Vísir - 19.10.1940, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
InnrásarbækistöO ÞjúOverja
( Dunkerque gereyðiiögð í
skothríð frá bresk-
um herskipnm.
Þjóðverja ætluðn að gera innrá§<
Ina 1«. sept. §. 1.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
amkvæmt skeyti frá Vichy birta frönsk blöð
skeyti frá Dunkerque þess efnis, að hafnar-
hryggjur þær og skipakvíar sem Þjóðverjar
hafa komið upp í Dunkerque hafi gereyðilagst í skot-
hríð bresku herskipanna á dögunum. Sá hluti hafnar-
innar er algerlega í rústum, segja frönsku blöðin.
Það hafa borist fregnir frá ýmsum öðrum stöðum,
sem benda til hversu mikið tjón hefir orðið í innrásar-
bækistöðvunum ,eða þeim höfnum, sem vitað ér, að
Þjóðverjar hafa unnið að undirbúningi innrásarinnar,
dregið að sér hergögn, skip og menn og alt það, sem til
innrásar þarf. Er víst, að Þjóðverjar hafa orðið fyrir
gífurlegu tjóni á þessum stöðum, og því er nú haldið
ákveðið fram, að innrásin hafi verið ákveðin 16. sept.,
en Þjóðverjar neyðst til þess að hætta við hana, enda nú
aðallega hugsað um að ná árangri, þar sem vörnin er
veilari en í Bretlandi.
Blöðum Bandkríkjanna verð-
ur mjög tíðrætt um það, sem
um var getið í fregnum breslca
flugmálaráðuneytisins i gær, þ.
e. að þ. 16. sept. s. 1. liefði Þjóð-
verjar verið búnir að setja mik-
ið heriið um borð i skip sín i
Ermarsundshöfnum, en vegna
liinna miklu loftárása Breta
befði þeir orðið að flytja liðið á
land aftur. Bandarikjablöð
segja sem svo: Það var 15. sept.,
sem Þjóðverjar gerðu hina stór-
feldu tilraun til árásar ;á Bret-
land, en mistu 185 flugvélar.
Innrásarskilyrði voru þá hentug,
tunglskin og lygnt og stór-
streymt. Um kvöldið versnaði
veður og þegar það*bættist ofan
á flugvélatjónið og tjónið í höfn-
unum við Ei-marsund neyddist
þýska herstjórnin til þess að
hætta víð áformin.
Þýskar flugvélar
yfir Svíþjóð.
Þrjár þýskar flugvélar flugu
yfir Svíþjóð í gær og var skotið
á þær af loftvarnabyssum. Ein
varð fyrir skoti og nauðlenti í
Danmörku.
Herskipið Ajax
reiðubúið.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Það var tilkynt i London i
gær, samkvænrt fregn frá Alex-
andríu, að lierskipið Ajax væri
þar og tilbúið að leggja á haf út
fyrírvaralaust, og sjóliðarnir
væri óþreyjufullir eftir að fá
nýtt tækifæri til þess að berjast
við Itali, ef þeir þyrðu út á skip-
um sínum. — Þýska og ítalska
útvarpið hafa verið að birta
fregnir um að Ajax hefði orðið
fyrjr svo miklum skemdum i
sjóorustunni á dögunum, að
það væri ekki vígfært.
Flugmálaráðlierra Kanada
hefir tilkynt, að í júní n.k. muni
verða þrisvar sinnum fleiri
kensluflugvélar í notkun þar,
en nú eru. í janúar verða flug-
nemendur orðnir helmingi fleiri
en þeír eru nú.
Japanir.
hafa eiag’a
olíu keypt
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
I gær voru birtar fregnir um,
að Japanir liefði gert samninga
við olíufélögin, sem eiga olíu-
lindir á Java og öðrum liollensk-
um eyjum í Asiu, þess efnis, að
Japanir fengi þaðan allveruleg-
an hluta þeirrar olíu, sem þeir
hafa þörf fyrir, eða alt að 60%,.
