Vísir - 12.01.1946, Blaðsíða 6
6
V I S I R
Laugardaginn 12. janúar 1046
Verkfall í stáliðnaði
Bandaríkjanna.
Iruman reyiíir
ail miðla málum
Útlit er fijrir að 700 Jms-
iind verkamehn úr stáliðn-
aðinum í Bandaríkjunum
hefji oerkfall á mánudag-
inn kemur.
Þeir hafa hótað að hefja
verkfall klukkan 6 að morgni
14. þ. m., ef ekki verður
gengið að þeim kröfum, sem
þeir hafa sett fram. Undan-
farið hefir staðað í samning-
um milli iðjuhölda stáliðn-
aðarins í Bandaríkjunum og
.sambands iðnaðarverka-
manna, en ekki g^ngið sam-
an með þeim. Sei)iia,átti um
kaup .og kjör verkamanna í
þessum iðnaði, en iðjuliöld-
ar vildu ekki sinna kröfum
þeirra.
Nú liefir CIO (Congress of
Tndustrial Organization) til-
kynnt, að hafið verði verkfall
í stáliðnaðinum á mánudag,
ef iðjuhöldarnir verði þá
ekki búnir að ganga að þeim
kröfum, sem iðnaðarverka-
mennirnir hafa sett frain.
Truman skerst í leikinn.
Truman forseti hefir
kvatt fulllrúa heggja aðila
á sinn fund í dag, og ællar
hann að freista þess að miðla
málum, ef möguleiki er. í
fréttum í morgun segir, að
lakizt Truman ekki að miðla
málum i dag, verði verkfall-
ið óumflýjanlegt á mánudag.
Verkfall þetta yrði hið mesta
áfall fjTÍr iðnaðinn í Banda-
ríkjunum, og verða öll ráð
reynd áður en til þess verð-
ur látið koma.
Læknarnii íá
gooa loo við
MiklnbranL
Eins og skýrt hefir verið
frá hér í blaðinu hafa níu
læknar ákveðið að reisa og
starfrækja sjúkrahús.
LeituðU þeir til bæjarins
um lóð undir liúsið og tók
borgarstjóri mjög vel í mála-
leitan þeirra. Hefir læknun-
um nú verið heitið stórri og
góðri lóð .við Miklubraut —
í austurbænum. Er vonandi
að verkfræðingar bæjarins
ljúki mælingum á lóðinni og
öðru nauðsynlegu sem fyrst,
svo að hægt verði að liefj-
ast handa um framkvæmdir
sem allra skjótast.
BIRKI-KROSSVIÐUR
ýmsar stærðir fyrirliggjandi.
Birgðir takmarkaðar.
Verzl. Brynja
—J‘\a((la(c
on&-
Framh. af 4. síðu.
Iiafa formið á valdi sinu, við
góða leikara. Þeir eiga það
sameiginlegt lcikurunum, að
þeir kunna utan að gleði ,og
sorgir mannanna og gela lýst
þeim í tónum. En það er ekki
sú glcði, sem þeir sjálfir hafa
fundið, eða sú sorg, sem þeir
sjálfir hafa reynt. Og þrátt
fyrir alla kunnáttuna verður
áheyrandinn var við þetla.
Þessi músík verður aldrei
lífseig. Hún er stundum
nefnd „Kapelmestermúsik“.
Þessir menn líta oft niður á
sér gáfaðri tónskáld. sem
minna kunna. Þeir kunna
þetta allt svo miklu betur
sjálfir. En þótt sitt hvað megi
finna að byggingu sumra lag-
anna hjá Sigvalda Kaldalón,
þá lifa samt lieztu lögin háns
á vörum þjóðarinnar, af þvi
að þau eru gerð af manui,
sem guð hefir gefið gáfuna,
og í þeim er engin uppgerð.
Sönglög Kaldalóns hafa
náð alþýðuhylli, í orðsins
eiginlega og fvllsta skilningi.
