Vísir - 17.10.1940, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Fjórtán mil|óiiir inatBiraa. sfisni
scttir til herþjóuHstn
i Oan«larík|imiim
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
r
a
f
i
leið.
Igær fór fram skráning karla á aldrinum 21—35
ára um gervöll Bandaríkin, með það fyrir aug-
um, að þeir verði teknir til heræfinga, og verð-
ur mjög bráðlega farið að æfa nokkur hundruð þúsund
menn af þessu liði. Talið var, að alls myndu verða skrá-
settir 16.500.000 menn og samkvæmt fregnum frá Was-
hington höfðu 14 miljónir manna látið skrásetja nöfn
sín kl. 10 í gærkveldi. Þetta er í fyrsta skifti sem slík
skrásetning fer fram í Bandaríkjunum á friðartímum.
Meðal þeirra, sem fóru til skrásetningar, eru 16 þingmenn í
fulltrúadeildinni, kvlkmyndaleikararnir Robert Taylor, Don
Ameche, Tyrone Powers og Errol Flynn, dvergar, sem sýndir
voru á heimssýningunni. Rauðskinnar er þar komu fram og
margir aðrir, sem eru á hvers manns vörum í Bandaríkjunum.
Þeir, sem fylgdust með skrásetningunni í gær, segja að meg-
inþorri hermannaefnanna hafi verið vasklegir menn og heilsu-
hraustir að sjá. Skrásetningin í gær fór fram til þess fyrst og
fremst, að fá áreiðanlegar skrár yfir alla menn á herskyldualdri,
en því næst verða öll hermannaefnin að ganga undir læknis-
skoðun og að eins þeir verða teknir til æfinga, sem til þess eru
færir. Yerða svo vahlir fyrstu 400.000 nýliðarnir og eiga þeir að
koma til æfinga í síðasta lagi 1. apríl n. k., sama tala í október
o. s. frv. þar til um 1 miljón manna verða kvaddir til vopna ár-
lega.
Það er á allra vitorði, að til þess getur komið, að nýliðar verði
kvaddir til æfinga fyrr, og veltur það að sjálfsögðu á því hvort
líkurnar aukast fyrir því, að Bandaríkin taki þátt í styrjöldinni.
Wendell L. Willkie, forsetaefni republikana, og Roosevelt
forseti ávörpuðu hermannaefnin í gær. Hjá báðum kom það
fram, að til þess kynni að koma, að hermannaefnin yrðu kvödd
til þess að verja Vesturálfu, til þess að þar mætti friður ríkja og
í heiðri hafðar verða frelsishugsjónir þeirra manna, sem fyrst
námu land í Bandaríkjunum, og þeirra, sem börðust fyrir, að
lýðræðið mætti viðhaldast þar og þróast.
Sex þý§kum
skipuin §ökt.
Veðurskilyrði
óhagstæð.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Þrátt fyrir, að tunglskin var i
nótt og allbjart, var fáum
sprengjum varpað :á London,
því að veðurslcilyrði voru óliag-
stæð að öðru leyti. — Það heyrð-
ist glögt til þýsku flugvélanna
allhátt í lofti þegar lilé varð á
skothríðinni úr loftvarnabyss-
unum. Lágskýjað var, og segir
í breskum tilkynningum, að
sprengjum liafi verið varpað af
handabófi.
Loftárásir á aðrar borgir
Bretlands voru einnig með
minna móti s. 1. nótt. Sprengj-
urii var varpað á Liverpool, á
borgir í norðvesturhluta Mid-
lands, suðausturhluta 'Englands
og Wales.
Ein tvíhreyfla sprengjuflug-
vél var skotin niður yfir London.
BÚIST VIÐ MIKLUM LOFT-
BARDÖGUM í BRETLANDI.
Þegar í morgun snemma
flaug stór hópur þýskra flug-
véla inri yfir strendur Kent og
kom til harðra átaka við breslc-
ar orustuflugvélar. Aðvaranir
um loftárásir voru gefnar tvisv-
fyrir hádegi i*London. — Menn
búast við fleiri hópárásum í
dag. — Þrjár þýskar sprengju-
flugvélar voru skotnar niður í
nótt sem leið.
Fjögur voru birgðaskip, en tvö herskip.
