Vísir - 17.06.1944, Page 30

Vísir - 17.06.1944, Page 30
30 VÍSIR — þjóðhAtíðarblað f 'nnnnn'p [] □ 0 P5SBS y|[|[|pS5B5HHSS —m H~"J'' r~i rrn mr nn trn nn txn nn BnnnhnaQu [J □ □ U U BBBBBBHBSPP°°°°°°°pnaOBnngj]Q H CID Hinar nýju byggingar Slippfélagsins. Slippfélayið í Reykiavík. Slippfélagið í Roykjavik var stofnað á fyi'stii árum þcssarar aldar. Alla tíð siðan hefir þetta fyrirtæki verið sjávarútvegim um til mikils stuðnings og má heita að það hafi vaxið upp við hlið hans og lagað sig eftir hon- um siðan það var stofnað. Um aldamótfn síðustu voru stundaðar þorskveiðar við Faxaflóa á sjötíu þilskipum, sem keypt höfðu verið notuð fyrir tiltölulega lágt verð, eink- um frá Englandi og Skotlandi, Skipin gengu fljótt úr sér og var snemma hrýn nauðsyn á því, að hægt væri að gera við þau hér á fandi. Þetta sáu og skildu ýmsir framsýnir menn, er nærri útveginum stóðu, og varð það til þess, að þeir hófust handa á þann hátt, sem skýrt er frá hér á eftir. 28. desember 1901 kom til umræðu á fundi útgerðarmanna að eignast slipp til að geta dreg- ið skip á land. Formaður út- gerðarmannafélagsins, Tryggvi Gunnarsson, bar upp tillögu um að félag skyldi nú stofnað til að koma upp dráttarbraut, og var það samþykkt og var þá þegar lofað nokkrum fjárframlögum til stofnunar félagsins. 15. marz 1902 var haldinn undirbúnings- fundur að stofnun slíks félags. Ákveðið var að fá menn frá Noregi til að annast uppsetn- ingu á slipp. 21. október 1902 var haldinn stofnfundur Slippfélagsins. A- kveðið var að félagið skyldi vera hlutafélag með kr. 15000 í hlutafé og skyldi félagið heita „Slippfélagið í Reykjavík“. Lög félagsins voru samþykkt og fyrsta stjórn kosin og hlutu kosningu: Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri, Jes Zimsen, kaup- maður, Ásgeir Sigurðsson kaup- maður. Tryggvi Gunnarsson var for- maður félagsstjórnarinnar frá byrjun til 1917, er hann dó. Jes Zimsen og Ásgcir Sigurðsson sátu í stjórninni til 1930. Árið 1902 var hafin bygging á dráttarbraut á Hlíðarhúsasandi, eftir fyrirsögn hins norska manns, er stjórnin hafði ráðið. Maðurinn reyndist illa og allt varð dýrara en ráð var fyrir gert. Lenti félagið þegar í byrj- un i fjárþröng. Fékk það þá 4 Jjús. kr. styrk úr „Varasjóði sparisjóðs Reykjavikur“, til að fullgera dráttarbraut. Árið 1903 var ráðinn annar narskurmaður, O. Ellingsen, til Slippfélagsins, og taldi hann Slippinn þurfa endurbóta við, enda mun hann hafa verið mjög ófullkominn. Sama ár sendi félagið bæna- skrá til Alþingis um 10 þús. kr. styrk til að koma upp „Patent slipp“. Var féð veitt. 1904 var hlutafé félagsins aukið, í þeim tilgangi, að kaupa nýjan slipp frá Englandi. Sama ár var slippur keyptur í Englandi. Var slippurinn síðan byggður og skip tekið upp á hann það ár. Var hann stærsta þess háttar mannvirki hér á landi um 28 ára bil, eða til 1932, er Slippfélagið byggði dráttar- braut fyrir togara. Þessi Slippur gat tekið skip allt að 200 smá- lestir að þyngd. Um það bil sem slippurinn var byggður, munu hafa verið hér um 60—70 ís- lenzkir kútterar. Var þvi mjög mikil þörf fyrir þetta lyrirtæki, enda fékk það þegar nóg að starfa við viðhald og viðgerðir á skipum. Rekstur fyrirtækisins gekk vel allt til ársins 1920, því að auk upptöku skipa