Einn maður átti liér á árun-
um, þegar liann var upp á
sitt bezta, ekki sizt þált í að
syngja þau inn í fólkið, og
jiað var bróðir tónskáldsins,
Eggert Stefánsson, sem þá
hélt hér liverja söngskemmt-
unina af annari, og margir
minnast einnig með ánægju
söngskennntana þeirra
bæðra, hinna svonefndu
Kaldalórtskvölda.
Eg hefi farið hér rtokkrum
orðum um tónskáldið, en
mér væri ekki siður ánægja,
að tala um manninn sjálfan,
Ijúfmennið með hina riku
listamannslimd. sem af
brennandi anda í þjónustu
þess, sem er fagurt, hefir
sungið inn í söngelska þjóð
svo margt, sem gleður og
andann hressir.
Sigvaldi er kvæntur
danskri konu, Karen Marg-
retlie Christine, dóttur kgl.
skógarvarðar frá Sjálandi.
Börn þeirra eru Snæbjörn,
lyfjafræðingur, Þórður Sig-
valdi garðyrkjufræðingur og
Selma.
Á þessum heiðursdegi tón-
skáldsins flyt eg ])ví minar
beztu árnað-aróskir með
þakklæti fyrir þær mörgu
góðu gjafir, sem liann liefir
gefið þjérðinni og munu allir
vilja taka undir þetta með
mér.
Baldur Andrésson.
.
ALLT Á SAMA STAÐ
Charlie
ÍVicCarihy —
Framh. af 2. síðu.
Bœjai'foéttir
Á morgun
gcfst bæjarbúum tækifæri til
|)ess að neyta hins ágæta Hall-
veigarstaðakaffis, seni auglýst er
á öðruin stað í blaðinu. Það hef-
ir verið veitt nokkrum sinnum
áður, og lilotið niiklar vinsældir.
Ágóðinn af kaffisölunni rennur
til hins fyrirliugaða kvennaheiin-
ilis Hallveigarstaða. Er það allra
álit, að koma beri upp slíku heini-
ili hið fyrsta og þeim peningum
því vel varið ,er látnir eru af
liendi rakna i þvi augnamiði.
Næturlæknir
er í Læknavarðstofunni, sími
5030.
Næturvörður
er í Lyfjabúðinni Tðunni.
Næturakstur
í nótt annast Litla Bílastöðin,
sími 1380. Aðra nótt annast B.S.f.
aksturinn, sími 1540.
Helgidagslæknir
er Bjarni Oddsson, Laufásveg
7, sími 2058.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir liinn sögulega sjónleik
Skálholt (Jómfrú Bagnheiður)
annað kvöld kl. 8.
Leikfélag Hafnarfjarðar
sýnir gamanleikinn Tengda-
pabbi á morgun kl. 3 e. h. Leik-
stjóri er Jón Aðils.
65 ára
verðu í dag Þórður Einarsson,
skrifstofumaður hjá Kassagerð
Reykjavíkur.
Félag Suðurnesjamanna
hcldur nýársfagnað sinn að
Hótel Borg í kvöld. Samkvæmið
liefst með borðhaldi kl. 7,30.
Messur um helgina.
Dónikirkjan: Mcssað á morgun
kl. 11 f. h. Sr. Jón Auðuns og kl.
5, sr. Bjarni Jónsson. Unglinga-
féíagsfundur dómkirkjusafnaðar-
ins verður í baðstofunni kl. 8,30
á sunnudagskvöld. — Hallgríms-
sókn: JTcssað kl. 11 f. b. í Aust-
urbæjarskólanum, sr. Sigurjón
Árnason, og kl. 2 e. h. á sama
stað, sr. Jakob Jónsson. Annað
kvöld heldur Kristilegt ung-
mennafélag fund í Ræsis-húsinu
við Skúlagötu. Lúðvik Guðnnmds-
son sýnir skuggamyndir og segir
fcrðasögu frá Mið-Evrópu. Laug-
arnesprestakall: Barnaguðsþjón-
usta á morgun kl. 10 f.h., sr. Garð-
ar Svavarss. Einnig verður mess-
að kl. 2 e. h., sr. Sigurbjörn Ein-
arsson dócent predikar. — Frí-
kirkjan: Barnaguðsþjónusta kl. 2
e. h. Síðdegisméssa kl. 5, sr. Árni
Sigurðsson. — Kaþólska kirkjan í
Reykjavík: Hámessa kl. 10 f. h.
