Vísir - 19.09.1940, Qupperneq 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiöjan (3. hæð).
Ritstjóri • Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
GjaldUeri 5 línur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, fimtudaginn 19. september 1940.
..———1 I iMwm'im'kDWl'WrWHIWIMl
216. tbl.
Miklir loftbarda^ar
yfir llrrtlaiHli I gær.
ITm 50 fln^vélar §kotnar niður.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Miklir loftbardagar voru háðir yfir Kent og Tha-
mesárósum i gær. Sendu Þjóðverjar mikinn
flugvélaf jölda inn yfir Kentstrendur, a. m. k.
hátt á þriðja hundrað. Flaug hver hópurinn á fætur
öðrum inn yfir ströndina á 5 milna breiðu svæði og
gekk svo í stundarf jórðung, en flugvétarnar komust
ekki langt inn yfir landið, því að mikill fjöldi breskra
orustuflugvéla sneri til atlögu við þær. Voru aðal bar-
dagamir yfir Kent og Thamesárósum síðar og segir i
breskum tilkynningum, að báðum orustunum hafi
lyktað þannig, að þýsku flugvélunum var dreift löngu
áður en þær komust í námunda við London.
Sprengjum var varpað á ýmsa staði í gær, því að ein-
stakar flugvélar komust inn yfir landið. M. a. var varp-
að sprengjum á borg við Mersey. Sprengjum var vaipað
á allmörg hús, m. a. verksmiðjur, og varð nokkurt tjón
á mönnum og mannvirkjum.
Það er kunnugt, að 48 þýskar flugvélar voru skotnar
niður í gær og 12 breskar, en 7 af bresku flugmönnun-
um björguðust.
1 London var alt með tiltölulega kyrrum kjörum í
gær, en í gærkveldi byrjaði sami leikurinn og undan-
gengin kvöld. Þýskar flugvélar komu inn yfir borgina,
er skyggja tók, og flugu hátt. Þær fóru ein og ein eða i
smáhópum, og flugu svo hátt, að ógerlegt var fyrir
flugmennina, að varpa sprengjum á ákveðna staði, enda
varð reyndin sú, að flestar sprengjur komu niður á
íveruhús, flest lítil. Manntjón varð mikið. Það er tatið
láta nærri, að s. 1. nótt hafi um 90 manns beðið baná
af völdum loftárásanna, en um 380 særst alvarlega. —
Loftárásirnar í gær voru gerðar á svæðinu milli London og
Lancashire. Árásirnar á verksmiðjuhverfi í borgum við Mersey
voru einkum harðar. Stóðu þær yfir klukkustundum saman og
segja menn það, að tilgangurinn hafi virst vera, að skjóta verka-
lýðnum skelk I bringu. Var varpað niður um 100 sprengikúlum
þar, auk íkveikjusprengja. Sprengjum var einnig varpað á staði
í Staffordshire, Midlands, Sussex, Essex, Kent og víða í Suður-
Englandi. Víða urðu miklar skemdir á húsum.
Þýsk flugvél hlaðin sprengikúlum hrapaði niður í hverfi í
London og varð þar ógurleg sprenging. Óttast menn, að fjölda
margir hafi farist þar.
Það er margt furðulegt, sem gerist í loftárásunum, menn kom-
ast undan á stundum, þótt heil hús hrynji yfir þá o. s. frv. I gær
kom sprengja niður á hús í London og hrundi afturhluti þess,
en framhliðin stóð ósködduð og jafnvel mjólkurflaska á tröpp-
unum haggaðist ekki.
Höfuðárásir Þjóðverja í gær voru 5. Voru það á annað hundr-
að þýskar flugvélar, sem fyrst komu, þar næst 5 allstórir hópar.
í bæði skiftin var flugvélunum dreift, en einn hópurinn komst
inn yfir London.
Það er í frásögur fært, að einn Spitfireorustuflugvélaflokkur
skaut niður 5 flugvélar í gær, en Hurricaneflokkur 11, þar af 8
Dornier-sprengjuflugvélar. n
Loftárásir á
Ermarsundshafnirnar.
Bretar héldu uppi miklum
árásum á Ermársundshafnir
þær, sem Þjóðverjar liafa á
valdi sínu, svo sem Ostende og
Zeehrugge í Belgíu, Calais,
Dunkerque og Cherbourg í
Frakklandi o. fl. Ennfremur
voru gerðar árásir á Hamborg
og fjölda marga hernaðarstaði
í Þýskalandi. Feikna tjón varð í
árásunum og frá Englands-
ströndum sáust miklir eldar
hinum megin við sundið í nótt
sem leið. í fyrrinótt sendu Brel-
ar fleiri flugvélar en nokkuru
sinni yfir sundið til árása á
„innrásarbækistöðvarnar“ og
aðra hernaðarstaði. Varð eink-
um mikið tjón á hafnarmann-
virkjum og skipum í Ermar-
sundshöfnunum. í Zeebrugge
kom upp eldur í stóru flutninga-
skipi og sprengjur konm niður
á tvö skip í Cherbourg, og var
annað tundurspillir, að því er
líldegt þykir.
