Vísir - 19.05.1952, Page 4
Mánudaginn 19. maí 1952
DAGBLAÐ
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur Ingólfsstrasti 3.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm línur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Flokksagi e&a skoianafrelsi.
TT'inræðisstefnur þær, sem uppi eru eða hafa verið í heim-
inum hafa leitt til þess á síðustu árum, að starfsemi lýð-
ræðisflokkanna hefur færst í annað og verra horf en áður var.
í sjálfsvörn hafa flokkar þessir tekið upp flokksaga innan
sinna vébanda, sem í því felst að mönnum er gert skylt áð
hlýða flokkssamþykktum, að viðlögðum afarkostum, ef út af
er brugðið. Flokkssamþykktum cr VcnjuicBa nagað að vilja
eins eða fleiri manna, sem með völd fara í hlutaðeigandi lýð-
ræðisflokki hverju sinni, og engin trygging er fyrir því, að
þær séu hyggilegar eða verjanlegar gegn gagnrýni heilbrigðrar
skynsemi.
Þeir menn, sem með trúnaðarstörf fara í flokkunum, og þá
ekki sízt þeir, sem valdir hafa verið til sóknar og varnar í blaða-
mennsku eða á mannfundum, geta ekki bundist flokksaganum
skilyrðislaust, þannig að þeir gerist málsvarar þess, sem þeir
telja sjálfir rangt, spillt eða óheilt. Þessa menn getur einnig
greint á við flokkinn um beitingu flokksagans, sem vitanlega
hlýtur að miðast við hagsmunamál hans, en ekki utangátta-
sjónarmið, sem lítil eða engin áhrif hafa á stefnu hans eða
starfsemi. Ágreiningur um beitingu flokksagans eða sérstaða
einstaklinga í vandamálum, — sem ekki eru bein stefnumál
flokksins, —- geta ekki leitt fyrirfram til dómsáfellis þeirra,
sem atkvæðum kunna síðar að verða bornir. Flokksaginn er
einkamál hlutaðeigandi samtaka, sem á að beita og útkljá
innan þeirra, en hvorki í blöðum né á almennum mannamótum,
sem ekki eru á vegum flokksins.
Æsingastarfsemi í sambandi við forsetakjör það, sem fyrir
höndum er, getur tæpast leitt til farsælla lykta, enda eðlilegt
og sjálfsagt að þar hagi hvér einstaklingur atkvæði sínu eftir
því, sem hann telur þjóðinni henta og vel getur verið í fullu
samræmi við vilja flokksstjórnanna. Þeim mun minni ástæða
er til slíkra æsinga manna á meðal, sem allir þeir menn, sem
í kjöri verða eru menn ágætir og munu vafalaust rækja störf
sín samvizkusamlega. Athyglivert er í þessu sambandi að
tíðast eru það grunnhyggnustu og nasbráðustu þusararnir, sem
hæst hafa um brot einstaklinga á flokksaganum, þótt flokks-
stjórnirnar sjálfar ræði málin af skynsemi og rökum eða hleypi-
dómaleysi. í sambandi við forsetakjörið er hyggilegast að klæði
séu borin á vopnin. „Kalt höfuð“ ræður tíðast hyggilegri úr-
lausn en heitar tilfinningar.
fslendingahús erlendis.
TT'lestar norrænar þjóðir hafa keppt að því að eignast bæki-
stöðvar í stórborgum meginlandsins, en einkum þó þar,
sem námsmenn eru að staðaldri frá hlutaðeigandi þjóðum.
