Vísir - 04.04.1946, Blaðsíða 3

Vísir - 04.04.1946, Blaðsíða 3
3 t?immtudaginn 4. apríl 1946 visu Áðalfundur Garðyrkjuféíags íslands: Tífraunaráð tekur til starfa á vegum félagsins. Gefin' verður út handbók um garðyrkju. Hinn 29. marz s.l. var að- alfundur Garðyrkjufélags Islands haldinn í Baðstofu iðnaðarmanna hér í bæ. Á fundinum fór fram stjórnarkosning og var Sig- urður Sveinsson endurkos- inn ^ormaður. Hefur hann verið formaður félagsins s.l. tvö ár. Aðrir menn, er kosn- ir voru í stjórniiia, eru þeir Ólafur Gunnlaugsson gjald- keri, og Ingólfur Davíðsson ritari. Meðstjórnendur voru kosnir þeir Jóhann Jónasson frá öxney og Jóhann Kr. Jónsson. Hið helzta, sem gerðist á fundinum, var þetta: Rætt var um væntanlega garðyrkjusýningu og fyrir- komulag hennar. Ennfremur var rætt um útgáfu á hand- bók um garðyrkju. Að um- ræðum loknum var kjörin nefnd til þess að undirbúa útgáfuna. Ár hvert hefur félagið gef- ið út veglegt ársrit um garð- yrkju og er Ingólfur Davíðs- son ritstjóri þess. Auk hans eru i ritnefnd þess þeir Hall- <lór Ó. Jónsson og Hafliði .Tónsson frá Eyrum. Garð- yrkjuritið 1946 kemur út á vori komanda. Einnig var rætt um lands- mót garðyrkjumanan og var Hafliði Jónsson framsögu- maður í þvi máli. Hann bar fram svohljóðandi tillögu, sem var samþykkt einróma: „Aðalfundur Garðyrkj ufé- lags Islands 1946 ályktar, að ú vegum félagsins sé haldið! landsmót garðyrkjumanna ’ þriðja eða fjórða hvert ár og skuli það standa yfir í tvo daga.“ Þá var ákveðið á fundin- um að kjósa menn í tilrauna- ráð, er starl’i á vegum félags- ins, og kom fram svo hljóð- andi fillaga frá Niels Tybjerg um það mál: „Aðalfundur Garðyrkjúfé- lags Islands ályktar að kjósa þriggja manna nefnd í til- raunaráð. Störf raðsins séu að skipuleggja þessa starf- semi og að leggja fram á- kveðnar tillögur um fyrir- komulag og starfrækslu garðyrkjutilrauna og starfi í’áðið í sambandi við stjórn G.I.“ Tillaga þcssi var sam- þykkt einróma. Þessir menn voru kosnir í tilraunaráðið: Unnsteinn Ólafsson, Jóhann Kr. Jónsson og Niels Ty- bjerg. Að lokum gat formaður félagsins þess, að Garðyrkj- fólag Islands stæði fyrir fræðslustarfsemi og væru er- indi þess flutt í útvarpið, og að ætlunin væri að erindi Kynnir sér fyrir- komolag íþrótta- svæða. Þorsteinn Éinarsson íþróttáfulltrúi er farinn vestur úm háf, áðallega til þess að kynna sér gerð og fyrirkomulag íþróttasvæða og leikvanga. Fór Þorsteinn á vegunl íþróltanefndar ríkisins með sérstöku lilliti til þess að ati- liuga fyrirkomulag íþrótta- svæða, sein hægt verður að byggja væntanlegt íþrótta- svæði í Laugadal eftir. Iþróttasvæðið í Lauga- dalnum er langstærsta íþróttamannvirki, sem á- kveðið hefir verið að ráðast í hér á landi. Eftir vinnulaun- um og verklagi, sem nú et ríkjandi hér á landi, mun mannvirki þetta kosta svo milljónum lcróna skiptir. Það er því mjög áríðandi að liaenn rasi ekki um ráð fram í þessum efnum og að hlut- aðeigendur kynni sér hlið- stæða íþróttasvæðagerð er'- lendis. Munu Ameríkumenn standa þjóða fremslir á þessu sviði og þótti sjálfsagt að kvnna sér framkvæmdíí þeirra í leikvanga- og íþrótla- svæðagerð. Með þella fyrir augum þótti rétt að fela íþróttafulltrúa ríkisins að fara vestur um Iiaf og kynna sér mál þessi lil Iilítar. Jafnframt þessu mun Þor- steinn kynna sér allt sem við kemur starfi hans hér, svq sem skólaiþróttir, skólahús- gögn, heilsuvernd og lioll- ustuliætti í skólum o. s. frv. Þorsteinn fór loftlciðis vestur og gerði hann ráð fyrir að dvelja um mánaðar- skeið ytra. iis*gees€B £ 30 <233’„ Þann 1. april síðastliðinn áttu tveir af starfsmönnum slökkviliðsins í Reykjavílc 30 ára starfsafmæli. Eru það þeir Karl Bjarnason vara- slökkviliðsstjóri og Antoii Eyvindsson varðstjóri. Voru jieir skipaðir slökkvi- liðsmenn 1. apríl 1916, en höfðu jiá verið í þjónustu liðsins frá Jiví 25. apríl 1915, en þann dag var bruninn mikli, er Hótel Reykjavíkur og fleiri hús brunnu, eins og gamlir Reykvikingar muna.! Karl hefir verið vara- slökkviliðsstjóri síðan 19441, en Anton varðstjóri í 5 ár eða síðan fjölgað var í slökkviliðinu. þessi yrðu flutt öðru hverju í vor og sumar. Próf við Garð- t r k| u sk*VB a n is. Föstudaginn 29. marz s. 1. luku 9 nemendur burtfarar- prófi frá Garðyrkjuskóla rík- isins. Fara nöfn þeirra liér á eftir; Ágúst Eiríksson, Löngumýri, Skeiðum. Bald- ur Gunnarsson, Þverárdal, A.