Vísir - 23.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
33. ár.
Reykjavík, föstudaginn 23. júlí 1943.
Ritstjórar
Blaðamenn Siml:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
165. tbl.
SIKILEY:
PALERMO TEKIN I MORGUN
Bandamezm ná fótíestu á
norðurstrðndinni.
Sækja hratt fram til Mar-
sala og Trapani
HÆGRI FYLKINGARARMUR Randaríkjahers-
ins tók í morgun Palermo, aðalborg Sikil-
eyjar.
í nótt hafði hemum miðað svo vél áfram, að liann var
aðeins um 20 kílómetra frá borginni, og var því búizt
við að skothríð á borgina myndi hefjast þegar þungar
fallbysur hefði verið fluttar á vettvang. Vinstri fylk-
ingararmurinn sækir til vesturs og ógnar Marsala og
Trapani á vesturströndinni. Meðal þeirra borga, sem
féllu í gær, eru Castelvetrano og Sciacca, báðar á suð-
urströndinni. Castelvetrano skiptir járnbrautarlínum.
Liggur önnur til Marsala en hin til Castellamare á norð-
urströndinni.
Það virðist þegar komið i Ijós, að möndullinn leggur enga
áherzlu á vörn vesturhluta eyjarinnar, heldur safnar öllu liði
sínu — og liergögnum, eftir því sem flutningar leyfa — til
norðausturhluta eyjarinnar.
Ráðgjafi Hitlers
7. her Bandaríkjanna undir
stjórn Pattons hershöfðingja,
tók Palermo herskildi í morg-
un gegn lítilli sem engri mót-
stöðu óvinanna. Borgin er
stundum kölluð höfuðborg Sik-
ileyjar. íbúar eru 400 þúsund og
héraðið umhverfis borgina eitt
fi jósamasta á eynni.
Talið er víst, að Marsala og
Trapani falli í dag.
Alexander liershöfðingi hefir
lokið lofsorði á 7. her Banda-
ríkjamanna.
Möndutherinn hörfar til norð-
austurs.
Bandamenn hafa komizt yfir
dagskipan, sem Conrad hers-
höfðingi, foringi Hermann Gör-
ing herdeildarinnar gaf út fyrir
skemmstu. Fer hershöfðinginn
þar smánarlegum orðum um
hermenn sjna, ávítar þá fyrir
hugleysi og taugaæsing og fyrir
að dreifa staðlausum fréttum.
Segir í lok dagskipanarinnar,
að öllum þeim, sem geri sig seka
um slíkt athæfi og aumingja-
skap framvegis, muni tafarlaust
verða refsað.
Bandaríkjaherinn hefir hlotið
gífurlegt lierfang í sókn sinni,
eftir því sem Palton hershöfð-
ingi hefir skýrt frá. Fyrstu 10
daga sóknarinnar féllu 248 fall-
byssur í hendur liernum, 84
skriðdrekar (þar af 14 stórir
,,tígris“drekar), á 3. þúsund
létlar hyssur, yfir 500 farartæki
og 160 flugvélar, og loks yfir 10'
milljónir skota. Italir hafa lítið
sinnt um að ej-ðileggja licrstöðv-
ar og flutningalínur, og léttir
það sókn bandamanna að mun.
)
CATANIA.
Sókninni til Catania miðar
hægt áfram, enda harðnar mót-
staðan við hvern kílómetra, sem
fram ey sótt. Tefla Þjóðverjar
sí og æ fraift óþreyttu liði og
skeyta hvorki um manntjón né
liergagna í því skyni að tefja
sókn 8. hersins brezka, meðan
möndulherirnir húa um sig á
norðausturhorni Sikileyjar og
George S. Patton hersliöfðingi
— stjórnar 7. Bandaríkjahernum.
draga að sér nýtt varnarlið. 8.
lierinn tók i gær Ramacca,
skammt suðaustan við Catania.
Altl þykir benda lil að Þjóð-
verjar ætli að reyna að verja
héraðið næst „tánni“ á ítalíu-
skaga í lengstu lög. Flytja þeir
liðsauka til eyjarinnar bæði á
sjó og í lofti.
En bandamenn auka líka lið
sitt, enda eiga þeir sízt óhæg-
ara um vik. Enskur fréttaritari
ferðaðist nýlega um mikinn
hluta suðurstrandarinnar í bíl
og varð tæplega var við þýzk-
ra flugvéla. Sá liann aðeins til
nolckurra flugvéla skammt frá
Augusta, noi'ðan við Sýrakus.
