Vísir - 20.12.1940, Side 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Reykjavík, föstudaginn 20. desember 1940.
296. tbl.
Ritstjóri
Biaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S línur
Afgreiðsia
ICastið þeim í sjóinn
---segir Papagos yfirherforingi í dags-
skipan til hers síns
Viðnámsþpóttup Itala í Albaníu ad bresta.
Seinustu fregnir frá Grikklandi herma, að þrátt fyrir hinar erfiðustu aðstæður, m.
a. vegna óhagstæðs veðurs, sæki Grikkir stöðugt fram, en mótspyrna ítala,
sem var farin að harðna, sé aftur minkand^ og hefir Papagos yfirhershöfð-
jngi fullyrt í dagskipan til hersins, að viðnámsþróttur ítala í Albaníu sé að bresta.
I dagskipari sinni til jafnt undir- sem ýfirmanna í hernum,
hvetur Papagos yfirherforingi, herinn til þess að herða sóknina
sem mest. „Sækið fram til sigurs gegn óvinunum,“ segir Papa-
gos. ,„Þeir eru í þann veginn að bugast algerlega vegna hrak-
fara sinna. Sigrar Grikkja í Albaniu og hersveita Breta í Afríku
hafa lamað siðferðilegt þrek ítalska hersins og áhrifanna er
þegar farið að gæta á „heimavígstöðvum“ Itala. Yarpið ítölsku
hermönnunum í sjóinn.“
Allsherjaratkvæða-
greiðslan í Dagsbrðn
er byrjuð.
Framtíd félagsins er undir því kom-
in, ad félagsmenn fjölmenni á
kjorstad.
Segið JÁ við öllum tillögunum.
Æ'
Imorgun kl. 10 hófst allsherjaratkvæðagreiðslan í Dags-
brún og stendur til kl. 10 í kveld. Atkvæðagreiðslan stend-
ur jafn lengi á morgun og frá kl. 10 árd. til kl. 11 síðd. á sunnu-
dag. Á kjörskrá eru rúmlega 2100 félagsmenn.
Atkvæðagreiðslan fer fram i Hafnarstræti 21, og fjallar um
þrjár tillögur, er stjórn félagsins hefir borið fram.
í fyrstu tillögunni felst heimild fyrir stjórn félagsins til þess
að liefja vinnustöðvun um áramót, ef samningar við vinnuveit-
endur liafa ekki tekist.
Þessi tillaga mun að sjálfsögðu engum ágreiningi valda, með
þvi að hér er að eins um þrautalending að ræða til þess að knýja
fram skjóta afgreiðslu samninga og bæta hag verkamanna á
komandi áxi.
Önnur tillagan markar afstöðu félagsins til Alþýðusambands-
og rniðar fyrst og fremst að því að tryggja félagið gegn óeðli-
legri skipan verkalýðsmálanna og óheilhrigðri lausn á fjár- og
skuldaskilum Aljxýðuflokksins og Alþýðusambandsins. Forystu-
menn Alþýðuflokksins liafa á •fundum vei'kamanna viðlxaft þau
uinmæli, að þessi eigna- og skuldaskil kæmi verkamönnum ekk-
ert við, en segir það sig þó sjálft að miklu vai'ðar það hag Dags-
hrixnar og verkamaima hvort þeir eiga að verja öllu því fé, sem
þeir hafa að undanföniu greitt til samtaka sinna, til þess eins
að greiða skuldir, sem þeim korna á engan hátt við, og ekki
standa í sambandi við starfsemi verkalýðsfélaganna. Það hefir
þegar komið í ljós að þeir menn, sem nii skipa ■stjórn Alþýðu-
sambandsins njóta ekki trausts verkamanna vegna meðferðar
þeirra á eignum Alþýðusambandsins og verkalýðsfélaganna,
enda er hér um einlita flokksstjórn að ræða. Breyting á Al-
þýðusambandsstj ói'ninni kemur ekki til greina fyr en eftir tvö
ái', og er með öllu lástæðulaust fyrir Dagsbrún að. greiða mikla
skatta til sambandsins, þar til þetta stærsta verkalýðsfélag
lahdsins fær fulltrúa í sambandsstjórn er tryggir hag félagsins
og hagsmuni.