Tíðast eru áhugasamir einstaklingar og stúdentasamtök hér
að verki, en um opinberan stuðning til kaupa á stórhýsum er
ekki að ræða. í þessum húsum, sem venjulega eru kennd við
hlutaðeigandi þjóð eða land, eru samkomusalir, þar sem land-
arnir geta hitzt, ýmist á samkomum eða til skrafs og ráðagerða
við ódýrar veitingar. Þá geta menn fengið þar inni um langan
tíma eða skamman og hefur það komið sér vel á síðustu árum,
þar sem gistihúsaskortur hefur verið tilfinnanlegur svo að
segja í öllum borgum meginlandsins. ■
íslendingar í Kaupmannahöfn hafa ráðist í fjársöfnun, sem
að því miðar að fest verði þar kaup á „íslendingahúsi“, enda
verði rekstur sniðinn eftir því sem tíðkast um sambærileg hús
erlendis. í Kaupmannahöfn munu vera um 2000 íslendingar,
og er þar stærsta nýlendan, ef frá 7;r talinn Vesturheimur,
þ.e.a.s. Canada og BandariKin.
Ekki þarf í rauninni mikið átak til að festa kaup á hentugu
húsi í Kaupmannahöfn, þótt byggingar hafi hækkað mjög í
verði þar sem annarsstaðar. Húsaleigu hefur þó verið haldið
mjög niðri í dönskum. borgum, en af því leiðir að leigugjald
eftir húsin segir nokkuð til um söluverðið. íslendingafélagið í
Kaupmannahöfn á þegar nokkurt fé í sjóði, og töluverð upphæð
hefur safnazt hér heima, þótt enn sé langt í land að fullnægj-
andi sé. Má telja víst að Hafnarstúdentar og aðrir þeir, sem
eytt hafa ævi sinni að einhverju leyti þar í borg, hafi fullan
hug á að styðjá þessa viðleitni og bregðist vel við, er til þeirra
er leitað um styrk og framlög.
Æskiiegast væri og rétt er að stefna að því, að samtök ís-
lendinga eignist bækistöðvar í helztu borgum meginlandsins
og Bretlandseyja, en þetta -verður þó áð. miða við þá stáði, sem
■sóttir eruaf námsmönnum, eðaþar sem.íslendingar hafa tekið sér
bólfestu að emhverju-xáði.: Koma 'hér ekki nema. fáar borgir til
greina, en vel væri því fé varið er til slíks rynni.
— Þjofnaðirnir.
Framh. af 1. síðu.
reiðinni R-5174 hefði verið
stolið frá Sörlaskjóli 17.
Skömmu síðar fann lögregl-
an bifreiðina á gatnamótum
Hringbrautar og Sóleyjagötu
og var hún þá bensínlaus orð-
in. Lögreglan náði í eigandann
og fór ásamt honum á staðinn
þar sem lögreglan lét bensín á
hina stolnu bifreið til þess
hægt væri að aka henni burt.
Bar þá að bifreið frá Hreyfli
og kvéðst bifreiðarstjóri henn-
ar nokkru áður hafa séð
Fordbifreið í fylgd með R-5174.
En rétt í þessum svifum kom
bifreið akandi vestur Hring-
braut, og er bílstjóri hennar
veitti lögreglubílnum athygli
snarsnéri hann bifreið sinni og
þeytti um leið bílhornið af
kappi. Lögreglan ók þegar af
stað og hugðist elta bílinn, en
þá bar að svarta Fordbifreið er
kom á móti lögreglunni. Ætlaði
Fordinn þá líka að snúa við, en
einn lögreglumanna brá við
fljótt, hljóp á eftir Fordinum
og náði haldi á framhurð hans
þegar hann var að beygja upp|
á Smáragötu. Með snarræði
Aflakóngar framtíðarinnar
Mynd þessi var tekin s.l. laugardag, þegar 20 ungir sjógarpar
héldu í fyrstu veiðiferðina. Piltarnir eru á sjóvinnunámskeiði
Vinnuskóla Reykjavíkurbæjar. Myndin var tekin, er m.b.
Dagur var að leggja frá landi kl. 6 á laugardagskvöld. Ungu
sjómennirnir eru 20 talsins og munu þeir ekki koma aftur, fyrr
en þeir hafa aflað eitthvað. Dagur er traustur 70 lesta bátur.