I leiðöngrum þessum mistu
Bretar að eins tvær flugvélar.
Framsókn ítala
í Egiptalandi
stöðvast í bili.
London, í morgun.
Framsókn ítalska hersins,
sem sótti fram á ströndum
Egiptalands frá Libyu, liefir nú
stöðvast í bili. Hafa Italir lagt
áherslu á það seinustu tvö dæg-
ur, að treysta aðstöðu sína Jiarna
og búasl sem best fyrir, en
breski flugherinn hefir gert It-
('jhun mjög erfitt fyrir með lát-
Á annað liundrað
loftárásir á einni
vikn.
Einkaskeyti frá U. P.
London í morgun.
DRESKA flugmálaráðu-
neytið hefir gefið út
skýrslu um loftárásir breskra
flugvéla vikuna 8.—14. sept-
ember á Þýskaland og þau
lönd, sem Þjóðverjar ráða yf-
ir. —
Segjast Bretar hafa gert 42
árásir á járnbrautarstöðvar í
Þýskalandi, Belgíu og Frakk-
landi og valdið miklum
skemdum. Þá hafi verið gerð-
ar tvær árásir á olíugeyma í
Hamborg, á flugvélaverk-
smiðjur annarsstaðar í land-
inu, á skotfærageymslur og
stálverksmiðjur.
Loftárásir voru gerðar á
15 flugvelli í Þýskalandi, tvo
í Hollandi og þrjá v Belgíu.
44 loftárásir voru gerðar á
hafnarmannvirki, svo sem í
Hamborg, Brakenhafen, Al-
tona, Bremen, Wilhelmshaf-
en, Kiel, Emden, Wismar,
Ostend, Calais, Boulogne,
Vlissingen, Dunkirk, Ant-
verpen og Delfzijl. Margar
árásir hafa verið gerðar á
hverja þessara hafna og flest-
ar á Ermarsundsliafnirnar.
Segjast þeir hafa sprengt í
loft mörg skip og pramma,
en kveikt í mörgum öðrum.
lausum loftárásum á stöðvar
þeirra við Sidi Barani og Bug
Bug. Hefir tekist að kveikja í
bensinbirgðum og eyðileggja
skriðdreka og bifreiðir fyrir It-
ölum.
Það hefir ekki enn lcomið til
átaka við meginher Breta, sem
er nokkuru austar.
Loftáráiirnar
;í 9Ial(a.
London í morgun.
Það er þegar húið að gera á
annað hundrað loftárásir á eyj-
una Malta í Miðjarðarliafi. —
Segja Bretar, að tjónið af völd-
um þeirra liafi verið tiltölulega
lítið, því að ítölslcu flugvélarn-
ar liafi tíðast flogið mjög hátt
og sprengjurnar því iðulega
farið í sjóinn. Þá segja þeir, að
það hafi iðulega komið fyrir,
að ítölsku flugvélarnar snúi við,
er að Malta lcemur, einkanlega
ef sést til hreskra orustuflug-
véla.
í morgun var tilkynt í Lond-
on, að þýskar sprengjuflugvél-
ar hefði tekið þátt í loftárás,
sem gerð var á Malta, og voru
þær varðar af ítölskum orustu-
flugvélum.. Breskar orustuflug-
vélar hófu sig til flugs og lenti
í bardaga — voru 3 ítalskar og
þýskar skotnar niður og eiii
bresk. Tjón af völdum loftárás-
arinnar var lítið að venju .
Georg Bretakoiumgur á eítirlitsferð.
S
\
i
isiHtir hm
Ijðril 1 iKSB.
Samkvæmt fregn er Yísi
barst, eftir að blaðið var
komið í vélar, hafa togararnir
Arinbjöm Hersir og Snorri
goði bjargað 250 mönnum af
bresku skipi undan írlands-
ströndum. Var skipið á sigl-
ingu rétt á undan togurunum
er þýska fiugvél bar að, varp-
aði á það sprengjum og sökti
því.
Arinbjöm Hersir bjargaði
110 manns en Snorri Goði
140, og flutti þá íil hafnar í
Englandi.
j Aukinn stuðningur.
i Það er talið alveg vafalaust,
i að Bretar fái mjög aukinu
i stuðning frá Bandaríkjunum
I eftir forsetakosningarnar og
jafnvel fyrr. Hefir þetta komið
fram í kosningaræðum, sem
Wendell Willkie, frambjóðandi
republikana o. fl. hafa haldið.
Einn af kunnustu mönnum
Bandarikjanna er þess eindregið
hvetjandi, að Bandaríkin láti
Breta fá hraðskreiða mótor-
torpedóbáta, svipaða að stærð
og hina þýsku E-báta.
