Vísir - 25.11.1946, Blaðsíða 4

Vísir - 25.11.1946, Blaðsíða 4
4 WfiSIR DAGBLAÐ Ctgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. Símar 1660 (fimm línur). Lausasala 50 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Sex vikur. f|*ilraunir til stjórnarmyndunar liaí'a staðið yfir í sex * vikur, en kunnugir telja að árangurjnn sé enginn, ■enda lítil líkindi til að þingflpkkunnm takist að mynda s'jprn sameiginlega. Sagari enduriekur sig. Sama neyðarbashð var við Jýði á Alþingi árið 1942. l>ing- mu tókst ,)á ekki að mynda stjórn og ríkissljórinn varð þá að grípa til þess ráðs að mynda stjórn utan þings. tit af þessu varð nokkur senna. I>ingmenn !«>idu stjórn- ina „óþingræðislega“, sem vitanlega var viilevsa og hug- takaruglingur. Hitt var annað mál, að slík stjórn sannaði átakanlega að Alþingi var óstarfhæft og var því úl af fyrir í>ig ekki óeðlilegt að amast væri við stjórninpi af þing- flokkunum eða forystu þeirra. Núverandi ríkisstjórn virðist hafa verið mynduð til þess lyrst og fremst að ráðstafa erlendum innistæðum þjóðar- jnnar og er það ekki amalegt verkefni, og ekki ólíklegt til að afla vinsælda. Því verkefni er iokið, en þá er komið að vandamálum lieima fyrir. Um latisn þeirra höfðu stjórnar- t iokkarnir engan samning gert. Árið 1942 var öllum Ijóst iið ráðslafanir vrði að gera gegn vaxandi verðþenslu. Utan- þingstjóiuiin hafði það mál á stpfnuskrá sinni, en tókst ekki að tryggja sér fylgi þingflokkanna til að koma málinu fram. Var óhægt um aðgerðir, söluim j)ess sérstaklega að lýðveldisstofnunin stóð fyrir dynim og gat þingrof |)á ckki komið til greina vegna annarra ágreiningsmála. Er lausn liafði fengist á því vandamáli har ríkisstjórnin fram frum- varp, varðandi dýrtíðarmálin en þingflokkarnir höfðu ])á loks komið sér saman um stjórnarmyndun og náði þá frum- varpið að sjálfsögðu ekki samþykki. Nú stendur ríkisstjórnin í sömu sporum og utanþings- stjórnin gerði áríð 1944, og hún virðist engin frekari skil- yrði hafa til að leysa dýrtíðarmálin, þótt þrír flokkar hafi veitt henni brautargengi. Vegna lausnar dýrtíðarmálanna hefur stjórnin neyðst lil að segja af sér, en henni hefur verið falið að starfa áfram, þar til önnur stjórn verður mynduð. Tólf manna nefnd hefur reynt að miðla málum milli þingflokkanna og efna til stjórnarmyndunar, en svo virðist, scm nefndin hafi starfað með liangandi hendi og xé cngu nær um árangur. Forsetinn hpfur vcitt nefndinni irest í sex vikur og er lítl skiljanlegt að um frekari frest geti orðið að ræða. Þrátt fyrir ákveðin tilmæli forsetans hefur nefndin enga viðleitni sýnt til að luaða störfum og <er slíkt að sjálfsögðu óviðunandi. Er forsetinn veilti nefndinni síðasta frestinn, lét hann jafnframt í það skína, að hann myndi neyðast til að grípa lil annarra ráða, ef þingflokkarnir hirtu ekki um að hraða málinu. Nú er ljóst að forsetinn getur ýmsar leiðir farið og óvist hvaða leið hann velur. Gefur slíkt* ásland ekki efni lil, að íhugað verði hvort ckki sé ástæða til að auka vald forsetans allverulega, þamiig að afstaða haps verði sterk- ari en nú er, gagnvart þinginu? Samþykkt nýrra stjórn- skipunarlaga stendur fyrir dyrum. I uppliafi var ætlunin nð hraða málinu, en á þvi hefur orðið dráttur. Getur verið heppilegt að fá nokkra rcynzlu áður en ný stjórnskipunar- lög verða sett, einkum er sú staðrcynd er fyrir hcndi, að Aljiingi getur hvcnær sem er reynzt óstarfhæft, svo sem það virðist vera nú, takist því ekki