Um alla suðurströndina ríkir
hinn mesti friður, bælir hann
við. Úli fyrir slröndinni eru
íiskiskip að veiðum og hafa
cngin bæjarstjórnaryfirvöld
færzt undan samvinnu við lier-
stjórnina.
Þjóðverjar segja að kafbátar
þeirra hafi sökkt tiu skipum
handamanna á einum sólar-
hring, frá kl. 3 á sunnudag til
jafnlengdar á mánudag. Skip
þessi voru samtals 62.000 smá-
lestir að stærð.
Auk þess segjast Þjóðverjar
liafa sökkt brezkum kafbáti við
Noreg.
ðr. Sctiictit.
£r sagður í ónáð.
Bandamenn hafa verið varað-
ir við því að trúa þeim sögum,
sem berast frá Þýzkalandi um
að dr. Schacht sé í ónáð hjá naz-
istastjóminni.
Það er þýzka blaðið í London
„Die Zeitung“, sem hefir birt
þessa aðvörun. Segir það, að
þessar sögur sé tilbúnar af
Göbbels, til þess að hægt verði
að nota Sehacht fyrir milli-
gÖngumann við handamenn, ef
nauðsyn krefur.
Sögur þær, sem að ofan getur
eru á þá léið, að Schacht sé ann-
aðhvort í Sviss eða hafður í
stofufangelsi á búgarði sínum í
Tyrol, hann hafi verið rekinn úr
nazistaflokknum og rekinn úr
stjórninni, þar sem hann var
ráðherra án sérstakrar stjórn-
ardeildar.
Þetla er allt tilhúningur segir
„Die Zeitung“, því að ef Scllacht
væri í raun og veru ósáttur við
nazistaforingjana, þá væri hann
of hættulegur maður fyrir þá
lil að fá að lialda lifi, livað þá
að fam lil Tyrol. Þjóðverjar
ætla sér eingöngu að láta banda-
menn halda, að Schacht sé að-
eins „óbreyttur borgari“, sem
hafi engin afskipti af þeim, til
þess að þeir geti hagnýtt sér þá
skoðun síðar, ef þeir þurfi að
ná sambandi við menn erlendis.
Enda þótt Schacht væri ekki
einn af hinum gömlu meðlim-
um flokksins var hann samt
gerður að heiðursfélaga 30.
janúar 1937.
Órói í Þýzkalandi
Stokklióhnsblöðin skýra frá
óróa með þýzku þjóðinni út af
hernaðaróförunum á Sikiley og
í Rússlandi. Svenska Dagbladet
segir að í Berlin ríki-nú almenn-
ur óhugur, svipaðaStur þeim,
sem ríkti um það bil, sem ósig-
urinn varð við Stalingrad.
Socialdemokraten skýrir frá
því, að Þjóðverjar sé nú að
missa sterkasta vopn sitt: ag-
ann. Bendir blaðið á i þessu
sambandi, að á líkan veg hafi
farið 1918. Þá er einnig frá þvi
skýrt, að Þjóðverjar boði nú
aukinn kafbátahernað með nýj-
um aðferðum og nýjum vopn-
um. Til samanburðar má geta
þess, að slík sókn var einnig
boðuð í júní 1918, en varð minni
en ætla mátti.
Flotafræðingur brezlta út-
varpsins segir um þessar fregn-
ir, að Betlnnann Hollweg ríkis-
kanzlari Vilhjálms II. Þýzka-
landskeisara hafi um þetta atr-
iði hitt naglann á liöfuðið, þeg-
ar hann sagði: „Kafbátahern-
aður verður alltaf síðasta nevð-
arúrræðið."
Viehy óttast
lonrís i vtstai
Utvarpið i Vichy birti aðvör-
un í morgun þess efnis, að ekki
væri loku fyrir ]>að skotið, að
bandamenn freistuðu landgöngu
í Vestur-Evrópu, áður en bar-
dögum á Sikiley væri lokið.
Ivvað útvarpið viðureignirnar á
Sikiley vera lítilfjörlegar lijá
þeim árásum, sem bandamenn
myndu geta gert á Frakkland.
Níðnitu fréttír
BRETUM FAGNAÐ í TUNIS.
Úr fréttamynd, sem Tjarnarbíó sýnir um þessar mundir.
ítalskir stríðsfangar Bandaríkjahers i Túnis.
1
Hússar smkringja Orei
Tóku Bolkov í gær og sóttu fram 6-8 km.
