Vísir - 22.12.1940, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 linur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, sunnudaginn 22. desember 1940.
298. tbl.
Italir yfirgefa Tepelini og Klisura
Vígstöðvarnar
í Albaníu
Grikkir nálgast Elbasan. - Bretar
gera loftárás á Dodekaneseyjar.
______ I EINKASKEYTI frá United Press. London í ffærkveldi.
Bretar hreinsa til
umhverfis Bardia
Ítalip mistu 8 flugvélar í bardaga
yfip bopginni í gæp*
EINKASKEYTI frá United Press. London í gærkveldi.
Frá Afríku berast þær fregnir, a~ð hersveitir Breta vinni nú
að því að hreinsa til umhverfis Bardia, taka til fanga hermanna-
flokka, sem þar eru á str jálingi og búa alt undir að taka á móti
meiri liðsauka, sem Bretar bíða eftir, áður en þeir hefja loka-
hríðina. Stórskotalið Breta heldur uppi stöðugri skothríð á
borgina.
í gær tóku Bretar 900 fanga
umhverfis Bardia.
Það er vakin atliygli á því í
London, að sóknin inn í Libyu
leiði meira í ljós en það eitt, að
Bretar eigi hyggnuni og djörf-
um foringjum á að skipa. Ilún
leiði það í ljós, sem hér segir:
1) Að samvinna hafi verið
meiri milli allra þriggja lierja
Breta (flota, landhers og flug-
liérs), en tekist hafi hjá n'okk-
urri herstjórn annari. Sé þetta
til dæmis um góða herstjórnar-
liæfileika bresku foringjanna.
2) Að það sé ekki þörf, ems
og margir liafi álitið, að sá, er
sæki, þurfi að liafa þrefalt lið á
við þá, sem eru í vörn. Þannig
var þetta í Niðurlöndum og
Flandern, en í Afríku hafi Bret-
ar teflt fram miklu minna liði
en var til varnar.
3) Áð Bretar hafi getað liafið
sókn þegar á sama ári og þeir
hefði mist megnið af brynvörð-
Sprengjum varp-
að á Eire.
Einkaskeyti frá U. P.
London í gærkveldi.
Frá Dublin er símað, að ó-
þekt flugvél hafi verið á sveimi
þar skamt frá um tíma í nótt
sem leið. Varpaði flugmaðurinn
niður nokkurum sprengjum. —
Sprengjurnar lentu í borg er
heltit’ Dunlaoghaire. Ein þeirra
spralck á járnbrautarstöðinni og
olli allmiklupi skemdum. Mann-
tjón mun eklcert liafa orðið,
enda er þess ekki getið.
um, hergögnum sínum. Árið
1941 verði vonandi komið jafn-
vægi á styrkleika Breta og
Möndulveldanna og muni þá
Bretar sanna heiminum yfir-
hurði sina.
Til liarðrar loftorustu kom í
dag yfir Bardia, milli flugvéla-
flokka Breta og ítala. Segjast
Bretar hafa skotið niður 8
ítalskar flugvélar, áður en ítalir
lögðu á flótta. Bretar mistu 2
flugvélar.
ítalir hafa flutt á hrott úr
mörgurn, flugstöðvum sínum
austast í Libyu. Hafa þeir nú
engar flugstöðvar nær Sollum
en 150 km.
rikkir lialda áfram sókn sinni á flestum stöð-
Wm um. S\imstaðar veita ítalir lítið viðnám, en
annarsstaðar heldur meira. í herstjórnartil-
kynningu Grikkja i gær segir svo, að gríski herinn hafi
tekið marga nýja staði. Fjöldi fanga var tekinn, þar á
meðal einn herfvlkisforingi. Mikið náðist og af her-
gögnum. A einum stað flýðu Italir frá tveim stói'skota-
deildum og skildu fallbyssurnar eftir. Voru þær sam-
tgls tólf. Allar þessar fallbyssur voru óskemdar.
5000
loltárásir.
Einkaskeyti frá U. P.
London í gærkveldi.
Breski flugherinn hefir gert
'rOOO loftárásir á Þýskaland og
lönd þau, er Þjóðverjar ráða
yfir, síðan í vor.
Flestar loftárásanna hafa
verið gerðar á flugvelli og sjó-
flugvélastöðvar. Þær eru alls
1223 að tölu. Þá liafa verið
gerðar 683 árásir á járnbraut-
ir og járnbrautarstöðvar, 866
á hafnir og skip og 250 á flug-
vélaverksmiðjur.
Sé Italía og lönd hennar talin
með, liafa Bretar alls gert 5000
loflárásir á þessum tima.
Að því er fréttaritari United
Press í Aþenuborg hefir fregn-
að frá áreiðanlegum lieimild-
um, án þess að hafa getað feng-
ið það staðfest lijá herstjórn-
inni,-eru ítalir nú húnir að yfir-
gefa horgirnar Tepelini og Kli-
sura. Miklar líkur eru fyrir því,
að þessi fregn sé sönn, því að
gríska herstjórnin tilkynnir
enga sigra án þess að þeir sé
alveg tryggir. Hafa Bretar látið
i ljós aðdáun sína á tilkynning-
um grísku herstjórnarinnar fyr-
ir það, hversu sannorðar þær sé
og lausar við of mikla bjart-
sýni.
