Vísir - 13.09.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Augiýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
211. tbl.
Tvær árásir gerðar í morgun og hin síð-
ari, er hófst kl. 8.30, stendur enn yfir.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
BT oftárásunum á London er stöðugt lialdið áfram, og nú í morgun hafa þegar ver-
J ið gerðar tvær árásir. Hófst hin fyrri kl. 6.30 og stóð alllengi yfir, en hin síðari
kl. 8.30 og er barist enn af kappi yfir Lundúnaborg og heyrist dynurinn frá
loftvamabyssunum um alla borgina.
Þýsku flugsveitunum, sem lögðu af stað við birtingu í morgun, og stöðugt sækja
að suðaustur Englandi og London, hefir tekist að varpa niður miklu af sprengjum, —
mun meira en þeim hefir hingað til tekist í árásum sínum að degi til. Er þetta viður-
kent í London og ástæðan talin sú að mjög er lágskýjað og því erfiðara um vamir en
ella.
Breskar flugsveitir réðust þegar gegn hinum þýsku, er þær nálguðust ströndina, og
er nú barist yfir London og nágrenni borgarinnar. Er erfitt að fylgjast með því sem
gerist í lofti yfir borginni, en vitað er að allmargar fiugvélar hafa þegar verð skotnar
niður.
Lundúnabúar sýna hina mestu rósemi þrátt fyrir hinar stöðugu árásir, sem gerðar
eru á borgina, og í morgun hélt fólkið ótrautt til vinnu sinnar þótt loftvarnamerki
væru gefin.
Þótt stórfeidar tmflanir hafi orðið vegna hinna tíðu loftárása og borgararnir hafi
litla hvíld og iítinn svefn fengið, er vamarþróttur þeirra enn óbilaður, og er unnið
daga og nætur að björgunar- og hjálparstarfi.
Þjóðverjar varpa stöðugi niður allmiklu af íkveikjusprengj-
um, og kom þannig í nótt upp eldur víða í íbúðar- og verslunar-
húsum, en talið er að slökkviliðinu hafi tekist að ráða fljótlega
niðurlögum eldsins, — áður en verulegt tjón hafi af honum leitt.
Þjóðverjar hafa þó af þessu, sem og ástandinu í London yfirleitt,
alt aðra sögu að segja. Telja þeir sig hafa unnið stórkostlegt
tjón á ýmsum hemaðarlega mikilvægum stöðum, svo sem olíu-
stöð í Port Victoria, Spitfireverksmiðjunum í Southampton og
víðar.
Þjóðverjar telja ennfremur
að erlendir fréttaritarar skýri
svo frá, að ástandið í London
sé hið hörmulegasta. Öll unv
ferð megi heita stöðvuð og auð-
ar og mannlausar götur. íbú-
arnir, sem hafist mestan tíma
sólarhringsins við i loftvarnar-
byrgjum séu úrvinda af þreytu
og svefnleysi, og óskipulegur
flóttamannastraumur Iiggi
stöðugt frá borginni. Telja þeir
að 1% miljón manna liafi þeg-
ar flúið borgina, og geri nú
stjómin ráðstafanir til þess að
varna borgurunum að flýja.
Verslunarhverfið milli Guild-
liall St. Pauls liggi algerlega í
rústum og hafi eyðst af brun-
um. Umferð liggi að heita má
með öllu niðri millum ákveð-
inna borgarbluta, og stórkost-
legir erfiðleikar séu svo að
segja á öllum, sviðum atbafna-
lífsins. Vekja Þjóðverjar at-
hygli á þvi, að með því að yfir-
vinna London og eyðileggja þar
belstu mannvirki, hafi þeir stig-
ið drjúgt spor í þá átt að sigra
Breta. Mikill hluti útflutnings
og innflutningsverslunarinnar
fari um London, þar séu stærstu
vörugeymslur og afkastamestu
verksmiðjur Bretlands o. s. frv.
Það var tilkynt í London
snemma í morgun, að loftárásir
liefði verið gerðar á London síð-
astliðna nótt, en þær befði ekki
verið nándar nærri eins stór-
kostlegar og undangengnar
fimm árásir. I fyrsta skifti á
'tæpri viku fengu Lundúnabú-
ir góðan nætursvefn.
Sprengikiilum var varpað yfir
London og fleiri staði, en það er
talið að manntjón og eigna liafi
verið mjög lítið í samanburði
við það, sem verið liefir að und-
anförnu. Flugvélarnar flugu
mjög hátt og virðasl þýsku
flugmennirnir þegar hafa feng-
ið smjörþefinn af því hversu
hættulegar nýju loftvarnabyss-
urnar reynast. Er það viðurkent
jafnvel í þýskum fregnum þar
sem svo er að orði komist, að
byssukúlurnar hafi sprungið alt
í kringum flugvélarnar og vald-
ið tjóni á sumum, þrátt fyi’ir
það, að þær voru i mikilli hæð.
Nokkur hús hrundu í tveimur
borgpm í Lancasliire og í út-
hverfum Lundúnaborgar s. 1.
nótt, en manntjón varð litið.
