Vísir - 14.07.1943, Blaðsíða 1

Vísir - 14.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjórar Blaðamenn Simli Auglýsingar 1660 Gjaldkerl 5 llnur Afgreiðsla 33. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 14. júlí 1943. 157. tbl. Þessi mynd gefur nokkura hugmynd um árangurinn af loftsókn bandamanna gegn Japönum fyrir norðan Ástralíu. Hún sýnir flugvöll Japana í Gasmata, syðst á Nýja- Bretlandi, og hann er einna líkastur landslagi á tunglinu, þar sem hver gígurinn er við annan. Bandamenn nálgrast Agzi- gento og Cataniu við litla mótspyrnu. Þjóðverjar kannast við fall Augustu. Búizt við kyrrstöðu um hríð eftir stuttan tíma. Möndulhersveitirnar hafa ekki enn getað stöðvað bandamenn á Sikiley. Það stafar bæði af því, að hersveitir Þjóðverja og ftala voru ekki látnar vera þar til varnar, seni bandamenn fóru á land, og einnig af því, að bandamenn hafa miklu betra lið, þar sem komið hefir til einhverra bardaga. Eru banda- menn komnir svo langt á land, að það mun vera von- laust fyrir möndulherinn að ætla sér að reka þá af höndum sér. Það er ekki ósennilegt, að bandamenn X hafi raunverulega unnið sigurinn með þvi að geta kom- ið möndulhernum svona gjörsamlega á óvart. Þjóðverjar hætta álilaiipiiin fyrir norðan Knrsk. Segjast brjótast yflr á lijá Byelgorod. Svo brá skyndilega við í gær, að Þjóðverjar hættu áhlaupum sínum milli Kursk og Orel, á hinum nyrðri hluta vígstöðv- anna, þar sem mest hefir verið barizt að undanförnu. Skýrði herstjórnartilkynning Rússa frá þessu í gærkveldi. Blaðamenn gefa þá skýringu á þessu, að Þjóðverjar hafi loks séð fram á það, að þeir væri að fórna mönnum og dýrmætum hergögnum til einskis, því a'ð þarna á nyrðri hluta Kursk- bungunnar hefir Þjóðverjum ekkert orðið ágengt. Hinsvegar halda hardagar áfram fyrir sunnan Kursk, enda þótt það hafi heldur dregið úr þeim tvo síðustu sólarhringana. Þjóðverjum virðist eklci hafa tekizt að breikka fleyginn, en Rússum virðist heldur ekki tak- ast að loka honum aftur. 1 gær skýrðu Þjóðverjar frá því,að þeim liefði tekizt að brjót- ast austur yfir á eina hjá Bycl- gorod og Rússar hefði gert mörg árangurslaus gagnáhlaup, til að reka þá þaðan aftur. Dittmar hershöfðingi talaði i þýzka útvarpið í gær. Sagði hann, að hernaðaraðgerðirnar hjá Kursk hefði sprottið af því, að Rússar hefði ætlað að byrja þar sem þeir hættu í marz eða reyna að ná þeim borgum, sem þeir misstu aftur eins og til dæmis Karkov. Þjóðverjar liafi. þvi gert áhlaup.til að sannfæra sig um þetta og þá hefði Rússar svarað með öðrum áhlaupum, en þýzki herinn hefði þá hafið gagnsókn. Rússar ekki ' að þreytast. Sertorius, sem er hermálasér- fræðingur þýzku fréttastofunn- ar, hefir látið svo um mælt, að það sé fjarri því, að orustan milli Orel og Byelgorod sé búin að ná hámarki og enn sé ekki hægt að áætla nákvæmlega um árangurinn. Hann sagði, að Rússar virtust enn langt frá þvi að vera orðnir þreyttir. Orustan mundi því að líkindum snúast upp í að verða einskonar „þol“-orusta, þar sem sá sigraði, sem liefði meira liði og liergögnum á að skipa og kæmi hvorutveggja með meiri hraða til vígvallanna. Nýr landsstjórí á Martinique. Roberts flotaforingi, seni var landstjóri Vichystjórnarinnar á Martinique, hefir sagt af sér og nýr maður verið skipaður í hans stað. Sá, sem við tekur heitir André Artimaux og var meðlimur hernaðarsendinefndar Frakka i Washington. Hann hefir heitið að öll framleiðsla eyjarinnar skuli miðast við hernaðarþörf bandamanna og að efla lið gegn inöndulveldunmn. Lokaárásin á Kiska bráðlega. Flugvélar Bandaríkja’manna gerðu í gær þrjár árásir á Kiska í Aleut-eyjum. Undanfarna þrjá daga hafa flugvélarnar því gert margar árásir á þessa eyju, en varnir Japana eru litlar