Vísir - 25.10.1940, Side 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Reykjavík, föstudaginn 25. október 1940.
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsinga? 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
247. tbl.
PETAIN Á FUNDI HITLERS.
Talið, að IIHier ieg-g'á fast að Petain að st^ðja l»j«ðierja í §tríðinu, esa
líknr tfl, að Frakkland neiti að taka fiatt í stríðiun SfcgfBi llretune.
¥iðbnnaðnr V. S. A.
Kosningabaráttan.
Roosevelt telur horíurnar í Evrópu og Asíu
ískyggilegri en nokkuru sinni.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er nú að ná hámarki og
flytja þeir hverja ræðuna á fætur annari Roosevelt forseti og
Willkie, forsetaefni republikana. Mikla eftirtekt vakti í gær, að
Roosevelt 1 ýsti yfir því, að hann gæti ekki farið, lengra frá
Washington en svo, að hann kæmist heim aftur skjótlega, eða
á einu dægri, vegna þess hversu ískyggilegar alþjóðahorfumar
væri. Jafnframt berast fregnir um mjög aukinn viðbúnað
Bandaríkjanna.
Spánn fer ekki í stríðið.;
iEINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Þ.að er buist við því, að frekari viðræður muni
fara fram í dag, milli Hitlers og Pétain mar-
skálks, forsætisráðherra Frakklands. Þeir
ræddust við í gær, en ekkert hefir verið látið uppskátt
um árangurinn af viðtalinu, en líklegt þykir, að Pétain
hafi hafnað ítrustu kröfum Hitlers, sem eru sagðar
vera þátttáka i styrjöldinni gegn Bretum, en jafnframt
eru getgátur á ferðinni um, að Hitler hafí lagt fram
vara-kröfur, og verði erfiðara fyrir Petain að hafna
þeim. Á fundinum í gær voru þeir einnig Laval og von
Ribbentrop.
Þáð kom í ljós í gær, að hafi það verið erindi Hitlers til landa-
mæra Spánar og Frakklands er hann ræddi við Franco, að fara
fram á þátttöku Spánar í styrjöldinni, þá hefir förin ekki borið
árangur, því að í gær var það haft eftir embættismanni í þýska
utanrikismálaráðuneytinu, að Spánn færi ekki í styrjöldina aö
svo stöddu. í Bretlandi er bent á, að svipaðar yfirlýsingar hafi
verið gefnar, eftir för Suners til Berlínar og Róm, en áð.ur en
hann fór eða í það mund, hafi verið látið í veðri vaka, að þátt-
táka Spánar í styrjöldinni yrði brátt ákveðin.
Jafnframt hafa verið birtar
fregnir eftir amerískum frétta-
riturum, sem bera fyrir sig
þýskar heimildir, að Þjóðverj-
ar skilji vel erfiðleika Spánar,
sem hafa ekki enn náð sér eftir
borgarastyrjöldina, og skorti
m. a. olíu til þess að fara í styrj-
öld. Um þessa för Hitlers á fund
Franco er mikið rætt hvarvetna
og segja hreslc blöð m. a., að
mikils hafi Hitlers þótt við
þurfa, er hann braut odd af of-
Iæti sínu og hélt alla leið til
spönsku landamæranna, til þess
að ræða við Franco, en Hitler
hefir lagt það i vana sinn, að
kveðja æðstu menn annara
þjóða á sinn fund, ef hann hefir
aðstöðu til og honum býður svo
við að horfa. í ríkisútvarpinu í
Tyrldandi er því haldið fram,
að óvænlega hljóti að horfa fyr-
ir Hitler í styrjöldinni við Breta,
þar sem hann lei.ti hófanna um
stuðning Frakldands og Spán-
ar.
Mikla athygli vekur, að eitt
blaðið i Vichy, aðsetursstað
frönsku stjórnarinnar, birtir
fregn um það, að svo mikill
glundroði og öngþveiti hafi or-
sakast af völdum árása breskra
sprengjuflugvéla á árásarhafn-
irnar, að öll áform Þjóðverja
um innrás í Bretland liafi mis-
hepnast.
Sumstaðar, m. a. í Bretlandi,
kemur fram sú skoðun, að Hitl-
er muni nú aðeins fara fram á
að fá bækistöðvar fyrir flugvél-
ar og kafbáta í spönskum og
frönskum höfnum, en alt virðist
þetla á getgátum einum bygt.
Fréttaritari United Press í
Vichy skýrir svo frá, að Petain
hafi lagt af stað frá Viohy kl.
7 að morgni. Hann var í bláum
einkennisbúningi og bar Ver ■
dun-heiðursmerkið og annað
heiðursmerki lítið. Petain fór í
bifreið frá Vichy og er talið, að
bifreiðin hafi farið krókaleiðir
til þess staðar, þar sem lest Hitl-
ers heið. Er staður þessi í hin-
um hernumda liluta Frakklands
og er það í fyrsta sldfti, sem
Petain kemur til þess hluta
Frakklands eftir hertökuna.
