Vísir - 19.09.1940, Blaðsíða 1
Kr stj Ritstjóri: án Guðlaug sson
Félagspi Skrifstofur -entsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Sfmi:
Auglýsingar 1660
Gjatdkeri 5 Hnur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, fimtudaginn 19. september 1940.
216. tbl.
Miklir loftbardagfar
yfir Bretlandi í grær.
Um 5© flugvélar §kotnar niður.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Miklir íoftbardagar voru háðir yfir Kent og Tha-
mesárósum í gær. Sendu Þjóðverjar mikinn
flugvélaf jölda inn yfir Kentsjtrendur, a. m. k.
hátt á þriðja hundrað. Flaug hver hópurinn á fætur
öðrum inn yfir ströndina á 5 mílna breiðu svæði og
gekk svo í stundarfjórðung, en flugvélarnar komust
ekki langt inn yfir landið, þvi að mikill fjöldi breskra
orustuflugvéla sneri til atlögu við þær. Voru aðal bar-
dagarnir yfir Kent og Thamesárósum síðar og segir i
breskum tilkynningum, að báðum orustunum hafi
lyktað þannig, að þýsku flugvélunum var dreift löngu
áður en þær komust í námunda við London.
Sprengjum var varpað á ýmsa staði í gær, því'að ein-
stakar flugvélar komust inn yfir landið. M. a. var varp-
að sprengjum á borg við Mersey. Sprengjum var varpað
á allmörg hús, m. a. verksmiðjur, og varð nokkurt tjón
á mönnum og mannvirkjum.
Það er kunnugt, að 48 þýskar flugvélar voru skotnar
niður í gær og 12 breskar, en 7 af bresku flugmönnun-
um björguðust.
I London var alt með tiltölulega kyrrum kjörum i
gær, en í gærkveldi byrjaði sami leikurinn og undan-
gengin kvöld. Þýskar f lugvélar komu inn yf ir borgina,
er skyggja tók, og flugu hátt. Þær fóru ein og ein eða í
smáhópum, og flugu svo hátt, að ógerlegt var fyrir
fIugmennina, að varpa sprengjum á ákveðna staði, enda
varð reyndih sú, að flestar sprengjur komu niður á
íveruhús, flest lítil. Manntjón varð mikið. Það er talið
láta nærri, að s. 1. nótt hafi um 90 manns beðið bana
af völdum loftárásanna, en um 380 særst alvarlega. —
Loftárásirnar í gær voru gerðar á svæðinu milli London og
Lancashire. Árásirnar á verksmiðjuhverfi í borgum við Mersey
voru einkum harðar. Stóðu þær yfir klukkustundum saman og
segja menn það, að tilgangurinn hafi virst vera, að skjóta verka-
lýðnum skelk i bringu. Var varpað niður um 100 sprengikúlum
þar, auk íkveikjusprengja. Sprengjum var einnig varpað á staði
í Staffordshire, Midlands, Sussex, Essex, Kent og víða í Suður-
Englandi. Víða urðu miklar skemdir á húsum.
Þýsk flugvél hlaðin sprengikúlum hrapaði niður í hverfi í
London og varð þar ógurleg sprenging. Óttast menn, að f jölda
margir hafi farist þar. -u
Það er margt furðulegt, sem gerist í loftárásunum, menn kom-
ast undan á stundum, þótt heil hús hrynji yfir þá o. s. frv. 1 gær
kom sprengja niður á hús í London og hrundi afturhluti þess,
en framhliðin stóð ósködduð og jafnvel mjólkurflaska á tröpp-
nnum haggaðist ekki.
Höfuðárásir Þjóðverja í gær voru 5. Voru það á annað hundr-
að þýskar flugvélar, sem fyrst komu, þar næst 5 allstórir hópar.
í bæði skiftin var flugvélunum dreift, en einn hópurinn komst
ínn yfir London.
Það er í frásögur fært, að einn Spitfireorustuflugvélaflokkur
skaut niður 5 flugvélar í gær, en Hurricaneflokkur 11, þar af 8
Dornier-sprengjuflugvélar. \
Loftárásir á
Ermarsundshafnirnar.
Bretar héldu uppi miklum
árásum á Ermarsundshafnir
þær, sem ÞjóSverjar hafa á
valdi sínu, svo sem Ostende og
Zeebrugge í Belgíu, Calais,
Dunkerque og Cherbourg í
Frakklandi o. fl. Ennfremur
voru gerðar árásir á Hamborg
og fjölda marga hernaðarstaði
í Þýskalandi. Feikna tjón varð í
árásunum og frá Englands-
ströndum sáust mikhr eldar
hinuru megin við sundið í nótt
sem leið. í fyrrinótt sendu Brel-
ar fleiri flugvélar en nokkuru
sinni yfir sundið til árása á
„innrásarbækistöðvarnar" og
aðra hernaðarstaði. Varð eink-
um mikið tjón á hafnarmann-
virkjum og skipuin í Ermar-
sundshöfnunum. í Zeebrugge
kom upp eldur í stóru flutninga-
skipi og sprengjur komu niður
á tvö skip í Cherbourg, og var
annað tundurspillir, að þvi er
líklegt þykir.
