Vísir - 07.12.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Ritstjóri ] Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S tínur
Afgreiðsla J
Reykjavík, laugardaginn 7. desember 1940.
284. tbl.
Cavallero leitar ráða Keitels
/
þpka ^firherforing:jaii§
Badogrlio liöfuðleið-
togi andstæðinga
HHn§solini?
Einhver »besti (lagnr« st^rjaldar-
innar I gær fyrit* Orikki.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Fregn frá Rómaborg hermir, að Cavallero, hinn
nýi yfirherforingi Itala, muni mjög bráðlega
ræða við von Keitel, þýska yfirherforingjann.
Er talið, að þetta sé upphaf þess, að hér eftir muni Þjóð-
verjar leggja á hin hernaðarlegu ráð fyrir Itali. Það er
og búist við að Cavallero fari innan skamms í eftirlits-
ferð til Albaniu, til þess að kynnast af eigin reynd
hversu þar er ástatt.
Lundúnablöðin í morgun fagna því, að Badoglio hef-
ir látið af störfum. Telja þau það sönnun þess, að
Mussolini hafi framið hið mesta glapræði með því, að
hef ja innrásina í Grikkland. I sumum blöðunum er gef-
ið í skyn, að Badoglio kunni að taka að sér forystu and-
stæðinga Mussolini.
Ward Price, fréttaritari Daly Mail, sem er kunnur
fyrir að fylgjast vel með því, sem gerist á Italíu, skrifar
í blað sitt:
Hér er um mildu meira að ræða, en það eitt, að ágreiningur
sé milli fascista annars vegar og herstjórnarinnar uin hversu
til hefir tekist í Grikklandi og Albaniu. Badoglio hefir komið
fram sem aðalmaður þeirra, sem ekki vilja stríð og ekki vildu
það frá upphafi, og spurningin er að eins sú, hvort hann gerist
leiðtogi þess hluta þjóðarinnar, sem ekki vill stríð og berst gegn
því, að styrjöldinni verði haldið áfram. Ef liann tæki að sér slíkt
hlutverk mundi hann vafalaust njóta mikils stuðnings. Hann
liefir notið hins mesta álits innan konungsfjölskyldunnar og
meðal aðalsins, einnig meðal mentamanna og að sjálfsögðu inn-
an hersins. Badoglio mundi verða hættulegasti andstæðingur
Mussolini innan Ítalíu.
GRIKKIR AÐEINS 13 MÍLUR
FRÁ ELBASAN.
Grískar hersveitir eru nú að-
eins 13 mílur frá Elbasan. —
Talsmaður grísku stjórnarinn-
ar sagði i gærkveldi, að i gær
hefði verið einhver besti dagur
Grikkja i styrjöldinni, því að
mikilvægir sigrar hefði unnist
og undanhald ítala orðið hrað-
ara á öílum vígstöðvum og öng-
þveitislegra undangenginn sól-
arhring. Fall Argyro Castro
liefir elcki verið opinberlega til-
kynt ennþá. Þegar Ilalir yfir-
gáfu Sante Queranti kveiktu
þeir í verksmiðjum og i húsum
um allan bæinn. ítalir halda
undan í áttina til Delvino. Frá
Argyro Castro flýja Italir til
Tepelena, og verjast vel á und-
anhaldinu, en Grikkir fylgja
hratl eftir og er mikið mann-
fall í liði ítala. — ítalir hafa
Iíka verið hraktir frá mikilvæg-
um stöðvum á vigstöðvunum
fyrir norðan Progradec.
Sjóorusta í Suður-
Atlantshaii.
Breskt hjálparbeitiskip og þýskt herskip,
dulbúið sem kaupfar, áttust við.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun
Breska flotamálaráðuneytið tilkynti í gær, að í fyrradag hefði
breska hjálparbeitiskipið Carnarvon Castle séð til ferða þýsks
herskips, ér var dulbúið sem kaupfar, og lióf þegar skotliríð á
það á mjög löngu færi. Skiftust skipin á skotum um hríð. Var
þetta 700 sjómílum norðaustur af Montevido. Þýska herskipið
leitaði undan og er seinast sást til þess sigldi það.hratt til norð-
urs. Skipið var hraðskreitt og búið stórum fallbyssum. Carnar-
vori Castle veitti því eftirför, en herskipið dró undan, og forð-
aðist því að berjast á styttra færi.
