Vísir - 16.10.1940, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Revkjavík, miðvikudaginn 16. október 1940.
, Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
239. tbl.
%
Loftstypjöldin
harðnar enn—
Feikna harðar árásir á London, en Bret-
ar herða enn sóknina á hernaðarstöðvar
í Þýskalandi og meginlandshafnírnar.
illlair þýskar útvarpsstöðvar hættu útsendingum kl. 9 í gærkveldi.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Það kemur æ betur í 1 jós, að báðir st.yrjaldaraðilar leitast nú við af fremsta
megni, áður vetur gengur í garð fyrir alvöru, að valda hinum eins miklu
tjóni með loftárásum og frekast er unt. Breska flugmálaráðuneytið tilkynti
í morgun, að árásir liefði verið gerðar á f jölda marga staði í Norður- og Norðvestur-
Þýskalandi, aðallega olíustöðvar, flugstöðvar, verksmiðjur o. s. frv. Berlín varð fyrir
á«ás s. 1. nótt. Beðið er skýrslna flugmanna þeirra, sem tóku þátt í árásunum, eftir
írekari fregnum, en það er vitað, að árásirnar voru m jög harðar. Þýskar útvarps-
stöðvar hættu útsendingum um kl. 9 í gærkveldi, en þá voru breskar sprengjuflug-
vélar á leið til þeirra staða í Þýskalandi, sem gera átti árásir á.
Lothian lávarður
á heimleið.
Kennedy kvaddur heim.
London í morgun.
Lothian lávarður, sendiherra
Breta, iagði af stað heimleiðis í
gær frá Washington. Hann ferð-
ast í Yankee Clipper yfir At-
lantshaf. — Lothian lávarður
fer til þess að gefa stjórn sinni
skýrslu. — Joseph Kennedy
sendiherra Bandaríkjánna i
London, hefir verið kvaddur
heim til þess að ræða við stjórn-
ina í Washington.
Roosevelt hefir neitað, að rétt
sé ,að Kennedy ætli að hiðjast
lausnar.
HAFA ÞJÓÐVERJAR SETT
LIÐ Á LAND 1 ALBANÍU?
Fregnir frá Belgrad, sem eru
algerlega óstaðfestar, liafa bor-
ist frá Scutari, þess efnis, að 3
þýsk herfylki hafi verið sett á
land í Durazzo, liafnarborg Al-
baníu. I
Það voru einnig gerðar árásir á Ermarsundshafnirn-
ar. Hinqr stöðugu árásir breskra sprengjuflugvéla á
þær sýna, að breska herst jórnin gerir sér I jóst, að inn-
rásarhættan er enn ekki liðin h já, og er því árásunum
haldið áfram af kappi á innrásarbækistöðvarnar við
Ermarsund og olíustöðvar í Þýskalandi, flugstöðvar o.
s. frv. því að, hvorttveggja miðar að þvi að ónýta inn-
rásarfyrirætlanir Þ jóðver ja fyrirfram. Það hafa borist
áreiðanlegar frásagnir um, að nú sé orðið ófagurt um að
litast í innrásarhöfpunum. iTeil hverfi, þar sem stórar
vöruskemmur voru, eru í rústum, hafnargarðar sund-
urtættir, en skipaumferð er stöðvuð í mörgum höfnum.
— Boulogne varð einkurn fyrir harðri árás i gærkveldi.
Urðu þar miklar sprengingar og eldhafið sást úr óra
f jarlægð.
Sjóorusta á Mið-.
jarðarhaíi.
»
Herskipið Ajax getur sér nýja
frægð. - Sökkvir þremur ítölskum
tundurspiilum og laskar þ. íjórða.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgnn.
