Vísir - 13.04.1946, Page 7

Vísir - 13.04.1946, Page 7
 Laugardaginn 13. april 1946 V I S I R 7 Í^^XXX^ÍtOOOOO^XX^OOOOCKXK^^XK^O^XXXXK^O^^OO^KX^O^^K^OOOOOOOO^XKKK^OOOÍKXXX^OO^J^^OOOOOOOOOOOOO •■ k )\yt.f 'j. ;>.».•,.•■»>* x, 5 nýjnr UV frá ísafoldarprentsmiðju Á bemskustöðvum eftir Guðjón Jónsson Þessi fallega og skemmtilega bók er bernskuminningar manns, sem nú er kominn á fullorðinsár. Þær eru ritaðar af hlýju og ást til átthaganna og minninganna, sem við þá eru bundnar. Ólafur Lárusson prófessor ritar ágætan formála framan við bókina, og telur henni til gildis meðal annars, að bókin sé „merkileg þjóðlífslýsing. Höfundurinn lýsir þar ýms- um þáttum í daglegu lífi manna, eins og það var vestur í Gufudalssveit á uppvaxtarárum hans á síðustu áratugum síðustu aldar. Þá var lífið þar enn með sínu forna sniði, eins og víðar um sveitir landsins. Síðan hefur mikil breyting orðið, gamlir liættir vikið fyrir nýjum, og liið gamla er nú sem óðast að gleymast. ... Hver sem bók þessa Ies mun finna, hversu mikilli hlýju og yl andar frá frásögn höfundarins. Minningarnar frá æskuárunum ylja honum á efri árunum og hafa eflaust gert það alla ævi hans. Þessi innileiki er eitt af því, sem gerir hók lians svo aðlaðivndi, og liún á skilið að hljóta góðar viðtökur”. Raddir úr hóvnum eftir Stefán Jónsson Hér er á ferðinni bók, sem vekja mun sérstaka athygli. Þetta eru 10 sögur úr daglegu lífi þjóðarinnar, og lýsa þjóðlíf- inu eins og liöfundinum virðist það vera um þessar mundir. Höfundurinn hefur áður gefið út tvö smásagnasöfn: „Konan á klettinum“ og „Á förnum vegi“, og sex unglingabækur: Söguna af Gutta, Hjón- in á Hofi, Vini vorsins, Það er gaman að syngja, Skóladaga og Þrjú Ævintýri. — Bækur Stefáns Jónssonar hafa náð mik- illi og verðskuldaðri liylli. Hann er rit- höfundur, sem hefur vaxið með hverri nýrri bók. Á valdihafsins eftir Jóhann Biúld Þetta er 5. bók Jóhanns Kúld. Fyrri bæk- ur hans eru allar löngu uppseldar, en það eru: íshafsævintýri, sem kom út 1939, Svífðu seglum þöndum, kom út 1940, Á hættusvæðum, kom 1942, og Um heljarslóð, sem kom út 1943. Bækur Kúlds ciga allar sammerkt um það, að þær eru skemmtilcgar og halda athygli lesandans óskiftri frá upphafi til enda. Þessi nýja bók, „Á VALDI HAFSINS“, Iýsir ungum sjómanni, fyrstu árum hans á sjónum, ástum hans og tilhugalífi, og hættunum og volkinu sem hann og félag- ar hans eiga við að búa í lífsbarátt- unni. , ■ ; .,.4 i?iH V,' V- Gestir d Hamri eftir Sigurð Helgason Þessi nýja bók Sigurðar Helgasonar, sem er unglingasaga með nokkrum myndum eftir ungan og efnilegan nemanda bans, er 8. bók Sigurðar. Fyrri bækur hans eru: Svipir (1932), Ber er hver að baki (1936), Og árin líða (1938), Við liin gullnu þil (1941), Sögur perluveiðarans (1941), Hafið bláa (1944) og 1 óbyggð- um Austur-Grænlands (1945). GESTIR Á HAMRI er unglingasaga, fallega sögð og látlaust og lýsir því, þegar ÓIi litli sá liafísinn reka að Iandi og með hafísn- um kom bjarndýrið, sem greypti sig djúpt í hug hans. „Óli litli á Hamri stóð úti á yztu snös klettagnipunnar