að mynda stjórn, sem nýtur öruggs þingmeirihluta og getur ráðið fram úr að- kallandi vandamáfum í skjóli þess liðstyrks. Dráttur sá, sem orðið hefur á myndun ríkisstjórnar er anerjandi með öllu. Framundan er mesti annatími ársins, vertíðin hér á Suðurlandi, en útvegsmenn standa uppi sdgjörlega ráðalausir. Þeir gela ckki haldið flotanum úti sið öllu óhreyttu. Þeir geta engar ráðstáfanir gert til j)ess að tryggja sér skipshafnir fyrr en vitað er hvort útgerð verður haldið uppi, og ekki lakið á sig neinar verulegar skuldþindingar aðrar varðandi vertíðina. Þetta er svo baga- legt að engu máli tekur, en ætli þingflokkar og ríkisstjórn sér ékki að leiða heinlínis hriiii yfir þjóðarbúið, verður að íeysa þetta mál tafarlaust. VlSIR Mánudaginn 25. nóvember 1946 Þrjátíu ára afmæli Karia- kórsins Fóstbræður. Karlakórinn Fóstbræður átti 30 ára afmæli síðastlið- inn laugardag. Áður liét kórinn Karlakór Iv.F.U.M. Hornsteinninn að þessum kór var eiginlega lagður, þegar stofnaður var karlakór innan K.F.U.M., sem starfa átti eingöngu innau þess félags. Lagðist starf- semi liáns niður um liríð yegna þess að söngstjóra vantaði. Siðar var kórinn endurskipulagður, þar sem Jón Halldórsson hafði fengist sem söngsljóri, og hefir hann verið söngsljóri kórsins sið- an 1916 og unnið ómetanlegt slarf i þágu lians. Fvrsti opinheri samsöngur kórsins var í Bárunni 25. marz 1917. Söngmenn kórs- ins voru þá 20. Árið 1926 fór kórinn í söngför til Norpgs, 1929 fór blandaður kór til Danmerkur í boði Dansk Korforbund og lagði Karla- kór K.F.U.M. til raddir í þennan kór að öllu leyti. Tveim árum síðar fór kórinn aftur til Danmerkur í hoði karlakórsins Bel Ganto. 1930 söng kórinn sjálfstætt og i blönduðum kór. Síðastliðið sumar gekkst S.I.K. fyrir söngför karla- kórs um Norðurlönd, sem myiulaður var af söngmönn- um úr „Fx)stbræðrum“ og „Gevsir‘% en söugstjórar voru Jón Halldórsson og Ingimundur Árpason. Aulc scmgstjóra hafa fhnm félagar kórsins starfað í 30 ár. Þeir eru: Guðnnindur Ól- afsson, Halldór Þorleifsson, Ilelgi Sigurðsson, Jón Guð- mundsson og Sæmundur Bunólfsson. í kórnum pru nú 47 menn. Núverandi stjórn kói*sins er þannig skipuð: Formaður Sigurður Waage, Holgeir Gislason ritari og Friðrik Eyfjöpð, gjaldkeri. SÍBS berast gjafir og áheit. Eftirtaldar gjafir og* áheit hafa borizt til S.I.B.S. und- anf arið: Gjafir: Frá S. S. kr. ÍOO.(X), Guðm. Ólafssyni HKt.OO, Guðjóni Jónssyni 50.00, Ágústu F'r. Guðmimdssyni 240.00, N. N. 100.00, N. N. 100.00, Stein- unni Briem 50.(K), Tbppdpru Sigurjónsdóttur 75.00, N. N. 80.00, Önefnduin gestum,afh. Vinnuheimilinu 100.00, Slös- uðum manni 100.00, Ónefnd- um 100.00, Borgfirzkum kon- um á ferðalagi 500.00, Þóru frá Hrólfsskála 100.00, Inga B. Helgasyni 42.90, Gísla Sigurbjörnssyni 100.00, N. N. 1000.00, Þormóði Jónssyni, Kópavogshæli, afh. af séra Sigurb. Á. Gíslasyni 40.00, Sigurgeiri Jónssyni, Munað- arnesi 50.00, í minningu mn Guðrúnu Magnúsdóttur frá Ilalakoti, frá gömlum kunn- ingja 500.00, Áheit: Frá mömniu ,1. K. 250.00, Gunnari Jóliannessyni 200.00, H. K. 100.00, B. J. 400.00, ónefndri kpnu, Iírútafirði 50.00, SöfnunarliSti frá hygging- arliðinu og heimilisfólkinu við gistihússbygginguna að Fornalivammi árið 1946 550. 00. Ennfremur hárust margar góðar gjafir á herklavarna- daginn. Skrifstofa S.