Vísir - 17.06.1944, Page 9

Vísir - 17.06.1944, Page 9
VtSIR ÞJÓÐIIÁTÍÐARBLAÐ 9 Landganga konungs í Reykjavík 1874. völlunum kringum ræðustól þann, sem fyrr er gelið. Jón Sigurðsson frá Gautlöndum sté þa fyrstur í ræðustólinn og lýsti yfir því, að hátiðarhald þetta væri nú sett. Þá fór hann nokkr um orðum um tilefni og þýð- ingu þessarar hátíðar, og lók einkum fram þrennt, er gerði hana svo merkilega, fyrst end- urminningu hinna liðnu þús- und ára, þá komu konungs, og síðast hina nýfengnu stjórnar- hót. Þá er Jón hafði lokið tölu sinni, tók norskur lögfræðing- ur að nafni Birgir Kildal til máls, og bar fram kveðjusend- ingu frá norskum stúdentum. Þá flutti skáldið Kristófer Jan- son ávarp frá Vestmannalag- inu í Björgvin, og annað frá bændum í Þrændalögum. Þess- um ávörpum svaraði Þorvald- ur prestur Bjarnason frá Reynivöllum. Þá flutti Árni stúdent frá Uppsölum ávarp frá Uppsalastúdentum, en síð- an hélt skáldið Nordal Rolfs- sen mikla tölu um bókmennt- ir Islands og þýðingu þeirra fyrir þjóðlíf Norðurlandabúa. Þeirri ræðu svaraði bókavörð- ur Eiríkur Magnússon, með tölu til Norðmanna. Þá er hér var komið ræðum manna, komu þau tíðindi, að konungur væri þegar kominn í nánd. Hættu menn þá um hríð ræðunum, og tóku að búa sig undir að fagna honum. Fund- armenn vissu áður lívað ferð- um lconungs leið, og að hans væri von að Þingvöllum um kvöldið. Höfðu þeir sent á móti honum 12 gilda og röskva hændur, til að flytja honum kveðju fundarins og bjóða hon- um til hátíðarinnar. Bændur þessir hittu konung og föru- neyti hans nálægt Skógarkoti, skammt fyrir vestan Hrafna- gjá. Kvöddu þeir konung virðu- lega og báru honum erindi fundarins, — en Tryggvi al- þingismaður Gunnarsson hafði orð fyrir bændum. Konungur tók vel kveðju þeirra, og kvaðst þakksamlega mundu þiggja boðið. Sneru þá bændur við, og riðu undan til Þing- valla, en konungur og sveit lians á eftir. Það var nær mið- aftni, að konungur kom á Þing- völl. Allir karlmenn höfðu fylkt sér í tvær raðir langar meðfram vegunum, beggja vegna, en kvenfylking stóð sér, þeim megin er sneri að Al- mannagjá. Sendiboðar fundar- ins stigu nú af baki hestum sínum, og héldu hestunum í röð til hliðar, þar sem mann- þröngin byrjaði. Reið nú kon- ungur fram og menn hans eft- ir. Þá geklt fundarstjórinn, Halldór Kr. Friðriksson, fram úr mannfjöldanum, og ávarp- aði konung með nokkrum orð- um; flutti liann,konungi fagn- aðarkveðju frá öllum þing- heimi, og hað hann velkominn til landsins, og sérstaklega til þessa staðar, liins forna aðset- urs frelsis og drengskapar. Vottaði hann ennfremur kon- ungi hollustu landsmanna og þakklátssemi þeirra fjn-ir komu hans, og að siðustu bað hann konung að geyma í vinlegri endurminningu áhrif þau, er landið liefði haft á hann og gleyma eigi heldur tjöldunum á Þingvöllum. Þá var lostið upp fagnaðarópi, og stráðu konur blómum á veginn. Kon- ungur svaraði mildilega og þakkaði fyrir allar hinir góðu viðtökur, er honum væru veitt- ar, bæði á þessum stað og öðr- um, síðan hann hefði stigið fæti á land. Þá var kvæði sungið konungi til fagnaðar, en það hafði ort skáldið Matthias