Vísir - 15.11.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 15.11.1940, Blaðsíða 1
Rit$tjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Ritstjóri ) Blaðamenn Sfmi: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla J Grikklr sækja fram á 300 km. löiigimi vígstöðrnm. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Italir ætluðu að koma af stað stjórnarbyltingu í Grikklandi. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Suður í Egiptalandi ganga menn enn í stuttbuxum, þótt vetur sé genginn í garð í Evrópu og farið að snjóa alla leið suður á Grikklandi. — Þessir ungu menn hér á myndinni eru að búa breskar sprengjuflugvélar undir heimsókn til bækistöðva ítala og eru að koma með „eggin“, sem þær eiga að „verpa“. Grískt riddaralið rekur flótta Itala. ItálBiBii Fréttaritari United Press í Aþenuborg símar, að í morgun liafi Grikkir hafið milda sókn á öll- um vígsiöðvunum, frá landamærum Júgó- slavíu til sjávar, en J;>að er 200 km. vegalengd. Höfðu þeir þá farið sér hægt um skeið, til þess að geta flutt ó- þreytt lið til'vígstöðvanna og flutt þangað nýtísku vopn, fallbyssur, skriðdreka o. þ. h., sem þeir fá nú ógi'ynni af frá Bretum. Þá er skýrt frá þvi í Aþenuborg, að Grikkir noti nú riddaralið með góðum árangri gegn ítölum. Er þess get- ið til marks um það, hversu mótstaða sé lítil af hálfu' Itala, því að hermálasérfræðingar hafa talið riddaralið úrelt í nútímahernaði, nema þegar um hreyfingai'stríð sé að ræða. Að baki riddaraliðinu kom svo fótgöngulið og stórskotalið. Segir í síðustu fregnum að nú sé búið að hrek ja Itali allstaðar norður fyrir Kalamas-fljót. — í Pindus-fjöllunum hefir aftur komið til mjög harðra bar- daga. Herdeild, sem send var til hjálpar Alpahersveitinni, sem áður hefir verið skýrt l'rá, var hrakin til baka eftir mikið mann- fall á háða bóga. Var hvað eftir annað bai-ist í návígi með hyssu- stingjum, áður en Italir voru hraktir á flótta. Höx-fuðu þeir þá undan til vel víggirtra staða alllangt noi-ðar, en Grikkir fóru á eftir. Tóku þeir }>essa staði eftir þi-iggja klukkustunda hardaga. Gríska sendisveitin í Sofia í Búlgaríu hefir birt tilkynningu um fyrsta þátt styrjaldarinnar í Grikklandi. I tilkynningu þess- ari segir, að ítalir hafi verið hraktir á brott af öllum þeim svæð- um, sem þeim tókst að leggja undir sig. Er lýst gagnsóknum Grikkja, sem hvarvetna hafi tekist vel. I mörgum þorpum hjálpuðu þorpsbúar, oft að eins vopnaðir bareflum og steinum, grísku hermönnunum til þess að hrekja ítali á brott. Þá er lýst hvemig Italir höfðu áformað að ná Grikklandi á sitt /ald og treysta þar aðstöðu sína. Áformað var áð hrinda af stað stjóm- arbyltingu í Aþenuborg og hafði ítalski sendiherrann þar í borg fengið nákvæmar fyrirskipanir þar að lútandi. Átti að koma stjóminni frá og reka konunginn úr landi. Gei*t var ráð fyrir, að lítil mótspyrna yrði veitt á landamærun- um, og átti ítalski innrásarherinn að taka helstu hernaðarstöðv- ar og samgönguleiðir á sitt vald. Þegar herinn var búinn að koma sér fyrir ætluðu fasistar að setja sína menn í stjóm allra héraða og var búið að velja mennina til þessara starfa, og voru margir þeirra komnir til landamæra Albaníu og Grikklands, og biðu þar reiðubúnir til þess að taka við ^törfum. Grísku herstjórninni liafa borist nýjar sannanir fyrir því, að Italír bjuggust við að geta vaðið inn í Grikkland án nokk- urrar mótspyrnu. Hafa ítalskir frakkar i Lorraii neyddir liTörottíarar. Vichy-stjórnin mót- mælir brottílutn- ingunum, Enkaskeyti frá United Press. London í inorgun. Brottflutningur frönslcumæl- andi manna fráLothriixgenásér nú stað í stórunx stil. Fólkið fær að velja hvort það fer til Pól- lands eða til hins óhernumda liluta Fi’akklands. EnginnTiefir kosið að fara til Póllands. — Frá 11. nóv. hafa farið 5—7 lestir á dag með fólk frá Loth- ringen. Franska stjórnin hefir sent þýsku stjórninni mótmæli út af þessum flutningum. liermenn, sem teknir hafa verið til fanga, sagt frá því, að þeir hafi hvað eftir annað verið full- vissaðir um það, að Grikkir myndu aldi-ei þora að berjast að neinu ráði og lierförin myndi verða ein óslitin sigurför. Breytingar eru enn ekki fam- ar að sjást af því, að skift var uixx yfirhershöfðingja, en eins og kunnugt er úr fyrri U.P.