Var tilkynning birt um þetta i
Tokio, en tekið fram, að stað-
festing hefði ekki fengist ann-
arsstaðar. Nú segir i fregnum í
dag, að ekkert samkomulag liafi
náðst, en Japanir gera sér vonir
um, að samningar takist. Jap-
önsk viðskiftanefnd hefir verið
í Batavia á Java í 6 vikur og rætt
þar daglega við fulltrua breskra,
ameriskra og hollenskra olíufé-
laga um þessi mál.
Japanir segjast hafa
valdið tjóni á Burma-
brautinni.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Fregn frá Tokio hermir, að
japanskar flotaflugvélar liafi
gert árásir á endastöð Burma-
brautarinnar í Yunnan-héraði i
Kina. Ennfremur segjast þeir
hafa varpað mörgum sprengj-
um á aðalbrúna á veginum og
hafi umferð um hann stöðvast'
að minsta kosti í bili. Fjölda
níargar japanskar flugvélar
tóku þátt í loftárásinni, og var
varpað sprengjum á öllu svæð-
inu frá Kumming til landamæra
Burma. Talsmaður flotamála-
ráðuneytisins mintist ekki á það
frá livaða stöðvum japönsku
flugvélarnar voru, en sennilegt
er að það hafi komið frá hinum
nýju stöðvum í Indokína.
neðsflilsoreiiiin i dao
Myndin hér að ofan er af
Fevzi Chakmak, marskálki yfir-
marini tyrkneska hersins. Fjall-
ar neðanmálsgreinin í dag að
nokkuru leyti um hann, en að
mestu um Ghakmaklínuna, sem
Tyrkir hafa bygt frá Svartahafi
lil Eyjahafs, eftir fyrirsögn
Chakmaks.
Það er að draga
úr næturárás-
unum.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Aðvaranir voru gefnar tvi-
vegis i London í nótt sem leið,
um yfirvofandi loftánásir. Var
þetta þriðja nóttin í röð, er alt
var tiltölulega rólegt. Skothrið-
in úr loftvarnabyssunum var
mjög hörð framan af og erfitt
að átta sig hvort um skothríð úr
þeim var að ræða, eða spreng-
ingarhvelli. Flugskilyrði voru
ekki góð og virðist svo sem
flugmennirnir liafi átt við mikla
erfiðleika að striða veðurs
vegna.
Árásarflugvélarnar lcomu um
líkt leyti og vanalega, sem ollu
litlu tjóni, héldu flugvélarnar
svo heim aftur, og komu á nýj-
an leik eftir tvær klukkustundir,
en ekki heyrðist mikið til þeirra
miðað við það, sem vanalega
hefir verið.
Fimm ára vlgbúnaðar-
áætlnn í Argentínn.
82 y2 tniljón stpd. til víg-
búnaðar.
London í morgun.
Argentina-stjóm hefir ákveð-
ið að framkvæma 5 ára áætlun
um mjög aukinn vígbúnað, og
verður varið í þessu skyni 82Va
milj. stpd. Er talið að þetta fé
muni nægja til þess að koma nú-
timaskipulagi á her, flugher og
flota Argentínu, oð afla ýmissa
hergagna, sem vanahagar um.
Suner flytur
ræðu.
Serrano Sunar flutti ræðu i
gær og sagði, að hann myndi
ekki þola degi lengur það á-
stand, sem ríkjandi væri i utan-
ríkismálastjóm Spánar. Kvað
hann Spánverja nú viðurkenna
hina nýju skipan í Evrópu (þ. e.
þá, sem möndulveldin eru að
koma á). Starfsmenn ráðuneyt-
isins fengu fyrirskipun um að
klæðast einkennisbúningum
fascista.
Samkoma Petsamo-
faranna.
Ákveðið liefir verið, að land-
arnir, sem komu heim með
Esju, hittist á morgun lil að
kveðjast og ljúka ferðinni sam-
eiginlega, þótt svo undarlega
tækist til um, heimkomuna, sem
raun varð á.
