Vísir - 11.12.1946, Page 7

Vísir - 11.12.1946, Page 7
Miðvikudaginn 11. desombér 1946 VlSIR % ' ■' \ '.JV- . •]d .> :.5g. €ermelshan§en JJreJrick (jerstacher séð hana, en hún ekki til hans. Hann gekk eftir lækjar- bökkunum og er hann var kominn út úr elritrjáaþykkn- inu á bakkanum, og ekkert huldi hann lengur sjónum hennar, kom hún hlaupandi á móti honum, með gleðióp á vörunum. Arnold, en svo nefndist hinn ungi listmálari, stóð agndofa, og varð honum þeg- ar ljóst, að hin fagra, unga mær, varla seytján ára, klædd sérkennilegum þjóðbúningi en fallegum, hljóp til hans með útbreiddan faðminn. Arnold þóttist viss um, sem eðlilegt var, að liún tæki hann fyrir einhvern annan, og þóttist því vita, að það var einhver annar, sem hún fagnaði yfir, að nú væri að koma. Og undir eins og stúlkan sá að hann var ekki sá, sem hún átti von á, stóð hún og starði á hann sem tröll á heiðrikju, eins og grip- in hrolíi, liún fölnaði og roðn- aði á víxl, og loks sagði hún all vandræðalega: „Þér megið ekki taka það illa upp fyrir mér, ferðamað- ur, en eg hélt ___“ „Að eg væri unnusti yðar, barnið gott,“ sagði Arnold hlæjandi. „Og nú eruð þér dálitið vandræðaleg, af því *rað það reyndist allt annar inaður, sem var að koma, maður sem yður stendur al- veg á sama um. Reiðist ekki, vegna þess, að eg er ekki hann.“ „Hvernig getur yður dottið i hug að segja þetta,“ hvislaði stúlkan örvæntingarlega. „Hvers vegna skyldi eg vera reið, 9, ef þér vissuð hversu sterk fagnaðarkend hafði gripið mig.“ „Þá á hann það alls ekki skilið, að þér biðið lengur ef t- ir honum,“ sagði Arnold, sem nú fyrst veitti fulla eftir- sveitamær, sem bar af sér hinn bezta þokka. „Ef eg hefði verið í hans sporum hefði eg ekki látið yður bíða eftir mér eitt andartak.“ „Þér mælið einkennilega,“ sagi mærin. „Ef hann hefði getað komið, væri hann vissu-. Iega kominn hirigað. Kann-1 ske hann sé veikur — eða kannske ekki Iengur í lifenda tölu,“ bætti hún við lægra og mjög hægt, og andvarpaði um leið frá grunni hjartans „Og hefir hann ekkert lát- ið frá sér heyra í langa tíð?“ „Nei, og biðin er orðin óra löng.“ „Kannske heimili hans sé þá í mikilli fjarlægð héðan?“ „í mikilli fjarlægð. Æ, já, það er alllangt héðan,“ sagði mærin. „Hann á lieima í Bischofsroda.“ „í Bischofsroda,“ kallaði Arnold. „Eg var þár næstum mánuð fyrir skömmu og eg þekki hvert mannsbarn i þorpinu. Hvað hét hann?“ „Heinrich — Heinrich Vollgut, og hann er sonur borgarstj órans.“ „Hm,“ sagði Arnold hugsi á svip, „eg var daglegur lieimagangur i húsi borgar- stjórans, en hann lieitir Báuerling, að því er eg bezt veit og eg man ekki eftir að hafa heyrt nafnið Volgut þarna í þorpinu.“ „Kannske þér hafið ekki þekkt alla þorpsbúa,“ sagði stúlkan og roðnaði lítið eitt og veikt bros lék um andlit hennar, en hún var næsta sorgbitiri á svip, og naut feg- urð hennar sín betur i ljóma brossins. „En meðal annara orða,“ sagði piturinn, „það er ekki löng leið héðan yfir fjöllin til Bischopsroda, það getur ekki verið nema tvggja klukkustunda gangur, í mesta lagi þriggja.“ „Og samt hefir hann ekki komið aftur,“ sagði stúlkan og andvarpaði, „þótt hann lofaði mér hátiðlega að hann skyldi koma aftur.“ „Þá er enginn vafi á þvi, að hann kemur,“ sagði Arn- old af hjartans saimfæringu, „því að hver sá, er sviki það heit, sem hann hefir gefið yður, hlýtur að hafa hjarta úr steini. Og eg er sannfærð- ur um, að hann Heinrich er ekki þannig gerður.“ „Nei,“ svaraði hún ákveð- in, „en nú get eg ekki beðið hans lengur, því að pabbi ávítar mig, verði eg ekki komin heim í tæka tíð til miðdegisverðar.“ „Og hvar eigið þér heima?“ „Þarna niður frá, beint af augum, í dalnum. Heyr, nú hljóma klukkurnar. Fólkið er að koma úr kirkjunni.