Þriðja tillagan miðar að þvi, að skapa fordæmi til viðvörun-
ar framvegis, þannig að trygður sé friður á fundum verka-
manna, er þeir ræða liagsmunamál sín. Uppsteit og ófriður á
þeim vettvangi getur ekki neinu góðu til leiðar komið, og verka-
mönnum eru yfirleitt slíkar aðfarir þvert um geð.
Verkamenn! Fjölmennið á kjörstað og segið JÁ
við öllum tillögunum!
Ætluðu Italír
að sökkva
London í morgun.'
Breska flotamálaráðuneýtið
birti tilkynningu í gær, þar sem
getið var um tilraun ítalska flot-
ans til þess að hindra, að breski
Miðjarðarhafsflotinn gæti að-
stoðað Nílarherinn, sem sækir
fram í Libyu, en állar tilraun-
ir ítalska flotans í þessa átt hafa
reynst árangurslausar. Eru það
aðallega kafbátar og tundur-
skeytabátar, sem ítalir hafa
teflt fram f þessu skyni, og var
einum kafbátnum sökt.
f tilkynningu flotamálaráðu-
neytisins segir, að fundist hafi
fyrirskipanir í vörslu handtek-
inna ítalskra kafbátsmanna,
um að sökkva spönskuni
skipum, og er látin í ljós
hin mesta furða yfir
þessu í tilk. breska flota-
málaráðuneytisins, þar
sem Mussolini hefir jafn-
an þóst vera vinur Spán-
verja.
f breskum blöðum hefir verið
að því vikið, hvort tilætlunin
hafi yerið að sökkva spönskum
skipum og skella sVo skuldinni
á Breta. En hvort sem getgátur
í þessa átt hafa við rök að styðj-
ast eða ekki, þykir það furðu-
legt mjög, að slíkar fyrirskip-
anir skuli hafa verið gefnar,
varðandi skip vinaþjóðar, sem
er hlutlaus í styrjöldinni.
Siiorbjðri [ioarssoo
varð hæsíur i Hall-
orissóln.
Talningu í Hallgrímssókn
lauk í gærkveldi og fór svo, sem
í hinum sóknunum, að enginn
prestur var löglega kosinn.
Atkvæði féllu sem hér segír:
Atkv.
' Sr. Sigurbjörn Einarsson 2140
Sr. Jón Auðuns 1771
Sr. Sigurjón Árnason 1581
Sr. Jakob Jónsson 1534
Sr. Þorsteinn L. Jónsson 1345
Cand. theol. Stef. Snævarr 331
Auðir og ógildir seðlar voru
samtals 24.
Hermálaráðuneytið gríska
tilkynnir, að gríski herinn berj-
ist áfram með góðum, árangri.
Sumstaðar hafa ftalir veitt
Iiarða mótspyrnu, en þar hafa
þeir verið hraktir úr stöðvum
sínum í byssustingjaáhlaupum.
Grikkir tóku í gær yfir
600 fanga og mikinn
fjölda vélbyssna og önn-
ur hergögn. 1
ítalir eru aftur farnir að varpa
sprengjum á bæi og þorp í
Grikklandi og Albaníu, í þeim
hluta landsins, sem Grikkir hafa
á valdi sínu. Hafa ítalir varpað
sprengjum á sjúkrahús, þrált
fyrir að þau eru greinilega
merkt Rauða krossinum.
Þá segir í herstjórnartilkynn-
. ingu Grikkja, að grískar og
breskar sprengjuflugvélar hafi
gert árásir með góðum árangri
á ýnisar lierstöðvar ítala. M. a.
hafa breskar sprengjuflugvélar
gert nýja loftárás á Yallona.