Jochumsson, er hyrjar svona: i \ f Stíg heilum fæti á helgan völl vor hjartaprúði Snælands sjóli. I Síðan reið konungur með sveit sinni gegnum mannþyrp- inguna, milli tveggja fylking- anna, og kváðu þá aftur við fagnaðaróp. Tjöldum konungs var skipað á Þingvallatúni, og þangað reið konungur með sveit sina. Tóku þeir sér þar náttból, sem hið fyrra skiptið. Nú var tekið að rökkva, og gengu flestir þjóðhátíðargestir til tjalda sinna, og slcemmtu sér á ýmsan hátt, það er eftir var kvöldsins, en tólcu siðan á sig náðir; sváfu menn nú af um nóttina. Daginn eftir, hinn 7. ágúst, skyldi liæst standa hátiðin.Veð- ur var gott og blítt um morg- uninn, en loft nokkuð þungbú- ið. Voru flestir snemma á fót- um, og tóku menn nú að búa sig til að fagna konungi. Kl. 10 kom konungur á hátiðar- staðinn, með sveit sinni, og var mannfjöldinn þar fyrir. — Fremstir stóðu menn þeir, er færa skyldu konungi ávarp fundarins, þeir dr. Grimur Thomsen frá Bessastöðunþ síra Stefán Tliórarensen frá Kálfa- tjörn og bændurnir Tryggvi Gunnarsson, Jón Sigurðsson og Torfi Einarsson. Gengu þeir fyrir konung og las Grímur honum ávarpið í heyranda hljóði. í ávarpi þessu buðu fundarmenn, í nafni allrar þjóðarinnar, konung velkom- inn á þennan fræga, fornlielga stað á þessari þúsund ára há- tíð hennar, hinn fyrsta konung er lieimsótt liafði ísland i þau þúsund ár, er landið liefði ver- ið bj'ggt. Þá var nokkuð minnzt á þrautir þær, er þjóðin hefði orðið að þola á liðnum öldum, en jafnframt lýst yfir því, að nú renndu landsmenn vonar- augum fram á skeið ókomins tíma, og biðii þess, að geta not- ið frelsis síns, er konungur þetta ár hefði veitt þeim, með því að veita Alþinsþ löggjafar- vald, og að miklu leyti fjárfor- í'æði. Var þar enn farið nokkr- um orðum um stjórnarskrána, og þess getið, að liún hefði, í sér góðan visi til eflingar fram- fara landi og lýð, og þó að landsmenn óskuðu hóta og breytinga á nokkrum greinum hennar, þá bæru þeir það fullt traust til konungs, að hann mundi láta þá verða aðnjótandi þeirra gæða, er tími og reynsla sýndi, að væri þeim til hags og lieilla. Konungur svaraði á- varpi þessu með nokkrum mildilegum orðum, en þing- heimur heílsaði honum með fagnaðarópum. Síðan hélt kon- ungur áfram norður eftir völl- unum milli fylkinganna, er skipað höfðu sér líkt og daginn áður. Heilsaði hann ástúðlega til beggja handa, og varpaði orðum á ýmsa, er næstir voru, en eftir það staðnæmdist hann gagnvart ræðustólnum og skip- aði þingheimur sér í hvirfing kringum hann. Þá voru lesnar upp nokkrar kveðjusendingar. Fyrst flutti skáldið Karl An- dersen kveðju frá hinum dönsku stúdentum, og annað frá Fornfræðafélaginu í Kaup- mannahöfn. Þá Bærentsen kapteinn frá Færeyjum, þá Lagerkranz aðmíráll ávarp frá stúdentum frá Lundi og enn- fremur Eiríkur Magnússon á- varp frá Amerikumönnum. Þegar þessu hafði farið fram nokkra liríð, gekk konungur þaðan og reikaði til og frá um vellina; gekk hann einnig upp á gjárbarminn hjá fossinuin, þar sem áin steypist niður úr gjánni, og fannst mikið um tignarsvip staðarins, eigi siður 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.