Vísir - 19.12.1940, Side 1
'f’V
Ritstjóri:
Kristján Guðiaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Reykjavík, fimtudaginn 19. desember 1940.
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 linur
Afgreiðsla
295. tbl.
Þjóðverjar hafa sent
herlið til Italiu.
Undanliald Itala í Afríkn.
Hersveítir frá Tobrouk á
vestur á bóginn.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun
AÖ undanförnu hafa verið birtar fregnir um það, að Þjóðver jar hefði sent lið til
Ítalíu. Voru uppi ýmsar getgátur um hver tilgangurinn væri. ísumumfregn-
um var því haldið fram, að senda ætti lið þetta til Libyu en í öðrum, að Þ jóð-
ver jar ætluðu að trygg ja sér yfirráðin í Norður-Ítalíu, ef gerðar yrði tilraunir til þess
að steypa Mussolini af valdastóli. En allarþessar fregnir voru bornar til baka í Berlín
og staðhæft, að ekki væri minsti fótur fyrir þeim. Þrátt fyrir þessar fullyrðingar ber-
ast stöðugt fregnir um liðsflutninga Þ jóðver ja til Ítalíu og í nótt skýrði Columbia-
útvarpsstöðin frá því, samkvæmt fregn frá Belgrad, höfuðborg Jugoslaviu, að Þ jóð-
verjar hefði herafla í Taranto (á Suður-ItaTiu, þar sem Bretar gerðu loftárás á her-
skip Itala og skemdu mörg þeirra) og eins í Turin. Engar áreiððanlegar upplýsingar
eru fyrir hendi um hversu mannmargt lið Þ jóðver jar hafa þarna. I Belgradfregninni
segir, að snemma í þessari viku hafi ferðamenn, sem nú eru komnir til Belgrad, séð
þýskt herlið í Brennerskarði á suðurleið. Þýskt herlið hefir einnig sést í skipum á
höfninni í Trieste.
Engar aðvaranir
um loftárásir.
Fregnir bárust um það í gær, að nokkur hluti herliðs þess, sem
Bretar hafa í Bardia, væri á leiðinni vestur á bóginn til Tobrouk,
og sýnir það, að ítalir hafa enga von um að geta haldið þeirri
borg, enda voru breskar vélahersveitir komnar langt vestur
fyrir þá borg í gær. Einnig tilkyntu flugmenn Breta, sem voru
i könnunarflugferðum yfir ströndinni, að þeir hefði séð lier-
flutningalestir á leið vestur á bóginn frá Tobrouk til Dema, og
eru því líkur til, að Italir hörfi undan alls um 160 enskar milur
frá Sidi Barrani. En sennilegt er. að þeir geri tilraun til þess að
stemma stigu við framsókn Breta þar. Lið það, sem er í Bardia
hafði ekki gefist upp, er síðast fréttist, og er sennilegt, að Bretar
hafi ekki verið búnir að króa liðið þar inni með öllu, og Itahr
hafi því getað komið einhverju af liðinu undan vestur á bóginn.
En breska herliðið í nánd við
Bardia fékk liðsauka hæði í
gær og fyrradag, og má af því
sjá, að Bretar leggja nú hina
rnestu áherslu á að þjarma að
ítölum, meðan flótti er í liði
þeirra og baráttuliugurinn Iam-
aður, en fréttariturum ber sam-
an um, að ítölsku hermennirn-
ir séu áhugalausir og fegnir þvi,
að vera teknir til fanga. Und-
anteknar eru þó nokkrar svart-
stakkasveitir, sem hafa barist
frækilega. Og nokkurar landa-
mærastöðvar voru varðar af
kappi í byrjun, en eftir það hef-
ir borið æ meira á því, að kjark-
urinn hefir bilað. í Bardia verj-
ast þó ítalir enn, en aðstaðan
er erfið, þótt borgin sé víggirt,
því að breski Miðjarðarhafs-
flotinn veitir landlier Breta
mikla aðstoð, en flugher Breta
heldur uppi stöðugum árásum
jafnframt. Fyrir ítölum í hafn-
arborgum þessm er því líkt á-
statt og manni, sem að er sótt
að framan og frá báðum hlið-
um, og verður að hörfa undan
aftur á bak, en stöðugt vofir
yfir árás einnig að aftanverðu
frá.