- skeytum var það fyx-sta verk íxýja foringjans — Soddu — að fyrirskipa algert undanhald, til þess að liægt væri að endur- skipuleggja liðið. Sagt er að Soddu krefjist þess, að fá nxjög aukið lið, ef hann á að geta leitt sti’íðið til lykta fljótlega. Þarf þá náttúrlega fyrst að flytja það yfir Otranto-sxxnd, en það getur orðið býsna erfitt, vegna þess að flugvélum Breta fjölgar óðnm þarna syði’á, og svo eru þeir nú sterkari á haf- iixu en áður. Moslcvahlaðið „Trud“ segir xxnx árásina á Taranto, að að- staða Breta og Grikkja sé nú gjöi’hreytt, svo að þeir þurfi lít- ið að óttasl ítalska flotaixn. Floíamálaráðherra Bandaríkjanna segir, að það verði að berjast þar til yfir lýknr. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Frank Knox, flotamálaráðherra Bandaríkjanna, flutti út- varpsræðu i gærkveídi, og sagði, að í þessari styrjöld milli ein- ræðisins og lýðræðisins, yrði að berjast þar til yfir lýkur, svo framt að um menningarlegar framfarir eigi að geta verið um að ræða í framtíðinni. Það er ekki hægt, sagði hann að hræða Bandaríkjamenn til þess að fallast á að gera tilraunir til þess að koma á friði, sem til vansæmdar er. Knox sagði ennfremur, að Bandaríkin myndi veita Bretum áfram alla þá aðstoð, sem þeir gæti í té látið, — án þess þó, að þeir stæði varaarlausir fyrir sjálfir. Ennfremur sagði hann að hann Yonaði að Bandaríkin gæti bráðlega veitt Kína eins mikla hjálp og Bretlandi er veitt nú. Vér ætlum oss ekki að segja hvað vér gerum, sagði Knox, vér tölum ekki, en hefjumst handa. Catroux flyt- ur ræðu. Heldur vera frjáls Frakki og sjálf- boðaliði, en ófrjáls landstjóri. Enkaskeyti frá United Press. London í morgun. Catroux herforingi, fyrrver- andi landstjóri Frakka í Franska Indóldna, flutti ræðu í útvarpið i Kairo i gæi’kveldi. Gatroux er einu af fi’ægustu herforingjum Fi-akka og lxefir mikla reynsíu. sem herforingi i Franska Indókína og ýmsum nýlendum Frakka í Norðui’-Af- í’íku. Lét hann af landstjói’a- enxhættiixu í Fránska Indókína, er sýnt þótli, að, fraxiska stjórn- in ætlaði að taka upp hina svo- kölluðu samviixnustefnu við Þjóðverja. Einna mesta athygli vöktu þau ummæli Cati’oux í gær, að Frakkar gæti enn tekið þátt í styrjöldinni og haft úx’- slitaáhrifin. Því að Frakkaveldi er voldugt, sagði hann. Vicliy- stjórnin valdi aðra leið. Hún hefir að visu ekki fallist á, að láta að kröfurn Þjóðverja um flugstöðvar og herskip, en þótt liún gerði það, til þess að konx- ast að betri samvinnukjörum, yrði henni að þvi skammgóður vermir, þvi að ef Þjóðverjai’ sigruðu með tilstyrk Vichy- stjórnarinnár, myndi Fralik- land að þeim sigri loknuxix vex’ða þýskt skattland. Þau ör- lög héfir Hitler ætlað því frá upphafi. Gegu þessu herjast hinir frjálsu Frakkar, m. a. á vigstöðvunum í Egiptalandí, sagði Cátroux. Þeir ei’u foi’verð- irnir í frelsisharáttu Frakka. Og þeir munu sigra, því að þeir eiga sanxjíð frönsku þjóðarinn- ar.og frjálsra manna um allan Iieim. Það var vegna andúðar O'in-samsteypa Evrópu. Stjórn skipa: Þýskaland og Italía EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. IRómaborg telja menn aö tilgangurinn með heimsóknum þeirra Antonescus til Róma- borgar og Molotovs til Berlínar hafi verið að koma á einskonar olíu-samsteypu fyrir Evrópu. Er það ætlan manna, að ítalir eigi framvegis að skifta eingöngu við Rúmena, en Þjóðverjar skifti við Rússa. Verði olíu- verslunin innan álfunnar gerð miklu auðveldari og minni hætta á truflunum, en ef báðir væri að kaupa hjá sama aðilanum. Þá sé ætlunin að skamta olíuna til annara