Vísir - 16.07.1943, Qupperneq 2
VISIR
VÍSIF3
D A G B L A Ð
Ctgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Afstaðan út á við.
EINS og sakir standa lútum
við Islendingar liervernd
Bandaríkjanna. Áður vorum
við hernumdir af Bretum. Þetta
eru staðreyndir, sem sýna og
sanna að ísland liggur fyrst og
fremst á áhrifasvæði liins
enskumælandi heims. Allt öðru
máli gegnir um önnur Norður-
lönd. Þau eru sumpart hernum-
in af Þjóðverjum, en sumpart
háð þeim beint eða óbeint. Svi-
þjóð, sem enn Iiefir tekizt að
halda hlutleysi sínu, er þrátt
fyrir það á þýzku áhrifasvæði.
Þessi lönd öll eru óaðskiljan-
legur hluti meginlands Evrópu,
enda leiðir það af likum.
Standi menn á fjallsbrún og
liti yfir landið gleraugnalausir
og alsjáandi fá þeir það sem al-
mennt er kallað rétta hugmynd
um landslagið, — lit þess og
lögun. Mynd þessari geta þeir
breytt með notkun litaðra
glerja og jafnvel geta þeir firrt
sig allri útsýn með slíkum
tækjum. En þótt menn geti gert
sig skammsýna og blinda, verð-
ur landslagið samt við sig, og
það er sjálfsblekking og annað
ekki að telja sér trú um að það
sé öðruvísi en það er.
Aðstaða íslands til umheims-
ins er allt önnur en afstaða
Norðurlanda, og þótt hér búi
norræn þjóð, sem lotið hefir
kúgunarvaldi frændþjóða sinna,
réttlætir það á engan hátt að
landið sé talið með Norður-
löndum eða lúti þeim. Lega
þess og jarðmyndun ræður því,
að verði það talið til nokkurs
landaflokks, er eðlilegast að
telja það á áhrifasvæði hinna
enskumælandi þjóða, þótt þjóð-
in, sem landið byggi sé engil-
söxum ef til vill fjarskyldari en
norrænum þjóðum, sem vafa-
laust má þó deila um. ísland
hlýtur ávalt að verða áhrifa-
svæði þeirra þjóða, sem höfun-
um ráða, en það þýðir ekki að
landið geti ekki notið fulls og
óskerts sjálfstæðis fyrir því.
íslenzka þjóðin er fámenn, en
á þó fullan tilverurétt, sem
ekki má skerða, og hún á fyrst
og fremst tilverurétt sem sjálf-
stæð þjóð, með því að lífsskil-
yrði hennar eru sérstæð og þjóð-
in er og verður þess ein um-
komin að stjórna málum sínum
á hinn hyggilegasta hátt. Sjálf-
stæðinu getur þjóðin þvi aðeins
lialdið, að hún verði vernduð
af stórveldum þeim, sem höfun-
um ráða, en með öðru móti ekki.
Þessi stórveldi hafa séð sér
hagnað í þvi að hernema landið
í ófriði og veita því hervernd.
Afnot þeirra af landinu verða
ekki metin til fjár, og sársauki
íslenzku þjóðarinnar vegna
þessara afnota ekki heldur.
Einu bætur, sem hér geta á
móti komið, er að þessar stór-
þjóðir verndi landið einnig á
friðartímum, ekki með því að
setast hér að, lieldur með hinu
að sjá svo um, að réttur íslend-
inga verði ekki fyrir borð bor-
inn hver sem í hlut á, og að
þjóðin verði aðnjótandi fulls
sjálfstæðis og sem beztra lífs-
skilyrða, en þau verða eklci
tryggð með öðru en sjálfstæði
þjóðarinnar og ahnennu at-
hafnafrelsi í eigin málum.
Sumargjöf ætlar að auka
húsakynni sín.
Bæði í Grænuborg og Vesturborg.
BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJÖF, sem hefir unnið ó-
metanlegt starf hér í bænum á undanförnum árum, hefir
nú á prjónunum áform um að auka húsnæði sitt í tveim bæki-
stöðvum sínum, Grænuborg og Vesturborg.