Viðræðurnar byrjuðu kl. 3 og
stóðu til kl. 5.
Að því er hermt er í opin-
berri franskri tilkynningu var
Petain sýndur fullur hernaðar-
legur sómi. Tekið er fram, að
framtíð Frakklands sé að miklu
leyti komin undir þeim viðræð-
um, sem fram fóru á þessum
sögulega mikilvæga fundi.
I fregnum frá Svisslandi i
morgun er talið líklegt, að Peta-
in hafi verið til neyddur að fall-
ast á margar kröfur Hitlers, en
hann liafi getað sannfært Ilitl-
er um, að óhyggilegt væri að
knýja Frakkland i stríð gegn
Bretlandi. Kröfurnar, sem
Petain er talinn liafa gengið
að eru m. a. að Þjóðverjar fái
Elsass Lothringen, ítalir Nizza
og Djibouti, og ennfremur að
Þjóðverjar og ítalir fái yfirráð
yfir Sýrlandi og einhverju af
nýlendum Fraklclands. Fransk-
ir herfangar verði látnir lausir
og Vichystjórnin fái aðsetur ná-
lægt París. Fregnir þessar eru
vitanlega óstaðfestar með öllu.
F j órveldar áðstef na
um Dónármálin
heíst 28. okt.
London í morgun.
Tilkynt hefir verið í Moskva,
að fjórveldaráðstefna um Dón-
ármálin verði haldin 28. okt.
Ráðstefnaan verður haldin í
Bukarest. Ráðstefnuna sitja
fulllrúar Þýskalands, Rúss-
lands, Ítalíu og Rúmeníu.
Brelar segjast hafa komisl
yfir vasabók þýsks flugmanns.
sem sanni að margar þýskar
flugvélar, sem komist undan,
liafi orðið fyrir svo miklum
skemdum, að þær hrotni og
eyðileggist í lendingu.
•
Útvarpið i Moskva sagði frá
þvi í gær að málmskortur sé nú
orðinn svo mikill í Þýskalandi,
að sprengjur sé nú húnar til úr
steinsteypu þar í landir.
Roosevelt sagði í ræðu sinni I
í gær, að stefna Bandaríkjanna
væri að tryggja landvarnir
allra Vesturálfuríkja og sigl-
ingaleiðir á Kyrrahafi og At-
lantshafi, en þeim likti hann
við „þjóðvegi beggja megin-
landanna“. í ræðu sinni fór
Roosevelt miklum aðdáunar-
orðum um Breta, hina miklu
lýðræðisþjóð, sem nú yrði að
horfast í augu við meiri hættur
og raunir en nokkur lýðræðis-
þjóð fyrr eða síðar, en af vilja-
þreki og óbilandi kjarki og ró-
lyndi berðist fyrir frelsi sinu og
menningu.
Það var tilkynt i Woshington
í gær, að flugher Bandaríkj-
anna yrði aukirin um helming
og fær hann til umráða 13.000
flugvélar og 18.000 til vara, en
ekki verður húið að koma þessu
til leiðar fyrr en 1942. Hinsveg-
ar verður unnið af hinu mesta
kappi a<? efla flugherinn þegar
i stað, og mikið landsvæði hefir
verið tekið til afnota í Kaliforn-
iu, þar sem flugmenn verða
æfðir. Gert er ráð fyrir, að
nokkur hluti flughersins verði
ávalt til táks, til varnar ríkjun-
um sunnan Bandaríkjanna.
Flugvélaframleiðslan verður
aukin gifurlega en ekki dregið
neitt úr flugvélaútflutningnum
lil Bretlands. Er talið að Banda-
ríkin muni brátt geta lagt Bret-
um til mörg hundruð flugvélar
á mánuði hverjum, enda sagði
Joubert flugmarskálkur í ræðu,
sem hann flutti i Bretlandi i
gær, að vegna aukinnar flug-
vélaframleiðslu Breta og stór-
aukins innflutnings flugvéla frá
Bandaríkjunum, gæti Bretar
þegar næsta vor endurgoldið
Þjóðverjum alt það, sem þeir
hefði orðið að þola af völdpm
loftárása þeirra, tvöfalt og
meira til.
30.000 menn af þeim, sem
skrásettir voru á dögunum,
verða kvaddir til heræfinga i
Bandarikjunum 29. okt. Roose-
velt „dregur“ fyrsta nafnið.
Það vekur mikla athygli, að
y?J alls útflutnings Bandaríkj-
anna fer nú til Bretlands, og
sýnir það, að Bretum hefir tek-
ist að halda siglingaleiðum opn-
um yfir Atlantshaf og flytja
hergögn og annað óhindrað frá
Bandaríkjunum til Bretlands.
Þá segir i fregnum að vestan,
að Kanada sé nú orðið þriðja
mesta útflulningsland heims
næst á eftir Bandaríkjunum og
Bretlandi, en Þýskaland var áð-
ur þriðja mesta útflutnings-
landið.
Belgíumenn enn
bandamenn Breta.
Tveir belgiskir ráðherrar
fluttu ræður í London í gær.