BANDARÍKIN SENDA
SETULIÐ TIL
NÝFUNDNALANDS.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Það var tilkynt í Wáshington
í gærkveldi, að Bandaríkin ætl-
uðu að senda setulið til New-
foundland í janúarmánuði næst- |
komandi. Setulið þetla liefir að-
setur í flug- og flotahöfn þeirri,
sem Bandaríkin fá á Newfound-
land. Þetta er fyrsta flug- og
flotastöðin af þeim, sem Banda-
ríkjamen liafa leigt af Bretum,
sem lierafli er sendur til.
ó birsir Dýskaloids og
líalín.
London i morgun.
í fyrrinótt gerðu breskar
sprengjuflugvélar árásir á Mil-
ano og Genua, og er talið, að
mikið tjón hafi orðið af völdum
þessara árása. Sprengjum var
varpað á verksmiðjur, aðallega
i Turin, en bafnarmannvirki og
skip í Genua. Eldar komu upp
á báðum stöðunum. Loftárás-
irnar eru viðurkendar í ítölsk-
um fregnum og segja Italir, að
manntjón liafi verið litið.
Þá gerðu Bretar þriðju næt-
urárásina í röð á Mannheim við
Rín, eina mestu iðnaðarborg
Þýskalands. Flugmennirnir,
sem þátt tóku í þessari árás,
segja að enn logi eldar, sein
upp komu í fyrri loftárásunum
tveimur. Eldar komu upp á
nokkrum stöðum til viðbótar.
Samningar nm 60
ný skip lianda
Bretnm.
Hergögn fyrir 3000
miljóoir doliara.
London í morgun.
Samningar liafa verið gerðir
um smíði 60 flutningaskipa i
Bandarikjunum fyrir bresk
skipafélög og ábyrgist breska
stjórnin greiðslur allar.
Forseti Bandaríkjanna hefir
boðið Bretum að hefja sam-
komulagsumíeitanir um kaup á
hergögnum með því fyrirkomu-
lagi, sem liann stakk upp á ný-
lega.
Bretar liafa þegar lagt fram
pantanir fyrir 3000 milj. doll-
ara. — Verði af því, að Bretar
fái flugvélar og hergögn með
skilmálum, sem eru i samræmi
við þær tillögur, sem Roosevelt
lagði til, munu Bretar þegar
panta 12.000 sprengjuflugvélar.
j
Tillögur Roosevelts um með
hverjum liætti væri best að
lijálpa Bretum, liafa ekki verið
birtar í þýskum blöðum, eða út-
varpi. Talsmaður stjórnarinn-
ar, sem um þetta var spurður,
sagði, að þessa-máls yrði getið
rækilega síðar.
Laval innanríkis-
ráðherra?
Átökin harðna í Vichy
London i morgun.
Alt bendir til þess, að átökin
i Vicliy fari mjög harðnandi.
Laval hefir ekki enn fengið
nýtt embætti, en hann virðist
hinn kátasti, eftir að liann var
laus látinn, og nýtur hann
fylsta trausts Þjóðverja, og
býst við, að geta beitt áhrifum
sinum áfram á stjórnmálasvið-
inu. Laval er ekki farinn aftur
til Vichy frá Paris, en þangað
fór hann eftir að liann hafði
verið látinn laus að kröfu dr.
Abetz, sendiherra Þjóðverja.
Breskt sjómanna-
heimili í Reykjavík.
'-'■sr'V
London í morgun.
Manchester Guardian birti
í fyrradag grein um breska
sjómenn við Island, og er
Hinsvegar hefir de Brinon, full-
trúi Vichystjórnarinnar í hin-
um hernumda hluta Fralck-
lands, farið til Vicliy, en hann
er mikill vinur Lavals. Hefir
de Brinon rætt ítarlega við
helstu stjórnmálamenn í Vichy
(i gær), Petain og aðra ráð-
lierra. — Berlínar-fréttaritari
blaðsins La Suisse hyggur, að
þessar uniræður boði, að Laval
verði tekinn i stjórnina aftur,
og er m. a. á það bent, að De
Brinon hafi rætt við innanrík-
isráðherrann og kunni það að
boða, að Laval eigi að taka við
embætti hans.