Í.B.S. þakkar öllum þeim, er með gjöfum og áheitum liafa stuðlað að l)yggingu Vinnuheimilisins að Reykjalundi. Kl. 8 í gærkveldi var slökkviliðið kallað að Tri- polikamp. Yar kviknað þar i varð- turni, sem er skamnjt frá Loft- skeylastpððinni við Melaveg. Var þar lim lítinn eld að ræða og varð hann fljótlega stpkktur. BERGMÁL Sannindin seinlærð. ,,Geir“ skrifar eftirfarandi pistil: „Það er eftirtektarvcrt að stundum hefir þurft langan tíma, til þess aö nienn lærðu hin einföldustu sannindi. T. d. má nefna aö herveldin notfærðu sér nú betur, í siðustu styrjöld, að einbeita öllum deildum hers- ins að sama marki. Þetta gerði það að verkum að styrjöldin varð styttri en ella og enn- freniur að mikjll sparnaður varð á mamislífum og hergpgn- um. óháðar deildir. Áður störfuðu hinar ýmsu deildir, landlier, fluglier, floti o. s. frv. meira útáf fyrir sig, eins og kunnugt er. Eflaust hafa margir vitað fyrr að þetta fyrir- komulag var til mikils baga, þó að langan tíma þyrfti til að fá herdeildiruar til þess aö starfa saman að sameiginlegu marki. En þetta greinarkorn á ekki að vera um styrjöld eða heri, helcliir um eitt atriði af ntiirg- um, sem illa er á haldið og velclur töfum á fullkomnun og fegrun okkar ágæta bæjar, vegna skipulagsleysis og ó- hagsýni. Reykjavík — stórborg. Nú er íhikið staríað hér í bæ. — Heil hverfi rísa ttpp. Má með nokkrtun sannindum segja að við Reykvíkingar gerunt okkur vart grein fyrir, að bær- inu okkar er að verða stórborg, og veldur það ýmsu. Alltaf vantar menn, ef eitthvað þarf að fá unnið, og veröa því oft tafir á mannvirkjunt, sem Ijúka þarf hið bráðasta. Nýting vinnuaflsins. í santbandi viö þetta hlýtur sú spttrning að vakna, hvort ekki sé hægt að nýta vinnuaflið bctur en raun er á. Hér skal vikið nokkuð að einu atriði, þ. e. gatnagerð bæjarins. Margar erti þær gptur sem bierinn legg- ur —- stræti hinna glæsilegu en dýru hverfa, sem þjóta upp allt i kringttm gamla bæinn. En seint virðist ganga að koma þeim í lag. Fjöldi manna vinnur að þess.it, en skipulagið viröist harla lítið. Sýnist svo sent spara mætti hæði fé og vinnuafl, ef betur væri á haldið. Gröftuv á gröf : ofan. Þegar ný gata er lögð, er venjulega byrjað á aö leggja skolp- og vatnsleiðslur, síðan er. ekið pfaníburði, eins og gatan á að liggja. Þá koma rafmagns- menn, til þess að grafa fyrir rafmagninu, svo símamenn til ao grafa fyrir .sítna, siðan kopta nieim, frá hitaveitunni. Ofan á allt þetta bætist svo hinn sj- cndurtekni gröftnr hcint að hverjtt húsi, því að svo undar- lega vill til að öll hús þurfa vatn, rafmagn, sínia, hitaveitu o. þ. h. Löngu siðar er svo far- ið að leggja gangstéttir og mal- bika götuna. Dæmi frá Flókagötu, Þetta vitum við allir, já, og við vitum meira. Við vitum að allir þeir aðilar sent að gatna- gerð staría, vinna útaf fyrir sig, án aljrar samvinnu. — iiér er pottur brotinn, eitts og þar stendur. Liggur ekki í augum uppi að bcr má ráða bót á til sparnaðar og þæginda íyrir alla ? Eg' bjó í fyrra' við Fióka- götu ofanverða, og f jórum sinn- um var grafið heim að húsm;i á stut.tum tiina. Nú bý eg vestur i Kaplaskjóli, og þar er saina sagan að endurtaka sig. Alltaf konta nýir og nýir ntenn td. a'ð grafa og grafa. Sýnið hagsýni Hér þarl’ engu við rYo ba.ta. — Hver sem hugsar um þetta, hlýtur að sjá, að þetta og því- likt má ekki viðgangast. Að- eins þetta: Takið nú hóndnm santan, góðir hálsar (hér cr átt við þá hálsa seni uin þetta mál fjalla) og vinni'ð saman að því að hýgg'j'á Stæti og torg eins og tuttugustu ajdar tslcndir.g- tim sætnir.“ ... .

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.