ut- an við túnið óg þóttist vera landkönnunarmaður. Hann hafði lalimað sjónauka föður síns inn undir treyjuna sína, áður en hann fór af Stað að heiman, og þarna stóð hann á klökugum kletti og litaðist um“, •— Þessi snotra unglingabók mun vekja gleði hvar sem hún kemur, og'er því ágæt sumargjöf. Fingrarím effir Jón Arnason biskup Hér kemur á markaðinn 3. útgáfa, ljósprentuð, af Fingrarími Jóns Árnasonar biskups í Skálholti. Bókin var fyrst prentuð árið 1739, en síðan endurprentuð óbreytt 1838, og heitir fullu nafni „Dactylismus Ecclesiasticus eður Fingra-Rím, viðvíkjandi Kirkju Ársins Tímum. Hvört, að afdregnum þeim- rómversku tötrúm gamla stíls, liefir sæmi- legan íslenzkan búning fengið, lagaðan eftir tímatali hinu nýja. Fylgir og með ný aðferð að finna íslenzk misseraskifti“. Af þessari litlu bók má örugglega læra hina fornu íþrótt fingrarímið. I bókinni er fjöldi mynda af mannshöndinni, þar sem hver liður á fingrunum er merktur með bókstaf og tölustöfum, svo auð- veldara sé að átta sig á þeim reglum, sem liggja til grundvallar fingrarími. Til sýnis er hér sett 3. REGLA um það, hvernig finna skal sumarkomu: „En kunnir þú, minn vin, ekki neitt í reikn- ingslist, þá vil ég sýna þér aðra aðferð, sem á réttilega við Fingra-Rímið, og er hin auðveldasta til að finna SUMAR- KOMU árlega, sem er þessi: Svo marga liði, sem þú fær frá topp baugfingurs, alt á næsta lið eftir Sunnudagsbókstafinn, svo mörgum dögum skaltu bæta við 10. Aprilis. Summan er sumardagsbókstafurinn fyrsti, og fylgir sá athugi þar með: ef að Sunnudags-bókstafurinn er á topp baugfingurs, þá merkir sá næsti hnúi við toppinn, að ekki eigi að leggja nema 1 við 18. Aprilis; því að svo er niður sett, að 18. Aprilis sltuli sitja á greindum topp baugfingurs, hvað ogsvo kann vel að standast; því fari ég að telja Aprilis daga á efsta lið vísifingurs, þá lendir sá 18. á topp baugfingurs. TIL DÆMIS: Ao. 1737 er Sunnudags-bókstafur F. Hann stendur á fremsta lið litlafingurs; þar fyrir kemur SUMARIÐ á toppinum, þeim næsta lið, sem er 25. Aprilis, því ef þú fer að telja 18. á topp baugfingurs, 19. á næsta lið, og svo framvegis, þá lendir sá 25. á topp litlafingurs“. Margur ungur maður mun hafa gaman af því að kynna sér fingrarímið, er það bæði skemmtileg dægrastytting og gagnleg að læra það. Næstu claga koma út frá ísafoldarprentsmiðju nokkrar nýjar bækur í viðbót, svo sem stórt befti af hinu merka ritsafni Samtí'8 og saga, ný skáldsaga eftir Þórunni Magnúsdóttur, sem heitir Lilli í sumarfríi, bók eftir Mattliías Jónasson, er hann kallar LokuS sund, og lýsir að nokkru þeim óhemjuerfiðleikum, er landar okkar, sem dvöldu í Mið-Evrópu, áttu við að stríða, er þeir vildu leita heim til átthaganna, og ennfremur lítil fögur bók, sem heitir Fósturlandsins freyja. Eru það kvæði um konur, sem Guðmundur heitinn Finnbogason bjó undir prentun. Bókaverslvn Isafoldar gj ; '• Li i oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo ooooooooooooooooooooooooooooooooo>oooooooó ooooooooooooo

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.