Þýsk flugvél hrapaði niður á
götu i borg i Wales. Flugmað-
urinn var handtekinn.
Árás var gerð á skipaflota við
Skotland, en hún mishepnaðist
algerlega.
Tala þeirra, sem farist liafa af
völdum loftárása er stöðugt
minkandi. Kunnugt er, að 1175
manns bafa farist undangengna
5 daga, en 4823 særst, en mann-
tjónið minkar dag frá degi.
Þýslai birgðaskipi hefir verið
sökt við Frakklandsstrendur og
Ivö önnur urðu fyrir skemdum.
Kviknaði í þeim báðum. —
Skotið var af vélbyssum á þýska
E-báta sem fylgdu skipunum.
Ógurleg sprenging
í dynamit-verksmiðju.
Einkaskeyti til Vísis.
London, í morgun.
Ógurleg sprenging varð í
Hercules verksmiðjunum í Ken-
ville, New Jersey í gær. — í
verksmiðju þessari er búið til
púður og dynamit fyrir her og
flota Bandaríkjanna.
Samkvæmt fregnum í gær-
lcveldi liafa 50 menn farist, en
200 særst.
Dynkirnir beyrðust úr mikilli
fjarlægð og jarðhræringar varð
vart í 200 enskra mílna í'jar-
lægð.
Nokkur hluti verksmiðjanna
gercyðilagðist.
Rússar hafa nýlega tilkynt
Þjóðverjum og ítölum, að þeir
vænti þess að framvegis verði
þeir hafðir með í ráðum, er ör-
lög Dónárríkjanna verða á-
kveðin.
Krefjast þeir, að þeir verði
boðaðir til allra ráðstefna, sem
um þessi mál kunna að fjalla,
en svo sem menn muna gengu
ítalir og Þjóðverjar alveg fram
hjá Rússum er Vínarfundurinn
var baldinn.
Rússar ásaka Rúmena fyrir
uppvöðslusemi og yfirgang við
landamæraverði þeirra, en þar
virðist liafa lcomið til einliverra
átaka nú nýlega.
Nýlendur Hol-
lands gefa Bret-
um 58 flugvélar.
Einkaskeyti til Vísis.
London, i morgun.
Wilhelmina Hollandsdrotning
hefir afhent Georgi Bretakon-
ungi fjárhæð mdkla til þess að
kaupa 40 Spitfire-flugvélar og
18 Lockheed-sprengjuflugvélar.
— Það ex-u Hollendingar í Hol-
lensku Austur-Asíu, sem liafa
gefið féð og afhent það drotn-
ingunni til fyrirgreiðslu.
Óeirðir í
Transylvaníu.
Samkvæmt síðustu fregnum,
sem boi’ist liafa af hernámi
Ti’ansylvaníu, hefir komið til á-
rekstra millum Ungvei-ja og
Rúmena, og voru tildrögin
þessi: í borg einni höfðu Ung-
verjar komið fyrir sigurboga,
ásamt myndum af Hitler,
Mussolini og Horthy ríkisstjóra
Ungverjalands, og var ætlunin
að ungverska hei’liðið héldi
Hitler skipaði Joachim von
Stúlpnagel, bershöfðingja í her-
foi’ingjaráðinu, til að hafa eftir-
lit með því, að Frakkar fari að
öllu leyti eftir vopnahlésskil-
málunum. Stulpnagel er því
liinn raunvei’ulegi lierra í þeim
hluta Fi-akklands, sem heyrir
undir stjórn Petains i Vichy. —
Lætnr stjornin i
Vichy af röldnm?
Samkvæmt fregnum, sem
borist hafa frá New York, eru
nú allar líkur á því að stjómin
í Vichy muni hrökklast frá
völdum, með því að hún hefir
neitað að verða við nýjum
kröfum frá hendi Þjóðverja og
ítala.
Kröfur þessar eru sagðar að
vei-a margskonar, en þó aðal-
lega þær, að Frakkar afhendi
vissar greinir matvæla til Þjóð-
vei’ja, en ítalir ki-efjast liins-
vegai’, að allar nýlendur Frakka
í Afi’íku verði afvopnaðar. Við
hvoi’ugu þessu vill stjórnin
vei’ða, og er þvi búist við að
Þjóðverjar og ítalir muni her-
nema þann hluta Frakklands,
senx enn er í lxöndum stjórnar-
innar í Vichy og muni hún
hröklast frá völdum.
Einn af aðalmönnunum í stjórn
Frakklands nú er Adrien Mar-
quet. Hann var vei’klýðsleiðtogi
áður, og stofnaði 1933 „neo-
socialista“-fIokk í Frakklandi.
Hann er nú aðalmaðurinn í
stjórn Petains, ásamt honum og
Pierre Laval.
þarna innreið sína. Þegar rúm-
ensku hersveitirnar fóru úr
boginni óku þær brynvörðum
vögnunx á sigui’bogann og lögðu
hann i rúst. Rúmenskir yfirfor-
ingjar tættu í sundur fána ít-
ala, Þjóðvei’ja og Ungverja og
tröðknðn á þeim. Ilefir þetta
leitt til árekstra, en ekki er vit-
að um manntjón.