Félagið hefir í hyggju að auka
við húsnæði sitt í Grænuborg
stofu, sem á að verða 6x7 m. á
stærð. Verður það líka kennslu-
stofa fyrir forskóla þann, sem
ísak Jónsson kennari hefir
haldið undanfarna vetur. Er þar
kennt börnum allt frá 5 ára aldri
til 8 ára. í Grænuborg hefir að
vetrarlagi lika verið skóli fyrir
8—10 ára börn og í báðum þess-
um skólum hafa nemendur í
Kennai’askólanum líka getað
notið verklegrar kennslu. Hafa
jieir getað æft sig þar á lestrar-
kennslu og annari kennslu.
Þegar Austurbæjarskólinn var
stofnaður á sínum tíma, var til
þess ætlazt, að þessi æfinga-
kennsla færi fram þar, en bær-
inn liefir vaxið svo síðan, að
nemendafjöldinn í skólanum
hefir byggt þessari kennslu út.
Við Vesturborg ætlar Sumar-
gjöf að innrétta hús handa
starfsli^i sínu. Er það einnig
mjög nauðsynleg og þörf um-
bót, Jiegar húsnæðiseklan í bæn-
um er eins mikil og nú er.
Það er fásinna að nokkurum
manni skuli detta í hug, að þjóð-
ir, sem háðar eru annarlegum
áhrifum, eigi hér nokkuru að
ráða í framtíðinni. Ættu Norð-
urlandaþjóðirnar að fara með
íslenzk mál að einþverju leyti,
þýddi það að þær þjóðir, sem
háðar eru áhrifavaldi andstæð-
inga hinna engilsaxnesku þjóða,
rækju hér erindi sín og ef til
vill sinna yfirboðara. Enga
vernd gætu þær veitt íslenzku
þjóðinni. Það höfum við séð í
tveimur heimsstyrjöldum, og
væntanlega þarf ekki sú þriðja
að skella á til þess að sannfæra
landsmenn alla um þessa stað-
reynd.
fslendingar eru hættir að
kalla erlenda skó danska skó,
— hættir yfirleitt að miða allt
við Danmörku. Við höfum
öðlast heilbrigðari og þroskaðri
skynsemi og víðari útsýn.
Þröngsýni er það, að skilja ekki
hver afstaða lands og þjóðar er
gagnvart umheiminum. Háski
er liitt að skilja ekki að framtíð
þjóðarinnar og tilvera byggist
fyrst og fremst á vinsemd
þeirra þjóða, sem voldugastar
eru, en þær ráða ekki einvörð-
ungu örlögum okkar heldur og
allra smáþjóða. Hin engil-sax-
neska menning á samleið með
frummenningu íslendinga, og er
henni á engan hátt skaðleg, en
á margan veg nytsamleg. Hún á
ekkert skylt við mongólska
menningu, sem nú er boðuð hér
á landi í tíma og ótíma, og hún
metur mannréttindi og alhliða
frelsi.
En þótt við íslendingar séum,
sem allar þjóðir, annara þjóða
áhrifum háðir, höfum við flest-
ir lært og eigum allir að læra
að liugsa þá hugsun, að þjóðin
eigi að öðlast fullt og óskert
sjálfstæði og eigi rétt á því um
aldir. Fyrir því eigum við að
berjast og fórna öllu ef með
þarf.
Hér liefir verið Ieitast við að
skýra afstöðu okkar á einfaldan
og eðlilegan hátt. Það kann vel
að vera að rekin verði upp
ramakvein af mönnum, sem
ekki ganga erinda íslenzku
þjóðarinnar, lieldur annara
hagsmunaheilda. Slikt skiptir
engu máli. Sannleikurinn verð-
ur sannleikur þrátt fyrir það,
þótt sumir menn séu skamm-
sýnir eða blindir.
Starfsemi Sumargjafar er í
fullu fjöri í sumar. f Vesturborg
eru til dæmis 15—20 börn en í
Grænuborg eru um 40 börn.
Gæti jafnvel fleiri börn komizt
fyrir hjá félaginu þar.
Þá er ótalin Tjarnarborg, þar
sem félagið hefir bæði dagheim-
ili og vöggustofu. Þar eru alls
um 60 börn.
Félagið hafði i liyggju að
starfrækja um tíma í sumar
heimili fyrir vangefin börn.