Fjármálaráðherrann lýsti yfir
því, að belgiska stjórnin í Lon-
don ynni í samráði við bresku
stjórnina, og öll belgiska þjóðin
hefði samhug með Bretum. Við
enun sama þjóðin, sem 1911—
1918 barðist við hlið Breta.'
Leopold konungur er enn fangi,
sagði ráðlierrann, og vér vinn-
um að þvi, að belgiska þjöðin
og konungurinn verði frelsisins
aðnjótandi.
Nýlendumálaráðherrann belg-
iski sagði í ræðu, að Belgía væri
löglega og raunverulega í stríði
við Þýskaland.
Belgiski lierinn í Ivongo er
reiðuhúinn, sagði hann, ef til
árásar á Belgiska Kongo kemur.
Belgiskar hersveitir í Bretlandi
hafa fengið tiltekið landsvæði til
að verja í Bretlandi, ef til inn-
rásar kemur, og Pólverjar ann-
að (í Skotlandi).
Loftstríðið.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Árásir á Bretland voru með
minna. móti í gær, en i gær-
kveldi varð vart við allmargar
þýskar flugvélar yfir London,
Liverpool og fleiri bæjum.
Tilkynt hefir verið í London,
að kunnugt sé að mikill árang-
ur hafi orðið af völdum loftárás-
arinnar á Berlín og marga aðra
þýska bæi í fyrrinótt. Loftárásiu
á Berlin stóð í 2 klst. Gerðar
voru árásir á Emden, Frank-
furt am Oder o. fl. borgir,
fjölda margar flugstöðvar í
Hollandi og Þýskalandi, og ráð-
ist á skipaflota við Ho.llands-
strendur. Sökt var 4000 smá-
lesta flutningaskipi og 2000
smálesta skip var að sökkva, er
flugvélarnar flugu á hrott.
Flæddi þá sjór yfir þilfarið.
Nóttin sem leið var fimta
Verdtsi’ hann vapaforseti?
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er að nálgast hámarkið,
n sjálfar fara kosningarnar fram 5. nóvembcr. Það er óþarfi að
hirta hér mvnd af Roosevell og því er sá, sem hann valdi sein
varamann sinn, sýndur hér. Hann er Ilenry A. Wallace, land-
húnaðarráðlierra frá Iowa-fylki. Wallace var áður repuhlikani
(alveg eins og Willkie var lil skamms tima demokrati). Flokks-
þing deinokrala kaus Wallace fyrir varaforsetaefní, sarhkvæmt
uppástungu og ósk Roosevelts. Wallace er 51 árs að aldri.
F©a*set sa i k sa ri sa u
kosia í f^i*s*ái@Í5agr.
Forsetabikarinn, er íslensku
skákmennirnir unnu með hinni
ágætu frammistöðu sinni í Bue-
nos Aires í fyrrasumar, kom til
landsins i fyrradag-.
Bikarinn cr tvímælalaust
stærsti verðlaunabikar, sem Is-
lendingar liafa hlotið í laun fyr-
ir frammistöðu sina heima og
erlendis. Hann er 62 cm. hár
með fótstallinum, sem hann
stendur á, en bikarskálin sjálf
er 34 cm. í þvermál.
m:
TORNEO DE LAS NACIONES
COPA
ARGENTINA -
BUENOS AIRES
19 39
GANADOR
EQUIPO DE ISLANDIA
í islenskri þýðingu: Alþjóða
kappmót. — Bikar Argentínu
Buenos Aires 1939. — Sigur-
vegarar kapplið íslendinga.
Bikarinn var ekki tilbúinn í
fyrra, þegar skákmennirnir
fóru heim, að því leyti að það
var ekkí búið að grafa á hann.
En drátturinn, sem varð á því,
að liann kæmist heim, stafaði
aðallega af völdum ófriðprins.
Á skálina eru þessi orð graf-
nóttin, sem London slapp við
harðar loftárásir, en loftárásir
voru liarðari en vanalega í Mid-
lands, á Liverpool og Wales.
Einkanlega. voru árásirnar á
Midlands harðar.
Aðvaranir um loftárásir voru
gefnar í Berlín í nótt sem leið.
I
Bæjarlánið:
Sala bréfanna
gengur ágætlega
J GÆR, á fyrsta útboðsdegi
s^uldabréfaláns Reykjavík-
urbæjar, skrifuðu menn sig fyr-
ir rúmum helmingi — kr.
1.040.500 — 15 ára lánsins, en
flestir settu það skilyrði, að fá
álíka upphæð í 3ja ára láninu.
Þá vildu og margir kaupa
skuldabréf 3ja ára lánsins að-
eins, en þeir sem kaupa bréf
lengra lánsins sitja fyrir um
það. Mun 'jm sala á öllum
skuldabréfum styttra lánsins
örugg.
Sala skuldabréfa heldur á-
fram í dag. Bréfin eru seld í
skrifstofu bæjarins, bönkunum,
Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis og hjá hæstaréttarmála-
flutningsmönnum.