Vísir - 15.10.1952, Side 1
12. árg.
Miðvikudaginn 15. október 1952
234. tbí.
250.000 manns í hættu
af flóðum í Mexíkó.
lÍEggheriiin asotaðeGt* við Isksaarstöi'L
Einkaskeyti frá A.P. —
Mex. City í gær.
Flugvélar mexíkanska flug-
hersins hafa verið önnum kafn-
ar við bjcrgunar- pg líknar-
störf síðustu daga.
Fellibylur hefur tvívegis
gengið yfir nokkurn hluta
vesturstrandar landsins á
skömmum tíma, og hefúr af
þessu leitt, að flóð hafa orðið
í næstum því þriðja hluta
landsins. Kafa á annað hundruð
manna farizt af völdum veð-
nrsins og afleiðinga þess.
Flutningaleiðir hafa rofnað
á stórum svæðum, og er það
þess vegna, sem flutningavélar
méxíkanska flughersins hafa
verið teknar í notkun. Hafa
þær verið látnar fljúga vistum
cg lyfjavörum til landssvæðis,
sem sennilega er byggt um það
bil fjórðungi milljónar manna.
Hjálparsveitir hafa einnig far-
ið fótgangandi, þar sem því
hefur verið við komið, og auk
þess fara margar sveitir á bát-
um, þar sem flugvélum verður
ekki komið við eða hægt að
fara gangandi eða með öðru
móti, og sums staðar hefur mat-
vælum og öðrum nauðsynjum
verið varpað niður í fallhlíf.
Enn er engin leið að gera sér
grein fyrir því, hversu mikið
tjónið er, en það er lauslega á-
ætlað 25 milljónir dollara, en
ekki eru öll kurl komin til
graíar í þessu efni, og líður
langt þangað til.
Bsbiidfngar gefa S|
Aflahrota á
Halamiðum.
ftlÍB&mi míli tí$
íxB's&m immeS.
Aflahrota er nú á Halanum,
áð sögn, en þar hefur verið treg
veiði að undanförnu.
Fiska togarar þar nú allvel
bæði þorsk og ufsa. Afli á
karfamiðunum fyrir Vestur-
landi er stöðugt góður, ef gæft-
ir hamla ekki.
Geir kom í .gær úr 10 daga
veiðiferð með 280—300 lestir,
og leggur aflann upp hér til
flökunar.
Á Grænlandsmiðum er ný-
lega um garð gengið sunnan-
rok, sem stóð nokkur dægur,
en er lygndi var fiskurinn
borfinn að mestu, og mun það
ekki ótítt eftir sunnanrok þar.
f>egar aftur færist til norð-
lægrar áttar kemur fiskurinn
aftur.
aSir i HrellaMtli,
London (AP). — Undan-
’gengna 12 mánuði hefur verið
stolið eða rænt úr pósti í Bret-
landi peningum að upphæð 280
þús. stpd., þar af 240 þús. stpd.
í póstpokaráninu í London í
maí síðastliðnum.
íslendingar hafa gefið Sam-
einuðu þjóðunum fundarham-
ar fagurlega úískorin.
Hamarinn mun hafa verið af-
hendur í gær við setningu alls-
herjarþingsins, en gripurinn er
útskorinn af Ásmundi Sveins-
syni með víkingsmynd.
Góð aðsókn að
kabarettinum.
Alls hafa á 8. þúsund manns
séð hinn fjölbreytta kabarett
Sjómannadagsráðs í Ausíur-
bæjarbíói.
Hafa sýningar þó ekki staðið
nema í tæpa viku, og veður ver
ið mjög óhagstætt, eins og
kunnugt er, og má því aðsókn
teljast mjög góð.
í kvöld og á morgun verða
sýningar kl. 9, til þess að gefa
þeim kost á að koma, sem ekki
hafa komið því við á sýning-
um kl. 7,30 og 10.30, en síðar
í vikunni verða sýningar á
sama tíma og áður.
Géta má þess, að nokkrar
skipshafnir á hafi úti hafa
pantað miða á sýningarnar, svo
og hópar skólafóíks utan af
landi, og áhugi mikill virðist
fyrir sýningunum í nærsveit-
um.----Kabarettgestir virðast
á einu máli um, að hér sé um
fágæta skemmtun að ræða.
ihurchiil óttast ekki
Sveinbaraafæðingar tíðari
en meybaraa hériendis.