“ Arnold lagði við hlustimar og heyrði, að Idukku var hringt, í eigi mikilli f jarlægð, en hljómur klukkunnar átti ekki magn og dýpt og sam- ræmi, hann var annarlegur, hvass, skerandi, og er hann leit í áttina þangað, sem honum heyrðist hljómurinn koma frá, sýndist honum mistur livíla yfir þessum hluta landsins. „Klukkan ykkar hlýtur að vera sprungin,“ sagði liann, „hljómurinn liefir sömu á- hrif og þegar falskir tónar berast að eyra.“ „Já, eg veit það,“ sagði stúlkan og lét sér ekki bregða, „hún hefir ekki viðfeldinn hljórn, og við hefðum átt að láta steypa hana upp fyrir löngu, en það er eins og við höfum aldrei tirna eða fé, en í hópi okkar eru engir klukkusmiðir. En hverju skiptir þetta? Við vitum þetta vel og vitum hvaða boðskap I«l. „Norræn jól“ — rit Nor- ræna félagsins á Islandi — kemur út næstu daga fjöl- breytt að efni og vandað að frágangi. Helzta efni ritsins að þessu sinni er m. a. grein eftir síra Bjarna Jónsson, er hann nefnir Frá myrkrinu til ljóss- ins og fjallar um breytingu þá, sem orðið hefir á Norð- urlöndum við endalok styrj- aldarinnar. Maj Lis Holmberg skrifar um jól og jólasiði í Finnlandi og fylgja þeirri grein all- margar Ijósmyndir og teikn- ingar. Höfundurinn er finnskur kven-stúdent, sem kom til íslands i fyrrasumar og hefir síðan skrifað fjöl- margar skemmtilegar grein- ar um ísland i finnsk blöð. Guðlaugur Rósinkranz skrifar um norræna heimilið við Þingvallavatn og fylgir útlitsuppdráttur af fyrirhug- aðri byggingu. Guðm. G. Hagalin skrifar langa og ítarlega grein um norrænar bókmenntir og bókmenntastefnur. Fjöldi mynda er í greininni af nor- rænum höfundum. Dr. Sigurður Þórarinsson' skrifar ferðasögu rnennta- skólastúdenta .til Norður- landa á s. 1. sumri. Greinin er með myndum. Dr. Björn Sigfússon ritar um mót norrænna bóka- varða, sem lialdið var í Stokkhólini í sumar. Tvær smásögur eru i rit- inu. Önnur eftir liinn þekkta norska liöfund, Arnulf Överland, hin eftir ungan danskan liöfund, Thisted að nafni. Auk þess eru svo heilsíðu- myndir af bústöðum þjóð- höfðingja allra Norurland- anna, fréttir og myndafrétt- ir. Kápumynd — sein er í lit- um — teiknaði Tryggvi Magnússon og er hún for- kunnar falleg. ÍQ£ JS »4 C PAUTG ERO ^iHISINS SÚÐIN I ‘ ‘ | . Hraðferð vestur um lánd til Akureyrar 16. þ: m. Vöru-. móttaka í dag og á morgun til Paíreksfjarðar, Bildudals, Isafjarðar, Siglufjarðar og Akureyrar. Einnig verður vörumóttaka sömu daga í skip til Djúpavíkur Hólma- víkur og Skagastrandar, Pantaðir farseðlar óskast sóttir í dag. Kjólaúrvalið Aldrej meira en nú. Kjólabuðin, Bergþórugötu 2. Húspláss til leign. Öinnréttuð þakhæð tii Ieigu í Kleppsholti. Sá, sem getur lagt fram peninga gotur byggt sér íbúð með sanngjarnri leigu frá 14. maí 1947. Tilboð merkt: „3 her- bergi og eldhús, leggist inn á afgr. blaðsins fyrir 15. þ. máu. Eggert Claessen Gústaf A. Sveinsson hæstaréttarlögmenn- Oddfellowhúsið. Sími 1171 Allskonar lögfræðistörf. Krossgátublaðið er bezta dægradvölin. BEZT AÐ AUGLYSAIVISI FCopr. Rlf« SwmutM. [Distr. by Unitcd Featurc Syndlcáte, tntjg Því miður fór svo, að Don trúði fuli- komlega öllum þessum ósannindum Jakes. Don var auðvitað mjðg sorg- masddur út^af fréttinni. Hann fór að hjálpa Jake með netin, «... . • ■, sem aparnir skyldu veiddir i. „Það má ekki minna vera en áð við uppfylluin siðustu ósk Chris gamlaj sagði Don. En Tina vár mjög þrungin og hraðaði sér þangað, scm hinn sorglcgi atburður hafði átt staðí- ■■ '■ Toglat skundaði á lyktina af hinum ókunna gorillaapa, og þá kom hann þár áð. sem Chris lá meðvitundarlaus grjóilirúgunni, en skriðan hafði ri tíulið Chris alveg. £ /2 SuwcuqkAi Þetta var auðvitað heldur furðuleg sjón fyrir Toglat, og hann var ekki svo skynugur, að hann áttaði sig á að þarna var maður i lifshættu. En svo sem öpum er eiginlegt, var hann íorvitinn. <

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.