IHvers vegna flugher ítala
fær litlu áorkað.
Flugher ítala hefir áorkað
mjög Ktlu í vörninni, að því er
hermt er í hreskum tilkýnning-
um, Segjast Bretar liafa skotið
niður yfir 100 ítalskar flugvél-
ar i sjö daga sókn, en ekki mist
nema 5—10 sjálfir. Einn ítölsku
flugmannanna hefir gefið þá
skýringu á þvi, hvað ítalir
megna lítils í lofti, að i ítölsku
orustuflugvélunum sé elcki
nema tvær vélbyssur — en þið-
hafið 6 eða 8. — Hvernig get-
um við gert betur, þegar þið
hafið svo miklu fullkomnari
orus tuf lugvélar ?
í sumum fregnum segir, að
Þjóðverjar hafi þegar alls um
50.000 manna lið á Ítalíu, í
Rómaborg, Turin, Bari, Nea-
pel, Taranto og víðar.
I Rómaborg sjást nú þýskir
liðsforingjar tíðum á götunum
og hefir bólað á andúð gegn
þeim og öðrum Þjóðverjum,
sem sendir hafa verið til ftalíu
að undanförnu, en á fæstum
þeirra ber þó mikið. ítalskir her-
foringjar eru sagðir gramir yfir
því, að þýskir yfirforingjar og
annað lið hefir verið sent til
Ítalíu.
Bardagarnir
um Bardia.
í seinustu fregnum frá Egipta-
landi segir, að Nílarherinn
egipski haldi uppi stöðugri skot-
hríð á Bardia, en bresk herskip
skjóti einnig á borgina. Geisa
miklir eldar í henni á nokkur-
um stöðum. Talið er, að helm-
ingur setuliðsins, sem þarna
var, sé á undanhaldi til To-
brouk. ítalir hafa búist mjög
! ramlega um í Bardia. Þeir hafa
þar neðanjarðarbyrgi og kring-
um borgina eru f jölda mörg vél-
byssuhreiður.
Breskar orustuflugvélar, bún-
ar átta vélbyssum, fljúga yfir
hersveitir ítala á undanhaldinu,
Alt með kyrrum
kjörum í London.
London í morgun.
Það er algert hlé á loftárás-
um á London. Hefir aldrei orð-
ið eins langt hlé í loftstyrjöld-
inni frá því er hinar tíðu loft-
árásir byrjuðu í september. —
Menn spyrja hvað valda muni.
Er þetta „logn á undan ofviðri“
— eða verður Hitler að spara
bensínið — fækka árásarflug-
ferðunum, en gera þær sjaldn-
ar en kröftugri? En hvað sem
þessu líður, eru Lundúnabúar
fegnir þeirri hvíld, sem þeir
hafa fengið, en engin loftárás
hefir verið gerð á London frá
kl. 11 á mánudagskvöld.
Prestakosning:
Jón Thorarensen hæstur i
Nesprestakalli.
í Laugarnessókn fékk síra Garðar 402 atkv.
TALNING atkvæða í Nes-
prestakalli hófst í Neðri-
deildax-sal Alþingis í morgun kl.
9 og var lokið klukkan rúmlega
10/2. Síra Jón Thorarensen
varð hæstur, en fékk þó ekki
meiri hluta greiddra atkvæða.
Atkvæði féllu svo sem hér
segir:
Atkv.
Arelius Níelsson ......... 43
Astráður Sigursteindórsson 147
Gunnar Árnason ........... 12
Halldór Kolbeins ........ 159
Jón Skagan ............... 54
Jón Thorarensen ........ . 451
Magniis Guðmundsson ... 27
Pétur Ingjaldsson ....... 111
Ragnar Benediktsson .... 59
Ógildir seðlar 7, en auðir 5.
Alls voru greidd 1075 atkv.
Þá var og talið í Laugarnes-
og er skotið af vélbyssunum á
hermennina.
