Vísir - 18.09.1946, Page 2
2
V í S I R Miðvikudagirin 18. september 1946
HERSTEINN PÁLSSDN:
í tékknesku landamærahéraði.
Jafnskjótt og komið er mn
fyrir landamæri Tékkó-
slóvakíu frá Þýzkalandi,
má sjá að komið er úr sigr-
uðu landi í land þjóðar,
sem telst meðal sigurveg-
aranna.
Breytingin, sem á verður,
er svo mikil og gerist svo
skjótt, að maður þyrfti vart
að eiga við landamæraverði
til þess að geta gert sér Ijóst,
að komið er til annars lands.
Allt er með öðrum brag, þeg-
ar komið er inn í Tékkósló-
vakíu frá Þýzkalandi, fólkið
er betur klætt, það er enginn
hungursvipur á því, eins og
í Þýzkalandi og jafnvel hús-
dýrin eru feitari og fallegri.
Fljót afgreiðsla.
Við komum að landamær-
unum hjá Rozvadove —
Rosshaupt á þýzku á leið-
inni frá Niirnberg til Prag
um Pilsen, - þegár degi var
tekið að balla. Tvcir korn-
ungir amerískir bermenn
gættu landamæranna Þýzka-
landsmegin ásamt Þjóðverja
einum. Þeir litu á skilríki
okkar og hleyptu okkur svo
í gegn orðalaust. Við tékk-
nesku stöðina stóðu um 30
vörubílar, sem Tékkar voru
að fá frá UNRRA. Það var
leitað vandlega í þeim öllum
og við óttuðumst, að af þessu
yrðu meiri háttar töf.
En betur lor en á liorfðist,
því okkur var hleypt fram-
hjá bílunum, skilríki og
yegabréf stimpluð og síðan
máttiuu við halda leiðar okk-
ar. Engin leit gerð að smygl-
varningi og við brunuðum á-
leiðis til Prag — eða „smér
Praha“, eins og stóð á skilt-
unum meðfram veginum.
Nýr húsbóndi.
Um tveim kílómetriun fyr-
ir innan landamærin ókum
við inn í þorp. Klukkan var
um sex, við höfðum hvorki
fengið vott né þurrt frá því
um hádegi i Núrnberg, svo
að menn langaði til að fá að
reyna einn „pilsner“, þenna
tékkneska drykk sem lengi
hefir verið heimsfrægur. \'ið
komum auga á veitingahús
— hostinec og settumst
þarinn.
Ungur maður bar okkur
pilsner i flöskum en sagði,
að þetta væri nú ekki rétt
góður mjöður, styrkleikinn
væri lítill, því að það mætti
ekki hafa hann mjög sterkan.
skömmtun væri á hráefnum.
Hann sagði líka, að liann
hefði tekið við veitingahús-
iiiu fyrir hálfum mánuði, þvi
að fram að þeim tíma hefði
Þjóðverji átt það, en nú hefði
hann verið fluttur úr landi.
I Súdetalandi.
Við eium nefnilega í Súd-
etalandi, landræmunni, sem
liggur meðfram milclum
hluta tékknesku landamær-
anna og Hitler féklc á Miinc-
henarfundinum fræga, áður
en hann gleypti allt land
Tékka og Slóvaka. Og þarna
á fyrstu mínútunum, scm við
erum i Tékkoslóvakíu, kvnn-
umst við einu þeirra vanda-
mála, sem striðið hefir skap-
að lýðveldinu, sem til varð
upprunalega eftir lieimsstyrj-
öldinni fyrri. Tékkóslóvakar
vilja nefnilega ekki hafa
Þjóðverja innan landamæra
sinna. Þeir viðurkenna að
visu, að duglegt og gott fólk
hafi verið meðal Súdeta, cn
segja jafnframt, að ekki sé
hægt að liafa þá innan landa-
mæranna, þar sem geti gerzt
svikarar á ný eins og 1938.
Hvítu
armböndin.
