Vísir - 17.01.1944, Side 1

Vísir - 17.01.1944, Side 1
— Ritstjórar: ’ Kristján Guölaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur. Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Rltstjörar Blaðamenn Simi> Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 llnur Afgreiðsla 34. ár. Reykjavík, mánudaginn 17. janúar 1944. 13. tbL Stórkostleg óheimil setuliðsviðskipti Rússar hefja sókn fyrir norðan Hvíta-Rússland. Rjúfa Odessa- Leningrad- brautina enn einu sinni. *D ussar tilkynntu í gær- kveldi, að þeir hefði hafið enn eina sókn, að þessu sinni fyrir norðan Hvíta-Rússland. Þjóðverj- ar segja frá sókn Rússa á Kjrjálaeiði, en Rússar hafa ekki staðfest þá fregn. Að þéssu sinni hafa Rússar rofið varnir Þjóðverja á 15 km. svæði og sótt fram 8 km. Hér er þvi ekki um sókn að ræða á líkum mælikvarða og sunnar á vigstöðvunum, en þó eru þarna miklir möguleikar til þess að gera Þjóðverjum enn erfiðara fyrir norður hjá Leningrad. Þótt sóknin sé bæði lítil og hafi staðið aðeins þrjá daga, liafa Rússar samt unnið mildð á, því, að þeir hafa rofið járn- hrautina milli Odessa og Len- ingrad á enn einum stað, fyrir norðan Novo Sokolniki. í þeirri loorg skerast tvær brautir, sú, sem getið er að ofan og Riga- Moskvahrautin. Rússar hafa ekki enn tekið Sokolniki, en borgin kemur Þjóðverjum að litlu gagni, því að Rússar eru komnir mjög nærri henni úr þremur áttum. 25. km. frá Rovno. Fyrir sunnan Pripet-mýi-arn- ar sækja Rússar hratt suður méð brautinni frá Sarni. Þeir hafa þar tekið mörg þorp og borgir, en helzt þeirra er járn- brautarborgin Kostopol, sem er aðeins 25 km. fyrir norðan Rovno, næstu stóru brautar- stöðina. Norður af mýrunum liafa Rússar einnig sótt alhnikið fraxn, en þó elcki eins mikið og fyrir sunnan þær. Gagnsókn Þjóðverja. Gagnáhlaup Þjóðverja i grennd vð Bug-ána, sem liófust urn miðja síðustu viku hafa nú snúizt upp í öfluga gagnsókn fyrir aústan Vinnitsa og norðan Öuman. Rússar segjast eiga þama í einhverjum skæðustu hardögunum á öllum austurvíg- stöðvunum, en þeir geti hrundið öllum áhlaupm Þjóðverja, þótt þeir tefli fram ógrynni liðs og skriðdreka. í gær segjast þeir t. d. hafa eyðilagt 136 skriðdreka á þessum hluta vígstöðvanna. Bandaríkjaþing hefir sam- þykkt að verja að sinum hluta 1350 milljónum dollara til við- reisnarstarfsins (UNRRA). Brezkur tundurspillir liefir sökkt þýzkum kafbáti undan Aquilas á SA-Spáni. Rússar enn fjandsamlegir Póiverjum FP ass-fréttastofan birti í “ nótt svar við orðsend- ingu þeirri, sem pólska stjórnin í London lét frá sér fara eftir mið.ja síðustu viku, vegna deilu þeiiTar, sem Rússar og Pólverjar eiga í. . Rússar eru liinir verstu í þess- ari orðsendingu sinni. Segir þar fyrst, að Pólverjar nefni ekki einu orði tillögu Rússa um Cur- zon-landamærin og sýni það ljóslega, að þeir sé þvi algerlega mótfallnir, að farið sé eftir ]>eim. Þá segja Rússar, að þótt Pól- verjar tali um að setjast að samningaborðinu með Rússum, þá sé það ekki sagt til annars en að villa heiminum sýn, því að það sjái hver heilvita maður, að Rússar geti ekki farið að semja við þá stjórn, sem þeir hafa ekki stjórnmálasamhand við. Svar Rússa er vissulega ann- að en húizt mun hafa verið við meðal Breta og Bandarikja- manna, því að þar var svar Pól- verja talið