Vísir - 15.10.1940, Síða 1

Vísir - 15.10.1940, Síða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 Ifnur Afgreiðsla 30. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 15. október 1940. 238. tbl. Skemdarverk unnin á olíu- lindasvæðum Rúmeníu - - 3 olíubronnar gerðeyðilagðir. Þjóðverjar ætla að senda mikinn her til Rúmenín. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Samkvæmt fregnum, sem borist hafa frá Rúmeníu kom upp eldur í gær á olíulindasvæðum Rúm- eníu, þar sem þýskt herlið hefir tekið sér að- setur, til þess að hindra, að skemdarverk yrði framin. Eldur komst í þrjá olíubrunna og þrátt fyrir allar til- raunir þýska herliðsins til þess að kæfa eldinn tókst það ekki og gereyðilögðust þessir þrír brunnar. Eins og geta má nærri hvílir sterkur grunur á, að hér sé um hefndarverk að ræða, og er rannsókn hafin til þess að komast að raun um hvernig á eldsupptökum stendur. Það er nú talið, að Þjóðverjar muni auka mikið lið sitt í Rúmeníu. Samkvæmt sumum f regnum áf orma þeir að hafa þar a. m. k. 200.000 manna her, hafa þar flug- stöðvar um land alt og flotastöð við Svartahaf. Ýmsar fregnir benda til, að óánægja manna í Rúm- eníu út af því, að þýskur her hefir sest að í landinu sé að magnast, og veldur m. a., að því er hermt er í fregn- um, sem bresk blöð birta, að farið er að bera á meiri matarskorti. Kjöts má nú að eins neyta 4 daga í viku, og sumar matvælategundir, svo sem smjör, eru vart fáan- legar þar sem útflutningurinn til Þýskalands hefir auk- ist mikið. Sagt er, að áróðursmiðum gegn Þjóðverjum hafi verið dreift um Bifkarest. Það hefir vakið mikla athygli, að stórnin í Júgóslavíu er sögð hafa neitað kröfum Þjóðverja um aukinn útflutning á hafra- mjöii o. fl. kornvörutegundum. Að sögn kröfðust Þjóðverjar, að þeir fengi allar kornvörur Júgóslava, sem þeir þyrfti ekki til eigin nota. Stjórnin í Júgóslavíu telur hinsvegar, að hún þurfi að tryggja sér nægar birgðir í Iandinu. Tyrknesk herforingjanefnd er komin til Aþenuborgar og orð- rómur gengur um, að Tyrkir, Grikkir og Júgóslavar ætli að gera með sér vamarbandalag. í viðbótarfregn um olíubrun- ann í Rúmeníu segir svo í skeyii frá United Press: Olíubrunnar þessir voru ná- lægt Baicoi og gereyðilögðust þeir. Þýskt slökkvilið, sem hefir bækistöð í Ploesti og nýlega kom þangað, brá vi p og fór á vett- vang. Skeytaskoðunin í Rúmen- iu hefir ekki leyft að birta nein- ar fregnir um orsök brunans, og er því haldið fram af opinberru hálfu, að ekki sé urn skemdar- verk að ræða, heldur liafi slysni valdið, að eldur komst i olíuna. 45.000 þýskir hermenn í Rúmeníu. Það er nú talið, að 45.000 þýskir hermenn séu komnir til Rúmeníu. 15.000 manna véla- liersveit kom til Ploesti í gær. Alls 10 herfylki verða send til Rúmeníu og ef til vill enn meira lið. Yiðbúnaður Rússa. Það er enn algerlega á liuldu livað Rússar ætla að gera og blöðin gefa lielst i skyn að Rúss- ar muni fylga „ldutleysisstefn- unni“ áfram, þ. e. taka ekki þátt i styrjöldinni, en Rússar auka mjög viðbúnað sinn í Bessara- biu og Norður-Bukovina, og hafa sent mikið lið, fótgöngulið, vélahersveitir fluglið og ridd- aralið til ýmissa héraða í þessum landslilutum. tjjón af vö l«l(iin loftárásanna ■ gær. Fjölcla mörgrani eld§preng:jniii var vai'paö >-fSs‘ Loudoii og‘ f loiri Siorgii' EINKASKEYTI FRÁ UNITÉD PRESS. — London í morgun. Loftárásirnar á London í gærkveldi voru einhverar hinar hörðustu, sem gerðar hafa verið frá styrjaldarbyrjun. í birtingu í morgun var víða auðnar- og ömurlegt um að litast. Víða gat að líta rústir einar og umturnaðar götur. Sumstaðar voru mikíir gígir, en annarstaðar hafði ejdur grandað heimilum manna. Víða hafði umferð algerlega stöðvast, vegna grjóts og braks úr húsum, en vegir voru sumstaðar þaktir olíu úr olíusprengjum Þjóðverja. Eldur kom upp mjög víða, en hvarvetna gekk all- greiðlega að slökkva