Breska flotamálaráðuneytið tilkynti nýja sigra breska flotans
í gærkveldi. I tilkynningunni segir, að grandað hafi verið þýsk-
um skipahóp (convoy), sem í voru 3 birgðaskip, þar af 1 7000
smálesta að stærð, tvö herskip (tundurspillar), er voru þeim til
fylgdar. Hin flutningaskipin voru minni. í einu flutningaskip-
anna varð sprenging áður en það sökk. Ekki er tilgreint hvar
skipum þessum var sökt, en líklegt er að það hafi verið við
strendur meginlandsins. Ennfremur tilkynnir breska flotamála-
ráðuneytið, að sökt hafi verið 7000 smálesta flutningaskipi. Var
það hæft þremur tundurskeytum. Flutningaskip þetta var
einnig þýskt.
Árás á Dunkuerque.
Aðfaranótt miðvikudags síð-
astliðins hófu bresk herskip
skothríð mikla á Dunkerque og
var henni heint að skipaflota
Þjóðverja þar í höfninni og
hafnarmannvirkjum. Varð mik-
ið tjón af völdum skothríðar-
innar og kom upp mikill eldur
í skipum og við höfnina. Eins
og skemst er að minnast var
einnig gerð slík árás á 'Brest
fyrir skömmu og varð nrikið
tjón í þeirri árás.
Bresk beitiskip verður
fyrir tundurskeyti.
Loks tilkynti breska flota-
málaráðuneytið i gær, að breska
beitiskipið Liverpool hefði orðið
fyrir tundurskeyti. Var lierskip-
ið á leið til bækistöðvar sinnar,
er þetta gerðist, og var á heim-
leið úr viðureigninni í lok síð-
ustu viku. Herskipið komst til
hafnar. Nokurt manntjón varð.
Tilkynningar Þjóðverja.
Þeim er mótmælt í London.
Þjóðverjar tilkyntu i gær, að
Ajax liefði verið sökt, og var því
við bætt, að tilkynning um þelta
hefði verið birt í London. Bretar
segja liinsvegar, sem fyr var
getið, að Ajax hafi orðið fyrir
litlum skemduin, sé vigfært og
nú i bækislöð sinni.
Suner verður utan-
rikisráðherra Spánar.
London í morgun.
í dag barst fregn frá Spáni,
sem vekur mikla athygli. —
Serrano Suner innanríkis-
x-áðherra, leiðtogi falangista,
sem nýlega heimsótti Hitler
og Mussolini, sem skernst er
að minnast, tekur við em-
bætti utanríkisráðherra. —
S törfum , innanríkisráðherr-
ans mun aðstoðai-utanríkis-
ráðherrann gegna, undir yf -
irumsjón Francos.
Flugvéla- og
flugmannatjón.
Flugmálaráðuneytið breska
tilkvnti i gæi\ að vikuna 7.—14.
okt. hafi 71 flugvél verið skotin
niður fyrir Þjóðverjum, en
sjálfir segjast þeir hafa mist 45
flugvélar og átta sprengju-
flugvélar. Bretar segjast hafa
mist 42 flugmenn, en 27 var
bjargað, en flugmannatjón
Þjöðverja er 171 umgetna viku
og flugmannatjón þeirra því
mikltun mun meira en Bxæta, og
hefir svo verið um langt skeið.
Bretar vilja fá að leggja
járnbraot _viö höfnina.
Halnasrstjómin telnr ógerlegt að leyía það.
Jafnskjótt og Bretar komu hirígað í vor, óskuðu þeir
eftir að fá algeran umráðarétt ylir miðbryggjunni í
liöfninni, Grófarbryggjunni, vestan Hafnarhússins.
Jafnframt tóku þeir á leigu stórt svæði við höfnina,
uppfyllinguna nýju framundan Verkamannaskýlinu,
milli bólvirkjanna.
Þjóðverjar senda
herlið til Libyu.
Einkaskeyti til Yísis.
London í morgrin.
Fi-egnir bárust um það til
Londoxi í morgun, að margar
þýskar herflutiiingalestir hefði
farið um Norður-Italíu suður á
bóginn, og myndi herlið þetta
eiga að fara til Libyu. Einnig
lxafa borist fregnir um, að ver-
ið sé að æfa- austurrískt herlið
við „eyðimerkur-hernað“.