skynsamlegt og vera tákn þess, að ekkert væri því til fyrirstöðu, að allar deilur yrði jafnaðar við samningaborðið. Nýja-Guinea. Astral í u menn taka 8io. Astralíumenn hafa tekið Sío, sem er um 80 km. fyrir sunnan Saidor. Milli Ástralíumannanna, sem þarna sækja fram, og Banda- rikjaliðsins hjá Saidor er all- mikið japanskt lið í gildrunni og er litlum vandkvæðum bundið að kreppa mjög að því, úr þyí að húið er að taka Sio. Bandaríkjamenn á Nýja-Bret- landi hafa tekið hæð „66“ hjá Borgen-flóa.. Níu skip hafa laskast í loft- árás á Rabaul. Fylgismenn Ghandis látnir lausir Búast má við þvr, að margir Indverjar verið látnir lausir úr fangelsum landsins næstu 6 mánuði. Stjórnin hefir ákveðið, að pólitískir fangar skuh ekki und- ir venjulegum kringumstæðum sitja lengur en sex mánuði í varðlialdi. Þó má framlengja fangavistina með þvi að taka mál sakborningsins aftur fyrir, en þeir geta skotið máli sínu til æðri dómstóla. Næstu mánuði verða tekin fyrir mál allra fanga, sem sett- ir voru í varðhald i sambandi við uppþolin, sem Gandi og menn lians stofnuðu til 1942. 100.000 ÞJoð- werjar felldlr á 3 vikuBii. íðastliðinn fimmtudag var hin endurvakta sókn Rússa fyrir vestari Kiev búin að standa í þrjár vikur, því að hún hófst aft- i ur á aðfangadag jóla. Til- kynntu þeir í gær um árang- ur hennar. Á þessum tima segjast þeír hafa fellt um hundrað þúsimd liermenn fyrir Þjóðverjum, en tekið um 7000 fanga. Hergagnatjón Þjóðverja segja Rússar að liafi einnig verið mjög mikið og hafi þeir eyðilagt eða téldð herfangi meira ert 2500 skriðdreka, rúmlega 2000 fallbyssur, um 1000 sprengju- ! vörpur og 8500 vörubíla af ýms- \ um gerðum. Þar við bætist, að þeir liafi náð ómetanlegum hirgðum af matvælum og fatn- aði, sem muni gera þýzku lier- mönnunum enn erfiðara fyrir um vörnina en áður, því að yf- irleitt sé þeir illab búnir, jafnan svangir og kaldir, þegar þeir sé teknir til fanga. Helfrosnir í Pripet-mýrunum. í hardögunum umhverfis Pripet-mýrarnar liafa Þjóðverj- ar ekki aðeins misst mikinn fjölda manna fyrir vopnum Rússa, lieldur hafa margir her- manna þeirra farizt í fenjunum, sem eru víða ótrygg yfirferðar, jafnvel i mestu frostum. Rúss- neskar hersveitir, sem hafa það hlutverk að safna saman föng- um í mýrunum, hafa fundið mjög mörg lík þýzkra her- inanna, sem hafa villzt út af stígunum um þær og frosið i hel. Trochio-fjall tekið í áhlaupi. Amerískar hersVeitir tóktí á laugardag Trochio-fjall fyrir sunnan Cassino, með áhlaupi. Áhlaupið á fjallið var gert í tvennu lagi og hófst fyrst úr vestri rélt fyrir dögun. Hinar sveitir Bandarikjamanna sóttu að fjallinu úr suðaustri. Þjóð- verjar vöi-ðust mjög vasklega, enda höfðu þeir bókstaflega Iireytt fjalhnu í samfellt virki, fullt af sprengjuvörpum og vél- byssuhreiðrum. Þótt náuðsyn- legt væri að berjast um livert fótmál, voru Bandaríkjamenn húnir að ná fjallinu á vald sitt fyrir myrkur. Franskar hersveitir nokkrum km. norðar sóttu einnig fram og tóku tvö þorp' og nokkra i'jallalinda. Loftárásum er haldið uppi á samgönguæðar og miðstöðvar Þjóðverja heggja megin á Italíu- skaga. Eisenhower í llretlfiindi. Eisenhower hersröfðingi er kominn til Bretlands og hefir tekið við starfi sínu við undir- búning innrásarinnar á megin- landið. Hann liefir skýrt