Vísir


Vísir - 09.01.1946, Qupperneq 2

Vísir - 09.01.1946, Qupperneq 2
V 1 S I R Miðvikudaginn 9. janúar 1946 Cjuhnuncliir CCt)anCeíi óáon: Sumarfrí sa SÍÐARÍ HLUTI Ný.tt landnám. Eftir þennan ófrið hófst ný landnámsöld i dalnum mikla milli Adirondák-fjallanna í vestri og Grænufjalla austan vatnsins. Margir komu að sunnan, en þó fleiri að norð- an, bæði l'ranskir menn og kanadískir og tóku sér ból- festu á svæðinu umhverfis Plattsborg. Sérhver varðstöð á ströndúm 'Champlain-vatns og í nágrenni þess var þá í höndum Englendinga, og setidið hvarvetna, því ekki treystu þeir meira en svo þegnskap Frakka og Indíána. Ein þessara stöðva hét Ticon- deroga. Það er indíánskt nafn, sem eg veit ekki hvað þýðir, en staður þessi er skammt sunnan vatnsins, og er þar nú þorj) með rúmum fimm þúsund íbúum, og ligg- ur járnbrautin frá New York til Plattsborgar í gegnum það. -— Dálítil raunasaga frá setuliðsárum Breta lifir enn á vörum íbúanna í Ticonde- roga. Fögur og gáfuð’Indí- ánastúlka hafði komið í heimsókn á staðinn. Meðan hún var þar, felldi einn hinna brezku liðsforingja brenn- andi ástarhug til liennar. En hún vildi ekki þýðast hann og forðaðist eins og hún gat að verða á vegi lians. — Eítt kvöld var hún ein á gangi innan virkisveggjanna, rétt þar sem skábrúin að flagg- turninum lá upp á vegginn. Allt í einu kenuir liðsforing- inn fram úr skugganum og vefur hana örmum. Hún veitti harðasta viðnám og tókst að slíta sig lausa úr greipnm lians. Hún hljóp upp skábrúna og áfram eftir virkisveggnum, en rakst þar á hindrun, sem hún komst ekki fram hjá. Þegar hún sá, að hún mundi ekki geta komizt undan manninum, nam hún staðar þar sem veggurinn var liæsfur og íleygði sér fram af. Liðsfor- inginn fann aðeins lemstrað lík hennar í urðinni fyrir neðan. Þá dró liann rýting sinn úr slíðrum og rak sig í gegn. ------ Frelsisstríðið. Árið 1775 hófst frelsis- stríð Ameríkumanna gegn Englendingum, og byrjuðu vopnaviðskipti 19. apríl í smábænum Lexington, sem er í norðausturhluta Massa- chusetts-ríkis. Englendingar sendu á augabragði liðsauka til Ticonderoga, því að það tryggði þeim yfirráð vegarins milíi New York og Kanada. Það sem Englendingar sáu, það sáu Ameríkumenn jafn vel: Ticonderoga-virki varð að ná. Liðssveit frá Grænu- fjöllum í Vermont, undir stjórn Ethan Allen, ákvað að lokum að gera áhlaup á stað- inn. Ákveðið var að gera á- þlauþiðífiéttina fyrir 9. maí I Húsið í Plaítsborg, sem var aðalbækistöð brezku for- ingjanna í strlðinu 1812-—14. 1775, og nú safnaði Allen saman öllum þeim mann- skap, sem hann náði til. Ekki varð herinn þó fjölmennur, einir 82 menn, en samt skyldi nú freista gæfunnar. Leiðin lá þvert yfir hið mjóa St. Georgs-vatn; fyrir sunn- an Champlain-vatnið, en þcg- ar til átli að taka, fundust ekki nógu margir nothæfir bátar til þess að flytja allan liðsaflann í einni ferð, svo að ekki var um ánnað að ræða en selflytja. Jæja, hvað um það, — þegar fyrsta dags- brún sást í austri, var Allen kominn með alla sína menn, 82 að tölu, upp að múrvegg hins gamla virkis. Þeir laum- uðust nú fram með veggn- um og alla leið að suðurhiið- inu, og komu að því ólæstu, þvi Bretar höfðu ekki haft neinar njósnir af ferðum þeirra og uggðu ekki að sér. Þegar Ameríkumenn -voru konmir inn um hliðið, varð varðmaður þeirra var, og liringdi herklukkum sam- stundis. Þvínæst snerist hann á hæli, miðaði byssu sinni á Allcn og hleypti af. En byss- an klikkaði. Grænfellingar afvoj)nuðu vörðinn skjótlega, æddu fram til búðanna og æptu heróp. Foringi virkis- ins, Dc La Plase, kom á nær- klæðunum fram í dyrnar á skála sínum með kertaljós í hendi. „1 hvers nafni krcfjist þið uppgjafar þessa virkis?