Þessum þjóðflutningum er
á engan hátt lokið og enn eru
margir Þjóðverjar í Súdeta-
hérunuðum, þótt þeim hafi
fækkað jafnt og þétt síðasta
árið og Tékkum fjölgað þar
•jafnframt. Það er alltaf liægt
að þekkja Þjóðverjana úr.
Þeir eru skyldaðir til" að bera
hvítanborða umannan liand-
legginn — konur sem karlar,
ungir sem gamlir. Þeir eru
líka verr til fara en Tékkarn-
ir og þeir munu fá minna að
eta en aðrir landsmenn.
Reknir eftir
uppskeruna.
Ejölmargir Þjóðverjar eru
enn út um sveitirnar í Siid-
etahéruðunum. Það er hægt
að sjá þá við vinnu á ökrun-
um þar. Þetta fólk fær ekki
að fara strax, þótt það vildi.
Það fær ekki að fara eða er
ekki rekið úr landi, fvrr en
öllum uppskerustörfum er
lokið. Það er skortur á vinnu-
afli af vmsum orsökum og
ein leiðin til þess að vinna
bug á honum er að notast við
Þjóðverjana. Þegar uppsker-
unni er lokið, verða þeir
fluttir yfir landmærin, þar
sem bandamenn taka við
J>eim og reyr.a að koma þeim
einhvernveginn fyrir.
I Karlovy Vaiy.
Súdeta-Þjóðverjarnir eru
auðvitað víðar en í sveitum.
Stærsta borg Súdetalands-
ins, sem við komum í, var
Iíarlsbad. Hún.cr ekki fram-
ar nefnd Karlsbad i Tékkó-
slóvakíu, þxí að hún heitir
á tékknesku Karlovy \rary
og ferðamanninum er réttara
að bregða ekki fvrir sig þýzk-
unni að fyrra bragði. I stríðs-
lokin voru hlutföllin milli
Þjóðvérja og Tékka í borg-
inni eins og 16 á móti 7. Nú
er orðin þessi breyting á, að
Þjóðverjum hefir fækkað um
helmirig, en Tékkum f jölgað
um rúman helming.
Við gatnagerð.
Við höfðum nokkurra
klukkustunda viðdvöl í Karl-
ovv Vary og héldum okkur
mest í miðri borginni. Þar
var á einum stað unnið að
viðgerð á götu, og voru
flestir verkamannanna gaml-
ir menn með hvítan borða
um annan handlegginn. Við
sáum fleiri Þjóðverja. og það
var sameiginlegt með þeim
öllum, að þeir unnu líkam-
lega vinnu og heldur sóða-
lega.
Fluttir til
Rulir.
Talsverður námugröftur er
víða í Súdetahéruðunum og
þó að Tékkar niundu vel
geta notað þýzku námumenn-
ina vilja þeir ekki gera það.
Þeir vilja koma þeim út úr
landinu, svo .að þeir þurfi
ekki að hafa neinar áhyggjur
af þeim framar. Nii er liins-
vegar skortur námumanna i
Rulir, svo að Bretar buðust
til að taka nokkur þúsund
námamanna frá Tékkósló-
vakíu í vinnu þar. Um fimm-
tán þúsund manns verða
fluttir þangað í haust og
ætla Bretar að byggja yfir
þá skála, því að með öðru
móti mundu þeir ekki geta
fengið þak yfir höfuðið.
Tékkar.
Eins og að ofan segir, er
mikill munur á Tékkum og
Þjóðverjum i Tékkóslóvakíu.
Tékkar eiga að vísu við örð-
ugleika að stríða, en þeir eiga
þó landið og ráða sér sjálf-
ir — að svo miklu leyti, sem
nokkur getur ráðið sér sjálf-
ur nú á tímum — en Þjóð-
verjinn sér ekki fram á neitt
nema neyðina um langa
framtíð. Téklcinn er hraust-
legur og liann er allajafna
vel til fara, stúlkurnar í alla
vega litum kjólum eins og
hér heima, málaðar og snyrt-
ar, eins og aldrei hafi verið
stríð eða hernám i landinu.
