Vísir - 28.11.1940, Side 1
Ritsíjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Ritstjóri
’ Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 Ifnur
Afgreiðsla
276. tbl.
Italir yfirgrefa flota-
liafniniar í §nður-
f
iMItaiiiii.
Sókn okkar hefst í janúar, segja
italir, og þá verður beitt nýrri
hernaðaraðferð.
iwesiæs* fKni* físsr?
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Italir hafa'þegar yfirgefið Sante Quaranta, syðstu
flotastöð sína í Albaníu, og það eru Iíkur til,
að þeir verði að yfirgefa Vallona bráðlega.
Breskar og grískar sprengjuflugvélar hafa gert harðar
árásir á Vallona og Durazzo, aðalhafnarborgina. Italir
flyt ja ekki lengur lið til neinnar hafnar í Albaniu nema
Giovanni di Medua nyi'st í landinu. Bodoglio marskálk-
ur hefir tekið sér bækistöð í Tirana og á hann nú að
rétta við hag ítala, en Soddu herforing ja hefir þó ekki
'verið vikið frá.
I tilkynningu grísku herst.jórnarinnar segir, að gríski
flugherinn liafi gert árásir með miklum árangri í gær á
herflutningalestir Itala, sem voru á undanhaldi. Italsk-
ar flpgvélar flugu yfir Korfu, Krít, Epirus og borgina
Patras, og var varpað niður sprengjum. Allmikið tjón
varð á húsum og nokkrir borgarar biðu bana. Hernað-
arlegt tjón varð ekki. Frá Pelologos á Epirusvígstöðv-
unum hefir borist fregn um, að ítölsku flugvélarnar
hafi flogið lágt yfir þorpin, en það hafi verið engu lík-
ara en að flugmönnunum gæti ekki hepnast að hæfa
neitt, sem er hernaðarlega mikilvægt.
Á öllum vegum eni mestu þrengsli, ítalskir herflutn-
ingabílar og hergögn og ítalskir hermenn í þúsunda-
tali. Láta þeir í I jös ánægju yfir, að hafa verið teknir
höndum.
Grikkir hafa tekið fjölda mikið af reiðhjólum af sérstakri
gerð og hafi hermennirnir nokkura frístund er það aðalskemt
unin, að lyfta sér á kreik á reiðhjólum þessum.
Sumir hermanna segja, að ítölsku reiðhjólin séu ekki hættu-
legri en önnur vopn ítala.
ítalskir flugmenn, sem handteknir hafa verið, segja að ítalska
herstjórnin sé mjög óánægð yfir því, hversu lítill árangur hafi
náðst í loftárásunum. Er aðallega um kent, að flugmennina
skorti æfingu í að miða rétt.
Níu grískar og breskar sprengjuflugvélar gerðu árás á Dur-
azzo í gær, segir í fregn frá Struga. Miklar skemdir urðu á hafn-
armannvirkjum og eldur kviknaði í olíustöðvum. Eldur kom
líka upp í pósthúsinu. Aðrar breskar og grískar sprengjuflug-
vélar héldu allan daginn í gær uppi árásum á hersveitir ítala á
undanhaldinu, einkanlega á svæðinu fyrir norðan og norðvestan
Pogradec. Leikurinn hefir nú borist svo nærri landamærum
Jugoslaviu, að víða hafa rúður brotnað í húsum í landamæra-
þorpunum, af þrýstingnum, er sprengikúlurnar springa.
Graziani, marsltálkur, sem hefir ^jiendi yfirstjórn ítalska Iiersins í Libyu, liefir lengi haft
liljótt um sig, síðan her hans sótti fram til Sidi Barrani. Hafa menn verið að búast við sókn
ítala þarna, til þess að koma i veg fvrir að Bretar geti sent Grikkjum vopn og skotfæri. —
Myndin er af ítölsku stórskotaiiði, sem elcur vestur til Sidi Barrani.
I fregn frá Rómaborg segir,
að ítalir hefji ekki sókn fyrr en
I janúar. Þangað til verða her-
menn fluttir í tugþúsundatali til
stöðva margar mílur fyrir aftan
varnarlínu Itala nú. Þeir, sem
gerst þykjast um þetta vita,
segja að hér verði ekki um neitt
„leifturstríð“ að ræða, heldur
„dularfulla sókn“, og verði beitt
nýjum hernaðaraðferðum.
1 fregn frá Aþenuborg segir,
að heil ítölsk herdeild hafi verið
kyrrsett í Jugoslaviu, nálægt
Ohrid-vatni.
Landvarnaráðherra
Egipta bráðkvaddur.
London í morgun.
Landvarnaráðherra Egipta
varð bráðkvaddur í gær. Bana-
mein hans var hjartahilun. —
Eins og kunnugt er varð for-
sætisráðherra Egipta hráð-
kvaddur fyrir nokkuru. Ilneig
liann niður, er liann var að
lesa hásætisræðuna. Italir voru
þá að dylgja með, að honum
Iiefði verið hyrlað eitur.
