Vísir - 27.11.1940, Blaðsíða 1
Kristj Ritstjór i: án Guðlaug sson
Félagspi Skrifstofur 'entsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri „5 línur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 27. nóvember 1940.
275. tbl.
Undanhald Itala stöðvast
á nokkrum stöðum.
Crrikkir setja lið á lanil að baki
Itala á Epirusví^srtöðvuniiiii - - -
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
U'varpsstöðin í Búdapest tilkynti í nótt, að Grikkj-
um hefði tekist að setja herafla á land á Alb-
aníuströndum, að baki ítalska hersins. —
Þakkarguðsþjónusta fór fram í dómkirkjunni í Aþenu-
borg í gær, í tHefni af sigrum Grikkja.
Að því er best verður séð hefir Soddu herf oringja nú
tekist að stöðva undanhald ítala á nokkurum stöðum.
Hefir hann sent mikinn herafla til vígstöðvanna, og eru
meðal þeirra hersveita sumar hinar bestu, sém ítalir
eiga. — Liðsauki þessi hefir verið sendur til vígstöðv-
anna milli Argyro Castro og Ohrida-vatns.
Á öðrum stöðum hafa Grikkir haldið áfram sókn
sinni í Albaníu og það verður ekki að svo stöddu sagt,
hvort ítolum tekst að veita viðnám, eða „snúa við tafl-
mu
\W\f
ítalski flugherinn hef ir sig nú mikið meira í frammi
en undangengin tvö til þrú dægur, og er haldið uppi
sprengjuárásum á f jölda þorpa í Grikklandi. Varpa ít-
alir sprengjum á brýr og vegi til þess að reyna að gera
Grikkjum sem erfiðast fyrir og hindra, að þeir geti
haldið áfram liðflutningum til Albaníu.
ítalskir f angar skýra frá því, að þeir hafi verið flutt-
ir loftleiðis frá Brindisi fyrr nokkurum dögum. Þeir
segja, að fregnirnar um ósigra ítala hafi borist um ger-
valt landið þrátt f yrir alt, sem gert var til þess að breiða
yf ir þá.
fí
II
IIJÍ
Bretar geta ekki lengur fylt
skörðin. * '
Einkaskeyti
frá United Press.
London í morgun.
1 fregnum frá Aþenuborg
segir, að önnur varnarlína Itala
sé í hættu stödd, ef Grikkir geti
sótt frekara áfram. Grískar
hersveitir eru nú komnar norð-
ur fyrir Freshari á Pindusvíg-
stöðvunum og að vestan sækja
grískar hersveitir til Berat frá
Moscopolis. Framsókn virðist
enn vera af hálfu Grikkja á
Argyro Castro vígstöðvunum,
en þvi er neitað, að fregnir, sem
birtar hafa verið erlendis, um
töku borgarinnar, hafi við rök
að styðjast. Sömuleiðis er neit-
að fregnum ítala um, að þeir
hafi gersigrað lið það, sem
Grikkir settu á land á Albaníu-
ströndum. Lið þetta hefir int af
hendi það hlutverk, sem því var
ætlað, segir í grískri tilkynn-
ingu.
MUSSOLINI SENDIR STAR-
ACE TIL LIÐSKÖNNUUNAR
A VÍGSTÖÐVUNUM.
Samkvæmt áreiðanlegum
fregnum í Rómaborg er Ac-
hilles Starace, yfirmaður fasist-
isku hersveitanna, kominn til
Albaniu, til þess að kanna lið
ítala, og gefa Mussolini skýrslu.
Friðarsókn af hálfu Hitlers?
Einkaskeyti frá U. P.
London, í morgun.
Þýska útvarpið og blöðin
neita því eindregið, að Hitler
áformi nokkura friðarsókn í
náinni framtið.
Ronald Cross, siglingamála-
ráðherra Bretlands, skýrði frá
því í gær, að Bretum væri hin
mesta nauðsyn að fá eins mörg
flutningaskip, og þeir þyrfti til
þess að fylla í skörðin, vegna
mikilla herskipasmíða. Er mik-
ið um það rætt í Washington
með hverjum liætti Bandarikin
gæti stutt Breta í þessu efni, en
Bandarikin hafa nóg skip, sem
liggja í höfnum. Hefir m. a.
verið stungið upp á því, að
Bandaríkin leigði Bretum flutn-
ingaskip til siglinga um Ind-
landshaf og Kyrrahaf, en Bret-
ar gæti þannig notað þau skip,
sem þeir hafa þar, á Atlantshafi.