sem engar. Þeir hafa engan verulegan flug- völl. Það er gert ráð fyrir því í Washington, að amerískar her- sveitir verði bráðlega settar á land á Kiska. Vörn Japana er vonlaus, en þeir munu eins og á Attu verjast, meðan nokkur stendur Uppi. SV-Kyrrahafið: Kreppir að Jap- önum á Nýja- Georgiu. Bandaríkjamenn hafa gengið á land á tveim stöðum enn á Nýju-Georgíu, að því er Jap- anir tilkynna. Þessar landgöngur voru á norðvesturströnd eyjarinnar við Kula-flóa, andspænis Kolom- bangara-eyju. Segja Japanir, að ameriska liðið sé milli tveggja elda þarna, en nefna ekki að öðru leyti aðstöðu sína. Herstjórnartilkynning Mac Arthurs skýrir frá því í morg- un, að liersveitir hans kreppi enn að Japönum og hafi í gær upprætt setulið við fjörð einn, sem heitir Enoga-fjörður. Flugsveitir bandamanna á suðvesturhluta Kyrrahafsins halda uppi sifelldum árásum á stöðvar Japan þar um slóðir. Verða árásirnar smám saman harðari, eftir því sem þangað eru sendar fleiri flugvélar frá verksmiðjum bandamanna. I gær var 52 smálestum sprengja varpað á flugvöllinn í Munda, en jafriframt var 40 smálestum varpað á Kahili í Norður-Salomonseyjum og flugvélar frá Nýju-Guineu köst- uðu niður 35 smálestum á Ra- / baul í 3 klukkustunda árás. Að minnsta kosti níu flutn- ingaprömmum var sökkt undan Gerhards-höfða á Nýju-Guineu. Loftárás á Aachen. Brezkar flugvélar fóru í nótt í harða árás á Aachen í Rínar- lcndum. Aachen, sem heitir á frönsku Aix-la-CliapelIe, er um 65 km. frá Köln og er mikil iðnaðar- og flutningamiðstöð. Hefir engin árás verið gerð á hana i hálft annað ór. Þjóðverjar segjast hafa skot- ið niður meira en 20 flugvélar. Sókn bandamanna er nú aðallega heint að tveim borgum. Bandaríkjamenn, sem fóru á land á suðurströndinni, stefna til Agrigento, stærstu borgarinnar á þeim slóðum. Bretar og Kan- adamenn, sem fóru á land umhverfis Passero-höfða, halda í áttina til Catania. Er sú borg stærri en nokkur af þeim borgum, sem þeir hafa náð. Þjóðverjar skýrðu frá því í gær, að bandamenn hefði tekið borgina Augusta. Hún liggur á smáeyju skammt undan strönd- inni og er tengd við land með langri brú. Tvær hafnir eru við eyna og háðar góðar. Gafst setu- liðsstjórinn i borginni upp eftir að brezkur tundurspillir hafði skotið á hana. Búizt við kyrrstöðu um nokkra hríð. Þýzka útvarpið birti í gær ummæli, sem það hefir eftir hrezka hernaðarsérfræðingnum Liddel Hart, um það að nú megi innan skamrns gera ráð fyrir því, að kyrrstaða skapist á Sik- iley. Þann tíma muni báðir nota til að koma sér upp sterkum víg- girðingum, sem, þeir geti safnað sér hirgðum bak við, þangað til þeir sé húnir til úrslitaorustu. Þá kemur til greina, segir þýzka útvarpið eftir Hart, hvað flutningaleiðir bandamanna eru langpr, en möndulveldanna stuttar. Baráttan á Sikiley verð- ur því örðugri, en mönnum virðist nú eftir fyrstu sigrana. i Árásir á skip. Flugsveitir bandamarina hafa brugðið sér norður fyrir Sikil- ey og ráðizt þar á ítölsk skip, sem þar voru á ferð. Tveim skipum var sökkt með tundur- skeytum og eitt laskað, en auk þess var kveikt i tveim tundur- spillum. Italir og Þjóðverjar segjast nú hafa' sökkt einu heitiskipi og 13 flutningaskipum við suður- strönd Sikileyjar og laskað 6 beitiskip og 49 flutningaskip. Taka Syrakúsu mesta afrekið. Blöðin í London eru á einu máli um það, að taka borgar- innar Syrakúsu sé langmesta afrekið, sem handamenn hafa enn unnið í innrásinni. Þar hafi þeir ekki aðeins fengið ágæta höfn, nærri óskemmda, heldur hafi þeir nú greiðan að- gang að Cataniu-sléttunni, þar seni búast megi við þvi að einna mikilvægustu orusturnar verði liáðar. Þau segja ennfremur, að her- stjórninni liafi" verið það ljóst, hversu mikilvægt það væri, að gott og