“ spurði hann. „I nafni hins mikla Je- hóva og Meginlandsráðstefn- unnar,“ svaraði Allen. HerferSir. Og áður en dagur var að fullu á lofti hafði allt selu- lið virkisins verið handtekið án þess að hleypt væri af einu einasta skoti. Mikið her- fang féll þarna í hendur Am- erikönum. Barizt var hér og- þar i Norðurríkjunum allt þetta sumar og veitti Ameríku- mönnum betur. I september- mánuði var þrjú þúsund manna liðssveit undir stjórn Montgomcrys hershöfðingja, sem hafði bækistöð á Kór- ónutanga, boðið að hefja her- e«ÍÍCO00Ó4ciOíít'c;3OOOOO0OÍ5O0ÍÍOOÍÍÍÍOCQttöboíSO5ÍÍ SOiiCOOOO för til Kanada. 3. nóvemher náði það Sankte Jóhannesar- horg á sóknarleið sinni til Montreal, og allt haustið var mikið barizt á kanadískri grund. Vetur gckk snemma í garð þetta ár og reyndi mjög á þol hermannanna. 13. des- ember réðst Montgomery á Quebec, og þó lið hans væri miklu fámennara en varnar- liðið, var hann að því kom- inh að ná brjóstvirkjunum. En þá tóku örlögin í taum- ana: Ógurlegur hríðarbylur skpll á og gerði frekari sókn- araðgerðir óhugsandi. Eigi að síður gerðu þeir þó enn eitt æðisgengið áhlaiip, cn það mistókst, og í þessu áhlaupi var Montgomery særður til ólífis. Mount Vernon. Ilér vil eg ^kjóta inn eft- irfarandi athugasemd til gamans: Eftir að eg hafði gert uppkast að þessari grein var eg á ferð i Washington, og fór þá með fljótabát nið- ur eftir Potomac-ánni' til Mount Vernon í Virginia, en þar. stendur hús Washington forseta, og cr þar allt með sömu ummerkjum og dag- inn, sem hann dó, 14. des. 1799. I einni stofunni sá eg stóra mynd, sem sýndi falí Montgomerys í Quebec. Hann hvílir höfuðið deyjandi í knjám eftirmanns síns, Arn- okls hershöfðingja, menn þeirra standa vopnaðir allt í kring og snækófið rýkur um þá. — Arnold tók nú að sér for- ustu hersins á undanhaldi hans suður á bóginn, og fylgdu Englendingar fast á eltir. Vegna afburða her- stjórriarhæfileika tókst hon- um þó að forða liði sínu und- an vopnum óvinanna, enda þótt það liði mildar kvalir vegna klæðleysis, hungurs og þreytu. Ofan á þetta bættist svo enn ein plágan: bólusó.tt- in. Margir menn dóu, — slóð hersins var líkum stráð, en áfram var haldið til suðurs. Þegar þeir loks náðu norður- enda Champlainsvatns vorið 177(i sá Arnold, að meira en helmingur liðs hans var ger- samlega vanmegnugur til að halda lengur áfram. Hann fyrirskipaði því, að numið skyldi staðar og komið upp hráðahirgða sjúkraskýli fyr- ir hina sjúku. Þá fáu daga, sem þarna var dvalið, dóu menn svo ört úr bólunni, að ekki var framkvæmanlegt að grafa líkin, og var þeim því kastað í opna skurði. En ó- þefur, sem af þeim lagði, svo og fíugur, sem sóttu að staðnum, gerðu þeim, sem eftir lifðu, brátt ómögulegt að haldast þarna við, — og enn var lagt af stað. Snemma í júlí, eftir mánaðar ferða- lag og næstum óhærilegar þjáningar, náðu leifar Kan- adaliersins Kórónunesi og tíu dögum seinna voru þeir í Ticonderoga. Þar með lauk einum dapurlcgasta kapítul- anum í sögu frelsisstríðsins. Sjóorusta. Sumarið 1776 ákváðu Eng- lendingar að gera innrás í héröðin sunnan og vestan Champlain-vatnsins og komu sér upp miklum flola við norðurströnd þess til þess að geta náð valdi yfir siglinga- leiðinni. Arnold, sem enn hélt sig i Ticondero^a, safnaði i skyndi s.aman öllu þvi liði, sem hann mátti, og skipaði að byggja skyldi amériskan flota þegar i stað. Hann gerði eklíj ráð fyrir að gela komið sér upp jafnstórum flota og Englendingar, en til þess að jáfna mismuninn skyldi vera úrvalslið á hverju skipi. — 11. október liófst svo „sjó- orusta“ sem mjög minnir á Flóabardaga Þórðar Kakala og Kolbeins unga. Flotarnir mætlust við suðvesturströnd Valcour-eyju og allan daginit geisaði hinn harðasti bar- dagi. X myrkri um kvöldið lét Arnold loks