Lítils háttar skemdir urðu á Carnarvon Castle og nokkurt
manntjón. Hið þýska skip mun einnig liafa orðið fyrir skemd-
um, en ekki er kunnugt hversu miklar þær voru.
Carnarvon Castle var eitt af skipum Union Castle línunnar,
hygt 1926, 20.000 smálestir að stærð. Þegar styrjöldin braust úl
var því breytt í hjálparbeitiskip.
Eins og áður hefir verið getið i fregnum hefir orðið vart við
þýskt herskip á Atlantshafi að undanförnu og er það kunnugt,
að hresk herskip og hjálparbeitiskip hafa verið að leita að þvi.
Sante Quaranta og Argyro
Castro á valdi Grikkja —
Deilur fasci§ta o^.ítölsku herstjórn-
arinuar. — Óeirðir oar skemdarverk
í ítölskum bor^uin.
Síðdegis í gær bárust fregnir um, að Grikkir hefði hertekið
hafnarborgina Sante Quaranta, syðst á Albaniuströndum. Eins
og kunnugt er af skeytum hafa menn verið að búast við því að
undanförnu, að Grikkir myndi ná borginni á sitt vald þá og þeg-
ar. En þótt grískt herlið væri komið inn í borgina þegar í fyrra-
dag (a. m. k. í úthverfin), var ekki tilkynt opinberlega fyrr en í
gær, áð búið væri að hertaka borgina. Hefir gríska herstjórn-
in alt af varast, að tilkynna neina sigra, fyrr en víst er, að um
öruggan sigur er að ræða. Undir eins og borgin var öll á valdi
Grikkja voru dregin á stöng grísk og albönsk flögg um alla
borgina. Fögnuðu íbúarnir Grikkjum vel. — Það er mikilvægur
sigur, sem Grikkir unnu þarna, því að borgin var mikilvæg hern-
aðarleg bækistöð. Fluttu ítalir þangað sjóleiðis herlið og hergögn
til Epirusvígstöðvanna.
I gærkveldi bárust fregnir frá Grikklandi þess efnis, að ítalir
hefði verið búnir að yfirgefa Argyro Castro í fyrrakvöld, en
bardögum um borgina hefði haldið áfram þar til í gær. Fregn
frá Monastir í Jugoslaviu hermir, að Grikkir hafi tekið Argyro
Castro um hádegisbilið í gær, eftir harða orustu. Tóku þeir þar
á annað þúsund fanga. ítalir kveiktu í hergagnabirgðum þeim,
sem þeir áttu í borginni, og í einni fregn segir, að borgin standi
í ljósum loga.
Opinber tilkynning um töku borgarinnar er væntanleg í dag.
Á miðvígstöðvunum sækja Grikkir fram af kappi og er flótti
ítala á þeim hjara að, verða fálmslegur og skipulagslaus. Á öll-
um vígstöðvum er enn sókn af hálfu Grikkja og líkur bentu til,
að því er fregnir hermdu seint í gærkveldi, að Grikkir nái bráð-
lega á sitt vald eina olíulindasvæðinu í Albaniu.
I sumum fregnum segir, að ítalir hafi einnig kveikt í her-
gagnabirgðum sínum í Sante Quaranta, áður en þeir fór þaðan,
en þó hafa Grikkir tekið þar mikið herfang. Giskað er á, að
verðmæti þeirra hergagna, sem Grikkir hafa náð af ítölum, sé
a. m. k. virði tveggja miljóna sterlingspunda.
Grikkir tóku fanga í hundraðatali í gær og eru meðal þeirra
háttsettir yfirforingjar. Sumir fangarnir sögðu, að þeir hefði
ekki fengið brauðbita í 6 daga.
Með því að hertaka Sante Quaranta og Argyro Castro hafa
Grikkir svift ítali tveim þeim borgum, er þeir völdu sem aðal-
bækistöðvar innrásarinnar í Grikkland.