í leiðöngrum þessum mistu
Bretar að eins tvær flugvélar.
Framsókn Itala
í Egiptalandi
stöðvast í bili.
London, i morgun.
Framsókn ítalska hersins,
sem sótti fram á ströndum
Egiptalands frá Libyu, hefir nú
stöðvast í bili. Hafa Italir lagt
áherslu á það seinustu tvö dæg-
ur, að treysta aðstöðu sína þarna
og búasl sem best fyrir, en
breski fluglierinn hefir gert It-
ölum injög erfitt fyrir með lát-
í annað hnndrað
loftárásir á einni
viku.
Einkaskeyti frá U. P.
London í morgun.
TBKESKA flugmálaráðu-
neytið hefir gefið út
skýrslu um loftárásir breskra
flugvéla vikuna 8.—14. sept-
ember á Þýskaland og þau
lönd, sem Þjóðverjar ráða yf-
ir. —
Segjast Bretar hafa gert 42
árásir á járnbrautarstöðvar í
Þýskalandi, Belgíu og Frakk-
landi og valdið miklum
skemdum. Þá hafi verið gerð-
ar tvær árásir á olíugeyma í
Hamborg, á flugvélaverk-
smiðjur annarsstaðar í land-
inu, á skotfærageymslur og
stálverksmiðjur.
Loftárásir voru gerðar á
15 flugvelli í Þýskalandi, tvo
í Hollandi og þrjá í Belgíu.
44 loftárásir voru gerðar á
hafnarmannvirki, svo sem í
Hamborg, Brakenhafen, Al-
tona, Bremen, Wilhelmshaf-
en, Kiel, Emden, Wismar,
Ostend, Calais, Boulogne,
Vlissingen, Dunkirk, Ant-
verpen og Delfzijl. Margar
árásir hafa verið gerðar á
hverja þessara hafna og flest-
ar á Érmarsundshafnirnar.
Segjast þeir hafa sprengt í
loft mörg skip og pramma,
en kveikt í mörgum öðrum.
lausum lofjárásum á stöðvar
þeirra við Sidi Barani og Bug
Bug. Hefir tekist a& kveikja i
bensinbirgðum og eyðileggja
skriðdreka og bifreiðir fyrir ít-
ölum.
Það hefir ekki enn komið til
átaka við meginher Breta, sem
er nokkuru austar.
Georg Bretakonungur á eítirlifsíerð.
liislií tfliirir
IjlWllW.
Samkvæmt fregn er Vísi |
barst, eftir að blaðið var
komið í vélar, hafa togararnir
Arinbjörn Hersir og Snorri
goði bjargað 250 mönnum af
bresku skipi undan írlands-
ströndum. Var skipið á sigl-
ingu rétt á undan togurunum
er þýska flugvél bar að, varp-
aði á það sprengjum og sökti
því.
Arinbjörn (Hersir bjargaði
110 manns en Snorri Goði
140, og flutti þá til hafnar í
Englandi.
Ijoftárásirnar
á llalta.
London i morgun.
Það er þegar búið að gera á
annað hundrað loftárásir á eyj-
una Malta í Miðjai'ðarhafi. —
Segja Bretar, að tjónið af völd-
um þeirra hafi verið tiltölulega
lítið, því að ítölsku flugvélarn-
ar hafi tiðast flogið mjög hátt
og sprengjurnar því iðulega
farið í sjóinn. Þá segja þeir, að
það hafi iðulega komið fyrir,
að ítölskú flugvélarnar snúi við,
er að Malta kemur, einkanlega
ef sést til breskra orustuflug-
véla.
I morgun var tilkynt í Lond-
on, að þýskar sprengjuflugvél-
ar hefði tekið þátt í loftárás,
sem gerð var á Malta, og voru
þær varðar af ítölskum orustu-
flugvélum. Breskar orustuflug-
vélar hófu sig til flugs og lenti
í bardaga -— voru 3 ítalskar og
l)ýskar skotnar riiður og eiri
liresk. Tjón af völdum loftárás-
arinnar var lítið að venju .
Aukinn stuðningur.
Það er talið alveg vafalaust,
i að Bretar fái mjög aukinn
l stuðning frá Bandaríkjunum
eftir forsetakosningarnar og
jafnvel fyrr. Hefir þetta komið
fram í kosningaræðum, sem
Wendell Willkie, frambjóðandi
republikana o. fl. hafa haldið.
Einn af kunnustu mönnum
Bandaríkjanna er þess eindregið
hvetjandi, að Bandaríkin láti
Breta fá hraðskreiða mótor-
torpedóbáta, svipaða að stærð
og hina þýsku E-báta.