Mörg önnur mál, varðandi
stuðninginn við Breta, eru til
athugunar i Washington, og er
hætt við, að sum fái ekki af-
greiðslu á þvi þingi, sem nú sit-
ur, en það lýkur störfum fyrir
jól. Reynt verður þó að hraða
afgreiðslu þeirra mála, sem erú
mest aðkallandi.
Ny árás á
Bristol.
Ekkert hMlf um
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
1 gær var gerð f yrirspurn um
það til Churchill's, hvort komið
hefði til orða, að gerð yrði til-
raun til þess að koma á bar-
dagahléi um jólin, fyrir milli-
göngu páfa eða annars aðila. —
Churchill kvað svo ekki vera,
og lýsti yfir því, að engri slíkri
tillögu yrði sint af Breta liálfu,
hvort sem hún kæmi frá hlut-
lausum löndum eða öðrum.
Sobolev talar við
Boris konung á ný
Sjálfstæði Búlgariu óskert eftir
styrjöldina - - ef þeir gera ekki
bandalag við fjandmenn Breta.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Butler, aðstoðarutanríkismálaráðherra Bretlands,
lýsti yfir því í neðri málstofunni í gær, að Bretar myndi
beita áhrifum sínum til þess, að sjáífstæði og landamæri
Búlgaríu yrði í engu skert eftir styrjöldina, ef þeir
gerðu ekki bandalag við f jandmenn Bretlands eða réð-
ust á bandamenn Breta.
Yfirlýsing þessi er talin hin mikilvægasta í London,
og er hún fram komin til þess að stuðla að því, að Búlg-
arar haldi sömu stefnu og framvegis, þ. e. verði hlut-
lausir í styrjöldinni.
Það vekur feikna athygli, að Sobolev, aðalskrifstofustjóri
rússneska utanríkisráðuneytisins, fór aftur á fund Borisar kon-
ungs í gær. Það er ekki kunnugt hvað þeim fór á milli, en menn
líta svo á, að umræðurnar haf i snúist um utanríkismál Búlgara,
en eins og áður hefir verið getið mun afstaða Rússa hafa ráðið
miklu um, að búlgörsku ráðherrarnir fóru ekki á fund Hitlers.
í gær kom til nokkurra óeirða í Sofia, höfuðborg Búlgaríu.
Kommúnistar vinna af alefli gegn því, að Búlgarar hefji virka
samvinnu við möndulveldin, og lýðræðissinnar sömUleiðis. 1
gær báru þjóðernissinnaðir stúdentar kröfuspjöld um götumar,
og kom þá til átaka milli kommúnista og lýðræðissinna annars-
vegar og þjóðernissinna hinsvegar. Voru spjöld þjóðernissinna
rifin af þeim, en á þeim voru letraðar kröfur um aukin lönd
til handa Búlgörum.
Árás á skipaflota.
London í morgun.
Amerískar útvarpsstöðvar
birtu fregnir um það i gær-
kveldi, að þýskar sprengjuflug-
vélar liefði gjprt nýja árás á'
Bristol, sem er ein mesta iðn-
aðarborg Bretlands, og varð ný-
lega fyrir harðvítugri loftárás.
Ennfremur var sagt frá þvi,
sömuleiðis eftir Berlínarfregn-
'um; að árás hefði verið gerð á
skipaflota undan Thamesárós-
um, en ekki getið um hvort
nokkurum skipum hafi verið
sökt.
Þýsk herskip
vio Poerto llico.
London i mqrgun.
Fregn frá Port de France
hermir, að sést hafi til þýskra
herskipa undan Puerto Rico.
Undanfarna daga hefir vei'ið
sagt frá herskipum þessum í
lausafregnum annað veifið. —
Samkvæmt óstaðfestri fregn
liafa Bandaríkin sent fleiri her-
skip, eða fjóra tundurspilla til
viðbólar, til varðgæslu á þess-
um slóðum, og mun það gert
vegna hinna þýsku herskipa.
NÝJAR LOFTÁRÁSIR
Á ÞÝSKALAND OG NORBUR-
ÍTALÍU.
Aðvaranir um lof tárásir voru
gefnar i nótt i Svisslandi. Mun
það hafa verið vegna' þess, að
grískar hersveitir voru á ferð-
inni yfir Alpana, en i morgun
var tilkynt, að árásir hefði ver-
ið gerðar á Berlín i nótt sem
leið og verksmiðjuborgir- í
Norður-ttalíu.
FRETTIR
f STUTTU MÁLI
Tuttugu þúsuhd starfsmenn
í Lockheed og Vega-flugvéla-
verksmiðjunum hafa hafið
samskot til þess að gefa breska
flughernum 100 þús. dollara
i jólagjöf.