og við- gerða á þeim rak félagið mikla verzlun með timbur og ýmsan útbúnað til skipa o. fl. Þó að Slippfélagið væri stærsta iðn- fyrirtæki landsins í sinni grein um árabil, byggði það á þessu tímabili ekki skip að nýju. Á árunum 1912—18 fækkaði kútterunum jafnt og þétt og i lok stríðsins voru þeir horfnir úr íslenzkri eign. I stað þeirra komu togarar, en þeir voru of stórir fyrir dráttarbraut íelags- ins. Á fundi Slippfélagsins 1914 minntist Tryggvi Gunnarsson á þörfina fyrir að koma upp dráttarbraut, er tekið gæti á land togara. Nærri því árlega var um þetta mál rætt á fund- um félagsins, en aldrei varð úr framkvæmdum. Um eitt skeið var um það rætt, að erlent fé- lag keypti eignir Slippfélagsins og reisti hér skipasmíðastöð. En úr því varð ekki. Afkoma fé- lagsins versnaði því fljótt eftir stríðið og 1931 var félagið kom- ið í fjárþröng, svo að ekki leit út fyrir annað en gjaldþrot. Var þá hafizt handa af nokkrum framtakssömum mönnum, er um það leyti höfðu key])t hluti í félaginu, um að byggja drátt- arbrautir, er gætu tekið upp stærstu togara og koma upp skipaviðgerðar- og skipasmíða- stöð, er fullnægði þörfum lands- ins. Árið 1932 fékk félagið lán hjá Hafnarsjóði Reykjavíkur og Skipaútgerð ríkisins í ]>ví skyni, að byggjá slipp fyrir togara. Þá var hlutaféð aukið mjög og gamla hlutaféð fært niður. Keyptir voru tvcir dráttarvagn- ar með vindum fyrir 400 og 800 smálesta skip. Minni dráttarbrautin var svo byggð um haustið og fyrsti tog- arinn tekinn á land 15. des. 1932. 1933 byggði félagið aðra dráttarbraut fyrir 800 smálesta skip og fékk til þess lán hjá er- lendu félagi. Var þá svo komið, að hægt var að taka hér á land allan togaraflotann, strand- ferðaskipin, varðskipin og minnstu millilandaskipin. 1 heinu sambandi við bygg- ingu þessarar dráttarbrautar var 1932 stálsmiðjan stofnuð, sem annaðist plötuviðgerðir skipa. Var þá svo komið, að hægt var að gera hér við og flokka öll skip, allt að 800 smá- lestir að stærð. Þau 11 ár, sem liðin eru síðan þessar dráttárbrautir voru gerð- ar, hafa yfir 1200 skip af tog- ara-stærð og stærri verið tekin á land og framkvæmdar á þeim stærri og minni viðgerðir. Auk þess hefir vcrið gert við mörg minni skip. Það má fullyrða, að það hefir verið útgerð lands- manna ómetanlegur hagnaður, að dráttarbrautir þessar voru byggðar, ekki sízt nú síðan stríðið hófst og skipin fá ekki framkvæmdar neinar teljandi viðgerðir í Englandi. Líklegt er, að meirihluti togaraflotans væri nú ósjófær, ef dráttarbrautir Slippfélagsins væru ekki til. Oft á ári hcfir það komið fyr- ir, að skip fullfermd af ísfiski hafa bilað, brotið skrúfu eða orðið lek og verið tekin í slipp og gert við þau á nokkrum klukkustundum. Áður varð í þessu tilfelli að losa skipin og auk þess kostnaðar og tafar, er það tók, ónýttist fiskurinn oft að mestu eða varð verðlítill. Daníel Þorsteinsson skipa- smíðameistari tók við fram- kvæmdastjórn af O. Ellingsen 1915 og hafði þann starfa á hendi þar til Sigurður Jónsson verkfræðingur, núverandi for- stjóri, tók við stjórn. Stjórn Slippfélagsins skipa nú : Hjalti Jónsson, formaður, Kristján Siggeii’sson kaupm., Geir G. Zoéga vegamálastjóri og Valgeir Björnsson hafnarstjóri.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.