Skipstjóri er Annilius Jónsson.
tókst lögreglumanninum að
komast upp í bifreiðina og
slökkva á henni svo að hún
I stanzaði.
í bifreiðinni voru 2 ungir
menn. Hafa þeir játað að hafa
verið 3 saman og stolið 3 bif-
reiðum, en það voru auk R-5174
R-510 og R-1713, en þriðja bif-
reiðin fannst svo rétt á eftir
Pan Amerícan World
Airways tilkynnir
Veg na áframhaldandi skömmtunar á flugvélabenzím verða vöru-
flutningar með flugvélum félagsins mjög takmarkaðir nema nauð-
synlegustu lyfjavörur.
Farþegaflug verður eins og áður austur alla miðvikudaga frá
New York um Keflavík til Prestvíkur, Amsterdam og Frankfurt.
öll föstudagskvöld vestur frá Frankfurt, Amsterdam, Prestvík um
Keflavík til New York.
G. Helgason & Melsted h.f.
Aðalumboðsmenn. Sími 80275.
* BERGMAL +
Mönnum verður eðlilega
tíðrætt um varnarlið Banda-
ríkjahers, sem hér hefir aðset-
ur sitt hér. Einkum eru menn
á mismunandi skoðun um hvort
heppilegt sé að leyfa þeim ó-
hindraðan aðgang að öllum
skemmtistÖðum hér í Reykja-
vík. Eins og kunnugt er var
hermönnum um skeið óheimilí
að koma inn á greiðasölustaði,
sem reknir eru af Silla og
Valda. Menn úr varnarliðinu
höfðu nær alveg lagt undir sig
kaffihúsið á Laugaveg 11 og
höfðu íslenzkir gestir kvartað
undan því, að er þeir kæmu
þangað til þess að drekka sitt
eftirmiðdagskaffi fengju þeir
ekkert sæti.
Banninu aflétt.
Ýmsum þótti staðurinn skipta,
um svip, þegar varnaxiiðsmenn
hættu að koma,. og til hins
hetra. :Éii bann þetta stóð •.samt;
,ekki lengi yfir, og hefir. því
verið aflétt, og er mér ókunn-
ugt um orsakirnar til þess.
Fannst mér, sem öðrum, að vel
mætti vera til þeir staðir í
Reykjavík, sem hægt væri að
sækja, án þess að vera í návist
varnarliðsmanna, og þeim
stelpufans, sem ávallt virðist
sigla í kjölfar þeirra.
Sérstök veitingahús.
Það er auðvitað að hvorki er
rétt né sanngjarnt að meina
varnarliðsmönnum aðgang að
öllum skemmtistöðum eða op-
inberum veitingahúsum, þar
sem um er að ræða varnarher
íslendinga jafnt og annarra
þjóða, sem aðilar eru að varn-
arsáttmála Atlantshafsríkj-
anna. ,Aftur á móti er vandinn,
sem af veru liðsins stafar' of
augljós til þess að gengið verði
þegjandi framhjá honum.
Of miklar tómstundir. ' ,
Vgmarliðsmenn vii-ðast hafa
of miklar tómstundir og geta
eytt miklum tíma í skemmtan-
ir, enda er svo komið nú, að
þeir fylla flesta skemmtistaði.
Einkum virðast þeir nú hafa
lagt undir sig Hótel Borg, sem
er fullkomnasti skemmtistaður
Reykvíkinga. Þykir mörgum
Reykvíkingum nóg um, en við
því verður því miður lítið gert.
Gaman væri því að heyra til
almennings í málinu. — kr.
Gáta dagsins.
Nr. 125:
Hvert er það hús, sem
hleypur til jarðar og hratt
til baka,
stundum gjörir það
státlega skvaka,
staðfest allt með gesti spaka?