunarinnar fari um London, þar séu stærstu vörugeymslur og afkastamestu verksmiðjur Bretlands o. s. frv. Það var tilkynt í London snemma í morgun, að loftárásir liefði verið gerðar á London síð- astliðna nótt, en þær befði ekki verið nándar nærri eins stór- kostlegar og undangengnar fimm árásir. I fyrsta skifti á 'tæpri viku fengu Lundúnabú- ir góðan nætursvefn. Sprengikiilum var varpað yfir London og fleiri staði, en það er talið að manntjón og eigna liafi verið mjög lítið í samanburði við það, sem verið liefir að und- anförnu. Flugvélarnar flugu mjög hátt og virðasl þýsku flugmennirnir þegar hafa feng- ið smjörþefinn af því hversu hættulegar nýju loftvarnabyss- urnar reynast. Er það viðurkent jafnvel í þýskum fregnum þar sem svo er að orði komist, að byssukúlurnar hafi sprungið alt í kringum flugvélarnar og vald- ið tjóni á sumum, þrátt fyi’ir það, að þær voru i mikilli hæð. Nokkur hús hrundu í tveimur borgpm í Lancasliire og í út- hverfum Lundúnaborgar s. 1. nótt, en manntjón varð litið. Þýsk flugvél hrapaði niður á götu i borg i Wales. Flugmað- urinn var handtekinn. Árás var gerð á skipaflota við Skotland, en hún mishepnaðist algerlega. Tala þeirra, sem farist liafa af völdum loftárása er stöðugt minkandi. Kunnugt er, að 1175 manns bafa farist undangengna 5 daga, en 4823 særst, en mann- tjónið minkar dag frá degi. Þýslai birgðaskipi hefir verið sökt við Frakklandsstrendur og Ivö önnur urðu fyrir skemdum. Kviknaði í þeim báðum. — Skotið var af vélbyssum á þýska E-báta sem fylgdu skipunum. Ógurleg sprenging í dynamit-verksmiðju. Einkaskeyti til Vísis. London, í morgun. Ógurleg sprenging varð í Hercules verksmiðjunum í Ken- ville, New Jersey í gær. — í verksmiðju þessari er búið til púður og dynamit fyrir her og flota Bandaríkjanna. Samkvæmt fregnum í gær- lcveldi liafa 50 menn farist, en 200 særst. Dynkirnir beyrðust úr mikilli fjarlægð og jarðhræringar varð vart í 200 enskra mílna í'jar- lægð. Nokkur hluti verksmiðjanna gercyðilagðist. Rússar hafa nýlega tilkynt Þjóðverjum og ítölum, að þeir vænti þess að framvegis verði þeir hafðir með í ráðum, er ör- lög Dónárríkjanna verða á- kveðin. Krefjast þeir, að þeir verði boðaðir til allra ráðstefna, sem um þessi mál kunna að fjalla, en svo sem menn muna gengu ítalir og Þjóðverjar alveg fram hjá Rússum er Vínarfundurinn var baldinn. Rússar ásaka Rúmena fyrir uppvöðslusemi og yfirgang við landamæraverði þeirra, en þar virðist liafa lcomið til einliverra átaka nú nýlega. Nýlendur Hol- lands gefa Bret- um 58 flugvélar. Einkaskeyti til Vísis. London, i morgun. Wilhelmina Hollandsdrotning hefir afhent Georgi Bretakon- ungi fjárhæð mdkla til þess að kaupa 40 Spitfire-flugvélar og 18 Lockheed-sprengjuflugvélar. — Það ex-u Hollendingar í Hol- lensku Austur-Asíu, sem liafa gefið féð og afhent það drotn- ingunni til fyrirgreiðslu. Óeirðir í Transylvaníu. Samkvæmt síðustu fregnum, sem boi’ist liafa af hernámi Ti’ansylvaníu, hefir komið til á- rekstra millum Ungvei-ja og Rúmena, og voru tildrögin þessi: í borg einni höfðu Ung- verjar komið fyrir sigurboga, ásamt myndum af Hitler, Mussolini og Horthy ríkisstjóra Ungverjalands, og var ætlunin að ungverska hei’liðið héldi Hitler skipaði Joachim von Stúlpnagel, bershöfðingja í her- foi’ingjaráðinu, til að hafa eftir- lit með því, að Frakkar fari að öllu leyti eftir vopnahlésskil- málunum. Stulpnagel er því liinn raunvei’ulegi lierra í þeim hluta Fi-akklands, sem heyrir undir stjórn Petains i Vichy. — Lætnr stjornin i Vichy af röldnm? Samkvæmt fregnum, sem borist hafa frá New York, eru nú allar líkur á því að stjómin í Vichy muni hrökklast frá völdum, með því að hún hefir neitað að verða við nýjum kröfum frá hendi Þjóðverja og ítala. Kröfur þessar eru sagðar að vei-a margskonar, en þó aðal- lega þær, að Frakkar afhendi vissar greinir matvæla til Þjóð- vei’ja, en ítalir ki-efjast liins- vegai’, að allar nýlendur Frakka í Afi’íku verði afvopnaðar. Við hvoi’ugu þessu vill stjórnin vei’ða, og er þvi búist við að Þjóðverjar og ítalir muni her- nema þann hluta Frakklands, senx enn er í lxöndum stjórnar- innar í Vichy og muni hún hröklast frá völdum. Einn af aðalmönnunum í