Flugvél Chiappe
skotin niður.
Ghiappe var á leið
til Sýrlands.
London í morgun.
Fregn frá Ziirich í Svisslandi
hermir, að samkvæmt áreiðan-
legum heimildum hafi frönsk
flugvél á leið til Sýrlands verið
skgtin niður yfir Miðjarðarhafi.
í flugvél þessari var Chiappe
fyrrverandi lögreglustjóri 1
París, sem átti að taka við land-
stjóraembættinu í Sýrlandi.
Gjörist félag-ar í Sjálfsbjörg,
Stuðningsfélagi lamaðra og fatl-
aðra. Listi liggur frammi á afgr.
blaðsins.
Ir BeliiBieii i Ivrk-
laidi (cvaddir til hir-
hjónustu.
London í morgun.
Fregnir frá Istanbul herma,
að belgiski ræðismaðurinn hafi
gefið út skipun um, að allir
Belgíumenn í Tyrklandi i árs-
flokkunum 1935—1941 skuli
gefa sig fram til herþjónustu.
Engin skýring liefir verið gefin
á þessari fyrirskipun og ekki
er kunnugt livert mennirnir
verða sendir.
Pólitískír
fangar myrt-
ir í tugatali í
Rúmeníu.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
I gær var samhandslaust milli
Rúmeniu og aniiara landa fram
eftir degi og voru horfur taldar
allískyggilegar þar í landi. Það
var kunnugt, að ríkisstjórnin
kom saman á fund, í tilefni af
því, að 64 pólitískir fangar voru
tekn’ir af lífi í fangelsi einu í Rú-
meníu í gær, en fregnin um
þella vakti megna gremju í
Rúmeníu. Allir herforingjar
Rúmeníu háðust lausnar, og var
engu likara en að uppreist
mundi brjótast út í landinu. Til
þess að friða almenning var gef-
in út opinber tilkynning þess
efnis, að aftökurnar liefði farið
fram án vitundar og í óþökk
stjórnarinnar, og kváðust þeir
Antonescu herforingi og leið-
logi járnvarðliðsins ekkert um
þetta liafa vitað. Fregnirnar
hárust fyrst gegnum þýska út-
varpið, og voru það menn, sem
taldir voru eiga sök á dauða
Codreanu, formanns járnvarð-
liðsins, er drepinn var 1938, sem
teknir voru af lífi. Síðar var til-
kynt í þýska útvarpinu, að járn-
varðliðsmenn hefðu brotist in
í fangelsið og drepið fangana,
en einn þeirra var fyrverandi
forsætisráðherra Rúmeníu. Yar
þannig reynt að skella skuldinni
á járnvarðliðið, en í London er
leidd atl)jrgli að ]jvi, að allar
líkur hendi til, að nazistar ein-
ir séu sekir i þessu máli. — I
morgun hárust fregnir um, að
þrátt fyrir afneitun stjórnarinn-
ar, hefði fleiri fyrrverandi em-
hættismenn verið drepnir í Rú-
meniu í gær.
OðiroBX slipiiur ieli-
toai irjiii írolli í
hiiui Biiigy Huslflr-
liiðui.
London í morgun.
Catroux herforingi, fyrrver-
andi landstjóri í Franska Indó-
kína, hefir nú verið skipaður
leiðtogi frjálsra Frakka í hin-
um nálægu Austurlöndum. Hef-
ir Catroux verið i Kairo að und-
anförnu og unnið fyrir málefni
liinna frjálsu Frakka. Talið er
að stefnu þeirra vaxi nú hratt
fylgi í Sýrlandi.
De Gtaulle er nýkominn til
London úr Afrikuleiðangri sin-
um.
11 Þýskar ílugvélar
skotnar niður í gær
- - 35 seinustu 6 daga.
London í morgun.
Þjóðverjar liafa lagt megin-
áherslu á næturárásir á Bret-
land að undanföríiu, ■— eina og
eina horg í einu, svo sem Coven-
try, Birmingham, Bristol o. fl.
Árásir að degi til hafa verið i
miklu minni stíl. I gær reyndu
þó flugvélahópar að komast
inn yfir Kentströndina, en voru
hraktar á flótta eftir skamma
stund, eða tæpan fjórðung
stundar. Bretar mistu tvær flug-
vélar í gær.
Árásunum í gærkveldi var
aðallega beint að borg i Suðvest-
ur-Englandi og London. Gekk
mest á frá því skyggja tók og
þar til undir iniðnætti. Allmörg
hús skemdust, en eigna- og
manntjón talið minna en við
mátti búast.
Von Papen
reynir blíðmæli.