á morgun. 1 Hafnarfirði kl, 9 f. h.
— Fríkirkjan í Hafnarfirði: Mess-
að kl. 2 e. h., sr. Ragnar Bene-
diktsson. — Kálfatjörii: Messað á
morgun kl. 2 e. h., sr. Garðar Þor-
steinsson. — Elliheimilið: Messað
á morgun kl. 6,45. Sr. Sigurbjörn
Á. Gíslason.
Útvarþið í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl. 19.25
Þingfréttir. 20.30 Útvarpstríóið,:
inleikur og tríó. 20.45 Leikrit:
„Við, sem vinnum eldhússtörfin“
cftir Sigid Boo (Leikstjóri: Lárus
Sigurbjörnsson). 2L45 Gömul
danslög (plötur). 22.00 Fréttir.
22:05 Danslög til kl. 24.00.
Skipafréttir.
Brúarfoss og Selfoss eru i
Leith. Fjallfoss fór frá Rvík í
fyrrakvöld veslur og norður. Lag-
arfoss fór frá Kaupmannhöfn i
gær til Gautaborgar. Reykjafoss
er í Reykjavík, fer væntanlega i
kvöld til Leith. Buntline Ilitch fór
frá Rvik 7. þ. m. til New York.
Span Splice fór frá Reykjavík 31.
f. m. til New York. Long Splice
er í Halifax. Empire Gallop er i
Rvík. Anne fór frá Rvík 3. þ. m.
lil Kaupmannahafnar og Gauta-
borgar, Lech er að ferma i Leith.
Balteako fór frá Rvik 4. þ. m. til
Londodn.
Vanur
rafsuðumaður
og annar laghéntnr maður, geta fengið atvinnu
nú þegar.
Vélaverkst. Sig. Sveinbjörnssonar,
Skúlatúni 6. Sími 5753.
Síldarsöltunarstöð
tíl söíu.
Síldársöltunarstöð Jóns Hjaltalíns á Siglufirði, ásamt
Bifvélavirkjar og menn, sem hafa unnið
við bílaviðgerðir, geta fengið vinnu um
lengri tíma. — Ágætis vinnuskilyrði. —
H.L Egill Vilhjálmsson.
Dansskóli
Si! Þórz og Kaj Smith.
Getum bætt nokkrum nemendum í Stepp-,
Ballett- og Samkvæmisdansa.
Upplýsingar í dag (laugardag) og á morgun
frá kl. 1 —3 í síma 2016.
þcssa er fjöldinn allur af á-
lílca „bröndurum", sem
lirokkið liafa af vörum þcirra
tveggja, sem of langt yr'ði að
tela upp liér.
Edgár Bergen liefir orðið
rikur maður á atvinnu sinni.
Hann fær i vikulaun bjá út-
varpinu, sem liann vinnur
við, 17.500 dollara. Auk þess
fær liann fyrir kvikmynda-
leik og annað um 250 þúsund
dollara árlega.
Charlie notar hvert tæki-
færi til að minna Bergen á,
að hann eigi alla sína far-
sæld sér að þakka.
En einu sinni stakk Bergen
upp í Charlie. Venjulega
lýkur orðahnippingum þeirrá
með algerum sigri Charlies:
„Hvað heldur þú að þú
værir án min?“ sagði Bergen.
..Mállaus.“ svaraði Charlie,-
Norðurgötu 1 (sunnan Gránugötu) til sölu. Tilboð
sendist Sigurgeiri Sigurjónssyni, hæstaréttarlögmanni,
Aðalstræti 8, Reykjavík, fyrir 25. ]). m.
VARER
TIL DANMARK.
Dansk Importfirma hvis Leder er ankommet med
„Dronning Alexandrine“ onsker Tilbud i Manufaktur,
Trikotage, islandske Uldvarer, Sengetoj, Herreskjorter,
Lommetorklæder, Lædervarer, Regnfrakker og alle
Slags Metervarer. Tilbud bedes sendt under Mærket:
„Varer til Danmark“, til „Vísir“,