Herlið það, sem ítalir hafa
skilið eftir á ýmsum, stöðum, til
þess að tefja fyrir framsókn
grisku hersveitanna, á við
mikla erfiðleika að stríða.
Sumar hinna ítölsku hersveita
hafa ekki haft nægar matvæla-
hirgðir og hafa ítalir orðið að
senda flugvélar yfir stöðvar
þeirra og varpa niður matvæla-
sendingum.
Fregnin um, að Badoglio
marskálkur liefði látið af yfir-
Iierstjórninni hefir vakið mik-
inn fögnuð í Grikldandi og
Egiptalandi, þar sem menn lita
svo á, að það sé sönnun þess,
að ágreiningurinn á Italíu sé
svo mikill orðinn, að Mussolini
hafi neyðst til að skifta um yf-
irherforingja, til þess að þókn-
ast fascistum. Jafnframt er lit-
ið á það sem hættulegt skref,
því að Badoglio var reyndasti
herforingi ítala og þeirra nafn-
kunnastur. — Graziani m,un
Mussolini ekki hafa þorað að
kalla heim, enda þótt her Grazi-
ani haldi stöðugt kyrru fyrir.
En hitt er svo annað mál, livort
Mussolini tekst að slöðva gagn-
rýnina — og hvort nokkuru
betur muni ganga. Og fullyrt
er, að Cavallero herforingi hafi
meiri reynslu í skrifstofum en
á vígvöllum.
Það er fullyrt, að miklar
deilur hafi verið á fundum
þeim, sem Mussolini hefir hald-
ið að undanförnu. Fascistar
kenna herstjórninni, — her-
stjófnin segir, að þeir hafi kraf-
ist sóknar, án nægilegs undir-
búnings.
Þegar eru farnar að berast
fregnir, sem sýna, að horf-
urnar heima fyrir á ítalíu eru
farnar að verða býsna alvar-
legar. Óánægja manna út af
því, að þeir verða stöðugt að
. . leggja meira á sig, við mink-
andi matvælaúthlutun, er
mikil. Svo bætist hitt ofan á,
að loftárásir verða tíðari, og
svo sannfærast menn æ bet-
ur um, að vonlaust verði að
sigra í styrjöld, sem almenn-
ingur frá upphafi vildi forð-
ast og hafði engan áhuga fyr-
ir, en fascistar keyrðu þjóð-
ina út í styrjöld, og gátu
kannske í bili talið henni trú
um skjótan sigur og auðunn-
inn, en nú er. alt breytt. Augu
manna eru að opnast, segir
í fregnum til breskra blaða.
Óeirðir hafa brotist út í Nea-
pel, Turin, Trieste og víðat'-Og
víða á Norður-Ítalíu hafa
skemdarverk verið unnin.
En það verður að sjálfsögðu
ekki með vissu sagt enn sem
kornið er, hvort til slíkra átaka
kemur nú eða síðar, Mussolini
virðist hafa tekið ákvörðun um,
að krefjast atliafna, til þess að
bæta um fyrir ósigrana, en
verði niðurstaðan nýir ósigrar,
Nú fer smámynt-
in að koma!
Kemur fyrir mestu jólaösina.
Almenningur — og þá sérstaklega verslunarfólk —
er orðinn all langeygur eftir smámyntinni. Hún átti
upphaflega að koma löngu fyrir jól, en svo drógst það,
að enska myntsláttan, sem tók að sér-að slá peningana,
gæti afgreitt hana.
En nú getur Vísir fært mönnum þau gleðitíðindi, að
smámyntin verður tilbúin til sendingar hingað þ. 13. þ.
m. og ætti hún þá að geta verið komin áður en mesta
jólaösin hefst.
Tveggja krónu og krónupeningarnir verða þó ekki
tilbúnir, en hinsvegar munu koma 500 þús. 25-eyringar,
500 þús. 10-eyringar o. s. frv. Er það samtals 215 þús.
krónur í smápeningum, sem kemur.