Ræðir við Hitler
Piamoii Sei-rano Suner er nú
í Þýskalandi og ræðir við Hitler
um ýms niál. Suner er mágur
Francos og innanríkismálaráð-
herra hans. Hann hefir löngum
verið nefndur „hinn sterki mað-
Ur Spánverja".
Bresfcur hermaíur
fremur ofheldis-
verk á kvenmanm
í nótt.
Um miðnæturleytið í nótt var
kvenmaður , til heimilis á Berg-
staðastræti, á leið heim til sín,
frá vinstúlku sinni er, bjó á
Laufásveginum.
Þegar stúlkan var að komast
Iieim að húsiriu er hún bjó í,
mætir hún breskum hermanni,
er tekur hana tali. Hún skiftir
við hann orðum, og hann vill fá
bana með sér, en hún vill það
ekki og ætlar inn í húsið. Vill
hermaðurinn fara með henni en
hún neitar því. Tekur hann. þá
um axlir hennar og dregur hana
ef tir götunni, síðan niður Njarð-
argötu og suður fyrir Hring-
braut. Á allri þessari leið stymp-
ast stúlkan á móti og kallar á
hjálp, en göturnar eru með öllu
mannlausar og þrátt fyrir óþ
hennar kemur enginn henrii til
hjálpar.
Þegar þau koma suður fyrir
Hringbrautina, færir hermað-
urinn stúlkuna úr kápunni og
rífur hana eitthvað, þvi stúlkan
veitti alla þá mótspyrnu er
hún gat. Þegar hermaðurinn var
búinn að færa stúlkuna úr káp-
unni, skelti hann henni flatri á
FRETTIR
f STUTTU MÁLl
Ráðherra kaupskipaflotans
breska hefir tilkynt, að aðeins
einn maður hafi beðið bana við
sprengjuárásir á höfnina i
London.
Bandai-iltjastjórn hefir gefið
leyfi til að selja hin svokölluðu
„fljúgandi virki", sem eru bestu
sprengjuflugvélar í heimi. Þær
vega 22 smál., f ara með 400 km,.
meðalhraða og geta flogið 8000
km., án þess að taka bensin.
•
Bevin, verkamálaráðherra,
hefir skipað þeim starfsmönn-
um ráðuneytis síns, sem fluttir
voru úr borginni, að koma af tur
og starfa á hinum fyrri stöðum.
*
Fyrsta heiðursmerki til manns
úr heimvarnarliði Breta var iit-
hlutað i gær.
skurðbakka, blautan og forugan
og ætlaði að nauðga henni þar.
Við óp hennar koma nokkur-
ir menn til þeirra, er stúlkunni
virðast vera unglingspiltar. Mið-
aði hermaðurinn á þá byssu
sinni með annari hendi en
heldur stúlkunni fastri með
hinni. Hverfa unglingarnir þá á
brott, en rétt á eftir kemur bíll
akandi og út úr honum koma 2
menn til að huga nánar að, hvað
um sé að vera. En þegar her-
maðurinn miðar einnig á þá
byssu sinni taka þeir það ráð
að aðhafast þar ekki neitt frek-
ara, en aka i skyndi a lögreglu-
stöðina og tilkynna lögreglunni
það sem þeir höfðu orðið vísari.
Fór bæði breska og íslenska
lögreglan þegar á vettvang og
tók hermanninn er hann lá ofan
á stúlkunni í mýrinni, án þess
að hafa fengið áformum sínum
framgengt. Veitti hann þá ekk-
ert viðnám, og er mál hans nú í
rannsókn hjá lögreglunni.
Kvenmaðurinn var illa til
reika, öll blaut og forug og auk
þess eftir sig vegna hræðslu.
Frá Siglufirði.
701811
i Siislf
veru sektaðlr
Fimm leynivínsalar
handteknir.
f sumar, mánuðina júlí og
ágúst, voru tvisvar sinnum
fleiri menn sektaðir fyrh- ölvun
í Siglufirði, en fyrir tveim ár-
um. 1 sumar voru 70 menn sekt-
aðir fyrir þessi afbrot, í fyrra
64 og 1938 34 menn.
Þeir, sem þekkja Siglufjörð
að sumarlagi, vita að þar er þá
jafnan allmikil óregla, enda
vart hægt að vænta annars, þar
sem þangað safnast mikill
mannfjöldi viðsvegar af land-
inu og misjafn er sauður i
mörgu fé. Er talið að 12—14
þús. manns hafi bækistöð eða
aðsetur að einhverju leyti á
Siglufirði um síldveiðitimann.
Lögregluþjónar eru hinsvegar
aðeins sjö þar á staðnum og
varla vanþörf á að fjölga þeim
á sumrin.
í sumar handtók lögreglan í
Siglufirði fimm leynivínsala.