ítalska blaðið Lavori Fascista
hefir líkt orustunni við Sidi
Barrani við Verdunorustuna í
heimsstyrjöldinni og orustuna
við Marne. Bandamenn töldu
hersveitir sínar á þessum stöð-
um hafa sigrað þótt þær' yrði að
víkja nokkuð, en orusturnar,
sem þarna voru háðar höfðu úr-
slitaþýðingu. Eins mun verða
talið síðar, segir blaðið, að því
er orustuna við Sidi Barrani
snertir. Vegna þess að Bretar
voru tafðir þar gefst ítölum
tækifæri til þess að undirbúa
gagnsókn.
Bresk blöð segja, að hér sé ó-
líku saman að jafna — við Ver-
dun hafi einkunnarorð frönsku
hermannanna verið: „Þeir
skulu ekki brjótast í gegn“ og
þrátt fyrir margra mánaða á-
hlaup Þjóðverja viku Frakkar
aldrei. Sókn Breta hófst á mánu-
dagsmorgni og um hádegi á
miðvikudag í sömu vikunni var
Sidi Barrani fallin.
Bretar hafa tekið landamæra-
stöðina E1 Wak í ftalska Soma-
lilandi, eftri nokkura bardaga.
Um 50 menn féllu, en 150 voru
teknir til fanga. Það er nú
kunnugt orðið, að hinn ítalski
yfirforingi lagði á flótta, er
hann vissi, að hersveitir Suður-
Afríkumanna og Rhodesíu
nálguðust. Þetta vakti gremju
hinna foringjanna. Einn þeirra
vísaði Bretum á miklar her-
gagnabirgðir, faldar í jörðu.
Hersveitir Breta tóku þarna 13
litlar fallyssur og 2 stórar, 2
vélbyssur, 15.000 vélbyssuskot,
olíu- og matvælabirgðir o. fl.
Útvarpið í kviild.
KI. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30
Dönskukensla, 1. fl. 19.00 Ensku-
kensla, 2. fl. 19.25 Hljómplötur:
Danslög. 20.00 Fréttir. 20.30 .Er-
indi: Um íslenska tungu (Björn
Guðfinnsson nragister). 20.55
Hljómplötur: Létt lög. 21.00 Minn-
isverð tíðindi (Sigurður Einarsson).
21.20 Einleikur á píanó (Rögn-
valdur Sigurjónsson): Tónverk eft-
ir Schumann.
Fpá fulltpúapádsfuníii Dags-
bpixnar í gær.
Trúnaðarráð. Dagsbrúnar hélt fund í Iðnó í gærkveldi. For-
máður félagsins, Sigurður Hallddórsson, setti fundinn og las upp
inntökubeiðnir frá 259 verkamönnum. er sótt höfðu urn inn-
göngu í félagið. Voru þær allar samþyktar á fundinum.
v*- 'tU....
Að því loknu skýrði forni.
frá því, að félaginu liefðu bor-
ist noklu'ar styrkbeiðnir frá
bágstöddunx félagsmönnmn, er
hann taldi sjálfsagt að liðsinna
eftir megni. En í þessu sam-
bandi gat liann þess órétts, sem
Dagsbrún hefði verið beitt, er
það var svift styrknum úr
„Styrktarsjóði verkamanna og
sjómannafélaganna í Rvík“,
sem stofnaður var 3. apríl 1919.
Styrk úr sjóðnum. var skift,
samkvæmt skipulagskrá hans,
á milli verkamanna, verka-
kvenna og sjómanna. Mátti ár-
lega verja 90% af ársvöxtum
höfuðstólsíns og ötðrum tekj-
um sjóðsins til styrktar félags-
mönnum í sjómanna. og verka-
mannafélögunx (karla og
kvenna), en sjóðurinn er nú
samtals um kr. 140,000,00 að
uppliæð. En styrkurinn, sem
Dagsbrún bar árlega úr býtum,
nam alt að 8400,00 krónum,
gegn 1700 kr. framlagi úr fé-
lagssjóði.
I skipulagsski’á sjóðsins er
þess getið, að til jþess að verða
styrks aðnjótandi, verði sjó-
manna eða verkamannafélag
hlutaðeigandi manns að vera
innan Alþýðusambands íslands.