ÍTALIR SIUÓTA "
Á TEPELINI.
ítalir hafa tekið sér stöðu
i liæðunum fyrir norðan
og vestan Tepelini.
Halda þeir þaðan uppi skothríð
á borgina. ítalir munu gera.
]>etta vegna þess, að þeim tókst
ekki að flytja allar birgðir sínar
af hergögnum, matvælum,- og
öðrum nauðsynjum á brott úr
borginni, áður en þeim varð þar
óvært vegna sóknar Grikkja.
Ætla þeir þvi að eyðileggja sem
mest af þessu fyrir Grikkjum.
Grikkir eru ekki enn komnir
inn i borgina. Draga þeir sam-
an aukið lið hjá lienni, til þess
að engin hætta verði á þvi, að
ítalir nái henni aftur.
HARÐAST BARIST
IIJÁ CHIMARA.
Að undanförnu hafa hardag-
arnir verið liarðastir fyrir norð-
an Chimara. Gera ítalir alt, sem
þeir geta til þess að stemma
sligu fyrir framsókn Grikkja
þarna á ströndinni.
Undanfarna daga hafa ítalir
teflt þarna fram skriðdrelcum
og brynvörðum bifreiðum, þar
sem þeim verður við komið, en
land er víða mýrlent þarna og
erfitt yfirferðar með þung her-
gögn.
GRIKKIR TAKA BORG
H.JÁ ELBASAN.
Fréttaritari United Press i
Struga í Jugoslavíu hefir sím-
að, að Grikkjum gangi vel á
rtorðurvígstöðvunum, þrátt fyr
ir fannkomu og kulda. Næsta
takmark þeirra þar er Elbas-
an, en það er helsta borgin á
leið þeirra til Tirana.
I gær tóku Grikkir horgina
Gramsi, sem er nokkuru fyrir
sunnan Elbasan.
LOFTÁRÁS Á RHODOS.
Sprengjuflugvélar Breta,
seni hafa þækistöð sina á Krít-
eyju, hafa gert árás á bæki-
stöðvar ítala á Dodecanes-eyj-
um (Tylftáreyjum). Ráðist var
á Rliodos, Astrophalia og Ivar-
pathos.
Miklar sprengingar urðu og'
telja flugmennirnir víst, að
tjón liafi orðið mikið. ítalir
tóku linlega á móti og komust
allar bresku flugvélarnar aft-
ur til bækistöðva sinna.
Við tiöfniti iHÓtt
frani, §egja Italir
Herstjóraartilkynning ítala er
nokkuð á annan veg, en her-
sjjórnartilkynning Grikkja, eftir
því sem fréttaritari U. P. í
Rómaborg símar.
Segir i herstjórnartilkynningu
ítala, að þar sem komið hafi til
J átaka milli herjanna, hafi ítalir
borið sigur úr býtum. Hersveit-
ir þeirra hafi á nokkurum stöð-
um gert áhlaup á Grikki. Hafi
liðssveitir þeirra verið hraktar
frá nokkurum varnarstöðvum,
svo að ítalir liafi getað bætt að-
stöðu sína.
Þá segir i tilkynningunni að
flugvélar Itala hafi gert miklar
árásir ó samgönguæðar Grikkja.
Djóflverjðr iíi
að iDir hfili krðfist
Einkaskeyti frá U. P.
London í gærkveldi.
Þjóðverjar hafa mótmælt því,
að þeir hafi gert þær kröfur til
frönsku stjórnarinnar í Vkhy,
að fá hafnir á Miðjarðarhafs-
ströndum Frakklands.
Ráðuneytisfundur var hald-
inn hjá Petain-stjórninni í gær
og vita menn ekki hvað hún
hefir verið að ræða um, ef það
hafa ekki verið kröfur Þjóð-
verja.
Petain hefir senf Hitler langa
skýrslu um meðferðina ó Laval,
en hann er nú kominn heim til
sín.
Skipsliöfu
Ibjíirgað.
M/s Súlan frá Akureyri
bjargaði nýlega skipshöfn af
belgisku skipi, sem skotið
hafði verið niður. Voru það
35 eða 36 menn, sem höfðu
verið að velkjast i björgun-
arbátnum í 6 stundir frá því
er skipinu Var sökt. Munu
mennirnir hafa verið fluttir
til hafnar 1 Englandi.
Dagsbrúnapfélagap I
Tryggið félag yíar
gegn ytri áleitoi og
innri óeirönm og
stigamensku.
ATKVÆÐAGREIÐSLUNNI í Dagsbrún lýkur í kvöld, og í
dag eru þannig síðustu forvöð til þess að neyta atkvæðis-
réttar ogl bjarga hag og heill félagsins.