Graziani marskálkur hefir nú
haldið kyrru fyrir um mánað-
artíma við -Sidi Barrani, án
þess að gera nokkura tilraun
til þess að lialda áfram sókn-
inni. Þýskir yfirforingjar eru
sagðir komnir til Libyu og lier-
lið, sem átti að fá æfingu t ný-
lenduliernaði. Þessurn fregnum
var að vísu neitað í Rómaborg,
en stöðugt berast fregnir í
þessa átt.
BURMABRAUTIN YERÐUR
OPNUÐ Á MORGUN
TIL HERGAGNAFLUTNINGA.
/ - x
London í morgun.
Burmabrautin verður opnuð
á morgun til liei’gagnaflutninga
og í Kína, við norðurenda braut-
arinnar, bíða flutningabifreiðir
og önnur flutningatæki í þús-.
undatali, til þess að sækja her-
gögn og ýmsar nauðsynjar til
Burma, þar senx Kínverjar eiga
nú feikna birgðir. — Varafor-
sætisráðherra Kína er kominn
til Burma og sagði hann í við-
tali í gær, að flestar birgðirnar
væi’i komnar frá Bandavíkjun-
um, en Bretar hjálpuðu einnig
Kínverjum eins og þeir gæti, en
aðstaða þeirra væri erfiðari
vegna stríðsins. — Burmabraut-
in er sögð vei’a óskemd með
öllu og í Kína gera menn sér
vonir um, að flutningar um
liana gangi greiðlega, þrátt fyr-
ir hótanir Japana um að varpa
sprengjum á hana.
Síðan hefir næstum öll upp-
skipun á vörum til hreska setu-
liðsins farið fram við Grófar-
bryggju og Bretar geymt þær á
uppfyllingunni, sem þeir hafa
tekið á leigu, þangað til þær
bafa verið fluttar annað.
Breska setuliðsstjórnin fór
slðan fram á að fá leyfi til að
tengja Grófarbryggjuna og
uppfyllinguna saman með járn-
braut, til þess að flutningar á
vörum þeirra gengi greiðara.
Hafnarstjórn liélt fund í
fyrradag og var þá þetta mál til
umræðu, en Vísir fékk í morg-
un þær upplýsingar hjá liafn-
arstjóra, sem hér eru birtar.
Á fundinum samþykti hafn-
arstjórn, að hún teldi með öllu
ógérlegt að leyfa jái’nbrautai’-
lagningu á þessu svæði, sökurn
þeii-rar ' gagngerðu truflunar,
sem það mundi vakla á öllum
samgöngum og afgi’eiðslu við
höfnina.
Eins og allir vita, sem leggja
leið sína uin höfnina, er vöru-
afgreiðsla og umferð með vör-
ur mest á uppfyllingunni franir
undan hafnax’húsinu, vöru-
geymsluhúsum Sambands isl.
samvinnufélaga og Eimskipa-
félagsins, en þar liefði járn-
brautin legið annað hvort í göt-
unni noi’ðan við hafnarhúsið,
eða framar á uppfyllingunni.
Af þeim ástæðum sá liafnar-
stjóri sér ekki fært að vei’ða
við’ þessu.
VIÐRÆÐUR RÚSSA
OG BANDARÍKJAMANNA.
London í morgun.
Sxxnmer Welles, aðstoðar-ut-
ani’ikisi’áðherra Bandarikjanna,
ræddi á ný í gær við Umansky,
sendiherra Rússa í Washington.
Ræddust þeir við nýlega og
leiddu þá til lykta ýms deilu-
mál, sem spilt hafa sambúð
Bandarikjanna og Rússa, og var
þá boðað, að x-ædd yi’ði bráð-
lega önnur vandamál og meiri.
— Hoi’fir svo, að til fullra sátta
og samvinnu di*agi með Rúss-
um og Bandarikjaiiiiönnum.
FREGNIRNAR UM LIÐSSAFN-
AÐ RÚSSA VIÐ LANDAMÆRI
RÚMENÍU ORÐUM AUKNAR.
Einkaskeyti frá United Press.
London i morgun.