undan síga og náði Kórónutanga. Skipum, sem eftir voru var sökkt, svo ekkert félli í hendur Eng- lendingum. En taj) Englend- inga v.ar orðið svo mikið, jbæði á mönnum og skipum, að þeir höfðu ekki mátt til að fylgja sigrinum eftir og snéru lieim til Monlreal og tóku sér þar vetursetu. Næsta ár var mjög mikið barizt á vatninu og beggja megin við það, því Bretar höfðu i hyggju að ná New York og kljúfa þannig land uppreistarmanna í tvennt, en þetta áform mistókst. Þeir komust aldrei lengra en nokkrar mílur suður fyrir Ticonderoga og voru sigraðir þar og urðu aðjialda undan lil Kanada á ný. Allt til árs- ins 1781 var þó ófriðsamt á ströndum CiliampLain-vatns- ins, en friðarsamningar milli hinnar nýju þjóðar og Eng- lendinga voru undirritaðir i Paris 3. sept. 1783. — Nýtt stríð. Um nokkurt árabil eftir frelsisstriðið var Champlain- 'dalurinn heimkynni vinnu- samra, harðgerðra landnáms- manna, sem ruddu skóga og ræktuðu land. Gleði þeirra yfir því að vera frjálsir þarna i myrkviðnum, — ’að eiga sér heimili og jörð, jafn- aði upp þær þjáningar, sem stríðið liafði fært þeim að höndum. — En ekki leið á löngu, unz nýja bliku dró upp á loft í norðri. Enn var Bretinn ekki ánægður, heldur krafðist aukinna fríðinda, og endirinn varð sá, að í júní- 1812 sagði Bretland Banda- ríkjunum stríð á hendui\ —• Um þetta leyti höfðu Eng- lendingar tíu þúsund manna lið í Kanada, en einungis þúsund menn voru búnir td orustu á landamærunum. f sej)tember höfðu Banda- rikjamenn átta þúsund manna lið í Plattshorg og tvo eða þrjá smáflokka enn norðar. Bretar höfðu til að byrja með engin skip á vatn- inu, en tóku nú sem óðast að byggja ; flota. Það gerðu og Bandaiiikjamenn. — Vorið 1813 höfðu Bandaríkj amenn konrið sér upp þrem herskip- um: Forsetanum, Svamlar- anum, og Erninum. Ekki urðu þau farsæl undir stjórn eigenda sirina. Tvö þeirra, Svamlarinn og Örninn voru dag nokkurn um sumarið stödd nálægt Askeyju. Allt í einu komu þrír brezkir fall- byssubátar i ljós og sló nú i bardaga. Eftir nokkrar ldukkustundir sökk Örninn, en Svamlaranum var rennt á land. Énglendingar náðu báð- um skipunum á flot aftur og bættn þeim við íierskipa- stól sinn. Var nú floti Eng- lendinga miklu öflugri á vatninu. — Mac Donough, sá sem fór með liersljórn Bandarikjamanna á vatninu, reyndi samt sem áðúr að hamla upp á móti og tókst vonum fyrr að auka við flola sinn sex fallhyssubátum og þrem litlum herskipum öðr- ufn, svonefndum „sloóps“. (Það voru .einmöstruð segl- skip, hetur vopnuð og stærri en fallbyssubátar). Borgin tekin. En meðan hann vann að þessu og áður en liðsauki hafði verið sendur til Platts- borgar, réðust Bretar á borg- ina og náðu henni á v.ald sitt. Þeir eyðilögðu þar mikil. verðmæti, hæði eignir ein- staklinga og hins opinbéra, til dæmis sjúkrahús borgar- innar. Fátt annað merkilegt gerðist þetta árið. En árið eftir, 1814, tók rás atburð- anna að ganga lnaðar. Allt vorið og sumarið skiptust á árásir og gagnárásir á svæð- inu umhverfis Plattshorg og juku báðir hernaðaraðilar lið sitt undir meginorustuna. 3. sept. kom 14 þúsund manna brezkt lið frá Montreal til Champlainþorps, og aðfara- nótt 5. sepf. sló það upp her- búðum skannnt fyrir norðan Pla t tsborg. Am erí k umenn höfðu meginvarnir sinar á suðurbökkum Sarranac-ár- innar, einkum á nesinu milli árósanna og vatnsins. Þar reistu þeir vigi og skotvirki og söfnuðu saman megin- þorra liðsins. Bretar sóttu Framh. á 4. síðu. Listð Sjálfsíæðsssianna í Reykjavik er ;-n; ðaCiaCQOOOQQOOQOQQOQOOOQQOQQOQtÍOQQOQOQQOQOÍOQOOOCÍQQQOQQC jínij.u'iuii njjazJoii j no; ’miin jj r/itíi ii iOOCOQOOQOÖOQQtÍOCQQOOQOOOQQÍÚQOOQQöQQQCQQQQQOOQGCQQQQQOOOOOOOOOOOQQO

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.