Breska flotamálaráðuneytið tilkýnti í gærkveldi, að Miðjarð-
arhafsflotadeild frá Alexandriu hefði farið um alt austanvert
Miðjarðarhaf síðari hluta síðastliðinnar viku, og einnig um mið-
hluta þess, til þess að leita uppi ítalska flotann. Varð megin-
flotans hvergi vart. En s. 1. laugardag varð beitiskipið Ajax vart
við ítalska tundurspilla, þrjá talsins, um 80 mílur austur af
Sikiley. Var hafin skothríð á þá af Ajax og tveir skotnir í kaf,
en sá þirðji skemdist og komst hann undan, því að Ajax fékk
nú veður af því, að eigi f jarri væri önnur ítölsk herskip. Leitaði
hann þau uppi og hóf skothríð á þau, þrátt fyrir að þarna væri
eitt beitiskip allstórt og 4 tundurspillar. Var þá komið undir
kvöld. Laskaðist einn tundurspillirinn, en herskipin komust
undan í myrkrinu.
Breska flugmálaráðuneytið
viðurkennir, að loftárásirnar á
London í nótt sem leið hafi ver-
ið hinar hörðustu um nokkurt
skeið, en þó ekki eins harðar og
þegar verst gegndi í byrjun
september. Mikið tjón varð á
húsum og öðrum mannvirkjum
og manntjón mikið. 17 þýskar
flugvélar voriL skotnar niður í
gær og 15 breskar, en 9 breskir
flugmenn komust lifandi úr
hildarleiknum. Voru háð hin
hörðustu einvígi í lofti. Árásir
voru geröar á marga staði utan
Lundúnaborgar, og varð eink-
um borg ein í Midlands fyrir
hörðum árásum. Kom þar upp
eldur á mörgum stöðum.
í frekari fregnum frá United
Press segir svo: Það sem ein-
kendi loftárásirnar var ekki
hversu lengi þær stóðu, heldur
hversu liarðar þær voru. Þær
stóðu skemur en aðfaranótt
þriðjudags, en tjón varð meira.
Flugvélarnar komu í allstórum
hópum og tókst að dreifa þeim,
en margar flugvélar komust inn
yfir London. Sennilega hefir
hér verið um að ræða stórfeld-
ari tilraun en nokkuru sinni til
liópárásar á London að nðtt-
urlagi.
Ánásirnar voru gerðar á Lon-
don aðallega og ýmsa staði i
héruðuntim í grend við Lon-
don. Skothríðin úr loftvarna-
hyssunum var svo áköf, að ekki
eru dæmi til áður. Var erfitt að
átta sig á hvenær sprengikúlur •
komu til jarðar og sprungu, því
að skothríðin var svo mikil._
Þjóðverjar vörpuðu niður
fjölda mörgum sprengikúlum
og íkveikjusprengjum, sumum
svo nefndum „brauðkörfum
Molotovs“, það er mörg-
um í einu. Vélbyssur voru nol-
að til ])ess að skjóta niðnr svif-
blys þýsku flugmannanna.
Árásir voru einnig gerðar á
slaði í Skotlandi og Wales gn
tjón varð tiltölulega minna en í
Englandi.
BROTTFLUTNINGUR BARNA
FRÁ BERLIN HAFINN.
Fregnir frá Berlín herma, að
blöðin þar séu farin að birta
frásagnir — liinar fyrstu slíks
efnis — um brottflutning barna
frá Berlín. í frásögnum þessum
kemur fram, að lestir með börn
úr höfuðbQrginni eru þegar
komnar til Marthegau í Posen,
í þeim hluta Póllands, sem
Þjóðverjar hertóku. Þá er sagt
að á 75.000 heimilum, utan Ber-
línar sé lokið undirbúningi til
þess að taka á móti börnunum.
Nazistaflokkurinn sér um mót-
tökuna á 10.000 heimilum og
annast þar um börnin að öllu
leyti.
ÞJÓÐVERJAR HAFA NÓGA
OLÍU OG BENSlN.
Talsmaður þýsku fréttastof-
unnar ságði erlendum blaða-
mönnum í gær, að Þjóðverjar
hefði nægan varaforða af olíu
og bensíni — af öllum tegund-
um — eða einni miljón smá-
lesta meira en i byrjun styrj-
aldarinnar. Jafnvel, sagði hann,
þótt Þjóðverjar fengi enga olíu
frá Rúmeníu, myndi þeir kom-
ast af.
