Vísir - 09.08.1950, Page 4

Vísir - 09.08.1950, Page 4
% V 1 S I R WISIK. D A G B L A Ð Gtgefandi: BLAÐAGTGÁFAN VlSlH . Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson Skrifstofa Austurstræti 7 Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. Símar 1660 (fimm llnur). Lausasala 60 aurar. Félagsprentsmiðjan b.f. Sfldarvertíðin. élegur aflí hefur verið það, sem af er síldarvertíð. Nokkuð á þriðja hundrað skip stunda veiðarnar og eru þau stór og smá. Talið er að um síðustu helgi haíi xösklega fimmtíu skip aflað eitt þúsund mál sildar eða þar yfir, en öll skipin hafa fengið einhvern afla. Verðlag á síld cr nú mjög hátt, en gera verður ráð fyrir að hvert skip verði að afla um 4000 mál til þess að útgerðin sleppi skaðlaus, en nokkuð kann þetta að vei-a misjafnt, þótt þetta magn sé nærri meðallagi. Saltað hefur verið í um 30.000 tunnur, en nokkuð á þriðja liundrað þúsund hekto- Mlrar síldar liafa verið teknir til vinnslu í verksmiðjum. Er Raufarhafnarverksmiðjan þar langsamlega hæst, en þvínæst koma verksmiðjur á Siglufirði og við Eyjafjörð, en til sildarverksmiðjanna við Húnaflóa hefur engin sild korizt. Samkvæmt ofansögðu verður ekki annað sagt, en að horfur séu kvíðvænlegar. Varðandi afurðasöluna er það að segja, að verðlag á ]ýsi fer hækkandi um þessar mundir, enda eru likindi til að vígbúnaður sá, sem nú hefur verið efnt til, kunni að skapa enn hærra verðlag. Reynslan sannar að verðbólga fylgir ávallt í kjölfar aukins vigbúnaðar, en af verðbólg- unni erlendis leiðir hækkað vöruverð, einnig á innflutt- nm vörum á hlutaðeigandi markað. Líldndi eru einnig til, að íslenzkar sjávarafurðir verði auðseljanlegri, ef að lier- væðingu stórþjóðanna rekur, en á því verða engar vonir byggðar, lieldur vona menn miklu frekar að ófriðarhættan líði hjá og vari í minningunni eins og vondur draumur. Gjaldeyrisskortur þjóðarinnar hefur aldrei verið tilfinnan- legri en nú, og bregðist sildaraflinn á þessari vcrtíð eru horfurnar þungbærar. Veit þetta ekki einvörðungu að að- stöðunni út á við, lieldur leiða af þessu mestu erfiðleikar hér heima fyrir. Flestir útvegsmenn standa liöllum fæti íjárhagslega og eru háðir bönkum og lánsstofnunum, sem eiga fé sill allt í útlánum, auk alls sparifjár landsmanna, en af vanskilum útvegsmanna leiðir að láiístofnanir hljóta að verða fyrir alvarlegum skakkaföllum. Allt bitnar þetta svo að lokum á þjóðarlieildinni. Venjuleg síldarvertið varir til ágústloka, eða allt fram undir miðjan september þegar bezt lætur. Síldveiðiskipin hættu veiðum í fyrra í seinna lagi, en siðustu skip, sem veiðarnar stunduðu öfluðu ágætlega, eftir að allur þorri flotans var horfinn af miðunum. Duglegur og fyrirhyggju- samur skipstjóri hafði ekki trú á því, að síldin væri með öllu þorrinn, og svo fóru leikar að hann lenti í aflahrotu, sem bjargaði við afkomu útvegs hans og gerði hana arð- bæra. Þótt nokkuð sé liðið á vertíðina er ekki ástæða til að örvænta. Aflinn er skjóttekinn, ef síldin lætur sjá sig að nokkru ráði. Þess eru dæmi að skip hafa aflað 10.000— 20.000 mál á rösklega hálfum mánuði. Komi slík aflahrota fer allt að óskum og við skulum vona í lengstu lög að sú verði raunin . 1 fimm ár hafa síldveiðarnar brugðist tilfinnanlega, en af því mæltum við læra. I þjóðarbúskapnum tjóar elcki a.