Vísir - 13.09.1946, Síða 8

Vísir - 13.09.1946, Síða 8
Tíæturvörður er i Laugavegs Apóteki, simi 1G16. Næturlæknir: Sími 5030. — Lesendu r eru beðnir að athuga að smáauglýs- i n g a r eru , á 6. síðu. — Föstudaginn 13. september 1946 Hraðamet sett í farþegaflugi míllí New York og Keflavíkur Vidtal við George Ösílund Að því er George Östhind, mciður Maríu Marlcan, tjáði fréttaritara Vísis í gær, var sett nýtt hraðamet í farþega- flugi milli New York og Keflavíkur af leiguflugvél Loftleiða. Var flugvélin samtals 12 klst. og 15 nHnútur á flugi en öll ferðin tók aðeins 13 klst. og 15 mín., því stanz- að var nákvæmlega eina klst. í Nýfundnalandi. „Ef þér liafið áhuga fyrir að vita, livað veldur töfinni á Skymaster-flugvél Loft- leiða,“ segir Östlund, „þá er mér það kunnugt.“ „Nú, hvað er það?“ „Eg og konan mín höfðum fyrir löngu ákveðið að koma hingað til lands á þessu sumri. Hvort tveggja -var það, að hana langaði til að hitta hér vini og ættingja og svo hitt, að eg þurfti nauð- synlega að fara hingað í verzlunarerindum. Yið gerðum ráð fyrir að fara með flugvél Loflleiða, sem álti að vera að öllu leyti til- húin til þessarar Islands- farar um miðjan júlí. En þegar þeir Alfreð Elíassoi} og Jóhann Kristjánsson, full- trúar Loftleiða, kröfðust að fá flugvélina, kom í ljós, að alls konar tæki vantaði i hana til þess að hún gæti lalizt fullkomin. Að sjálf- sögðu neiluðu þeir Alfreð og Jóliann að taka við vélinni svona á sig kominni, því það er þeim kappsmál, að fá vél af fullkomnústu gerð”, út- búna nýtízku þægindum, eins og beztu amerísku vél- arnar erú. Eg stakk upp á þvi við þá féla'ga að reynandi ræri að fá leiguflugvél fyr- ÍL’ fólkið, sem beið eftir Skymastervélinni, en það reyndist erfiðar, en við hugð- u m i fyrstu. En svo gekk Thor Thors sendiherra í máli.ð og lionum lókst með <lugnaði sinum að afla alls- konar forgönguleýfa og þá var málið leyst.“ „bér. minntusl á, að þér væruð hér í vcrzlunarerind- um?“ „Já, það var nú vegna þcss, sem mér lá alvcg sér- slaklega mikið á að komast ti' fslands. Eghefi fyrirlæki, sem einungis verzlar með islenzkar afurðir.“ „Hvernig liefii: salan geng- ið og hvað seljið þér helzt?“ „Sala á islcnzkum afurð- um hefir gengið ágætlega. Það, sem eg hefi helzt selt ícr hraðfrystur fiskur, sem er prýðileg útfiutningsvara, alls konar dósamatur og „Stockfish“, sem er einskon- ar harðfiskur.“ „Þér hafið dvalið á ís- Iandi áður? „Já, en síðan eru liðin 30 ár. Eg er farinn að ryðga töluvert í málinu, en von- andi næ eg því fljótlega aft- ur.“ Sílilui'tunn íi- shipiö hawniö. Tunnuskipið, sem hefii verið væntanlegt til landisns nú síðutsu dagana kom hing- að í gærdag með 1^.500 tunn- ur undir síld. Mun skipið losa i Keflavik, Hafnarfirði og á Akranesi, en auk þess mun nokkuð af tuonunum fara til Reykjavik- ur, Sandgerðis, Grindavíkur og í Hafnir og Voga. Eins og mönnum er kunnugt lvefir verið tilfinnanleg vöntun á síldartunnum liér sunnan- lands að undanförnu og hafa menn meira að segja orðið að fleygja nýveiddri sild í sjó- inn vegna þessarar vöntun- ar. Þessi sending mun híns vegar verða til mikillar úr- bótar, þó ekki sé þetta fylli- lega nóg, ef mikið veiðist, svo sem verið hefir undanfarin sumur. Það eru þeir Ólafur Jóns- son frá Sandgerði og Baldvin Þ. Kristjánsson, erindreki Landssambands ísl. Útvegs- manna, sem annast úthlutun tunnanna. Síldarsaltendur hér sunnanlantís liafa sótt um 40 þús. tuniiur, svo ekki mun þessi sending hrökkva langt. Athygli manna skal vakin á því, aö þar sem vinna í prentsmiðjum hættir kl. 12 á hád. á laugardögum í sumar, þá þurfa auglýsingar, sem birt- ast eiga á laugardögum, aö vera komnar eigi síðar en klukkan 7 á föstudagskvöldum. (jlatt á kjatla! — Flugskóli Akureyrar.. Síðdegis á þriðjudag flaijg I ein flugvéla Flugskóla Akur- eyi’ar til Kópaskers og lenti j