London í morgun.
Fregnir frá Tyrklandi herma,
að von Papen liafi tilkynt tyrk-
nesku stjórninni, að Þjóðverjar
vilji frið á Balkanskaga og
vænti þess, að Tyrkir séu sömu
<
I
skoðunar og geri því ekkert,
sem af geti leitt, að friðurinn
haldist ekki. Fyrir nokkuru,
segir í hreskum fregnum, liafi
von Papen liaft í hótunum við
Tyrki. En hpnum, segja hresku
blöðin, mun hvorki Vcrða á-
gengt með blíðmælgi eða hótun-
um, þvi að Tyrkir vita hvers
virði loforð möndulveldanna
séu. í breskum blöðum er nú
iient á, að vegna harðnandi af-
stöðu Júgóslava og Búlgara
geti Þjóðverjar eklci komið ítöl-
um til hjálpar, nema með þvi
að ryðja sér hraut gegnum
Júgóslavíu eða Búlgaríu, því að
ioftleiðis geti þeir ekki veitt
þeim nægan stuðning.
Aðalfundur V. R.
íiplilíiliy
iriiiu i 5. iisunð Ir.
Aðalfundur Yerslunarmanna-
félags Reykjavíkur fór fram í
gærkveldi í Félagsheimili V. R.
Er þetta fyrsti aðalfundur fé-
lagsins, sem haldinn er í hinum
nýju húsakynnum.
Á fundinum fóru fram venju-
leg aðalfundarstörf, samkvæmt
lögum félagsins, og gaf formað-
ur skýrslu um starf þess á síð-
astliðnu ári.
Aðalgjaldkeri las upp og
skýrði reikningana, en formað-
ur veitinganefndar gaf skýrslu
um rekstur Félagsheimilisins
þami eina mánuð, sem það hefir
verið rekið.
Fjárhagur félagsins er góður
og liafa eignir þess aukist á 5.
þúsund króna á árinu.
Þá fór fram stjórnarkosning
og voru kosnir fjórir menn í að-
alstjórn, en þar voru þrír menn
fyrir, og að auki þrír varastjórn-
endur.
Þessir voru kosnir í aðal-
stjórn: Friðþjófur Ó. Johnson,
formaður, og meðstjórnendur
Egill Guttormsson, Bogi Bene-
diktsson og Hjörtur Hansson.
I varastjórn voru kosnir: Ás-
geir Ásgeirsson, Bergþór Þor-
valdsson og Sveinn Helgason.
Fyrir voru í aðalstjórninni:
Stefán Björnsson, Árni Haralds-
son og Adolf Björnsson.
Aðalíundi S.Í.F.
lokið.
í gær var aðalfundi S.Í.F. slit-
ið, og hafði hann þá staðið í 3
daga. Hann var settur kl. 9 á
mánudagsmorgun.
A fundinum i gær var m. a.
kosin þriggja manna nefnd til
þess að gera tillögur um fram-
tíðarrekstur niðursuðuverk-
smiðju S.Í.F, og eru þessir
inenn í nefndina: Elías
Þorsteinsson, Runólfur Sigurðs-
son og Sveinn Benediktsson.
Þá héldu áfram umræður um
verðjöfnunina og var þvi máli
að lokurn vísað til stjórnarinn-
ar, en hún var öll endurkosin
síðar á fundinum.
Fundurinn samþykti áskorun
til stjórnarinnar um að hún
hlutaðist til um það við Fiski-
málanefnd, að hún aðstoðaði
menn við byggingu fiskhúsa,
með því að útvega teikningar
o. þ. h.
I gærkveldi liafði stjórnin
boð inni fyrir fundarmenn að
Hótel Borg.
I. 0. 0. F. 5 = 122112881 /a =
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritið Oldur eftir sira
Jakob Jó'nsson í kvöld, og hefst að-
göngumiðasala kl. i i dag.
Hjónaefni.
í íyrradag opinberuðu trúlofun
síi*t ungfrú Hulda Ágústsdóttir,
hárgreiðslustúlka, og Steinar Þor-
steinsson, verslunarmaður, Njáls-
götu 29.
Sjötug
er í dag frú Níelsína Ólafsdóttir,
Gimli.
Basar
Nemendasambands Kvennaskól-
ans verður haldinn 8. desember í
skólanum. Skorað er á alla eldri
og yngri nemendur skólans að
styrkja basarinn með gjöfum. Gjöf-
um veitt mótttaka hjá frk. Sesselju
Sigurðardóttur c/o Versl. Snót, frk.
Sigríði Briem, Tjarnargötu 28 og
frk. Halldóru Guðmundsdóttir c/o
Versl. Jóns Björnssonar & Co.
Gjöf til Sjálfsbjargar.
Frá T.L.G. 100 kr. Kærar þakk-
ir. Þ. Bj.