ð tefla á tæpasta vað, þannig að öll afkoma og fjárliags- legt sjálfstæði þjóðarinnar velti á síldarbröndunum, scm eru dutlungafyllri en sjálfar höfuðskepnurnar. Þjóðin þyrfti að eiga gjaldeyri að staðaldri til hálfs eða eins árs, þannig að afkoma hennar mætti hcita tryggð, þólt út af bæri, en auðvitað væri öryggi hennar því meira, því mciri gjaldcyri, sem hún hefði yfir að ráða á hverjum tíma. Hér hefur hinsvegar sá háttur verið á hafður, að gert hefur verið ráð fyrir stórfelldum gjaldeyristekjum, — þeiin ■gjaldeyri hefur svo verið ráðstafað fyrirfram cn þegar eggjakonu i’áðagerðin hefur hrugðizt, hefur orðið að grípa til niðurskurðar á innflutningi, en af því hefur leitt los og öryggisleysi fyrir allan atvinnurekstur og framkvæmdir i landinu. Síldin getur enn sem fyrr bjargað mililu, en þótt svo reynist, ættum við að liafa eitthvað lært af dýr- iieyptri reynslu liðinna ára. íslendingum boðið að senda íslenzk listaverk á yfirtós- sýningu Norðurlandaþjóða Oslo. í Eins og kunnugt er fékk ríkisstjórnin á s. 1. vori boð frá stjórn Félags norskra myndlistarmanna, „Bildende kunstneres styre“, um að ís- lenzka stjórnin gengist fyrir því, að send yrðu íslenzk listaverk til Óslóar til sýn- ingar þar. Yrði þetta hin 4. yfirlits- sýning frá Norðurlandaþjóð- unum, sem haldin er í Ósló, en yfirlitssýningar frá hinum Norðurlandaþj óðunum þrem, Dönum, Svíum og Finnum, hafa þegar verið haldnar þar fyrir opinbera tilhlutun á undanförnum árum, sín sýn- ingin hvert árið. Ríkisstjórnin fól Mennta- málaráði að annast undirbún- ing þessarar íslenzku sýning- ar, og hefir ráðið átt við- ræður við stjórn norska myndlistarmannafélagsins og stjórn Félags ísl. myndlistar- manna til undirbúnings máli þessu. Frá norskum listamönn- um, væntanlegri forstöðu- nefnd sýningarinnar, hafa komið fram eindregnar ósk- ir um, að hin íslenzka sýn- ing yrði opnuð í janúarlok, og er ætlazt til, að hún standi yfir í rúman mánuð. Það er ósk þeirra, sem boð- ið hafa til sýningarinnar, að þessi íslenzka sýnjng, cins og liinar sýningarnar, hin danska, sænska og finnska, verði sem gleggst yfirlits- sýning um íslenzka myndlist frá aldamótum og fram á þennan dag. J En til þess að svo megi takast, þarf væntanlega dómnefnd sýningarinnar að hafa rúman tíma til að vinna verk sitt. Þvi má búast við, að þau listaverk, yngri og eldri, sem koma eiga til álits væntanlegrar dómnefndar, verði að vera lcomin til lienn- ar í byrjun október. — Að sjálfsögðu verður öllum lista- mönnum gefinn kostur á að senda verlc sín til dómnefnd- arinnar. Miðvikudaginn 9. ágúst 1950 kaupstöðum eyjanna, Thors havn, Trangisvaag, Klakks- vík og Vestmanna og var á- gætlega sótt. Var myndinni mjög vel tekið í Færeyjum og sýna blaðadómar, að Fær- eyingar hafa haft gaman af sýningunum. „Síðasti bærinn í dalnum“ er vafalaust fyrsta íslenzka kvikmyndin, sem sýnd hefir verið í Færeyjum, aö frátek- inni Látrabjargsmynd SVFÍ. Síðasti bærínn sýndur 100 sinnum. Um pessar mundir er ver- ið að sýna kvikmynd Óskars Gíslasonar, „Síðasti bœriniz í dalnum“, á Norður- og Austurlandi, en áður var bú ið að sýna myndina á Vest- fjörðum. Óskar Gíslason tjáði Víst, að myndin hefði nú verið sýnd um 100 sinnum alls, hér á landi og í Færyejum, og hafa vafalaust um 40 þús und manns séð hana til þessa. Óskar brá sér til Færeyja í sumarleyfisför meö konu sinni, sem er færeysk og sýndi þá myndina um leið. Var myndin sýnd 1 helztu Samið um