Vísir - 28.05.1952, Side 5
Miðvikudáginn 28. maí 1952
TlSIR
8
Byggingarframkvæmdir
og árásarskrif trésm
Sveinbirni Kristjánssyni svarað.
Greinargerð
í Mánudagsblaðinu þ. 12. þ.m.
birtist grein eftir hr. Sveinbjörn
Kristjánsson trésmíðameistar a. ■
Hann skrifar þar um bygginga-
framkvæmdir við Rannsókna-
stofu Háskólans í meinafræði
að Keldum í Mossfellssveit. í
greininni er mér borið á brýn
svo glæpsamleg meðferð á op-
inberu fé, að mér þykir rétt að
gera nokkra grein fyrir störf-
um mínum í sambandi við
byggingarframkvæmdirnar.
Veturinn 1945—46 fól þá-
verandi húsameistari ríkisins,
próf. Guðjón Samúelsson, mér
að gera uppdrætti að rann-
sóknastofnuninni að Keldum, og'
um vorið að útboði loknu fól
hann mér aðalumsjón mej
verkinu. Samdi bygginganefnd
] annsóknarstofunnar þá við hr.
Sveinbjörn Kristjánsson um að
hann tæki að sér að steypa upp
byggingarnar ásamt múrverki
og trésmíði fyrir 1165000,00 kr.,
og var tilboðsupphæðin bundin
við vísitölu framfærslukostnað-
ar. Byggingarnar voru auk
húss fyrir rannsóknastofur, 2
hús til vörzlu og uppeldis á
íilraunardýrum og íbúðarhús
fyrir forstjóra stofnunarinnar.
Verk Sveinbjarnar var sem
sagt aðeins múrverk og tré-
verk undir málningu. Allar
lagnir og önnur verk voru fyrir
utan akkorð Sveinbjarnar. Aðr-
ir verktakar voru sem hér
segir og unnu allir samkvæmt
reikningi:
Raflögn, Johan Rönning og
Co. Hitun, R. Crittall og Co.
London umboðsmaður hér Axel
Kristjánsson. Vatnslögn o;
hreinlætistæki, Richard Eiríks-
son. Málning, Ósvaldur Knud-
::en og Daníel Þorkellsson.
Korklagning á gólf, Guðm.
Kristjánsson og Ólafur Ólafs-
son. Kælitæki, Björgvin Fred-
eriksen. Húsgögn, borð og skáp-
ar í rannsóknarstofur voru
smíðuð samkvæmt teikninguo
gerðum af mér. Sumt var smíð •
að 1 Svíþjóð, og sumt hér heima.
Einnig sá Landssmiðjan um
ýmsa málmsmíði, t.d. jötur
grindur í dýrahús o.fl.
Byggingarframkvæmdir hóf-
ust í júní 1946, og átti verkum
Sveinbjarnar samkvæmt samn-
ingi að vera lokið fyrir 15.
júní 1947. Svo varð þó ekki, en
um haustið voru byggingarm i
Sveinbjarnar komin í algjör
öngþveiti, og hlupu þá synir
hans tveir undir bagga með
konum, þeir Óskar SveinbjÖrns-
son og Sigurður Sveinbjörnsson,
og hélt verkið svo áfram undir
stjórn Óskars, en var áfram á
nafni Sveinbjarnar þar til 5.
ágúst 1948. Þá var gert upp
við Sveinbjörn, en gerður var
nýr samningur milli bygging-
arnefndarinnar og bræðranna
um smávægilegar eftirstöðv-
ar af verkinu. Er þá í mjög
stuttu máli rakin saga Svein-
bjarnar, á Keldum.
Hugarórum SveinbjaTnar
Kristjánssonar um hina enskn
skýrslugerð mína, þar sem eg
á að hafa fært á hann stórar
íjárupphæðir sem hann hafi
aldrei tekið á móti, mótmæli
ég sem algjörlega tilhæfulausri
illmælgi og rógi.
Ég hefi aldrei samið eða af-
greitt neinar enskar skýrslur
um útgjöld Keldna, enda ekki
í mínum verkahring. Bókhald
og dagleg byggingaútgjöld
stofnunarinnar voru í höndurn
gjaldkera húsameistaraembætt-
isins, og varð eg, jafnt og aðrir,
sem þurftu að fylgjast með
ijárhag bygginganna, að sækja
upplýsingar til hans.