•
Von Papen, sendiherra Þjóð-
verja í Ankara, hefir mótmælt
þvi, að hann hafi látið sér um
munn fara þau ummæli, sem
þýska útvai-pið leggur honum
'í munn, að það sé bráðnauðsyn-
legt fyrir Tyrki að fallast á hina
„nýju skipan" Evrópu.
•
Hinn nýi forsætisráðherra
Egipta hefir lýst yfir þvi við
þingið, að hann muni halda á-
fram stefnu fyrirrennara síns.
•
Sikorski, yfirhershöfðingi
pólska hersins i Bretlandi, lét
þess getið i ræðu i gær, að
pólskir flugmenn hefði nú skot-
ið niður þrjú hundruð þýskar
flugvélar í orustum yfir Bret-
landi.
Itáo KfllB dii* rifi lB¥ei*l fll ¦ m m
.....||||||«||i|||ll||ÍI|lil||||l n .'
1 '
J . : - ^ •. *"• ^
Æg& m^ 1; Wk
:';^HnÍlflBnK^ffl HB-íis
¦yy-\-\-:'y'--: ,:'W^^ -"¦ ' ¦'. '-' , '-': " '•¦ \ 1 i...-. ,>T ,:¦: \.-*i \ %. jMT '¦ ^^h*Q :;•:..¦.:¦ ¦¦•¦¦•SgKt 11 y:; S^g ':'-: l|B t^Bf :¦¦ ¦¦ Br";.'.-:
W¦ ¦\\\\w
¦-.''¦¦''' '¦¦,^^v;-^í'!->;>'^BB|^EÍ,5i. ' ¦'¦: ' : -
F x ' 'tMi^vMvWmWyji
^^^^^^ < ¦":. . ¦.-.:::::.' :..::.::.:::v::: ' *
Æ -i \ iss
Eigandi þessa harða hatts ætlar ekki að láta Þjóðverja koma
að sér óvörum. Hann hefir nefnilega klipt út hluta af korti því
af London, sem sýnir hvar opinber lof tvarnaskýli eru í East End.
Hann þarf ekki annað en að taka hattinn ofan, líta í kollinn á
honum og svo getur hann tekið sprettinn til næsta skýlis.
»
Þjóðverjar setja herlög
I Vestar-Noregi.
Rlikil skemdarverk. — BergreiBiS-
brantin ofær í\ lO Mtöonni.
EINKASKEYTI frá United Press. London i morgun
Samkvæmt blaðafregnum frá Stokkhólmi, hafa Þjóð-
fverjar sett herlög á ýmsum stöðum i Vestur-Noregi
(Vestlandet), vegna skemdarverka, sem unnin hafa
verið allvíða. Á ýmsum stöðum í nánd'við járnbrautir,
* einkanlega í gljúfrum, hafa klettar verið sprengdir
þannig, að grjótið hefir.hrunið yfir brautina, svo að
umferð hefir tepst, og önnur spjöll orðið. Hafa sam-
göngur milli héraða stöðvast algerlega af þessum or-
sökum. — Þjóðverjar hafa sent herlið í skyndi í bryn-
vörðum bifreiðum frá Oslo til Bergen. Talið er, að
ógeiiegt verði að koma á venjulegum samgöngum fyrr
en eftir margar vikur.
Loftvarnaæfing.
Kl. 11 á laugardagsmorgun
fer fram önnur loftvarnaæfing,
sem hér er haldin.
Þegar hættumerki er gefið, en
það er síbreytilegur tónii raf-
flautanna, eða löng hringing í
sima, ber öllum, sem eru úti á
götum, að fara i næsta loft-
varnabyrgi, eða leggjast niður
og liggja kyr, þar til merki er
gefið um að hættau sé liðin hjá.
Þeir, sem eru i húsum inni, eiga
að fara niður í kjallara eða vera
á naðstu hæðum húsanna, þar
til merki er gefið um að öllu
sé óhætt.
Merki um að hætta sé liðin
hjá er langt, samfelt og óbreytt
hljóð í fimm mínútur.
t
Pétur
Halldórsson
lést i gær eftir langa og þunga
legu. Hann var fæddur 26. apríl
1887 og því 53 ára að aldri.
Leiðrétting.
1 greininni „Besta bók ársins",
er próf. Guðbraiidur Jónsson skrif-
aÖi í Vísi í gær um „Sólon Island-
us", höfðu.tvö orð falliÖ úr neðst
á 2. bls. Þar átti að standa: „og
við lesturinn var nú ekkert sem
tældi mig til að hafa yfirreiÖ o. s.
frv." Lesendur blaðsins eru vin-
samlegast beÖnir að lesa þetta í
málið.
Pétur Halldórsson varð borg-
arstjóri i Reykjavik árið 1935,
eftir Jón Þorláksson. Hann var
og f jórði þingmaður Reykvik-
inga.