Ýmsar sögusagnir ganga um
það, að Jetain og dr. Abetz hafi
deilt liarðlega, en líkur eru til,
að marskálkurinn verði að
sætta sig við að verða við kröf-
um Þjóðverja, sem sum blöð
ætla, að liafi hótað að hernema
alt Frakkland, ef ekki yrði í
öllu gengið að kröfum þeim,
sem dr. Avetz bar fram.
þess getið, að breska sjó-
mannasambandið hafi sent
fulltrúa til Reykjavíkur í því
skyni að koma þar upp sjó-
mannaheimili. Hefir sam-
band kVenskáta í breska
heimsveldinu gefið 1300 ster-
lingspund í þessu skyni, og
er það hluti af 500.000 stpd.
gjöf, sem kvenskátar hafa
gefið í ýmsu skyni, vegna ó-
friðarins.
Breska sjómannaheimilið í
Reykjavík verður rekið með
sama sniði og önnur bresk
sjómannaheimili. Verður þar
matur og húsnæði fyrir sjó-
menn, baðhús, klúbbstofur
og skemtanir, auk fundasals
og bókasafns. Hlutverk þess
verður einnig að taka á móti
skipbrotsmönnum og veita
sjómönnum alla nauðsynlega
aðstoð.
Peningagjafir til Vetrarhjálparinnar.
N.N. io kr. Verslun O. Elling-
sen h.f. 150 kr. Starfsfólkið hjá
Skóverslun Lárus G. LúSvígsson
93 kr. G.I. 10 kr. Starfsmenn hjá
Timburverslun Árna Jónssonar 20
kr. N.N. 10 kr. S.S. 5 kr. Starfs-
fólkið hjá Sirius, Hrein og Nóa
127 kr. Á.J. 200 kr. Starfsfólkið á
Póststofunni 39 kr. O.K. 10 kr.
Nýja Bíó 400 kr. Starfsfólkið hjá
I. Brynjólfsson & Kvaran 55 kr. —
Kærar þakkir. — F. h. Vetrarhjálp-
arinnar, Stefán A. Pálsson.
H
Kalíio FiuuIaiHÍs£or§oti láÉima.
Hann dö í örmum Mannerlieim marsRálks
©
Ryti kosinn for®eti Finnlands.
KALLIO FORSETI.
FORSETAHÖLLIN í HELSINKI.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
í gær fór fram forsetakjör í Finnlandi og var Ryti forsætis-
ráðherra kjörinn forseti með yfirgnæfandi atkvæða meiri hluta,
eða 288 kjörmannaatkvæðum af 300. Kallio Finnlandsforseti
hafði beðist lausnar í nóvemberlok, vegna heilsubrests en gegndi
áfram embættinu, þar til forsetakjör hafði fram farið. Ætlaði
hann svo að setjast í helgan stein, á búgarði sínum, er nýr mað-
ur væri tekinn við. En það átti ekki fyrir hinunt aldna bænda-
höfðingja að liggja, að geta notið hvíldar á búgarði sínum, sein-
ustu ævistundirnar, því að hann varð. bráðkvaddur nokkurum
klukkustundum, eftir að tilkynt hafði verið, að Ryti hefði verið,
kjörinn forseti.
Þegar Kallio forseti var á leið frá Helsinki til Nivala, hélt fylk-
ing hermanna heiðursvörð á stöðinni, og er Kallio og Manner-
heim marskálkur gengu meðfram hermannaröðunum hneig
Kallio niður. Var hann borinn inn í lestina, þár sem hann and-
aðist í örmum Mannerheims marskálks nokkurum mínútum
síðar.