hann. Þegar leið á nóttina fór að draga úr árásunum og var nokk- urnveginn kyrt síðari hluta nætur og fram undir morgun. — LOFTÁRÁSIR Á BERLÍN. Tvær aövaranir mn loflárás- ir voru gefnar i Berlín í nótl sem leið. I fyrra skiftið sásl ekki eða lieyrðist tll flugvéla, Gort lávarður. Gort lávarðnr kom hingað í dag. Gort lávarður og hers- höfðingi kom hingað í morgun. Breskur lieið- ursvörður tók á móti hon- um á hafnarbakkanum og kannaði hann sveitina. Að því loknu ók liann á fund sendiherra Breta í Þórshamri, Mr. Howard Smith, en hélt síðan úr bænum. Vísir veit ekki hversu lengi „Tiger“ Gort — eins og hann er alment nefndur, meðal breskra hermanna — dvelur hér. Hann mun vera í eftir- litsferð og skoðar við- búnað breska setuliðsins hér. en kastljós sáust hvarvetna. I síðara skiftið gerðist ekki neitt sérstakt fyrst í stað, en brátt kvað við feikna skothríð úr öll- um lof tvarnabyssum borgarinn- ar, og voru þá breskar srengju- flugvélar komnar inn yfir borg- ina, og flugu þær lægra en nokkuru sinni. 1 opinberri tilkynningu segir, að breskar sprengjuflugvélar liafi gert órásir á staði í Norður- Þýskalandi, og liafi sumar þeirra flogið yfir Berlín, varpað Iiafi verið niður nokkrum srengjum og skemdir orðið á noltkurum íveruhúsum og Wir- chow-sjúkrahúsi. M tidflini. EINKASKEYTI FRÁ U. P. — London í morgun. Burmabrautin verður opnuð lil herflutninga næstkomandi föstudag. Mikill viðbúnaður er í Kína og Norður-Burma, að befja herflutninga þegar á föstudaginn. Bifreiðalestir bíða i löngum röðum og allar vöru- skemmur eru fullar. — I Ran- goon eru feikna birgðir, aðal- lega frá Ameríku, sem eiga að fara til Kína. Japanir gerðu loftárás á Burmabrautina í gær. Tóku 27 flugvélar þátt í árásinni, en litið sem ekkert tjón varð af völdum hennar. reour wl ÍSSIBII II.S1 Það var tilkynt í Washington í gær, að Summer Welles, að- stoðarutanrikismálaráðherra Bandarikanna og rússneski sendilierrann í Washington hcfði náð samkomulagi um ýms deiluatriði, sem á undan- förnum árum hafa valdið erfið- leikum í sambúð Bandaríkja- manna og Rússa. Emifremur var boðað, að .sendiherrann og Welles myndi ræðast við frck- ara, og er búist við að frekara samkomulag náist um mikil- vægari mál. Fær Bandaríkjaflotinn bækistöð í Singapore? Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. London í morgun. Orðrómur er stöðugt á sveimi urn þáð, að Bretar ærtli að leyfa Bandarikjamönnum afnot flotahafnar sinnar í Singapore, og er sagt að þetta hafi komið til orða milli ríkisstjórna Bandaríkjanna og Bretlands. I seinustu fregnum frá Kína segir, að miklar oliubirgðir Bandarikjamanna í SÍianghai verði fluttar til Singapore, — verða þær olíubirgðir Kyrra- hafsflota Bandaríkjanna. Það er ekki talið neinum vafa undirorpið, að ef til átaka kæmi milli Japana annarsvegar og Breta og Bandaríkjamanna liinsvegar, myndu Bandaríkin hafa full not af flolahöfnum Breta i Hongkong, Singapore og víðar. Ameríski Kyrrahafsflotinn er nú að æfingum og er nýlega farinn frá Pearl Harbour á Hawaii. Eru þetta um 30 her- skip og meðal þeirra beitiskip og 2 stór orustuskip og flug- vélastöðvarskipið Yorktown. NKOÐU^ IEKUR E. T. V. 2-3 DACrA. Esja kom í morgun frá Petsamo og Kirkwall með íslend- inga þá sem dvalið hafa á Norðurlöndum frá 9. apríl, þegar Þjóðverjar gerðu innrásina í Danmörku og Noreg. Eni á skip- inu alt að 300 íslendingar, eins og Vísir hefir skýrt frá áður. Vísir liafði tal af Capt. Wise í dag og^spurði liann, hvenær skipið myndi geta Iagst að 'bryggju og l'arþegar farið í land. Kvað bann gela orðið nokkura bið á þvi jafnvel 2—3 daga, vegna þess að engin rann- sókn var gerð á skipinu i breskri böfn, eins og til var ætlast i upphafi. Tveir foringjar i breska setu- liðinu hér voru sendir út fyrir nokkuru, til þess að talia á nióti Esju og áttu þeir að sjá um skoíjunina. Vegna einliverra misgripa