þar á sjálfgerðum flugvelli. Flugmaður var Kristján Mik- aelsson. Tveir af cigendum Ougvélariimar, Arni Bjarnar- son og Gísji Ólafsson, voru með, auk eins nemanda flug- skólans. Eerðin gekk ágæt- lcga. Job. Lengst til vinstri er kvikmyndaleikarinn William Powell, en t. h. Myrna Loy, sem oft hefir leikið á móti honum. Þau eru úti að skemmta sér með kunningjunum. Söngskemmtun A G. A. Símonar. Svo sem blöðin liafa skýrt frá liefir ungfrúin verið um tíma við söngnám í Englandi og mun vera á föruin utan aftur til framhaldsnáms. -— Áður en hún hóf söngnám erlendis hafði hún lært að syngja lijá Sigurði Birkis söngmálastjóra og var orð- in góðkunn söngkona. Hún liefir mikla musíkalska æð, enda á hún ekki langt að sækja það. Á söngskemmtun sinni í Gamla Bió í gær söiig hún íslenzk og erlend lög, þar á meðal óperuaríur eftir Moz- art, Hándel og Puccini. Er engum blöðum um það að fletta, að ungfrúin hefir tek- ið miklum framförum þann tíma, seni hún hefir stundað námið ytrá, þvi að hún treyslir sér i stærri verkefni en áður og gerir þeim betur skil. Röddin er bjartur og hár sópran, sem enn er full- föst og á vænlanlega eftir að losna með lengra námi, svo og að verða gildari og hljómmeiri, þó að hún þeg- ar hafi marga glæsilega tóna. Það sem gerir söng ungfrúarinnar aðlaðandi, er hin mikla sönggleði, sem kemur fram hjá henni, sam- fara skapi og lilíinningu, enda náði hún tökum á á- heyrenduni, og va.rð að syngja aukalög. Ungfrúin býr yfir hæfileikum, sem eiga eftir að vaxa með auknu námi, og þó hún hafi sungið inargt vel, þá mun hún síðar leika á liina fögru sópranrödd sína af enn meiri list. Aðsókn að söngskennntun- inni var góð, næstum livert sæti skipað, og voru viðtök- urnar afbragðsgóðar, svo að söngkonan varð endurtaka sum lögin og syngja auka- lög. Henni bárust margir blómvendir. Undirleik ann- aðist Fritz Weissliappel og fói’st það vel úr hendi. B. A. Lá við slysi í Kömbum. í fyrradag varð bifreiða- árekstur í Kömbum og mun- aði litlu að ekki yrði þar stór slys. Ók herbifreið, sem er í eigu íslendings, aftan á vöru- bifreið og Iiemlaði úm leið svo snöggl. að hún valt á hlið- ina og skemmdist inikið. Bif- reiðin valt á þá lilið sem'stýr- ið er ekki við og bjargaði það bílstjóranum frá slysi. Vöru- bifreiðin nam staðar á brún vegarins og skemmdist hún minna. Forseii séiaii" bráðab.Kög. Forseli ístands setli í dag, 12. september 1946: 1. Bi’áSabirgðaiög uin breyting og viðauka við lög iir. 65, 11. júni 1938, um skatl- og útsv.arsgreiiðslu út- lendinga o. fl. i '2. Bráðabirgðalög inn heimild fvrir rikissljórnina lil að laka Ieigunámi barna- heimilið Sólheima í Ilvera- koti.i Grimsnesi. 3. Tilskipun um breyting á tilskipun ar. 112, 20. ágúst 1938 um gerð og afgreiðslu sérlyfja. Síldin: í Keflavík búlð að salta 1000 tunnuc. í nótt voru 10 bátar frá Keflavík á reknetaveiðum. — Snemma í morgun fréttist, að þeir hefðu frá 40 til 150 tunnum síldar hver. Má telja þetta mjög sæmilegan afla. Nú er búið að salta 1000 tunnur sildar í Keflavik og hefir það verið gert á veguni Lofls Loftssonar og Elíasar Þorsteinssonar. *Standa nú yfir samningar milli þeirra og Svía um sölu á síldinni. — Mikið af síld liefir einnig verið komið fvrir i frystihús- um. Mtuiir huupu herbirgöir. Italir hafa keypt ýmsar gamlar birgðir Bandaríkj- anna þar í landi fyrir 160 millj. dollara. Þarna er ekki um skotfæri eða þvi likt að ræða, en það sem Italir fá mun uppbaflega hafa koslað 565 millj. doll- ara. Þeir eiga að greiða fvrir þctta á 30 árum. Júgóslafar og Albanir hafa gert með sér vináttusainn- ing og var hann staðfestur í Belgrad Iiöfuðborg Júgó- slafíu í gær. Nýir kaupendur Vísis fá blaðið ókej'pis til næstu mánaðamóta. Hring'ið í síma 1660 og tilkynnið nafn og heimilis- fane. Flringið í sima 1060. \

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.