stjórn Frakklands nú er Adrien Mar- quet. Hann var vei’klýðsleiðtogi áður, og stofnaði 1933 „neo- socialista“-fIokk í Frakklandi. Hann er nú aðalmaðurinn í stjórn Petains, ásamt honum og Pierre Laval. þarna innreið sína. Þegar rúm- ensku hersveitirnar fóru úr boginni óku þær brynvörðum vögnunx á sigui’bogann og lögðu hann i rúst. Rúmenskir yfirfor- ingjar tættu í sundur fána ít- ala, Þjóðvei’ja og Ungverja og tröðknðn á þeim. Ilefir þetta leitt til árekstra, en ekki er vit- að um manntjón. Segir Ffi’ökkuiiB tV**ifi* veH*kuiBi. Islendingar flnttir heim yfir Petsamo 8amþ^kki he^ja ófiriðaraðila lig^ur fyrifi*. I morgun barst sú fregn hingað til lands að fengið væri sam- þykki beggja ófriðaraðila til þess að íslendingar þeir, sem. er- lendis dvelja, verði fluttir heim yfir Petsamo. Svo sem kunnugt er höfðu Bretar áður gefið samþykki sitt til þessa, en aftur mun hafa staðið á samþykki Þjóðverja. Er- indreki íslands í Kaupmannahöfn hefir, í umboði ríkisstjórnar- innar, haft mál þessi með höndum til úrlausnar og mun nú endanlega frá þessu gengið. Reynist fregnin rétt, — og ekki er ástæða til að ætla annað, — mun ríkisstjómin þegar gera nauðsjmlegar ráðstafanir til þess að heimflutningurinn geti farið fram án tafar. Þótt íslendingar þeir, sem erlendis dvelja, hafi engan skort liðið, og þeim hafi verið séð fyrir nauðsynjum, hafa þeir sennilega flestir haft full- an hug á því að komast heim. Er mjög ánægjulegt að svo giftusamlega hefir úr þessu raknað að lokum, og vonandi gengur alt að óskum úr þessu. — Kommúnistar skora í gær á stjórn Dagsbrúnar að halda fund fyrir 9. sept. Fáir verkamenn hafa skrifað undir þessa áskorun. Kommúnistar hafa beitt sér fyrir því undanfarna daga aÖ safna áskorunum til stjómar Dagsbrúnar um að halda fund í félaginu, og voru plögg þessi afhent stjórn félagsins í gær. 153 menn liafa skrifað undir skjalið, en af þeim er vitað að 85 menn eru félagsbundnir í Dagsbrún, en hinir 08 eru ann- aðhvort í öðrum vei-kalýðsfé- lögum eða ófélagsbundnir og sumir ófélagshæfir, l. d. Brynj- ólfur Bjarnason, sem rekinn var úr Dagsbrún fyrir óspektir á fé- lagsfundum og vankunnáttu í hegðun. Undirskriftaskjölin eru dags. 2. þ. m. og er slcorað á sljórnina að halda fund i „uppliafi næstu viku“. Að sjálfsögðu getur stjórnin ekki orðið við þeim til- mælum, með því að fyrir hand- vömm kommiinista og tregðu Dagsbrúnarfélaga til undir- skrifta, er sú vika liðin, sem tal- ið er nauðsyn að lialda fund í samkv. skjalinu. Mál þau, sem kommúnistar vildu ræða eru: deilan við Höj- gaard & Schultz, sem þegar er leyst, sjóðþurðarmálið, sem stjórnin fyrir sitt leyti hefir af- greitt, og greiðsla vinnulauna, sem stjórnin hefir enn til með- ferðar. Úr því að umi’æðuefni fund- arins eru ekki önnur en þau, sem að ofan greinir, og þegar liafa verið leyst að nolckru eða öllu, er engin ástæða til að ætla að þessir verkamenn telji nú vera nauðsyn á fundi, þótt þeir teldu það 2. þ. m., er öll þessi mál voru á döfinni, óleyst og ó- afgreidd frá hendi stjórnarinn- ar. Það þarf því nýja áskrif- endasöfnun og ný mál til þess að stjórn Dagsbrúnar sé skyld til að halda fund, og að sjálf- sögðu yrði sú áskorun að koma ffrenjulega róleg nðtt. 3 menn teknir úr nmferð, Síðastliðin nótt mun hafa verið einhver sú rólegasta uin alllangt skeið, var Vísi tjáð í morgun þegar bLaðið átti tal við lögregluna. Vegna ölvunar voru einir 3 — þrír — menn „teknir úr umferð“ og er það mjög lítið, þegar þess er gætt, að tala þeirra, sem settir hafa Verið inn fyrir ölvun, hefir stund- um komist upp í 25—30 á nóttu. Vonandi er þessi nótt ekki neitt „logn fyrir storminn“ um helgina, heldur að svona haldi áfram framvegis, eða helst að ölvunin á almánna- færi hverfi með öllu úr sög- unni. frá Dagsbrúnarmönnum einum, en ekki ófélagshæfum komm- únistum. Núvex-andi stjórn Dagsbrúnar mun gæta hagsmuna félagsins i hvívetna og gefa félagsmönn- xxm um það nákvæma skýrslu á sínurn tíma, og gefst þá komm- únistum vafalaust færi á að láta ljós sitt skína. Lúðrasveitin Svanur leilcur á Austurvelli i kvöld kl. 9 ef veður leyfir, undir stjórn Karl Ó. Rxxnólfssonar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.