Afskipti mín af fjárhag rann-
sóknarstofunnar voru aldrei
þau, að afla henni fjár, heldur
hin, að gæta þess, að ekki væru
greiddar aðra kröfur en þær
sem réttmætar reyndust. Hug-
arþel Sveinbjaimar Kristjáns-
sonar til mín getur vafalaust
gefið mönnum nokkrar vísbend -
ingu um hvernig ég hafi innl
það starf af hendi.
Hinsvegar tók ég saman á
sínum tíma, eða í byrjun sept-
ember 1948, samkvæmt beiðni
dr. Björns Sigurðssonar, lækn-
is, formanns byggingarnefndar-
innar, yfirlit yfir þær skuldir
sem þá þegar höfðu verið gerð-
ar um framkvæmd verka. Þa x
verk sem’ ekki voru fullunnin,
var reynt með aðstoð viðkom-
andi verksala að áætla eins ná-
kvæmt og kostur var á. Enn
fremur lét ég fylgja þessu í
samráði við Björn Sigurðsson
áætlun um kostnað við hið
allra nauðsynlegasta, sem vant-
aði, en ekki var byrjað á þá.
Þessa skýrslu afhenti eg for-
manni byggingarriefndar 8.
sept. 1948, og mun það vera
hinn „óútskýranlegi skulda-
listi við ýmsa verktaka“, sem
Sveinbjörn ræðir um „þótt ekki
væri vitað um annan verktaka
en mig, og átti enginn annar
að vera samkvæmt verksamn-
ingnum“.
Menn beri ummæli Svein-
bjarnar saman við yfirlit það
um verktakana, sem ég birti í
upphafi máls míns.
Eins og áður er getið var
það ekki mitt hlutverk að afla
rannsóknarstofunni tekna, og
var mér allsendis ókunnugt um
tildrög þess að The Rockefeller
Foundation veitti 50 þús. doll-
ara aukaframlag haustið 1948.
að Keldum
ameistarans.
En þar sem herra Sveinbjörn
Kristjánsson hefir borið það a
borð fyrir alþjóð að þetta við-
bótaframlag Rockefellerstofn-
unarinnar hafi fengist út á
falsaðar skýrslur mína um út-
gjöld Keldna til hans, þá sneri
ég mér til Menntamálaráðu-
neytisins, til þess að afla mér
vitneskju um þetta atriði. Fékk
ég þar að sjá bréf það er hér
fer á eftir, og birt er hér með
leyfi ráðuneytisins. Bréfið, hef-
ur meðal annars inni að halda
upphæðirnar á lista þeim sem
uim var rætt.
Hinsvegar tel eg ástæðu-
laust að birta listann sjálfann,
en hann liggur hjá mennta-
málaráðuneytinu, þar eð hann
mundi fylla alltof mikið í einni
blaðagrein með þeim skýringum
og sundurliðunum sem á honum
eru:
„í september 1948 var svo
komið um byggingarfram-
kvæmdir við Tilraunarstöð
háskólans á Keldum, að fyrir-
tækið skuldaði kr. 488,086,15
til ýmissa verktaka og til skrif-
stofu Húsameistara ríkisins.
Þetta sundurliðast annig:
1. Skujld við skrifstofu Húsa-
meistara ríkisins. kr. 62,503,39.
2. Við Sveinbjörn Kristjánsson,
trésmíðameistara um: 55,000,00.
3. Skuld við Landssmiðjuna kr.
50,000,00. 4. Skuld við Nýju
blikksmiðjuna um: kr. 33,000,00
5. Skuld við Johan Rönning,
rafvirkjameistara, . um kr.
70,000,00. 6. Skuld við Rafha,
Hafnarfijrði kr. 16,918,70. 7.
Skuld v'ið Hjálmar Þorsteins-
son, tjrésmíðameistara kr.
36,000,0(|. 8. Við Olíuverzlun
j íslands kr. 1,500,00. 9. Við J.
Þorlákssion og Norðmann kr.
1,158,50.110. Við Rafmagnsveitu
Reykjavíkur kr. 10,000,56. 11.
Við Ve|amálaskrifstofuna kr.
