Vísir - 14.07.1943, Side 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Simli
Auglýsingar 1660
Gjaldkerl 5 llnur
Afgreiðsla
33. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 14. júlí 1943.
157. tbl.
Þessi mynd gefur nokkura hugmynd um árangurinn af loftsókn bandamanna gegn
Japönum fyrir norðan Ástralíu. Hún sýnir flugvöll Japana í Gasmata, syðst á Nýja-
Bretlandi, og hann er einna líkastur landslagi á tunglinu, þar sem hver gígurinn er
við annan.
Bandamenn nálgrast Agzi-
gento og Cataniu við litla
mótspyrnu.
Þjóðverjar kannast við
fall Augustu.
Búizt við kyrrstöðu um hríð
eftir stuttan tíma.
Möndulhersveitirnar hafa ekki enn getað stöðvað
bandamenn á Sikiley. Það stafar bæði af því,
að hersveitir Þjóðverja og ftala voru ekki
látnar vera þar til varnar, seni bandamenn fóru á land,
og einnig af því, að bandamenn hafa miklu betra lið,
þar sem komið hefir til einhverra bardaga. Eru banda-
menn komnir svo langt á land, að það mun vera von-
laust fyrir möndulherinn að ætla sér að reka þá af
höndum sér. Það er ekki ósennilegt, að bandamenn X
hafi raunverulega unnið sigurinn með þvi að geta kom-
ið möndulhernum svona gjörsamlega á óvart.
Þjóðverjar hætta
álilaiipiiin fyrir
norðan Knrsk.
Segjast brjótast yflr á lijá Byelgorod.
Svo brá skyndilega við í gær, að Þjóðverjar hættu áhlaupum
sínum milli Kursk og Orel, á hinum nyrðri hluta vígstöðv-
anna, þar sem mest hefir verið barizt að undanförnu. Skýrði
herstjórnartilkynning Rússa frá þessu í gærkveldi.
Blaðamenn gefa þá skýringu
á þessu, að Þjóðverjar hafi loks
séð fram á það, að þeir væri að
fórna mönnum og dýrmætum
hergögnum til einskis, því a'ð
þarna á nyrðri hluta Kursk-
bungunnar hefir Þjóðverjum
ekkert orðið ágengt. Hinsvegar
halda hardagar áfram fyrir
sunnan Kursk, enda þótt það
hafi heldur dregið úr þeim tvo
síðustu sólarhringana.
Þjóðverjum virðist eklci hafa
tekizt að breikka fleyginn, en
Rússum virðist heldur ekki tak-
ast að loka honum aftur.
1 gær skýrðu Þjóðverjar frá
því,að þeim liefði tekizt að brjót-
ast austur yfir á eina hjá Bycl-
gorod og Rússar hefði gert mörg
árangurslaus gagnáhlaup, til að
reka þá þaðan aftur.
Dittmar hershöfðingi talaði i
þýzka útvarpið í gær. Sagði
hann, að hernaðaraðgerðirnar
hjá Kursk hefði sprottið af því,
að Rússar hefði ætlað að byrja
þar sem þeir hættu í marz
eða reyna að ná þeim borgum,
sem þeir misstu aftur eins og til
dæmis Karkov. Þjóðverjar liafi.
þvi gert áhlaup.til að sannfæra
sig um þetta og þá hefði Rússar
svarað með öðrum áhlaupum,
en þýzki herinn hefði þá hafið
gagnsókn.
Rússar ekki '
að þreytast.
Sertorius, sem er hermálasér-
fræðingur þýzku fréttastofunn-
ar, hefir látið svo um mælt, að
það sé fjarri því, að orustan
milli Orel og Byelgorod sé búin
að ná hámarki og enn sé ekki
hægt að áætla nákvæmlega um
árangurinn.
Hann sagði, að Rússar virtust
enn langt frá þvi að vera orðnir
þreyttir. Orustan mundi því að
líkindum snúast upp í að verða
einskonar „þol“-orusta, þar sem
sá sigraði, sem liefði meira liði
og liergögnum á að skipa og
kæmi hvorutveggja með meiri
hraða til vígvallanna.
Nýr landsstjórí á
Martinique.
Roberts flotaforingi, seni var
landstjóri Vichystjórnarinnar á
Martinique, hefir sagt af sér og
nýr maður verið skipaður í hans
stað.
Sá, sem við tekur heitir André
Artimaux og var meðlimur
hernaðarsendinefndar Frakka i
Washington. Hann hefir heitið
að öll framleiðsla eyjarinnar
skuli miðast við hernaðarþörf
bandamanna og að efla lið gegn
inöndulveldunmn.
Lokaárásin á
Kiska bráðlega.
Flugvélar Bandaríkja’manna
gerðu í gær þrjár árásir á Kiska
í Aleut-eyjum.
Undanfarna þrjá daga hafa
flugvélarnar því gert margar
árásir á þessa eyju, en varnir
Japana eru litlar sem engar.
Þeir hafa engan verulegan flug-
völl.