En þegar Dagsbrún sagði sig
úr Alþýðusambandinu fyrir
þrem árum, var styrkurinn tek-
inn af félaginu. Er þetta dæma-
laus óréttur, því að alt fram, til
ársins 1937 gátu öll vei’ka-
mannafélög landsins verið inn-
an Alþýðusambandsins án þess
að vera beitt skoðanakúgun, en
j>egar einræðisandinn greip um
sig, og í Alþýðusambandinu
fengu ekki önnur félög að vera
en þau, sem lýstu yfir fylgi sínu
við Alþýðuflokkinn, gat Dags-
brún ekki sætt sig við þá kúgun
og gekk úr sambandinu.
Viðhorfið til Alþýðusam-
bandsins hefir því breyst, og
vitaskuld ætti einnig að breyta
skipulagsskrá styi’ktarsj óðsins
jafnframt, svo að styrkurinn sé
ekki nein foi*réttindi Alþýðu-
flokksmanna, heldur njóti
Dagsbrúnarmenn styrksins eftir
sem áður, hvaða pólitíska skoð-
un sem þeir hafi.
Það var þessi óréttur, sem
form. Dagsbrúnar lagði ríka á-
sókn, en eins og lesendum Vísis
er kunnugt var sira Garðar
Svavarsson þar einn í kjöri.
Þegar svo er liáttað, að að-
eins einn maður býður sig fram
teljast þeir seðlar, sem kjósend-
ur skila auðum, sem mótat-
kvæði.
Talning i Laugarnessókn fór
fram þegar að lokinni talningu
í Nessókn og var lokið um kl.
11 Ys. Alls voru greidd 410 atkv.
Af þeim hlaut síra Garðar
402, en 8 seðlar voru auðir.
Þegar blaðið fór í pressuna
stóðu atkvæðatölur í allgi’ims-
prestakalli þannig: Jakob 122
atkv., Jón 122, Sigurbjöm 158,
Sigurjón 113, Stefán 9 og Þor-
steinn L. 91 atkv.
herslu á á fundinum, og taldi
sjálfsagt, að félagið leitaði rétt-
ar síns, en félagsstjórninni yrði
falin framkvæmd i máhnu.
Bar hann, fyrir hönd meiri-
hluta stjórnarinnar, fram svo-
hljóðandi tillögu í málinu:
„Trúnaðarráð Dagsbrúnav
telur meðlimi félagsins eiga
fulla kröfu á styrk úr „Styrkt-
arsjóði verkamanna og sjó-
mannafélaganna í Reykjavík“,
eflir söm,u reglum og meðlimir
annara verkalýðsfélaga, enda
greiði Dagsbrún lögboðið ið-
gjald til sjóðsins. Fáist þessu
kki fram gegnt, felur trúnað-
arráð stjórn félagsins að hlut-
ast til um það við Bæjarstjórn
Reykjavíkur, að styrkur sá, er
hún veitir í þessu skyni, renni
til Dagsbrúnar til úthlutunar
meðal Dagsbrúnarmanna.
Jafnframt samþykkir trúnað-
arráð, að veita bágstöddum fé-
lagsmönnum Dagsbrúnar styrk
úr félagssjóði, er samtals nemi
alt að þeirri upphæð, er félag-
inu liefði borið að greiða í
„Styrktarsjóð verkamanna og
sjómannafélaganna í Reykja-
vík“ fyrir árið 1940, og felur
styrkveitinganefnd félagsins að
annast úthlutun styrksins.“
Var tillagan samþykt eftir
mikið þref með 30 atkv. gegn
15. —
I.0.0.F.5 = 12212198 V2=F1.
Skrifstofa Vetrarhjálparinnar
er í Tyggvagötu 28, sími 1267.
Bréfsefni í skrautöskju
er ágæt jólagjöf.
Fjölbreytt úrval.
Bókaverislnii
Nigrnrðar Kri§(jáii§§onar
Bankastræti 3.
HITLER TALAR
fræg'asta og: fíðle§na§ta bókiu, sem kér keniur lit í ar
— er komin iit.