Alþýðublaðið - 14.05.1920, Síða 1

Alþýðublaðið - 14.05.1920, Síða 1
Alþýðublaðið Gefið út af A.1 þýðviflokkiium. 1920 Ijafnarverkfallið. Khöfn, 13. maí. Sjálfboðaliðar afferma skip í Fríhöfnmni, með lögregluvernd. [Sennilega er hér átt við kolafarma sem þar hafa legið, samt. 40,000 smálestir.] Sntheaar hervxðast gegn pilverjum. Khöfn, 13. raaí. Fréttastofa Hvítu-Ruthena til- kynnir, að bændur þar hervæðist í miklum móð gegn Pólverjum. {Hvítu Ruthenar eru rússneskur þjóðflokkur. Þeim hefir sennilega runnið blóðið til skyldunnar, er þeir hafa séð djöfulmóð Pólverja.j lexikoborg tekia herskildi. Khöfn, 13. maí. . Frá Washington er símað, að uppreisnarmenn hafi tekið Mexiko, höfuðborg Mexikoríkis, herskildi. Friflarskilmálar Tyrklands. Khöfn, 13. maí. Frá París er símað, að Tyrkjum hafi verið afhentir friðarskilmálar þeirra, sem ákveða þeim eins mánaðar frest. Tjataldjalínan á- kveður landamæri þeirra að norð- an. Þeir verða að láta af hendi Smyrna og Armeníu. Batum verð- ur alþjóðahöfn. Virkin við Dar- danellasundið og Bosporus verða lögð niður. Flota mega þeir eng- an hafa. Herinn færður í 60,000 Föstudaginn 14. maí 107. tölubl. manns. Þjóðabandalagið fær vernd- arrétt yfir kristnum þegnum þeirra. VerkfSIIin i paris. Khöfn, 13. maí. Frönsku vérkföllunum heldur áfram og eru menn handteknir og gerðar húsrannsóknir hjá þeim. Slésvík. Khöfn, 13. maf. Það er tilkynt hér opinberlega, að þýzki sendiherrann hafi stungið uppá samningi um verndun þeirra þýzkra manna, sem búa í hinum danska hluta Slésvíkur og gagn- kvæmt. Ráðuneytið danska mót- mælir. Bankaþj önaverkfall. Khöfn, 13. maí. Bankaþjónar í Berlín hafa hafið verkfall. Spa-fnnðinum fresiaí. Khöfn, 13. maí. Spa-fundinum er frestað þangað til í júnílok. pramsal þjöðverja. Khöfn 13 maí. Bandamenn hafa afhent Þjóð- verjum fyrsta tramsalslista sinn. Á honum eru 40 menn (sakaðir um hernaðarglæpi); Hindenburg, Ludendorf og krónprinsinn eru þar ekki. Ungverjar. Khöfn, 13. maí. Frá London er símað, að Horthy rfkisstjóri í Ungverjalandi hafi boð- ist til að etja fram herliði (vara- sveitum) í sókninni gegn Rússum. 3rsku morðin. Khöfn 13. maí. Tilkynt er, að 40 írskir lögreglu- þjónar og embættismenn hafi verið myrtir síðan í janúar. Verzlun Uana. Áður hefir verið skýrt frá því hér í blaðinu, að danskir pening- ar hefðu fallið í verði sökum þess, að innflutningur hefði verið meiri en útflutningur. Af eftirfarandi tölum má sjá, að mismunurinn hefir verið geysimikiil síðastliðið ár (1919) Þá voru innfluttar vörur fyrir 2518 milj. króna, en útfluttar vörur 738 milj. kr. Mismunurinn á inn- og útflutn- ingi er því rúml. 1^/2 miljarður, og er það ekki lítið, hjá ekki stærri þjóð en Dönum. Alþýdublaðið er ódýrasta, fjolbreyttasta og hezta dagblað landsins. Kanpið það og lesið, þá getið þið aldrei án þess verið.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.