blaðamönnr um frá því, að hann hafi rætt við Churchill og Roosevelt á leiðinni til Bretlands. Fundur hans og ChUrehills fór fram í Norður-Afriku, en þaðan fór hershöfðinginn til Washington. Ranldi hann við forsetann og Marshall, formann foringjaráðs Bandarikjaima. Eaker flughershöfðingi er kominn til Alsir, til þess að taka við yfirstjórn flugherja banda- manna við Miðjarðarhaf. Almenn hervæðing í Búlgaríu. Stjórnin í Búlgaríu hefir fyr- irskipað almenna hervæðingu í landinu. Allir varaliðsforingjar til 60 ára aldurs liafa verið kallaðir tafarlaust i herinn og flutninga- verkamönnum hefir verið fyrir- skipað að snúa aftur til vinnu sinnar að viðlagðri þungri refs- ingu. Allt skólaliald hefir verið lagt niður í landinu, en læknum og hjúkrunarstarfsfólki í Sofia hef- ir verið hannað að fara á brott úr borginni. „Fallhiífarsprengja“ Þjóðverjar gera mikið úr nýju leynivopni, sem þeir segja, að hafi fyrst verið notað á þriðjudaginn. Þann dag gerðu Bandarikja- menn miklar árásir á flugvéla- verksmiðjur i Þýzkalandi og misstu 60 sprengjuvélar. Leyni- vo]>nið er fallhlífarsprengja, sem varnarflugvélarnar slej)pa fyrir framan sprengjuflugvél- arnar, svo að þær fljúga á þær og sprcngja þær. Sænskur fréttaritari staðfest- ir ]>etta og segir, að Þjóðverjar ætii sér að nota þetla vopn, þeg- ar til innrásarinnar kemur. Fril Bombisib Harðir bardagar eru háðir í Bosníu, þar sem Þjóðverjar hafa hafið sókn gegn Tito. Margar borgir hafa ýmist verið i höndum Titos eða Þjóð- verja og liefir niannfall verið mikið á háða bóga. Með Tito berjast nú fjórar sveitir, sem börðust áður gegn honurn, ít- ölsk deild, ungversk, húlgörsk og loks þýzk sveit, en í henni eru menn úr þýzka þjóðbrot- inu í Jugoslaviu. Utvarpið í kvcld: 19.25 Þingfréttir. 20.00 Fréttir. 20.30 Fjrindí: Vinnuhadi berkla- sjiiklinga (séra F/irí1-:iir Aliierts- son, dr. theol.). 20.55 Hljómplötur: Szigeti íeikur á fiðlu. 21.00 Um daginn véginn (Gumiar Thorodd- sen alþingísmaður), 21.20 tJt- varpshljómsveitin leikur íslenzk al- ])ýðulög. — Einsöngur: Síra Garð- ar Þorsteinsson syngur lög eftir norsk tónskáld. 21.50 Fréttir. Dag- skrárlok. Þrjú fyrirtæki kaupa áfengi og nýlendu- vörur í stórum stíl af 2 starfsmðnnum N.A.A.F Aðeins helmingur Dagsbzúnarmanna greiddu atkvæði, Allsherjar tttkuæða<prexöshi um uppsögn uinnusamninga hefir staðið gfir úndanfarna j þrjá daga i Dagsbrún, og lauk I henni í gærkueldi. Aðeins helmingur félags- manna greiddi atkvæði, eða 1510 af 2980 skráðum félags- mönnum, og verður að telja það mjög litla þátttöku. Talning fer fram í kvöld. Churchill alheill. ■ Churchill er nú heill heilsu aftur og hefir hann verið í ; Marrakesh, höfuðborg Marokko. Síðastliðinn miðvikudag ræddi Churchill við de Gaulle liers- liöfðingja i Marrakesh. Við- síaddir voru Beaverbrook lá- varður, Duff Cooper, sendiherra Breta lijá frönsku þjóðfrelsis- nefndinni og Polowski, forsætis- ráðherra de Gaulles. Talið er að rætt liafi verið um, að bandamenn fengi þjóðfrels- isnefndinni í liendur stjórn allra franskra landa, jafnóðum og þau verða leyst undan Þjóðverj- um. Síjórnarskrár- nefnd. Fjórir þingmenn úr \>rem skilnaðarflokkunum, þeir Bjarni Benediktsson, Jónas Jónsson, Brgnjólfur Bjarnason og Hermann Jónasson, hafa borið fram ó Alþingi