Fregn fx á Bxdcarest hermir, að
einn af ýfirmönnum rússnesku
i sendisveitarinnar þar í borg
i hafi lýst yfir því, að fregnirnar
j um að Rússar liafi sent 12 liei’-
' fylki til rúmensku landamær-
| anna hafi ekki við neitt að
styðjast. Enginn liðssafnaður
fer fram, sagði embættismaður
þessi, neinsstaðar við landa-
rixæri Rússlands og Rúmenkx.
Frá heimildum, sem ekki eru
í’ússneskar berast hinsvegar
fregnir um, að rússrieskt herlið
vinni að því að koma upp virkj-
uin við landamæri Rúmeniu.
Ýmsar fregnir hafa og borist
um, að Rússar hafi mikið lið í
Norðux’-Bukovinu og Bessara-
biu, og m. a. loftvarnasveitir og
fluglið mikið.
Stöðugur straumur þýskra skemtiferða-
manna er til Búlgaríu frá Þýskalandi — en
skemtiferðamennirnir eru sagðir vera „fram-
varðasveitir“.
Samkvæmt ýmsurn fregnum úir og grúir af þýskum skemti-
ferðamönnum í Búlgaríu. Allar lestir og flugvélar eru fullar
af skemtiferðamönnum og leikur grunur á, segir í breskri fregn,
að hér sé í rauninni um nokkurskonar „framvai’ðasveitir“ að
ræða, sem eiga að undirbúá, að Þjóðverjar verði öllu ráðandi í
Búlgaríu sem í Rúmeníu.
Sagt er að Þjóðverjar séu
búnir að koma upp loftvarna-
stöðvqm í Norðui’-Búlgaríu, því
að þeir óttast nú loftárásir á
Rúmeníu sunnan frá. Engar
þessara fregna eru staðfestar.
Milcil óánægja er i Rúmeníu
yfir því, að Pjóðverjar settust
að í landinu. Er ávarpi og áróð-
ursmiðum, þar sem farið er
liörðum orðum um *,föður-
]andssvikarana“ útbýtt urn land
alt.
I Tyrklandi eru gerðar ýmsar
varúðai’ráðstafanii’, en þjóðin er
einhuga og róleg. Inonu Tyrk-
landsfoi’seti ræqdi í gær við
hinn riýja sendiherra Rússa í
Tyrklandi og var tyrkneski yfir-
herforinginn viðstaddur.
Tyrknesk blöð láta eindregið
í Ijós þá skoðun, að Tyi’kir eigi
að vei’ja land sitt og sameinast
um leiðloga sinn, forsetann, eft-
irmann ICémals Ataturks.
LOFTÁRÁS Á CHUNGKING.
London í morgun.
; Þi’jár japanskar flugvélar
flugu inn yfir nýjasta íbúða-
liverfi Ghtinldng, aðsetursborg-
ar Chiang Kai-shek stjórnar-
: innar, aðfaranótt miðvikudags.
, Tunglskin var og flugskilyrði
góð. Samkvæmt opinberri til-
kynningu var varpað tólf
sprengjum á boi’gina. Skemdir
urðu á sjúkrahúsi og nokkrum
öði’um hyggingunx. Aðeins tveir
menn særðust.
t STUTTU MÁLl
í Bretlandi liefir nxönnum
verið bannað að kaupa fólks-
bila, nema ef þeir liafa mjög á-
ríðandi störfum að sinna. Er
þetta gert til þess að hægt sé að
auka útflutninginn.
•
Chai’les Latliam, forseti bæj-
arstjórnarinnar í London, hefir
haldið ræðu um skemdirnar af
löftárásum Þjóðverja undan-
farnar 4 vikur. Sagði hann, að
aðeins 1% af eignum boi’gar-
innar liafi skernst eða eyði-
lagst.
•
Matarskortur er fárinn að
gex-a vart við sig í Búkarest i
Rúmeníu. Stendur fóllc í röðum
fyrir utan brauðsölubúðir s í
borginni.
•
Stjórnin í Viclxy liefir gert ó-
gilt Cremieux-ávai’pið frá árinu
1871. í ávarpinu er Gyðingum
og Aröbunx í Algier þölckuð
barátta þeirra i fransk-þýska
sti’iðinu 1871. Ávarpið var sam-
ið og samþykt af franska þin;
inu.