Skólapiltur hverf-
ur frá Laugarvatni
Kvaðst ætla til Reykjavíkur á mánudags-
morgun, en hefir ekki sést síðan.
ryrsta desember var haldin fullveldisliátíð að
* Laugarvatni og stóð hún til morguns þess ann-
ars. Allir nemendur skólans tóku þátt í hátíðinni, svo
og 600 aðkomumanna úr nærsveitunum. Skemti fólk
sér hið besta og fór alt fram með bestu reglu. En undir
morgun stökk einn pilurinn á brott og hefir ekki fund-
ist, þrátt fyrir mikla leit.
Vísir hafði tal af Bjarna
Bjarnasyni, skólastjóra á Laug-
arvatni, i morgun og sagði
hann blaðinu svo frá þessu:
„Um sex hundruð manns
voru á skemtuninni auk nem-
enda og kennara á Laugarvatni
og sást ekki vín á neinum
manni, utan tveim piltum.
Höfðu komið tveir kunningjar
þeirra austur og gáfu þeir pilt-
unum vín.
Eg sá á öðrum, piltinum
snemma um nóttina og lét hann
fara að hátta þegar i stað. Á
hinum piltinum, Einari Stef-
ánssyni sjómanni, sém er ætt-
aður undan Eyjafjöllum, sá eg
ekki fyrri en undir klukkan sex
um morguninn. Fór eg strax
með hann til herbergis hans og
tók hann vel i það, að fara að
hátta.
Gekk eg svo út, en kom aftur
inn i herbergið eftir svo sem
fimm mínútur til þess að at-
huga hvort hann væri farinn í
rúmið. Þá var liann ekki inni í
herberginu, en aðrir piltar
sögðu mér, að Iiann hefði farið
út og sagst ætla til Reykjavíkur.
Fékk eg »þá bíl og ók eftir
veginum nokkurn spöl, en sá
Einar hvergi. Tveir piltar höfðu
ell hann um einn kilómetra, en
liættu þá eftirförinni. Síðan
hefir verið sent- eða símað til
allra bæja í nágrenninu, en
ekkert til lians spurst.
Einars hefir verið leitað á
hverjum degi síðan. I fyrradag
kom Jón Oddgeir Jónsson,
skátaforingi, austur við fjórða
mann og hjálpuðu þeir lil við
leilina í gær. Þá tóku alls 100
nýjar hrakfarir, er ekki að vita
nema alt komist i uppnám á It-
alíu. Horfurnar eru þegar orðn-
ar býsna alvarlegar þar í landi
(sbr. annað skeyti).
manns þátt i leitinni, en liún
bar eklci árangur fremur en
fyr. Er afar hætt við, að Einar
finnist ekki á lífi, því að veður
liefir verið kalt, en hann var
illa búinn.
Einar var 25 ára að aldri, og
reglumaður.“
¥alnr sigraði
Vikin^.
I gærkvöldi hélt handknatt-
leikskepni Áxmanns áfram í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinsson-
ar. —
Fyrst keptu karlar (II. fl. úr
Val og Víking) er lauk með
sigri Vals eftir fjörmikinn og
æsandi leik. Valur sigraði með
19:18.
A eftir keptu Vestmannaeyja-
stúlkurnár við kvenflokk
Hauka úr Hafnarfirði og báru
þær fyrnefndu sigur úr býtum
með 17:4.
Næsta kepni fer fram á
mánudagskvöldið. Þá keppa Ár-
mannsstúlkurnar í annað sinn
við Vestmannaeyjastúlkurnar
og II. fl. karla úr Ármanni við
II. flokk Hauka i Hafnarfirði.
Safnaðarfundur.
Safnaðarfundur Dómkirkju-
• safnaðarins var haldinn í gærr
kveldi. Tveir menn voru kosnir
í sóknarnefnd, í stað Péturs
heitins Halldórssonar og Sigur-
bjarnar Þorkelssonar, sem er
oddviti Hallgrímsprestakalls.
Kosningu hlutu Knud Zimsen,
fyrrum borgarstjóri, með 108
atkvæðum, og Markús Sigurðs-
son, trésmiður, með 107 atkv.
Þá var nokkuð rætt um til-
lögu sóknarnefndarinnar um að
liækka sóknargjöldin um kr.
2.25 á hvern gjaldanda. Frestað
var að taka ákvörðun um tillög-
una.