þjóða, a. m. k. þangað til lag sé komið á olíuframleiðslu Rúmena, eftir jarðskjálftana miklu. Verða möndulveldin látin sitja fyrir um olíukaup, en það sem þau þurfi ekki, fari svo til annara ríkja. Molotov hélt heimleiðis í gær. Allir helstu menn naz- istaflokksins og þýska hersins fylgdu honum til járn- brautarstöðvarnnar, en þar var enginn mannfjöldi annar. Járnbrautarstöðin var fánum skreytt. Opinberar tilkynningar hafa verið gefnar út bæði í Berlín og Róm og voru þær næstum samhljóða. Aðal- efni þeirra var á þá leið, að fullkominn skilningur og traust ríkti milli þessara aðila í Öllum þeim málum, sem um var rætt. Á tilkynningum þeim, sem birtar hafa verið um viðræð- urnar í Berlín, er lítið að græða. Tilkynningar þær, sem birtar voru í Berlín og Moskva,' eru nærri samhljóða, en í þeim báð- um segir, að áhugamál Rússa og Þjóðverja hafi verið rædd af gagnkvæmum skilningi. — Stjórnmálamenn í Berlín ætla, að ekkert samkomulag hafi vei’ið undirritað í Berlín. Það vekur niikla athygli, að Tassfi’éttastofan her lil hakxx fregnir um, að Rússar og Jap- anir ætli að skifta Asíu í „á- hrifasvæði“ og að það sam- komulag liafi verið til um- ræðu i Berlín. Einn af flotafox’ingjuxn Rússa segirú málgagni Rauða flotans, að Bxetai* hafi unnið mikilvæg- an sigur í Taranto. 1 amerisk- unx blöðum kemur það fram, að ái’ásin á Taranto hafi komið sér mjög illa fyrir Hitler, því að fyrir bragðið hafi lianii átt óhægara með að sannfæra Rússa um, nauðsyn og gagn af samvinnu við Itali. Þykir ame- rískum blöðunx yfirleitt óvæn- legar liorfa fyi’ir mönduuveld- unum vegna gæfuleysis ítala. Það voru 65 menn i fylgdar- liði Molotoys, meðal þeirra við- skiftasérfi’æðingar, sem urðu eftir í Bei-lín, en flestir fóru aftur með Molotov. — Margir hallast að þvi, að það liafi að- Suner farinn til Parísar EINKASKEYTI FRÁ U. P. — London í nxorgun. Serrano Suner, utanríkisráð- lierra Spánar, er lagður af stað til Parísarborgar, að því er liernit er í fi’egn frá Madrid. Með honum eru tveir háttsettir emhættismenn. — Ekki er kunnugt um erindi þeirra, en talið er liklegt, að það standi í sambandi við framhaldsum- ræður milli Þýskalands, Spánar og Frakldands. frönsku þjóðarinnar og ekki af neinu öðru, sagði Catx-oux, að Vichy-stjórnin þorði ekki að fallast á kröfur Þjóðvei’ja þeg- ar í stað. allega verið viðskiftamál, sem rædd voru í Berlín. Getgátiu* hafa komið fram um, að afstaða Tyrklands hafi verið rædd. Fregnir frá Tyi’klandi hei-ma, að trú manna á sigur Breta sé mikið að aukast, og láta menn þar í ljósi mikla ánægju yfir sigrum Grikkja og loftárásum Breta á italskar bækistöðvar. 13. Tictorín- krossinn. Einkaskeyti til Vísis. London í morgun. Viktoríukrossar hafa nú verið afhentir í breska hernum. Flotinn hefir fengið 3, landherinn 5 og flugherinn 5. Aðeins 1 flug- maður í orustuflugvél hefir fengið Viktoríukrossinn. Flugmaður þessi var á eft- irlitsflugi yfir S.-Englandi um miðjan ágúst, er Messer- schmitt-vél réðist á hann og skaut á hann 4 fallbyssuskot- um. Kviknaði í ensku vélmni, en þrátt fyrir það tókst enska flugmanninum að skjðta Þjóðverjann niður. Var hann þá allur skaðbrendur á hönd- um og í framan, og jafnframt særður af kúlum. Bretinn bjargaðist í fallhlíf sinni. — Loftorusta yflp Dover. I Enkaskeyti frá United .Press. London i morgun. Loftorusta var háð yfir höfn- inni í Dover í gær. Þýskar flug- vélar gei’ðu skyndiárás á höfn- ina, en alt í einu komu 20 Spit- fireflugvélar og steyptu sér yfir hiiiar þýsku steypiflugvélar og lenti i liarðri orustu og voru 15 þýskar flugvélar skotnar niður. Vörn þýsku orustuflugvélanna, . sem fylgdu sprengjuflugvélun- unii, hi’ást algerlega, sem sjá má af því, að 15 þýskar flugvélar voru skotnar niður. Alls voru skotnar niður til kl. 10 í gær 19 þýskar flugvélar, en aðeins 2 breskar, og hjörg- uðust báðir flugmennirnir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.