-Húnavatnssýslu. Bjarni Ilelgason, Reykjavík. Gásli Jóhannsson, Bolungarvik. Iljalti .Takobsson, Tjaldanesi, Mosfellssveil. Ólafur Þórð- arson, Langþolti, A.-lIúna- vatnssýslu. Ragna Her- mannsdóttir, Hlíðskógum, Bárðardal. Theódór Hall- dórsson, Arngerðareyri, N,- ísafjarðarsýslu. Viktoría Skúladóttir, Dönustöðum, Dalasýslu. Hæsta einkunn lilaut Ragna Hermannsdótlir. Hafa nú alls útskrifazt 56 nemendur frá jm að skólinn hóf göngu sína 1939. Ilafa flestir þeirra stundað garð- yrkju, einkum ylrælct, en 7 eða 8 hafa snúið sér að öðr- um störfum. Cm j)á e1' mik- ill skortur ie '*.arðyrkju- manna, svo ao o....i veitir af að stéttinni bætisl liðsslvrk- ur. I. D. 7tw<teHAkjcl4 •ékéðakcmœH /Aw' A.u Fjallamenn vilja byggja æfingaskála ' nágrenni Reykjavíkur. Þing SVf: menn og neíndis. í gær var sett í samkomu- sal vélsm. Héðins 3. þing Slysavarnafélags íslands, eins og getið var í blaðinu í gær. Fóru fram undirbúnings- störf á fundinum í gær, svo sem kosning starfsmanna þingsins og faslra nefnda. Gisli Sveinssoii alþingismað- ur var kjörinn forseti j)ings- ins, en fyrsti varaforseti Sigurjón Á. Ólafsson fyrrum alþingismaður og annar varaforseti Þorsteinn Árna- son vélstjóri. Aðalritarar voru kosin Hermann Guðmundsson *og Eyglþ Gísladóttir og vararit- ari Soffía Ólafsdóttir. Gíls Guðmundsson ritsljóri er skrifstofustjóri þingsins. Þá var og kosið i fasta- nefndir og ýmis mál lögð fyrir þær, éftir að jiau höfðu verið reifuð á þinginu. Ilóf- ust nefndastörf í dag. Annar fundur þingsins hófst kl. 1,30 e. h. Ennfremur kláfferju á Markarfljót og göngubrú á Emsturá. Fjallamenn hldu aðalfund sinn í gær. Þar var rætt um að næsti áfangi í fram- kvæmdum félagsins yrði að byggja æfingaskála í ná- grenni Reykjavíkur. Annað helzta áhugamál fé- lagsins er að gera göngufært á milli skála Fjallamanna á Tindfjalla- og Eyjafjallajökl- um. En sem kunnugt er eru tveir farartáhnar á þeirri leið, Markarfljót og Emstur- áin Syðri. Á Markarfljóti er kláfferja, en liún er svo þung að ekki mun vera nema á margra manna færi að hreyfa hana, enda er hún fvrst og fremst ætluð til f járflutninga. Þarna jiarf j)ví að koma önn- ur léttari kláfferja og með- færilegri. Emsturáin syðri er hinn farartálminn og mun hún vera ófær gangandi fólki vegna vatnsmagns og straumhörku. Það er hægt að vísu að koinast fyrir upp- tök liennar á jökli, en bæði krókur og miklu erfiðari leið. Frh. á 4. síðu. Innbrot Innbrot var framið í nótt í vörugeymslu Othar’s Ellipg- sen’s. Var Jiað gert með þeim hætti að saga sundur hengi- lás að geymslunni. Ekki var séð að neinu hefði verið stol- ið. j I fyrrinótt var stolið litlu mótorhjóli o. fl. úr reiðhjóla- verkstæðinu Óðni i Banka- stræti. Lík Ölafar Sigur- bjömsdóttui finnst. Lík húsfreyjunnar á Ás- brekku, Ólafar Sigurbjörns- dóttur, fannst í gær. Fannst j)að í síki, sem er við Vatnsdalsá. Hafa flóð verið í ánni að undanförnu og er talið sennilégast, að lík- ið hafi borizt inn i síki með straumnimi. lalletmeistari Kaj Smith 15 hefir opnaS smn eigm skóla í dans og ballett í Þjóðleikhúsinu -— (gengið mn frá Lind- argötu). Fyrir gift fólk og ,,pör“ í gömlu-dcns- unum, (Lanciers og {].). Sunnud. 7. apríl kl. 1—2 e.h. Ballett fyrir börn 5—10 ára, mánud. 8. apríl kl. 10j/2— \\Vl f.h. ára, mánud. 8. apríl Ballett fynr börn 10 kl. 5—6 e.h. Ballett fyrir fullorSna, mánud. 8. apríl kl. 6/y— 7/2 e.h. Stepp fyrir fuilorðna og börn, fimmtud. 1 1. apríl kl. 7/2-S/2 e.h. ' Innritun fer fram í Þjóðleikhúsinu, fimmtud. 4. apríl og föstud. 5. apríl kl. 3—5 e.h.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.