Fregnir frá Rómaborg herma,
að Þjóðverjar hafi tekið alla
oliuframleiðslu Rúmeníu i sin-
ar hendur og liér eftir fái Grilck-
ir og Rúmenar aðeins ákveðið
rnagn af olíu, en fyrri fregnir
höfðu hermt, að oliuflutningur
lil þessara landa liefði verið
stöðváður.
®
í fyrrinótt gerðu Brelar árás
á Le Havre og segjast flug-
mennirnir hafa fundið loft-
þrýstinginn af sprengingu í ol-
iugeými upp í 8000 l'eta hæð.
Herskipið York kom nú á vett-
vang, Ajax til aðstoðar, en nú
varð að bíða birtingar. Sást þá
til tundurspillis með annan i
eftirdragi, og var það sá, sem
laskast liafði i orustunni kveldið
áður. Hinn italski tundurspillir-
inn lagði á flótta, en áhöfnin á
þeim sem laskaður var, féldc
hálfrar ldst. frest til þess að
komast í bótana. Var svo tund-
urspillinum, Artiglieri, 1620
smál., sök. Var þetta nýtt, vand-
að skip. Send voru loftskeyti til
Sikileyjar og skýrt frá hvar bát-
ar tundurspillisins væru, svo að
þeim bærist aðstoð. Veður var
þó gott og bátarnir ekki fjarri
landi. Ekki var skylt að alþjóða-
lögum að gefa slíka aðvörun
sem þessa.
Ajax skemdist lítið. Nokkurt
manntjón varð á skipinu. Og
ekkert tjón varð á neinU bresku
herskipanna, nema Ajax, en
skemdirnar á lionum eru ekki
meiri en það að viðgerð getur
farið fram án þess skipið leiti
lil hafnar. Ajax var eitt þeirra
skipa, sem söktu þýska vasaor-
ustuskipinu Graf von Spee, en
York, segir í breskri tilkynn-
ingu, „er eitt bresku herskip-
anna, sem dr. Göbbels liefir
sökt“. — I loftárás ítalskra
flugvela á bresku flotadeildina
voru fjórar ítalskar flugvélar
skotnar niður, en fleiri skemd-
ust. — Breskir kafbátar hafa
sökt nokkurum flutningaskip-
um við Ítalíu og Libyustrendur,
tveimur 5000 smálesta flutn-
inagskipum, einu 3000 smál. og
einu 800 smál. Flutningaskipin
voru vopnuð og E-bátar voru
í fylgd með einu þeirra.
3000 Bandaríkja'
raenn I Anstnr-Asín
Tilja koraast heira.
Einkaskeyti frá United Press.
London i morgun.
Það var tilkynl í New Yo;'k i
gær, að 3000 Bandaríkjamenn í
Kína, Japan og Hongkong vildi
komast heim. Verða send skip
til þess að flytja þá lieim. Eitt
er þegar lagt af stað frá San
Francisco, en linuskipið Georg
Washington leggur af stað frá
New York n. k. laugardag sömu
erinda. Það er eitt af mestu skip-
um U. S. A. og hefir legið ónotað
um liríð.
E S J A
liggur enn þá á ytri höfninni og ekki hefir tekist, þrátt fyrir
margvíslega viðleitni, að fá upplýsingar um hvenær hún sé vænt-
anleg upp að hafnarbakkanum. Athugun á skipi og farþegum
lieldur áfram í dag og væntanlega mun lienni bráðlega verða
lokið.
Ferðin lieim
gek k vel.
Vidíssl wid Mleaneuss Teyg'gvasnn
hágfræðing.
Vísir hafði í morgun tal af Iílemens Tryggvasyni (Þórhalls-
sonar) er kom með Esju í gær. Hann lauk í sumar prófi við há-
f kólann í Kaupmnnnahcfn í hagfræði (Statsvidenskab) með
217'/2 stig, sem er með allra hæstu prófum sem lokið hefir ver-
ið. Skýrði hann blaðinu í höfuðatriðum frá undirbúningi und-
ir ferðina og frá ferðinni heim.
„Hvernig leið Islendingum í
Khöfn undanfarna mánuði?“
„Eg lield yfirleitt vel þeim,
sem þar voru búsettir, en hins-
vegar komu nolckur vandræði
til greina meðal þeirra, sem
voru ákveðnir að fara heim í
sumar.