Það er gert ráð fyrir því í
Washington, að amerískar her-
sveitir verði bráðlega settar á
land á Kiska. Vörn Japana er
vonlaus, en þeir munu eins og
á Attu verjast, meðan nokkur
stendur Uppi.
SV-Kyrrahafið:
Kreppir að Jap-
önum á Nýja-
Georgiu.
Bandaríkjamenn hafa gengið
á land á tveim stöðum enn á
Nýju-Georgíu, að því er Jap-
anir tilkynna.
Þessar landgöngur voru á
norðvesturströnd eyjarinnar við
Kula-flóa, andspænis Kolom-
bangara-eyju. Segja Japanir, að
ameriska liðið sé milli tveggja
elda þarna, en nefna ekki að
öðru leyti aðstöðu sína.
Herstjórnartilkynning Mac
Arthurs skýrir frá því í morg-
un, að liersveitir hans kreppi
enn að Japönum og hafi í gær
upprætt setulið við fjörð einn,
sem heitir Enoga-fjörður.
Flugsveitir bandamanna á
suðvesturhluta Kyrrahafsins
halda uppi sifelldum árásum á
stöðvar Japan þar um slóðir.
Verða árásirnar smám saman
harðari, eftir því sem þangað
eru sendar fleiri flugvélar frá
verksmiðjum bandamanna.
I gær var 52 smálestum
sprengja varpað á flugvöllinn í
Munda, en jafriframt var 40
smálestum varpað á Kahili í
Norður-Salomonseyjum og
flugvélar frá Nýju-Guineu köst-
uðu niður 35 smálestum á Ra-
/
baul í 3 klukkustunda árás.
Að minnsta kosti níu flutn-
ingaprömmum var sökkt undan
Gerhards-höfða á Nýju-Guineu.
Loftárás á
Aachen.
Brezkar flugvélar fóru í nótt
í harða árás á Aachen í Rínar-
lcndum.
Aachen, sem heitir á frönsku
Aix-la-CliapelIe, er um 65 km.
frá Köln og er mikil iðnaðar- og
flutningamiðstöð. Hefir engin
árás verið gerð á hana i hálft
annað ór.
Þjóðverjar segjast hafa skot-
ið niður meira en 20 flugvélar.
Sókn bandamanna er nú aðallega heint að tveim borgum.
Bandaríkjamenn, sem fóru á land á suðurströndinni, stefna til
Agrigento, stærstu borgarinnar á þeim slóðum. Bretar og Kan-
adamenn, sem fóru á land umhverfis Passero-höfða, halda í
áttina til Catania. Er sú borg stærri en nokkur af þeim borgum,
sem þeir hafa náð.
Þjóðverjar skýrðu frá því í
gær, að bandamenn hefði tekið
borgina Augusta. Hún liggur á
smáeyju skammt undan strönd-
inni og er tengd við land með
langri brú. Tvær hafnir eru við
eyna og háðar góðar. Gafst setu-
liðsstjórinn i borginni upp eftir
að brezkur tundurspillir hafði
skotið á hana.
Búizt við kyrrstöðu
um nokkra hríð.
Þýzka útvarpið birti í gær
ummæli, sem það hefir eftir
hrezka hernaðarsérfræðingnum
Liddel Hart, um það að nú megi
innan skamrns gera ráð fyrir
því, að kyrrstaða skapist á Sik-
iley. Þann tíma muni báðir nota
til að koma sér upp sterkum víg-
girðingum, sem, þeir geti safnað
sér hirgðum bak við, þangað til
þeir sé húnir til úrslitaorustu.
Þá kemur til greina, segir
þýzka útvarpið eftir Hart, hvað
flutningaleiðir bandamanna eru
langpr, en möndulveldanna
stuttar. Baráttan á Sikiley verð-
ur því örðugri, en mönnum
virðist nú eftir fyrstu sigrana.
i
Árásir á skip.
Flugsveitir bandamarina hafa
brugðið sér norður fyrir Sikil-
ey og ráðizt þar á ítölsk skip,
sem þar voru á ferð. Tveim
skipum var sökkt með tundur-
skeytum og eitt laskað, en auk
þess var kveikt i tveim tundur-
spillum.
Italir og Þjóðverjar segjast
nú hafa' sökkt einu heitiskipi og
13 flutningaskipum við suður-
strönd Sikileyjar og laskað 6
beitiskip og 49 flutningaskip.
Taka Syrakúsu
mesta afrekið.
Blöðin í London eru á einu
máli um það, að taka borgar-
innar Syrakúsu sé langmesta
afrekið, sem handamenn hafa
enn unnið í innrásinni. Þar
hafi þeir ekki aðeins fengið
ágæta höfn, nærri óskemmda,
heldur hafi þeir nú greiðan að-
gang að Cataniu-sléttunni, þar
seni búast megi við þvi að einna
mikilvægustu orusturnar verði
liáðar.