Munu sumirhafa misskiliðl>etta,
talið að þarna væri heimili fyr-
ir vangæf — óstýrilát — börn,
en svo er ekki. Svo fáar um-
sóknir komu um heimilisvist,
að félagið sá sér ekki fært að
starfrækja það.
Bæí’inn hefir keypt handa
Sumargjöf hús Helgu Niels-
dóttur, Eiríksgötu 27, en hún er
nú að byggja á ný þar rétt hjá.
Býst hún við að geta rýmt húsið
.í september og mun Sumargjöf
þá geta tekið við því. Verður
ekki um það sagt að svo stöddu,
hvernig það hyggst að haga
starfsemi sinni í hinum nýju
húskynnum.
Það er ánægjulegt, hvað Sum-
.argjöf hefir vaxið fiskur um
hrygg á undanförnum árum og
er vonandi að áframhald verði
á þeirri þróun félagsins.
Jaröarför skipverja
af Súðinni í ísafirði.
Jarðarför Guðjóns Kristins-
sonar, ísfirðings, sem féll í
morðárásinni á Súðina, fór
fram 26. júni að viðstöddu fjöl-
menni. Sýndu ísfirðingar ótví-
rætt samúð sína aðstandendum
hins unga manns og minningu
hans virðingarvott.
Athöfnin hófst kl. 1 e. li. með
liúskveðju á heimili hins fallna.
Flutti sr. Sigurður Kristjáns-
son þar húskveðju en kirkju-
kórinn söng. í kirkju flutti
sóknarpresturinn ræðu og lagði
út af ljóðlínunum: „Skjótt hefir
sól brugðið sumri“.
Jón Hjörtur söng einsöng,
söng hann sálminn „Lýs milda
ljós,“ en fjórir félagar Guðjóns
heitins stóðu lieiðursvörð við
kistu hans í kirkju.
Fánar voru almennt dregnir
á stöng í ísafirði meðan jarðar-
förin fór fram.
Sfiðin verðir mánaðar-
Flutningar óvenjulega
litlir um þessar mundir.
Súðin er nú komin hingað
suður fyrir skemmstu og er gert
ráð fyrir að viðgerð á henni
verði lokið um miðjan ágúst.
Það mun tefja nokkuð við-
gerð á skipinu, livað erfitt l>að
reynist að fá vinnuafl. Eru
ýmsar orsakir til þess, en með-
al annars sú, að margir verka-
menn eru nú í sumarleyfi, sam-
kværnt orlofslögunum, sem
samþykkt voru á síðasta þingi.
Bætist það ofan á þá vinnufólks-
eklu, sem hér hefir verið um
alllangan tíma.
Skipið er mikið skemmt,
brunnið sumsstaðar en rifið af
kúlum annarsstaðar, eins og
sézt hefir af mjnidum, sem
birtar hafa verið.
Skipaútgerðin hefir tekið
Hrímfaxa á leigu til næstu ára-
móta og er gert rúð fyrir því,
að liún geti annað þeim flutn-
ingum, sem þörf verður á, þeg-
ar Súðin verður aftur ferða-
fær. Flutningar hafa verið ó-
venjulega litlir að undanförnu
og eru þó sjaldnast miklir um
þetta leyti árs. Stafar það af
strjálli og minni flutningum til
landsins ,svo og því að Reykja-
vík tekur lilutfallslega meira af
vörum en annars.
Maður
sem getur unnið við bifreiða-
viðgerðir, óskast. Tilboð,
merkt: „Bifreiðaviðgerðir“,
leggist inn á afgr. blaðsins
fyrir 25. þ. m.
Stúlka
eða kona óskast. Uppl. í sima
5864. —
Œýfar
gulrœtur
r*. -j-
f$ims
Siml 1884. Klapparstig 30.
Bernt Balchen sækir
ísland heim.
Hinn heimsfrægi norsk-ameríski flugkappi Bernt Balchen
kom snögga ferð liingað til lands á dögunum. Balchen er nú
ofursti i flugher Bandaríkjanna, en var fyrir löngu orðinn
heimskunnur maður fyrir flugferðir sínar og ævintýri.