10,000,00. 12. Við Steypustöð-
ina h.f. 2,000,00. 13. Við Osvald
Knudserj, málarmeistara um:
kr. 100,(^00,00. 14. Við Ríkharð
Eiríksson, pípulagningameist-
ara um: kr. 20,000,00. 15. Ýms-
ir smærri reikningar um: kr.
20,000,00. Alls kr. 488,086,15.
Auk þess var mikið óunninð,
en talið var, að það allra nauð-
synlegasta, sem gera þyrfti þá
þegar, mundi kosta um
122,000,00 kr. Bein fjárþörf á
þeim tíma til þess að tryggja,
að framkvæmdirnar strönduðu
ekki, var samkvæmt ofansögðu
talin kr. 610,086,15.
Þetta var byggt á upplýsing-
um frá skrifstofu Húsameistara
ríkisins og tilkynnt mennta-
málaráðuneytinu 8. sept 1948.
Þá þegar hafði verið eytt i
byggingarframkvæmdir sam-
kvæmt uppgjöri Húsameistara
ríkisins, kr. 1,897,309 og meira
fé var ekki til ráðstöfunar eins
og sakir stóðu.
Undirritaður sneri sér þá til
the Rockefeller Foundation v
New York, sem þegar hafði
gefið 150,000,00 dollara til
kaupa á áhöldum og efni og
til byggingarframkvæmda, með
bfeiðni um viðbótarframlag, sem
kæmi gegn a.m.k. jöfnu fram-
lagi úr Ríkissjóði íslands.
Rökstuðningur fyrir beiðn-
inni var sá, sem að ofan grein-
ir.
Stjórn Rockefeller sjóðsins
tók þessari málaleitun vinsam-
lega og endirinn varð, að Há-
skóla íslands voru gefnir
50,000,00 dollarar til viðbótar,
til stofnframkvæmda á Keldum,
sem með þáverandi gengi nam
um 325,00,00 ísl. krónur.
Þessi höfðinglega viðbótar-
gjöf ásamt mótframlagi ríkis-
sjóðs, hefir gert Tilraunarstöð-
inni kleift að standa við skuld-
bindingar sínar, og að ljúka við
þau verk, sem óunnin voru í
sept. 1948. Hér verður ekki far-
ið út í að telja þau verk, þar
eð það skiptir ekki máli í sam-
bandi við kröfu hr. Sveinbjarn-
ar Kristjánssonar.
Sú staðhæfing, að sótt haffc
verið um viðbótargjöf frú
Rockefeller Foundation til aS-
bæta hr. Sveinbirni Kristjáns—
syni — umfram samnings-
bundnar greiðslur — það tjó i,
sem hann nú telur sig hafa.
orðið fyrir af verki sínu, er mén
alveg óskiljanleg og vissulega
er hún gjörsamlega úr lausi
lofti gripin. Viðskipti hans vicí'
byggingarnefnd Tilraunarstöð-
varinnar voru öll glögglega
samningsbundin, og þegar só.t
var um viðbótarstyrkinn, hafði.
þegar mjög ótvírætt verið geng-
ið frá endanlegum skuldaskil-
um milli verksala og bygging-
arnefndar með samningi undir-
rituðum 5. ágúst, 1948. Það fé,
sem fyrirtækið skuldaði verk-
sala 5. ágúst, 1948, var að sjálf-
sögðu greitt strax og fé var~
fyrir hendi og eftir ákvæðura
samningsins .á sama hátt og;
aðrar réttmætar kröfur.
Á það skal enn bent, að bygg-
ingarnefnd gekk svo langt til
(Framh. á 7. síðu)
Varahluiir í
m • t* ® m •
biireiðir,
ntjfkoMnnir:
Fjaðrir. Fjaðraboltar. Pakkdósir. BremsuborSar. Bremsugúmmí. Hurðaskrár. Hurðahúnar. Rúðuupplialarar og- sveifar. Stímplar. Hringir og
Ventlar í 8 cyl. mótora. Hljóðkútar. Demparar. Rafkertí. Kveikjuhlutar. Spindilboltafóðringar. Spindilboltar. Viftureimar. Vatnskassahosur.
Stýrisendar. Vatnskassar í fólksbíla* Framöxlai* í vöruvíla. Hausingastútar. Viftur. Rúðuþurrkarar. Blöð og- armar o. m. m. fl.
SVEiNN EGILSSON H.E.
Símar 2976 — 3976. —• REYKJAVlK.