áburðarverk- smiðju á íslandi. Landbúnaðarráðuneytiö hefir falið Vilhjálmi Þór, forstjóra, að hafa meö hönd- um, í samráði við ríkisstjórn ina, sendiráð íslands í Wash ington og París og stjórn áburðarverksmiöjunnar, frekari undirbúning og við- ræður við Organization for European Economic Coopera tion Administration í Wash- ington og fulltrúa þessarar stofnunar í Reykjavík, varð- andi nauösynleg meðmæii og samþykki þessara aöila til veitingar fjárframlaga til byggingar væntanlegrar á- burðarverksmiðju hér á landi. Vilhjálmur Þór fer utan í þessari viku til að vinna að þessu máli. Landbúnaðarmálaráðu- neytið, 8. ágúst 1950. BUmabáí'm GARÐUR Gsr&Avtrwti 2 Sim* * 72ÖO. i B Eg vona, að forstjóri Strætisvagna Reykjavíkur vilji svara þeirri spurningu minni hvort ætlast sé til þess, aS Lögbergsvagninn taki ekki farþega, þegar hann er kominn { bæinn, til dæmis frá Vatnsþró og nið- ur á Lækjartorg. Eg skal gefa svolitla skýr- ingu á því, hvers vegna eg spyr. Eg var staddur á vi'ö- komustað strætisvagnanna við Aratnsþró io—15 mínútum fyrir ellefu á laúgardagsinorgun- Var eg búinn að bíða í nokkurar mínútur eftir ferð niöur i bæ, þegar Logbergsvagninn bar aíi. Farþegum var hleyþt út úr honum og þegar því var lokiíS, gekk eg upp í hann og tók upp peninga mína til þess að greiöa fargjaldið. Nú haíði eg séö menn vera gerða afturreka úr Lögbergsvagni á þessum við- komustað, en þá var vagninn alveg fullur, svo að það gat ver- iS eðlilegt, að bílstjórinn vildi ekki auka þrengslin. * En í þetta skipti var ekki GMÁL ♦ því að heií' i, þvf - 3 vagninn var ekki hálííuliur, setið í flestum sætum ao vísu, en fáir standandi. Eg vildi þó hafa vaðið fyrir neðan mig og spurði í auðmýkt minni, hvort eg gæti fengið far — ekki var frekjunni fyrir að fara- Mér kemur heldur ekki til hugár að ásaka ökumanninu mn frekju, siður eu svo. En honum var eitthvað „tregt tungu að hræra“, því að eg varö að endurtaka spurningu míria, liálfu auðmýkri en áöur og spuröi nú, hvort hann gerði ekki undántekningu. Þá leit ökuþór á mig með mestu ró- semd, virti mig fyrir sér, livar eg stóð með féð í hendinni og mælti: „Ætil þaö komi ekki annar vágn á eftir — eg er dá- Íítið að flýta mér!“ Eg reyndi ’ekki að mótmæla því, aö ann- ar vagri mundi korna, þv.í að mér skilst, að þeir gangi til miönættis og enn voru rúmar fjórtán stundir til þess =1= Eg sagði aðeins 1 hógværð minni, að eg gerði ekki ráð fyrir því, að af mér mundi verða mikil töf, því að þarna var eg kominn upp í vagn- inn og með peningana reiðu- búna- En eg lét undan síga, því að eg stæli ekki við menn, sem „eru að flýta sér‘:. * Vagnstjórinn var ekki aö spyrja um það, hvort eg væri að flýta mér — það virtist ekki hvarfla aö honum, að hags- munir okkar gætu farið sam- an — við værum báðir að flýta okkur- Já, eg lét undan og fór út úr bifreiðinni, því að eg er jú bara einn af borgurum Jiessa bæjar, sem verð að greiða hall- ann af strætisvögnunum, ef tap vcrður á þeim — til dæmis, ef vdgnstjórar fá eklci „að flýta sér“- Jæja, sögu minni lýkur meö því, að hraöíerðarvagn bar næst að þarna við Vatns- þróna og eg fékk að fljóta meö, þótt ökumaöurinn hafi áreiðan- lega átt að ílýta sér- Og nú langar mig til að biöja forstjór- ann að svara. spurninguni, sem eg bar fram í upphafi — en fljótt, því eg er að fara i sum- arfrí.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.