Vísir - 17.06.1944, Síða 42

Vísir - 17.06.1944, Síða 42
42 VÍSIR ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ Seyðisfjörður. skerf í þeim árangri, sem náðzt hefir í þessum efnum. En það er með kosningarrétt- inn eins og allar aðrar góðar gjafir,að því aðeins verðurhann til blessunar, að menn noti hann á réttan hátt. Noti hann ekki til þess fyrst og fremst, að skaða aðra og rífa niður, heldur til þess að bæta og byggja upp. Sé hann notaður til hins fyrr- nefnda, glatast hann fyrr en varir, eins og bezt sést hjá einræðisríkjunum, þar sem hæst var galað um nauðsyn þess að allir fengju þennan mikilsverða rétt, en siðan voru allir sviftir honum, og þurfa nú að ná hon- um á ný úr enn ógurlegri greip- um en áður héldu honum fyrir þeim. Þar sem það ‘hinsvegar hefir kostað þjóðina mikla bar- áttu að ná þessum rétti, og skilningurinn á gildi hans fyrir einstaklinginn og alþjóð hefir náð að festa rætur, hefii\ notkun hans orðið til blessunar og framfara. Þar hefir tekizt að skapa heilbrigðari og sterkari þjóðfélög, þar sem hver maður skilur þýðingu þess, að einstak- lingurinn sé frjáls og njóti frels- isins, ekki aðeins í orði, heldur og á borði. Þar hefir kosning- arrétturinn verið notaður til uppbyggingar, en ekki til niður- dreps, og sú ein notkun iians kemur að gagni, er til lengdar lætur. Enn er þáð að mestu óreynt, hvort Tslenáingar verða færir um að tcljast í hópi þeírra þjóða, sem „þola“ frelsi. — þ. á m. takmarkalítir.u kosniugar- rétt. — f)r þvi 'sker revnslan, c*r árin líða og viðfangsefni. næsta tímabils í sögu þjóðarinnar koma til sögunrcr r fyrir alvöru. 2. Ný tegund sveitarfélaga. Eg drap á það fyr, að mynd- un kaupstaða og kauptúna væri allra eftirtektarverðasta fyrir- brigðið í þróunarsögu sveitarfé- laganna á endurreisnartímabil- inu. Svo sem kunnugt er mynd- uðust engir kaupstaðir hér í fornöld né á miðöldum. Ástæð- urnar til þess voru að sjálf- sögðu ýmsar, en þó aðallega þær, að Islendingar hættu fljótt sæförum og áttu lengst af engin skip til meiriháttar sjóferða og sjósóknar. Árið 1786 var gefin út kon- ungleg tilskipun „um fríheit kaupstaðanna á lslandi“. Þar var ákveðið að sex staðir skyldu gerðir að „kaupstöðum“ og var það gert til aðgreiningar frá „útliggjarastöðunum“ svo- nefndu. Þessir 6 kaupstaðir voru: Reykjavík, Vestmanna- eyjar, Eskifjörður, Eyjafjörður, Isafjörður og Grundarfjörður. Þó þessi kaupstaðastofnun þyki nú fremur lítils virði og kæmi að litlu raunverulegu gagni, því ekki varð af kaup- staðarmyndun neinsstaðar eftir henni, nema í Reykjavík, þá er hún, þegar á allt er litið, eins- konár fyrirboði, bæði um frjáls- ari verzlunarhætti og meiri mannréttindi. „Fríheit" þessi eða réttindi voru þessi: 1. öllum kaupstaðarbúum var veitt fullkomið trúarbragða- frelsi. 2. Þeir áttu í 20 ár að vera lausir við að borga mann- talsskatt. 3. Þeir áttu heimtingu á að fá útmælt ókeypis byggingar- stæði undir hús, ásamt dá- litlu garðstæði. 4. Hver sem vildi átti heimt- ingu á ókeypis „borgara- rétti“, skyldi nafn hans skráð í borgarabókina og lionum afhent „borgara- bréf“. Af þessum ástæðum varð að sjálfsögðu þýðingarmest fyrir almenning rétturinn til útmæl- ingar húsnæðis og garðstæðis, þvi þar með var hægt, ef dugn- aður eða einhver efni eða at- vinna voru fyrir hendi, að stofna til sjálfstæðra heimila, en einmitt á þeim timum varð margt fátækt fólk að láta vera að giftast eða þá að selja sig í „húsmennsku“. Eins og áður segir varð eng- inn af þessum fyrstu lögboðnu „dönsku“ kaupstöðum, kaup- staður, nema Reykjavík ein. Hinir höfðu heldur engin skil- yrði til þess, en Reykjavík var þá orðin smáþorp, mest vegna aðgerða Skúla Magnússonar landfógeta, sem kunnugt er. Þó fór það svo er stundir liðu, að stórir kaupstaðir risu upp á Isafirði, í Eyjafirði og Vest- mannaeyjum. Eskifjörður varð og um skeið einn þýðingarmesti verzlunarstaður á Austurlandi. Er því næsta merkilegt hversu rétt var tilgetið af hinum er- lendu stjórnarvöldum eða ráða- nautum þeirra, um heppilega staði til stofnunar framtíðar- kauptúnum í landinu. En sá „aðilinn“ var ekki enn kominn til skjalanna, sem skyldi verða „faðir“ allra ís- lenzkra kaupstaða og þorpa, en það var Ægir gamli — hinn gjöfuli sær við strendur lands- ins. Þegar Islendingar loks lærðu sjómennsku á ný og fengu bæri- legar fleytur, hófst hinn merki- legi þáttur í sögu íslenzkra sveitarfélaga, myndun kaup- staða og kauptúna. Kauptúnin taka að myndast á ströndum landsins, þar sem hafnar- og lendingarstað- ir eru góðir eða viðun- andi, og er fólkinu fjölg- aði komu upp kaupstaðir i öll- um fjórðungum landsins. Næst á eftir Reykjavík koma Akur- eyri 1862, Isafjörður 1866 og Seyðisfjörður 1894. Síðar bæt- ast svo við Hafnarfjörður 1908, Siglufjörður 1918, Vestmanna- Akranes.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.