hefir ekki oi’ðið af þessari skoðun og verður liún því að fara fram liér. Sagði kapteinninn að nokkur- ir menn myndu vera með skip- inu, sem ekki liefði verið á hin- um upprunalega farþegalista og þarf því að athuga þá áður en þeim er hleypt i land. Þó kvaðst Capt. Wise vona, að hægt yrði að hleypa farþeg- um í land í smáhópum og er vonandi að það fyrirkomulag verði liaft ef annað verður ekki hægt. FIMM ÞÝSKAR FLUG- VÉLAR SKOTNAR NIÐ- UR I MORGUN. London í morgun. Loftbardagar byrjuðu í morg- un snemma og komu þýskar flugvélar inn yfir Kentströnd- ina. Lenti þegar í orustum við Spitfire- og Hurricaneflugvélar, og böfðu a. m. k. 5 þýskar flug- vélar verið skotnar niður fyrir hádegi. Engar opinberar fregn- ir hafa verið birtar um loftbar- dagana í dag enn sem komið er. Skipatjón vikuna, sem endaði 6. október, raeí minsta móti. Tilkynt hefir verið í London, að vilcuna, sem endaði 6. þ. m., hafi verið sökt skipum sem voru samtals 31.000 smál., þar af 7 bresk, 2 bandamanna Breta og 1 eign blutlaUsrar þjóðar. — Er þetta minsta vikutjón í 5 mán- uði. Lítil telpa verður undir bil. CJíðastliðinn fimtudag varð ^umferðarslys á Vesturgöt- unni, með þeim afleiðingum, að f jögra ára gömul telpa fótbrotn- aði. Telpan lieitir Ileiðrún Guð- mundsdóttir og á heima á Vest- urgötu 46. Varð hún undir fólksflutningabifreið og brotn- aði hægri fóturinn. Telpan var strax flutt i Landakotsspítala og dvelur þar ennþá. Liður lienni vel eftir atvikum. Raímagnið hækkar. Á síðasta, fundi bæjarráðs lá fyrir frv. að nýrri gjaldskrá fyr- ir Rafmagnsveitu Reykjavíkur, jafnframt ítarlegri greinargerð frá rafmagnsstjóra. í frv. er lagt til að 5% hækk- unin frá i október 1939, sem gerð var vegna gengisbreyting- arinnar, verði tekin inn i gjald- skrána og auk þess lagt til að taxtar verði hækkaðir um 3.5%. Er þessi liækkun vegna aukins kostnaðar af dýrtíðaruppbót starfsmanna. Samkvæmt -frumvarpinu um gjaldskrána hækkar alt raf- magnsverð um 1 eyri á lcwst., nema ljósakwst., sem liækkar um 4 aura — úr 44 í 48 aura, — rafmagn til smávéla hækkar um 3 au. og lierbergjagjald bækkar úr kr. 13.20 og 16.50 i kr. 14.96 og 17.96 á ári. Næstum helmingur þessarar hækkunar er þegar kominn á, þ. e. gengisviðaukinn — 5% — sem innheimtur hefir verið sið- an í október í fyrra. fundarstörf bófust mintist hún frú Mörtu Indriðadóttur, sem starfaði ötullega í félaginu með- an hennar naut við. Hefir orðið skarð fyrir skildi við fráfall frú Mörtu, sem seint mun fylt. — Vottuðu fundai’konur hinni látnu starfssystur lotningu sína með því að rísa úr sætum sín- um. Þá stóðu og fundarkonur upp til virðingar við frú Ágústu og Thor Thors sem flutt eru aust- ur um haf. Frú Mlarta og Ágústa áttul báðar sæti í stjórn Hvatar, og í stað þeirra voru kosnar Soffía M. Ólafsdóttir og Dýrleif Jóns- dóttir. Ólafur Thors, atvinnumála- ráðherra, hélt siðan langa og fróðlega ræðu, en siðan var rætt um félagslifið í vetur. Ríkir hinn besti áhugi í félaginu og ein félagskonur þegar komnar i baráttuhug fyrír kosningarnar. iráHi ■ M ■ I. Fundur í Hvöt. g jálfstæðiskvennafélagið Hvöt hélt fund í gærkveldi og var hann f jölmennur. Frú Guðrún Guðlaugsdóttir stýrði fundinum og áður en Nokkur spellvirki hafa verið framin á mannvirkjum hita- veitunnar á milli Brúarlands og Reykja. Það var búið að setja upp steypumót við steinsteypurenn- una sem liitaveitupípurnar eiga að liggja í. Þessi steypumót hafa verið rifin burt á á að giska 60—70 m. svæði, og hefir þeim verið fleygt út um alla mýri. Það er talið víst að mótin hafi verið rifin upp á sunnu- dagskvöldið eða aðfaranótt mánudagsins, þvi það sáust ekki nein verksummerki þarna fyr en verkamenn komu til vinnu í gærmorgun. Hefir yfirverkfræðingur firmans, Höjgaard & Schultz kært þetta fyrir sýslumanni Gullbringu- og Kjósarsýslu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.