Það hlýtur óneitanlega að
kasta skugga á þessa samkomu,
að nokkra af félögunum varit-
ar i hópinn, þ. á m. Jiinn vin-
sæla fararstjóra H. J. Hólm-
járn. — Þegar farið var til
breskrar eftirlitshafnar og far-
þegar athugaðir þar á sama
liátt og síðar var gert hér á ytri
höfninni, þótti öllum sýnt, að
landganga 'hér yrði ekki tor-
yelduð, a. m. k. ekki svo sem
orðið hefir.
Petsamofararnir munu á
morgun minnast ferðafélag-
anna, sem enn eru í ihaldi
bresku herstjórnarinnar og
senda Hólmjárn fararstjóra
þaklcir fyrir góða hjálp hans á
erfiðri ferð.
Petsamofari.
Pf tsamo-kláhburinn
verður stofnaður í Oddfello.v-
húsinu á morgun kl. e. h. Jafn-
framt verður skipshöfnin á Esju
kvödd með kaffisamsæti, en Esja
fer í strandferð á mánudaginn.
Miðar að fundinum ver'Öa afhentir
á afgreiðslu Fálkans, Bankastræti
3, til kl. 5 í dag. — Þátttakedur
! í ljóðasamkepninni skili handritum
á sama staða fyrir kl. 4 í dag.
j Lífið í Brússel er að fá sina
fyrir mynd, að svo miklu leyti,
sem það er hægt. Myndin er telc-
in hjá gangstéttar veitingahúsi
og sýnir þýska hermenn vera að
lesa herblaðið „West Front“,
sem þýska herstjórnin gefur út.
Safnaðárfundir
um helgina.
Safnaðarfundir verða lialdn-
ir nú um helgina svo sem hér
greinir:
Fyrir Laugarnessókn í Lpug-
arnesskóla á morgun kl. 3 sd.
Fyrir Hallgrímssókn í Aust-
urbæjarbarnaskólanum (gengið
inn frá Bergþórugötu) á morg-
un ld. 8y2 sd.
Fyrir Nessókn i háskóla-
byggingunni nýju (gengið inn
um dyr á suðvesturhorni) á
mánudag kl. 8% sd.
Kosið verður í sóknarnefndir
á fundum þessum, en í hverri
sóknarnefnd eiga sæti 5 menn.
Einnig verður safnaðarfulltrúi
kosinn fyrir hverja sókn. Yænt-
anlega sýna söfnuðirnir fullan
áhuga í þessum málum, ekki
sist þar sem nú ér um að ræða
nýja skipun kirkjumálanna hér
í bænum, sem mikils er um
vert að vel takist þegar í upp-
hafi.
Þjóðverjar mótmæltu í gær
þeirri staðhæfingu Tass-frétta-
stofunnar í Moskva, að Rússar
hefði ekkert fengið að vita fyr-
irfram um liðssendingarnar til
Rúmeniu.
„Loginn helgi“ er eitt af bestu leikritum W. Somerset Maug-
ham og því var ágætlega tekið af fullu húsi áhorfenda s. 1. mið-
vikudagskveld. — Myndin sýnir t. v. Licanda major (Valur
Gislason) og dr. Harvester (Brynj. Jóhannesson).
Hvirfilvindur á Kyrrahafi.
Flóð á Pyreneaskaga. Um 200 manns farast.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
Fregn frá San Francisco í Kaliforníu hermir, að veð-
urstofan þar hafi tilkynt, að hvirfilvindur hafi farið
yfir Kyrrahaf, þar sem Wake-eyja er, en þar hafa
Bandaríkjamenn bækistöð fyrir Clipper-flugbátana,
sem eru í förum milli Kyrrahafsstrandar Bandaríkj-
anna og meginlands Asíu. — Ekkert loftskeytasamband
hefir verið við Wake-eyju í allmargar klukkustundir.
Fregn frá Barcelona hermir, að 200 manns liafi beðið
bana af völdum fióða í efri hluta Gerona-héraðs.Flóðin
eru einhver hin mestu, sem sögur fara af á þessum hluta
skagans, og éignatjón er mjög mikið, því að mannvirki,
jafnvel heil hús, hafa sópast burt í flóðinu. Mikið tjón
hefir orðið á ökrum. Menn óttast, að manntjón sé mikið
meira en þegar er kunnugt orðið.