Ræðir við Hitler
Ramon Serrano Suner er nú
i Þýskalandi og ræðir við Hitler
um ýms mál. Suner er mágur
Francos og innanríkismálaráð-
lierra Iians. Ilann hefir löngum
verið nefndur „hinn sterki mað-
ur Spánverja“.
Bresknr liermaður
fremur ofheldis-
verk á kvenmanní
( nótt.
Um miðnæturleytið í nótt var
kvenmaður , til heimilis á Berg-
staðastræti, á leið heim til sín,
frá vinstúlku sinni er, bjó á
Laufásveginum.
Þegar stúlkan var að komast
heim að húsinu er hún bjó i,
mætir hún breskum hermanni,
er tekur hana tali. Hún skiftir
við hann orðum, og hann vill fá
hana með sér, en hún vill það
ekki og ætlar inn í húsið. Vill
j hermaðurinn fara með henni en
í hún neitar því. Tekur hann þá
: um axlir hennar og dregur liana
eftir götunni, síðan niður Njarð-
argötu og suður fyrir Hring-
braut. A allri þessari leið stymp-
ast stúlkan á móti og kallar á
hjálp, en göturnar eru með öllu
mannlausar og þrátt fyrir óp
Iiennar kemur enginn henni lil
lijálpar.
Þegar þau lcoma suður fyrir
Hringbrautina, færir hermað-
urinn stúlkuna úr kápunni og
rífur hana eitthvað, því stúlkan
veitti alla þá mótspyrnu er
hún gat. Þegar hermaðurinn var
húinn að færa stúlkuna úr káp-
unni, skelti liann henni flatri á
FRÉTTIR
t STUTTD MÁLl
Ráðherra kaupskipaflotans
breska liefir tilkynt, að aðeins
einn maður hafi heðið bana við
sprengjuárásir á liöfnina í
London.
★
Bandarikjastjórn hefir gefið
leyfi til að selja liin svokölluðu
„fljúgandi virki“, sem eru bestu
sprengjuflugvélar í heimi. Þær
vega 22 smál., fara með 400 km.
meðalhraða og geta flogið 8000
km., án þess að taka bensín.
*
Bevin, verkamálaráðherra,
hefir slcipað þeim starfsmönn-
um ráðuneytis síns, sem fluttir
voru úr borginni, að lcoma aftur
og starfa á hinum fyrri stöðum.
*
Fyrsta heiðursmerki til manns
úr heimvarnarliði Breta var iit-
hlutað í gær.
slcurðbakka, blautan og forugan
og ætlaði að nauðga henni þar.
Við óp hennar koma nokkur-
ir menn til þeirra, er stúlkunni
virðast vera unglingspiltar. Mið-
aði hermaðurinn á þá byssu
sinni með annari hendi en
Iieldur stúlkunni fastri með
hinni. Ilverfa unglingarnir þá á
hrott, en rétt á eftir kemur bill
akandi og út úr honum koma 2
menn til að huga nánar að, hvað
um sé að vera. En þegar lier-
maðurinn miðar einnig á þá
byssu sinni taka þeir það ráð
að aðhafast þar ekki neitt frek-
ara, en aka i skyndi á lögreglu-
stöðina og tilkynna lögreglunni
það sem þeir höfðu orðið visari.
Fór bæði breska og íslenska
lögreglan þegar á vettvang og
tók hermanninn er liann lá ofan
á stúlkunni í mýrinni, án þess
að hafa fengið áformum sínum
framgengt. Veitti hann þá ekk-
ert viðnám, og er mál hans nú í
rannsókn hjá lögreglunni.
Kvenmaðurinn var illa til
reika, öll hlaut og forug og auk
jiess eftir sig vegna hræðslu.
Frá Siglufirði.
?0 nii vom sektaQir
í SBiirJyrir in.
Fimm leynivínsalar
handteknir.
í sumar, mánuðina júlí og
ágúst, voru tvisvar sinnum
fleiri menn sektaðir fyrir ölvun
í Siglufirði, en fyrir tveim ár-
um. f sumar voru 70 menn sekt-
aðir fyrir þessi afbrot, í fyrra
64 og 1938 34 menn.
Þeir, sem ]>ekkja Siglufjörð
að sumarlagi, vita að þar er þá
jafnan allmikil óregla, enda
vart hægt að vænta annars, þar
sem þangað safnast mikill
mannfjöldi viðsvegar af land-
inu og misjafn er sauður í
mörgu fé. Er talið að 12—14
þús. manns hafi bækistöð eða
aðsetur að einhverju leyti á
Siglufirði um sildveiðitimann.
Lögregluþjónar eru hinsvegar
aðeins sjö þar á staðnum og
varla vanþörf á að fjölga þeim
á sumrin.
í sumar handtók lögreglan 1
Siglufirði fimm leynivínsala.