En Þjóðverjinn er eins og
landshornamaður.
Verzlanir
fullar.
Þegar maður sér hverja
verzlunina af annari fulla af
hvers konar varningi, þá
undrast maður, því að ekki
er nema rúmt ár liðið frá
því að stríðinu lauk og með
því meira en sex ára hernámi
landsins. Það hefir líka orðið
mikil breyting á frá þvi að
Þjóðverjar gáfust upp. Tékk-
neskur blaðamaður, sem ver-
ið hafði erlendis frá því 1939
og kom heim rétt eftir upp-
gjöfina, sagði einum okkar,
að þegar hann hefði komið
heim, liefði ekki verið glæsi-
legt um að litast, því að bók-
staflega ekkert var til af vör-
um í landinu.
Litlar
skemmdir.
En það varð Tékkum til
happs, að skemmdir urðu
hverfandi litlar i landi þeirra.
Borgirnar sluppu að heita má
alveg við loftárásir, bardagar
voru hvergi eins harðir og í
löndunum í kring, því að
Þjóðverjar voru á heljar-
þröminni, þegar leikurinn
barst loks inn i Tékkósló-
vakíu og þvi var hægt að
byrja viðreisnina nærri þeg-
ar í stað. Við sáum ekki riema
eitt eða tvö lnis í Prag, sem
enn báru menjar eftir stríð-
ið. Og þegar Þjóðverjar
voru farnir og ekki þurfti
framar að fara eftir fyrir-
mælum þeirra i framleiðsl-
unni, þá var byrjað að fram-
leiða allan þann varning, sem
þjóðina skorti, bæði handa
sjálfri sér og til að skipta við
aðrar þjóðir.
Matvara er
skömmtuð.
Matvara er skömmtuð, eins
og gefur að skilja og menn
verða að hafa skömmtunar-
seðla viðbúna, þegar borðað
er í veitingahúsum. En
sé kjötskammturinn búinn,
því að nokkurra daga kjöt-
skammtur hverfur ofan í Is-
lending í því sem næst einum
munnbita, þá gerir það ekk-
ert til. Þjónninn kemur með
kjöt handa gestinum, ef hann
lætur í ljós ákveðna ósk um
það og málsverðurinn kostar
nokkurum krónum meira —
nokkurum tékkneskum krón-
um — og sú télckneska gildir
aðeins þrettán íslenzka aura.
Eins og vin
í eyðimörk.
Þegar menn hafa ferðazt
dögum saman um Þýzkaland
og ekki haft annað fyrir aug-
unum en eymd, rústir og ves-
öld, þá er heimsókn í Tékkó-
slóvakíu eins og' að koma í
vin eftir langa eyðimerkur-
ferð. Þarna — i miðri eyði-
mörkinni, sem Mið-Evrópa er
nú — er land og þjóð, sem
geta boðið upp á flest af því,
sem þeir eiga að venjast, er
holskefla styrjaldarinnar hef-
ir ekki fært i kaf með öllu —
og meira af sumu. Svipur
fólksins ber þess vitni, að það
unir vel hag sínum og jafnvel
landslagið virðist bera merki
þess, að íbúarnir hafi fengið
frelsi sitt eftir mörg og löng
þrengingaár og kunni að
færa sér það í nyt.
Eggert Claessen
Gústaf A. Sveinsson
hæstaréttarlögmenn
Oddfellowhúsið. Sími 1171
Allskonar lögfræðistörf.
Ensh
ullarkjólaefni
VERZI.C?
ms.
Ö/bút
- fri&juncjur þjót
(eia da^fega (
augfýit er í f
&lin4ur er
klailauA tnaiur
V\aupiJ> Vísl /
ASKRIFTARSIMI
ER 1660
DWGLIMGA
vantar til að bera blaðið til kaupenda um
RAUÐARÁRHOLT
Talið strax við afgreiðslu blaðsins. Sími 1660.
ÐA GHEAÐtÐ VÍSÍR