Balchen er bóndason frá Tov-
dal i Noregi, 44 ára að aldri,
gekk 1916 i norska herinn og
gerðist flugmaður í norskri
flotaflugsveit 1919. Frægð hlaut
hann fyrst af samvinnu við
Roald Amundsen. Fór með hon-
um á loftfarinu „Norge“ áleiðis
til Norðurpólsins, en sú för varð
endaslepp. En nokkin síðar
tókst vinskapur og samvinna
Balchens og Richards Byrd að-
míráls. Reyndu þeir að fljúga
austur yfir Atlantshaf, en urðu
að setjast á sjó fáeinum mílum
frá Frakklandsströnd. — En
Balchen fylgdi Byrd i Suður-
pólsleiðangri hans. Með Byrd
dvaldi hann í Suður-íshafinu
1928—30 og flaug þá yfir Suður-
pólinn.
Balchen hefir lifað áhættu-
sömu lífi og ævintýraríku, enda
er hann liraustmenni mikið, úr-
ræðagóður og harðfengur,
djarfur og þó varfærinn. Má
þakka þessum kostum hans að
nokkru leyti einstök afrek og
lieppni í björgun heimsskauta-
fara, fiskimanna í Norðurhöf-
um og herflugmanna, og er sá
listi orðinn býsna langur. 1928
bjargaði liann von Hiihnefeld
majór og félögum hans, sem
nauðlent höfðu i flugvél á
Labrador eftir Atlantshafsflug.
1931 bjargaði hann hundrað
mönnum af' 123 skipverjum
skipsins „Viking“ frá St. John
í Nýfundnalandi. Skipið hafði
farizt í ís.
Fyrir ekki all-löngu hlaut
hann veglegt heiðursmerki
Bandaríkjastjórnar fyrir það
dæmafáa afrek að bjarga áhöfn
flugvirkis, sem nauðlent hafði
á Grænlandsjökli. Balchen flaug
Catalina-flugbát yfir jökulinn
og lenti á smátjörn á honum,
sem hætta var á að tæmast
myndi þá og þegar.
r~
Scrutator:
'kaAAix aénmmtms
J
Nýi stúdentagarðurinn.
Með byggingu nýja stúdenta-
garðsins hefir háskólahverfinu bætzt
falleg og smekkleg bygging. Þeir
Sigurður Guðmundsson og Eiríkur
Einarsson arkitektar hafa gert
teikninguna og haft umsjón með
smiði hússins og farizt um það
prýðilega. Sigurður teiknaði einnig
gamla stúdentagarðinn, áður en þeir
Eiríkur gerðu með sér félag, en
teiknistofu hafa þeir rekið í félagi
nú um nokkur ár. Meðal annara
stórbygginga hafa þeir einnig teikn-
að nýja sjómannaskólann, sem verð-
ur glæsilegt mannvirki. — Stúdenta-
garðinum berast enn herbergja-
gjafir, og er það vel farið. Kostn-
aður hefir farið langt fram úr öll-
um áætlunum, og eins og sýnt var
fram á hér í blaðinu í gær, verður
kostnaður á hvert herbergi alls ekki
lægri en 25.000 kr., og það er ekki
á hverjum degi að menn komast
að slíkum kaupum.
Æskulýðshverfi.
Nýi stúdentagarðurinn er syðsta
byggingin í háskólahverfinu, enn
sem komið er. Menntaskólinn er í
húsnæðisvandræðum. Væntanlega
verður næsta skrefið að byggja
menntaskóla sunnan við háskólann
og þá einnig heimavistarhús
fyrir skólafólk ekki allfjarri skóla-
húsinu. Það er margt sem mælir
með því að byggja þessa skóla í
sama hverfi. Nú er það á döfinni
að endurbyggja leikfimihús mennta-
skólans og verja til þess ærnu fé.
Það er jafnvel verið að hugsa um
að stækka menntaskólalóðina aust-
ur á við, til þess að koma fyrir ýms-
um aukabyggingum. Þessi hugmynd
er ekki góð. Það er erfitt að skapa
skilyrði fyrir skólalíf á þessum stað
og miklu auðveldara að byggja upp
á nýtt, og enginn staður virðist
liggja jafnt í augum uppi og staður-
inn sunnan háskólahverfisins. Með-
an gamla menntaskólabyggingin er
enn við lýði, má nota hana til margs.