þingsá- Igktunartillögu í efri deild, um skipun stjórnarskrárhefndar. Samkvæmt tillögu þessari á- lyktar efri deild Alþingis að kjósa 5 manna nefnd til þess að iliuga stjórnarskrármálið. í greinargerðinni segir, að eðlilegt og hagkvæmt þyki, að cfri deild kjósi nú þegar nefnd til iluiga stjórnarskrárfrum- varpið, ásamt nefnd þeirri, sem neðri deild kýs tli meðferðar frv. 60 ára var'Ö i gær frú Ragna E. Jóns- son, Laugavegi 53 B, ekkja Eyj- ólfs héitins jónSsonar rakara frá Herru. Frú Ragna er norsk a'Ö ætt- um, en hefir dvalið hér um 35 ára skei'Ö. Dansskóli Rigmor Hanson tekur til starfa á ný í þessari viku. Á fimmtudaginn kl. 8 fyrir þá, sem vilja læra Jitterbug, kl. 10 framhaklsnámskeiÖ fyrir þá, sem voru fyrir jól (vals, foxtrott, tango) ög byrjunaratriði í Rumba og La Conga. Á mánudögum kl. 8 Rumba og La Conga. Kl. 10 vals .foxtrott og tango (fyrir byrj- endur). Flokkar fyrir börn og ung- linga verða á föstudögum. ' 1 ■ :V M,'', ! !(■!''>!- I. í.:! 4i.. t [ Ijt RjjJ i ý ' rjú verzlunarfyrirtœki hér í bænum, Nýfeödu- vöruverzlun Jes Zimsen, Ingólfsbakarí, og Þorkell Ingvarsson stórkaupmaður hafa rekið stórfelld ólögleg viðskipti við brezka Mrgúa- stöð hér í bænum frá því í ársbyrjun 1943. Nýlenduvöruverzlun Jés Zim- sen hefir keypt ýmsar vörnr af einum starfsmanni Jæssarar hirgðastöðvar fyrir túgi þús- unda. Eru það mest allskpnar nýlenduvörur. Þorkell Ingvars- son stórkaupmaður hefir ásámt einum starfsmanni sinum, Sig- urði Þorkelssyni, keypt whisky og gin af sama starfsmanni þessarar birgðastöðvari, Mun þar vera að ræða um marga tugi af wliisky- og ginkössum. Þá hefir Ingolf Petersen, eig- andi Ingólfsbakarís, keypt all- mikið af ýmsum nýlenduvörum af öðrum starfsmanni þessar- ar birgðastöðvar. Birgðastöðin, sem selt hefir þessar vörur, er NAAFI-stöð, er rekin liefir verið hér í sambandi við brezka setuliðið. Verzlunarstjóri í Nýlendu- vöruverzlun Jes Zimsen, er Gunnar Jónsson. Hefip hann, í viðbót við að reka jjessi við- skipti við NAAFI-stöðina, keypt allmikið frá erlendum skipum, sem hér liafa verið. Þorkell Ingvarsson liefir, á- samt starfsmanni sinum, Sig- urði Þorkelssyili, sell áfengi það, er hann keypti frá birgðastöð- inni, til ýmissa bifreiðastjóra í bænum, er siðan hafa selt það til annara. Eins og fyrr segir, hófust þessi viðskipti að mestu ley-ti í árs- byrjun 1943, og voru i fullum gangi fram á sumar. Brot þetta lieyrir undir refsiákvæði tolllag- anna, en ennþá er ekki búið áð rannsaka málið svo tii liiitar, að unnt sé að segja hvern dóm þessir menn hljóta. Hljómleikar. Næstkomandi fimmtudag halda Samkór Reijkjamkur og Karlakórinn Ernir hljómleika i Gamla Bió kl. ií.30 að kueldi. Samkór Reykjavikur er stærsti kór landsins og er þetta í fyrsta skipti sem liann syngur opinberlega. Karlakórinn Ern- ir keinur einnig fram i fyrsta skipti þayna. Á söngskráhni eru 12 lög eftir erlenda og inlenda höf- unda. S}rngur Samkórinn átta þeirra og Ernir fjögur. Stjórnandi er Jóhann Tryggvason. Varðarfélagið heldur fund annað kveld kl. 8,30 í Listamannaskálanum. Á dagskrá eru lýðveldismálið og stjórnarskrá- in. Meðal frummælenda eru Gísli Sveinsson, Bjarni Benediktsson og Ólafur Thors. Á eftir verða frjáls- ,ar umræður.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.