vel æft lið færi á land í Syrakúsu til að berjast á slétt- unm við borgina og þessvegna liafi verið horfið að því ráði að senda menn úr 8. hernum þang- að auk annars góðs liðs, svo sem Kanadamanna. \ i Sikileyingar berjast. Rómaborgar-fréttaritari svissneska blaðsins „Die Tat“, sem er gefið út í Ziirich, símar það til blaðs síns, að orðrómur gangi um það í Róm, að bændur og aðrir óbreyttir borgarar á Sikiley, hafi drepið fjölda af fallhlifahermönnum þeim, sem bandamenn létu svífa til jarðar. Blaðamaðurinn símar enn- fremur, að þegar yfirvöldin í Róm sé spurð um þetta, játi þau hvorki né neiti fregnumum og segja, að bændur hafi ef til vill gert þetta í sjáífsvarnar- skyni. I „Monty“ var í London. Það er nú komið úr dúrnum, að Montgomery var fyrir skemmstu í London. Var ætlun- in, að halda lieimsókn lians leyndri, en Lundúnabúar lcom- ust brátt að því, að átrúnaðar- goð þeirra var i borginni, þótt blöðin birtu ekkert um hann. Vildi þetta þannig til, að Montgomery fór i leikliús eitt kveldið, en áhorfendur könn- uðust strax við liann og þegar leikurinn var á enda var liann hylltur ákaflega. Vildi mann- fjöldinn fá liann til að halda ræðu, en liann var ófáanlegur til jæss. Islenzknm stúflentum vestra síndur sómi. Rynna ísland. m VEIR íslenzkir námsmenn * í Bandaxíkjnnum, þeir Jó- hann Hannesson og Haraldur Kröyer, hafa verið heiðraðir með því að vera kjömir með- limir alþjóðafélagsskapar há- skólamanna, sem er heiðurs- félag og kallast „PJii Beta Kappa“, og hefir deildir í flest- um aðal háskólum Ameríku. Hver háskóli kýs á ári hverju aðeins fáa félaga i samhand )>etta. Tillit er fyrst og fremst tekið til námshæfileika, til for- ustuhæfileika i félagsskap og til persónuleika og skapgerðar námsmanna. Inntaka i „Plii Beta Kappa“ er því einn mesti heiður, sem námsmanni við ameríska há- skóla getur veitzt. — Haraldur Kröyer lauk prófi í ensku (Bachelor of Arts) 5. febr. s.l. með heiðri. Hóf hann þá að lesa alþjóða stjórnmálavisindi (In- ternational Relations) og hyggst að ljúka meistaraprófi i þeim fræðum á tveim, árum. Jóhann Ilannesson mun í þann veginn að ljúka prófi í ensku. Mun hann svo halda áfram og ljúka meistaraprófi í þeirri grein. Islenzkir stúdentar við Kali- forníuháskóla hafa með sér fé- lagsskap, og er Haraldur Kröy- er formaður hans. Nýlega efndu þeir til kynningarkvölds í háskólanunx. Fengu þeir til sýningar Islandskvikmynd frá sendiráðinu í Washington. Auk þess sýndu þeir íslenzkar bælc- ur, hannyrðir, íslenzka skart- gripi og „keramik“, er þeir gátu tínt saman. Vahli þetta allt mikla athygli og áhuga á- iiorfenda á íslandi. Að lokinni kvikmyndasýningunni svaraði svo Haraldur Kröyer fyrir- spurnum uin ísland og islenzlc efni. Síðuiiu fréttir COMISO HEFIR VERIÐ XEKIN AF BREpfíUM HER- SVEITUM. Tilkynning Eisenhowers: Ámerískar hersveitir sem sækja frá Licata eru búnar að taka Palma og Naro, sem eru á braut inni til Agrigento. Eiga þær 20 km. ófama þangað. Loftárás hefir verið gerð á Enno á miðri Sikiley. Þar mæt- ast Vegir frá Pldermot, Agrf- gento, Cataniu og Syrakúsu. Flugvélar bandamanna réð- ust í gær á flugvellina hjá Milo og Comiso, en auk þess var ráð- izt á Vivo Valentia og Crotone á Kalabriu-skaga. Auk þess var haldið uppi árásum á herflutn- inga möndulhersins um alla Sikiley. Misstu bandamenn 7 flugvélar um daginn, en segjast hafa skotið niður 42. Þjóðverjar tilkynna: Loftárás á Hull og ýmsa staði á Suður- Englandi. I Rússlandi var gagn- árásum Rússa við Byelgoroö og Orel hrundið Við mikið manntjón Rússa. 200, skrið drekar þeirra voru eyðilagðir. Á Sikiley eigá möndulherirnir í hörðum bardögum og skutu í gær niður 34 flugvélar banda- manna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.