Reynt hefir verið að slá á þá strengi, að ef Dagsbrún gengi
ekki í Alþýðusambandið myndi ekki samstarf verða millum
félagsins og annara verkalýðsfélaga. Þetta er blekking — and-
stæð öllum sannleika og allri skynsemi. Ávalt ef um sameigin-
lega hagsmuni er að ræða mun Dagsbrún starfa með öðrum
verkalýðsfélögum, þótt hún gangi ekki að sinni í Alþýðusam-
bandið. Stjórn félagsins vill tryggja rétt þess, ekki að eins innan
Alþýðusambandsins, heldur og gagnvart Alþýðuflokknum í
f jár- og skuldaskilum millum þessara tveggja aðila. Þessa verða
íélagar í Dagsbrún að minnast og veita stoð sína til þess að
halda Dagsbrún utan Alþýðusambandsins enn um sinn, þar til
fullur og óskertur réttur félagsins er trygður, og engar óeðli-
legar skyldur lagðar því á herðar vegna annara aðila.
Með þessari atkvæðagreiðslu
er ennfremur úr því skorið,
livort óróaseggir innan félags-
ins eiga að geta vaðið þar uppi
óátalið. Annar þeirra manna,
sem vikið var úr félaginu, liefir
gert sig sekan um slíkan yfir-
gang, að algjört einsdæmi mun
vera. Munu verkamenn minn-
ast þess, að liinn 1. maí sl. tók
hann, — heimildarlaust og eftir
að 1. maí-nefndin liafði sam-
þykt að félagið tæki ekki þált
i hátiðaliöldunum, — merki fé-
lagsins og lét ijera það i fylk- j
ingu kömmúnista. Á fundum j
hefir þessi sami maður spilt
fundarfriði hvað eftir annað, og
þarf sannarlega ekki nema einn
giklc í veiðistöð kommúnista til
þess að hinir fylgi á eftir.
Ef tryggja á fundarfrið í fé-
laginu framvegis, verður að
gera óvenjulegar ráðstafanir til
Bergens-
brautin
rofin.
Einkaskeyti frá U. P.
London í gærkveldi.
greskar sprengjuflugvélar frá
strandgæslusveitunum
(Coastal Command) gerðu í
nótt sem leið miklaf árásir á
innrásarhafnirnar og ýmsa staði
í Noregi. Auk þess voru gerðar
loftárásir á Berlín og borgir í
Ruhrhéruðunum.
I loftárásinni í Berlin var
lielst leitast við að hæfa flug-
vélahrejrflaverksmiðju í norður-
hluta borgarinnar. Höfðu kom-
ið 'upp eldar í verksmiðjunni,
þegar bresku flugvélarnar
lmrfu frá.
Bresku flugvélarnar flugu
niður í alt að 100 feta hæð. Þetta
var 37. loftárásin á Berlín.
Þá var og ráðist á Vliessing-
en, Le Havre og fleiri innrásar-
hafnir. tGerðu sprengjurnar þar
milvinn usla.
Loks var gerð árás á Bergens-
hrautina -— milli Bergen og Os-
lo. Hún er nú mikið notuð af
þess að skapa fordæmi í eitt
skifti fyrir öll, og það er einmitt
þetta, sem stjóm Dagsbrúnar
vill gera. Verkamenn verða að
styðja liana í þessari baráttu, og
rnega enga linkind sýna, — jafn"
vel þótt menn bi^Jjist miskunn-
ar, á óviðeigandi hátt að visu.
Dagsbrúnarfélagar! Sækið
lijörstað í dag og greiðið at-
kvæði með tillögum stjórnar
Dagsbrúnar.
Kjörstaður í Hafnarstræti 21.
X JÁ.
Vetrarhjálpin:
Á morgun eru
síðustu íorvöð
að styrkja hana
4 A/IA beiðnir um aðstoð
hafa nú borist.
Vetrarhjálpinni og mun ekki
verða hægt að sinna þeim beiðn-
um, sem henni berast eftir þetta.
Á morgun eru síðustu forvöð
fyrir borgarbúa að hjálpa þeim
samborgurum, sem eru svo illa
staddir fjárliagslega, að jólin
myndi alveg fara framhjá þeim,
ef Vetrarhjólparinnar nyti ekki
við. Margir góðir menn og fyr-
irtæki hafa brugðist drengilega
við kalli Vetrarhjálparinnar, en
hún fær aldrei of mikinn stuðn-
ing.
Nú er alt svo dýrt, að það sem
kostaði krónu í fyrra, kostar nú
kannske alt að tveim krónum.
Af því geta menn séð þörfina
fyrir framlögum.
Reykvíkingar! Á morgun eru
síðustu forvöð að hjálpa sam-
borgurunum. Sýnið að þið skilj-
ið erfiðleika þeirra og viljið
bæta úr þeim. Leggið leið ykkar
í skrifstofu Vetrarhjálparinnar
og leggið fram skerf yðar.
Skrifstofan verður opin til kl.
10 annað kvöld.
Þjóðverjum, til lierflutninga.
Flugmennirnir sáu margar
sprengjur lenda alveg á teinun-
um og rjúfa brautina á mörg-
um stöðum.