RÚSSAR SÚTTU I GÆR FRAM 6—8 kílómetra til Orel
úr öllum áttum og hafa nú lokað opi því, sem Þjóð-
verjar höfðu lil undankomu. Mikill árangur er tal-
inn munu verða af töku ígulvirkisins Bolkov, 70 km. norðan
við Orel og 50 km. noi’ðvestan Mtsensk, seni féll í fyrradag,
þvi að Bolkov var sterkasti þátturinn í virkjakerfi Þjóðverja
á þessum slóðum. Járnbrautin milli Briansk og Orel er nú
rofin og hringurinn lokaður.
Palermo var varin af úrvals
herdeild, ítalskri, og var hún
vel vopnum búin. Marasala og
Trapani eru nú sambandslausar
við aðrar borgir á Sikiley, síð-
an Palermo féll.
★
Bandamannaflugher hefir
hafið mikla loftárás á Sardiniu.
Sex flugvéla er saknað.
Fregnir, sem taldar eru áreið-
anlegar,1 herma að Rommel
marskálkur hafi setið á ráð-
stefnu með Hitler og herráði
hans á mánudag og haldið síðan
beint til Grikklands.
★
Ógurleg sprenging varð í dyna-
mit-geymsilu þýzka hersins á
Þelamörk fyrir skemmstu, og er
ætlað að um skcmmdarvgrk sé
að ræða.
Dagens Nyhctcr birti í vik-
unni sem leið grein um sumar-
námskéið i ensku i Sigtúna, sem
British Council hefir efnt til.
Nemendur víða úr Sviþjóð taka
þátt i námskeiðinu, þeirra á
meðal kennarar, arkitektar, lög-
fræðingar o. fl. Blaðið bætir
því við, að áhugi fólks í Svíþjóð
fyrir Englandi og enskri tungu
fari mjög í vöxt.
Rússar hafa tekið 6000 fanga
á tíu dögum í orustunum um
Orel, en fellt um 50.000 Þjóð-
verja. Hafa þeir tekið 300 byss-
ur, 700 skriðdreka (þar af 400
lítt skemmda), skotið niður eða
eyðilagt 900 flugvélar.
Á Bielgoi’odvígstöðvunum
hafa Rússar bætt aðstöðu sína
eftir harða bardaga.
Þjóðverjar tilkynna, að Rúss -
ar hafi hafið sókn á Leningrad-
vigstöðvunum, en Rússar nefna
ekki þessa sókn í tilkynningum
sinum.
Á Kursk-vígstöðvunum eru
Þjóðverjar á undanhaldi milli
Kursk og Bielgorod.
Rússar hafa gert vel heppnuð
áhlaup við Izium og Vorösjilov-
grad og bætt herstöðu sína til
muna.
KMHr
iGri
■
i.
Kyrrahafið:
Loftárás á Surabaja,
Frá aðalhækistöðvum Mac
Arthurs liershöfðingja er til-
kynnt, að stórar sprengjuflug-
vélar bandamanna hafi gert loft-
árás á japönsku herstöðvarnar
í Surabajá á Java, 1000 mílum
frá Aslralíu. Loftárásin kom,
Japönum algerlega á óvart, og
varð lítið um varnir. Eldar
kviknuðu í olíubreinsunar-
stöðvum, skipakvíum og vöru-
geymsluhúsum. Margar sprengj-
ur hittu mark. Flugleiðin, sem
farin var frá bækistöðvum báð-
ar leiðir, var alls tæplega 4 þús-
und kílómetrar.
Júgóslafar taka 3 borgir
Á Balkanskaga stendur þýzki
herinn um þessar mundir i
taugastríði. Að þessu sinni eru
það föðui landsvinir, griskir og
júgóslavneskir, sem herja á
Þjóðverja og verður mikið á-
gengt.
Serhneskur her hefir þrjár
borgir norðan SarajeVo á valdi
sínu, Zenica, Srebrenica og
Cedanie. í Króatíu eflast skæru-
flokkar með hverjum deginum.
I Grikklandi liafa flokkar föður-
landsvina rofið járnbrautina
milli Saloiiiki og Aþenu.
Innrásin á Sikiley hefir fært
Balkanhúum nýja von og auk-
inn kjark, enda eru Þjóðverjar
farnir að óttast svo skyndiárásir
þeirra, að þýzkir hcrmenn eru
teknir að gerast liðhlaupar hvar-
vetna um hernumdu löndin.
Þýzku blöðin í Póllandi bafa
birt nöfn 10 nazista, sem pólskir
föðurlandsvinir hafa myrt, svo
að það er víðar en á Balkan, sem
hernumdum þjóðum hefir auk-
izt ásmegin.