Segir Ffi’ökkuiiB
tV**ifi* veH*kuiBi.
Islendingar
flnttir heim
yfir Petsamo
8amþ^kki he^ja ófiriðaraðila
lig^ur fyrifi*.
I morgun barst sú fregn hingað til lands að fengið væri sam-
þykki beggja ófriðaraðila til þess að íslendingar þeir, sem. er-
lendis dvelja, verði fluttir heim yfir Petsamo.
Svo sem kunnugt er höfðu Bretar áður gefið samþykki sitt
til þessa, en aftur mun hafa staðið á samþykki Þjóðverja. Er-
indreki íslands í Kaupmannahöfn hefir, í umboði ríkisstjórnar-
innar, haft mál þessi með höndum til úrlausnar og mun nú
endanlega frá þessu gengið.
Reynist fregnin rétt, — og ekki er ástæða til að ætla annað, —
mun ríkisstjómin þegar gera nauðsjmlegar ráðstafanir til þess
að heimflutningurinn geti farið fram án tafar. Þótt íslendingar
þeir, sem erlendis dvelja, hafi engan skort liðið, og þeim hafi
verið séð fyrir nauðsynjum, hafa þeir sennilega flestir haft full-
an hug á því að komast heim.
Er mjög ánægjulegt að svo giftusamlega hefir úr þessu
raknað að lokum, og vonandi gengur alt að óskum úr þessu. —
Kommúnistar skora í gær
á stjórn Dagsbrúnar að
halda fund fyrir 9. sept.
Fáir verkamenn hafa skrifað undir þessa
áskorun.
Kommúnistar hafa beitt sér fyrir því undanfarna
daga aÖ safna áskorunum til stjómar Dagsbrúnar um
að halda fund í félaginu, og voru plögg þessi afhent
stjórn félagsins í gær.
153 menn liafa skrifað undir
skjalið, en af þeim er vitað að
85 menn eru félagsbundnir í
Dagsbrún, en hinir 08 eru ann-
aðhvort í öðrum vei-kalýðsfé-
lögum eða ófélagsbundnir og
sumir ófélagshæfir, l. d. Brynj-
ólfur Bjarnason, sem rekinn var
úr Dagsbrún fyrir óspektir á fé-
lagsfundum og vankunnáttu í
hegðun.
Undirskriftaskjölin eru dags.
2. þ. m. og er slcorað á sljórnina
að halda fund i „uppliafi næstu
viku“. Að sjálfsögðu getur
stjórnin ekki orðið við þeim til-
mælum, með því að fyrir hand-
vömm kommiinista og tregðu
Dagsbrúnarfélaga til undir-
skrifta, er sú vika liðin, sem tal-
ið er nauðsyn að lialda fund í
samkv. skjalinu.
Mál þau, sem kommúnistar
vildu ræða eru: deilan við Höj-
gaard & Schultz, sem þegar er
leyst, sjóðþurðarmálið, sem
stjórnin fyrir sitt leyti hefir af-
greitt, og greiðsla vinnulauna,
sem stjórnin hefir enn til með-
ferðar.
Úr því að umi’æðuefni fund-
arins eru ekki önnur en þau,
sem að ofan greinir, og þegar
liafa verið leyst að nolckru eða
öllu, er engin ástæða til að ætla
að þessir verkamenn telji nú
vera nauðsyn á fundi, þótt þeir
teldu það 2. þ. m., er öll þessi
mál voru á döfinni, óleyst og ó-
afgreidd frá hendi stjórnarinn-
ar. Það þarf því nýja áskrif-
endasöfnun og ný mál til þess
að stjórn Dagsbrúnar sé skyld
til að halda fund, og að sjálf-
sögðu yrði sú áskorun að koma
ffrenjulega róleg nðtt.
3 menn teknir úr nmferð,
Síðastliðin nótt mun hafa
verið einhver sú rólegasta uin
alllangt skeið, var Vísi tjáð í
morgun þegar bLaðið átti tal
við lögregluna.
Vegna ölvunar voru einir
3 — þrír — menn „teknir úr
umferð“ og er það mjög lítið,
þegar þess er gætt, að tala
þeirra, sem settir hafa Verið
inn fyrir ölvun, hefir stund-
um komist upp í 25—30 á
nóttu.
Vonandi er þessi nótt ekki
neitt „logn fyrir storminn“
um helgina, heldur að svona
haldi áfram framvegis, eða
helst að ölvunin á almánna-
færi hverfi með öllu úr sög-
unni.
frá Dagsbrúnarmönnum einum,
en ekki ófélagshæfum komm-
únistum.
Núvex-andi stjórn Dagsbrúnar
mun gæta hagsmuna félagsins
i hvívetna og gefa félagsmönn-
xxm um það nákvæma skýrslu á
sínurn tíma, og gefst þá komm-
únistum vafalaust færi á að láta
ljós sitt skína.
Lúðrasveitin Svanur
leilcur á Austurvelli i kvöld
kl. 9 ef veður leyfir, undir
stjórn Karl Ó. Rxxnólfssonar.