En hún er orðin gömul og getur
ekki orðið eilíf. Hinsvegar er margt
betra hægt að gera við menntaskóla-
lóðina en að hafa þar skóla. Þar
mætti til dæmis hafa ráðhúsið, sem
Bernt Balchen hefir ef til vill
oftar lagt líf sitt í hættu en
nokkur annar núlifandi maður.
Hann er ímynd norskrar karl-
mennsku, enda átrúnaðargoð
æskulýðs Noregs og Bandaríkj-
anna, en bæði löndin eigna sér
hann af skiljanlegum ástæðum.
Norðmaður er hann að þjóð-
erni, en liann er einnig banda-
riskur borgari. En sem stendur
berst hann fyrir sameiginlegu
stríðsmarkmiði beggja landa.
mest er nú um talað, hvar eigi að
standa.
Æskulýðshöll.
í sambandi við æskulýðs- og
menntahverfið sunnan háskólans
dettur manni ósjálfrátt æskulýðs-
höllin í hug. Það virðist býsna nær-
tæk hugmynd að byggja hús æsku-
lýðsins einmitt á þessum slóðum. Á
flötunum austan við allar bygging-
arnar er ákjósanlegasti staður fyrir
hvíldargarða, leikvelli og íþrótta-
svæði. Þetta svæði má auðveldlega
skipuleggja svo, að það komi öllum
æskulýð höfuðstaðarins að notum,
ekki einungis menntafólkinu. Það
er hvort sem er trauðlega hægt að
hugsa sér æskulýðshöll án slíkra
garða og leikvalla. Það kemur því
hvort eð er ekki til mála að reisa
hana í þröngbýli íbúðar- og verzl-
unarhverfanna.
Stjörnuspár.
„Stundsjá Moskóvu bendir á þrótt 1
og er góð. Berlín hefir tunglið í 7.
húsi,“ segir spámaðurinn. — Aftur
á móti mun Hitler alls ekki vera
í 7. himni.
Handknattleiksmót
kvenna,
í gærkvöldi hófst meistaramót
fyrir konur í handknattleik á
íþróttavellinum. Sjö félög taka
þátt í keppninni: Þór á Akur-
eyri, Knattsp.fél. Akpreyrar,
íþróttaráð Vestfjarða, Haukar í
Hafnarfirði, Fimleikafél. Hafn-
arfjarðar, Ármann og ÍR.
Þór : F. H. 3:1.
Fyrst kepptu sveitir Þórs frá
Akureyri og Fimleikafélags
Hafnarfjarðar, og var leikurinn
í fyrstu mjög jafn, en smám
saman sóttu Þórsstúlkurnar sig,
og unnu fyrri hálfleik 2:1. —
Haukar : K. A. 6:2.
Haukar sýndu strax yfirburði
og héldu þeim allan leikinn. K.
A.-stúlkumar voru lengi vel
hikandi, náðu sér þó á strik í
seinni liálfleik, en þá var sveit
Hauka komin of langt fram úr
þeim.
Ármann :. f. R. 8:0.
íslandsmeistararnir, Ármanns-
stúlkumar, sigruðu glæsilega.
Var leikur l>eira einna beztur.
Fjölmenni var á vellinum.
Áður en keppnin hófst gengu
allir þátttakendur mótsins
fylktu liði á leikvanginn undir
fána. Forseti Í.S.Í. setti mótið
með nokkrum orðum, en mann-
fjöldinn fagnaði. Mótinu verður
heldur áfram í kvöld kl. 9. Þá
keppa: í. R.—Þór, Haukar—F.
H. og K. A.—ísfirðingar.
Hver leikur stendur yfir í 20
mínútur, tveir hálfleikir í 10
mín. hvor. Það félag sem tap-
ar tveim leikjum, gengur úr,
og flýtir það mótinu að mun.
Þrir kappleikr verða liáðir á
hverju kvöldi, þar til lokið er.
2—3 herbergi og eldhús,
óskast til kaups. — Uppl. á
Bragag. 22 A, neðstu hæð. —
TIl sölu
Ný amerísk húsgögn,
1 sófi og 2 djúpir stólar. —
Einnig nýtt eikarskrifborð.
Uppl. Framnesvegi 12, niðri.
Ford
’35, til sölu og sýnis, með
nýrri vél og ný standsettur,
frá kl. 5—7 á Leifsgötu 5. —