Það var nefnilega gert ráð
fyrir, að Esja kæmi til Petsa-
mo 25. ágúst, og íslendingarnir
sem ætluðu héim bjuggu sig al-
nlent undir það, þannig að þeir
sögðu upp atvinnu og lausum
ibúðum, seldu húsgögn og ann-
að þessháttar.
Þá kom alt í einu fregn frá
sendiráðinu, sem laust eins og
reiðarslag yfir alla þá, sem ætl-
uðu að komast heim, þess efnis,
að ekkert gæti orðið úr lieim-.
för fyrstu vikurnar og það væri
yfirleitt ekki nein trygging fyr-
ir, að úr förinni gæti orðð. Þessi
fregn sló skelfingu á fólk og
margir gáfu upp alla von.“
„Hvað var tekið til bragðs?“
„Sendiráðið ráðlagði öllum
’þeim er gætu, að komast í vinnu
aftur, en það vildi takast mis-
jafnlega og yfirleitt mynduðust
almenn vandræði við þessa
frestun heimferðarinnar."
„Þið hafið fagnað þvi, þegar
þið fenguð vissu fyrir því, að
Esja kæmi.“
>,Já, það gerðum við vissu-
lega. Það vitnaðist fljótt að öll
von væi’i ekki úti en hinsvegar
vorum við samt altaf niilli yon-
ar og ótta uns við fréttuixi
hvaða dag slcipið færi frá Pet-
samo. En það fréttum við ekki
fyr en rétt áður en skipið lagði
af stað?“
„Var félagslíf landa okkar i
Khöfn nokkuð öðruvísi en
venjulega vegna hernáms Dan-
merkur?“
„Nei, félagslif landa i Khöfn
er með svipuðu sniði og áður.
Það eru þar tvö starfandi fé-
lög: íslendingafélagið og Félag
íslenskra stúdenta. Rétt áður en
við lögðum af stað var haldið
landamót. Tólcu þátt í því um
300 manns og er það eitt af
fjölmennustu landamótum, sem
haldin liafa verið. Annars hitt-
ust íslendingar aðallega lijá
sendiráðinu, sem greiddi götu
íslendinga eftir mætti og fórst
það yfirleitt vel úr hendi.“
„Og ferðin — livernig gekk
hún ?“
„Hún gekk vel og án þess að
nokkuð sögulegt bæri til tíð-
ina. Ilinsvegar kom krókurinn
til Kirkwall okkur mjög á ó-
vænt. Eg man, að þegar við vor-
um kornin yfir Eyrarsund, þá
bjuggumst við fastlega við, að
liættulegasti kafh leiðarinnar
væiá búinn.“
„Er Eýrarsund hættusvæði?“
„Já, það er það. Og þvi til
sönnunar má geta þess, að á
meðan við dvöldum i Stokk-
hólmi kom fregn um það, að
sænskt skip hefði rekist á tund-
urdufl í Eyrarsundi og farist.
Okkur fanst þess vegna við liafa
sloppið vel.“
„Hvernig var umhoi’fs í Finn-
landi?“
„Við sáum litið, bæði vegna
þess, að við fórum yfir Finn-
land aðallega að næturlagi og
svo af því, að landið, sem við
fórum um, var nær alt skógi
vaxi,. Við sáunii ekki mikið af
hernaðarskemdum, en sáum þó
einstöku rústir af hrundum hús-
um.“
„Hvert komust þið með jáx-n-
brautinni frá Stokkjiólmi ?“
„Endastöðin var Rovaniemi.
Þaðan er ca. 12 klst. ferð í bif-
reiðum, til Petsamo. Vegurinn
er góður, en urnferð á veginum
alveg gífurlega mikil, einkum
af vöruflutningabifi'eiðum. —
Petsamo er um þessar mundir
lífæð Finnlands, enda sigla þeir
þaðan mikið til Ameriku."
„Hvernig var umhorfs i
Petsamo ?“
„Petsanxo er eyðilegasti bær,
sem eg hefi séð; landið í kring
Frh. á 3. siðu.