Þau segja ennfremur, að her-
stjórninni liafi" verið það ljóst,
hversu mikilvægt það væri, að
gott og vel æft lið færi á land
í Syrakúsu til að berjast á slétt-
unm við borgina og þessvegna
liafi verið horfið að því ráði að
senda menn úr 8. hernum þang-
að auk annars góðs liðs, svo
sem Kanadamanna.
\
i
Sikileyingar
berjast.
Rómaborgar-fréttaritari
svissneska blaðsins „Die Tat“,
sem er gefið út í Ziirich, símar
það til blaðs síns, að orðrómur
gangi um það í Róm, að bændur
og aðrir óbreyttir borgarar á
Sikiley, hafi drepið fjölda af
fallhlifahermönnum þeim, sem
bandamenn létu svífa til jarðar.
Blaðamaðurinn símar enn-
fremur, að þegar yfirvöldin í
Róm sé spurð um þetta, játi
þau hvorki né neiti fregnumum
og segja, að bændur hafi ef til
vill gert þetta í sjáífsvarnar-
skyni.
I
„Monty“ var
í London.
Það er nú komið úr dúrnum,
að Montgomery var fyrir
skemmstu í London. Var ætlun-
in, að halda lieimsókn lians
leyndri, en Lundúnabúar lcom-
ust brátt að því, að átrúnaðar-
goð þeirra var i borginni, þótt
blöðin birtu ekkert um hann.
Vildi þetta þannig til, að
Montgomery fór i leikliús eitt
kveldið, en áhorfendur könn-
uðust strax við liann og þegar
leikurinn var á enda var liann
hylltur ákaflega. Vildi mann-
fjöldinn fá liann til að halda
ræðu, en liann var ófáanlegur
til jæss.
Islenzknm stúflentum
vestra síndur sómi.
Rynna ísland.
m VEIR íslenzkir námsmenn
* í Bandaxíkjnnum, þeir Jó-
hann Hannesson og Haraldur
Kröyer, hafa verið heiðraðir
með því að vera kjömir með-
limir alþjóðafélagsskapar há-
skólamanna, sem er heiðurs-
félag og kallast „PJii Beta
Kappa“, og hefir deildir í flest-
um aðal háskólum Ameríku.
Hver háskóli kýs á ári hverju
aðeins fáa félaga i samhand
)>etta. Tillit er fyrst og fremst
tekið til námshæfileika, til for-
ustuhæfileika i félagsskap og
til persónuleika og skapgerðar
námsmanna.
Inntaka i „Plii Beta Kappa“
er því einn mesti heiður, sem
námsmanni við ameríska há-
skóla getur veitzt. — Haraldur
Kröyer lauk prófi í ensku
(Bachelor of Arts) 5. febr. s.l.
með heiðri. Hóf hann þá að lesa
alþjóða stjórnmálavisindi (In-
ternational Relations) og hyggst
að ljúka meistaraprófi i þeim
fræðum á tveim, árum. Jóhann
Ilannesson mun í þann veginn
að ljúka prófi í ensku. Mun
hann svo halda áfram og ljúka
meistaraprófi í þeirri grein.
Islenzkir stúdentar við Kali-
forníuháskóla hafa með sér fé-
lagsskap, og er Haraldur Kröy-
er formaður hans. Nýlega
efndu þeir til kynningarkvölds
í háskólanunx. Fengu þeir til
sýningar Islandskvikmynd frá
sendiráðinu í Washington. Auk
þess sýndu þeir íslenzkar bælc-
ur, hannyrðir, íslenzka skart-
gripi og „keramik“, er þeir
gátu tínt saman. Vahli þetta
allt mikla athygli og áhuga á-
iiorfenda á íslandi. Að lokinni
kvikmyndasýningunni svaraði
svo Haraldur Kröyer fyrir-
spurnum uin ísland og islenzlc
efni.
Síðuiiu fréttir
COMISO HEFIR VERIÐ
XEKIN AF BREpfíUM HER-
SVEITUM.
Tilkynning Eisenhowers:
Ámerískar hersveitir sem sækja
frá Licata eru búnar að taka
Palma og Naro, sem eru á braut
inni til Agrigento. Eiga þær 20
km. ófama þangað.
Loftárás hefir verið gerð á
Enno á miðri Sikiley. Þar mæt-
ast Vegir frá Pldermot, Agrf-
gento, Cataniu og Syrakúsu.
Flugvélar bandamanna réð-
ust í gær á flugvellina hjá Milo
og Comiso, en auk þess var ráð-
izt á Vivo Valentia og Crotone
á Kalabriu-skaga. Auk þess var
haldið uppi árásum á herflutn-
inga möndulhersins um alla
Sikiley. Misstu bandamenn 7
flugvélar um daginn, en segjast
hafa skotið niður 42.
Þjóðverjar tilkynna: Loftárás
á Hull og ýmsa staði á Suður-
Englandi. I Rússlandi var gagn-
árásum Rússa við Byelgoroö
og Orel hrundið Við mikið
manntjón Rússa. 200, skrið
drekar þeirra voru eyðilagðir.
Á Sikiley eigá möndulherirnir
í hörðum bardögum og skutu í
gær niður 34 flugvélar banda-
manna.