Árin 1041 -50 fæddust hér 428 tvíhurar og 5 þrííiurar
N.A."bandalagið traustasti veggur-
inn gegn ofbeldisárás.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Churchill ræddi í gær
heimsstyrjaldarhættuna í ræðu
sem vakið hefur geisimikla at-
hygli.
í gærkveldi var haldin í
London hin árlega veizla Píla-
grímafélagsins, sem hefur að
markmiði aukin menhíngar-
tengsl og efiing vináttu og sam
vinnu Breta og " Bandaríkja-
manna.
Ridgway yfirhershöfðingi
NA-varnarbandalagsins var
heiðursgestur í samkvæminu.
í ræpu, sem Churchill flutti,
f»ví hefur löngum verið
haldið fram, að meira væri um
konur í heiminum en karla.
Hvað okkar þjóðfélag snertir,
virðast konur ekki þurfa að
hafa áhyggjur af þessu, því
samkvæmt mannfjöldaskýrsl-
um Hagstofunnar hafa töluvert
fleiri sveinbörn fæðzt hér á
landi síðustu árin heldur en
meybörn.
Á ár<unum 1946—1950 fædd-
ust á fslandi 19278 börn, þar af
voru 10050 sveinar og 9228
meyjar. Af hverjum 1000 börn-
um voru þannig 521 karlkyns
en 479 kvenkyns. Á næsta 5
FyrirSestur u
íslahd
i
Joseph H. Rogatnick, sem um
skeið síarfaði við amerísku
sendisveitina hér, hélt nýíega
fyrirlestur ara ísland í Singa-
pore.
Rogatnick er nú ræðismaður
þar í borg, og hefur með hönd-
um stjórn viðskiptadeildar ræð
ismannsskrifstofunnar ame-
rísku. Flutti hann erindi sitt
þann 27. ágúst síðastliðinn á|*j
fundi Rotary-klúbbsins í borg-
inni, og voru áheyrendur um
150, forvígismenn á ýmsum^j
sviðum þar. Með fyrirlestrin-' '
um sýndi Rogatnick myndir,
sem hann tók, meðan hann
dvaldist hérlendis á árunum
1945—47. Hann eígnaðist fjölda
vina, meðan hann dvaldist hér,
Dg hefur jafnan haldið sam-
bandi við þá síðan.
ára tímabili á undan eða ára-
bilinu 1941—1945, voru 514 ef
1000. Heíir andvana fæddum
Af börnum, sem fæddust á
árunurn 1946—1950 voru 340
andvana, eða 18 af hverjum
1000. Hefur vandvana fæddum
börnum fækkað allverulega að
tiltölu frá því á öldinni sem
leið. Þannig fæddust 36 and-
vana af hverjum 1000 börnum
á árunum 1886—95, á árabilinu
1906—’15 fæddust 30 andvana
börn af hverjum 1000, og á ár-
unum 1936—’45 var tala and-
vana fæddra barna 22 af
hverjum 1000.
Yfirleitt fæðast fleiri óskil-
getin börn andvana heldur en
skilgetin.
Á árunum' 1941—1950 fædd-
ust hér á landi 426 tvíburar og
5 þríburar.
Fæðingar eru tíðari sumar-
mánuðina heldur en vetrar-
mánuðina.
c?
Toulon (AP). — Franskur
sjóréttur mun nú reyna að
ganga úr skugga um, hvort
kafbáturinn La Sibylle hafi
ekki verið haffær.
Kafbátur þessi fórst sem
kunnugt er á miklu dýpi í Mið-
jarðarhafi, en skipverjar höfðu
látið í Ijós þá skoðun í bréfum
til ættingja, að báturinn væri
stórhættulegur vegna aldurs og
slits.
teldí
ólík-
Gasfranleiðsla
í ðron jarðar.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Tilraunir eru nú gerðar í
Bretlandi til framleiðslu gass
með því að kveikja í kolum í
jörðu niðri.
Hér er um kol að ræða, sem
eru gæðarýrari en svo, að það
svari kostnaði að vinna þau.úr
jörð með venjulegum hætti.
Hugmyndin um gasvinnslu
með þessum hætti kom fyrst
fram í Englandi áriö' 1912.
sagði hann, að hann
þriðju heimsstyrjöldina
lega, vegna þess að þegar á
fyrsta mánuði hennar myndu
dynja yfir þjóðirnar þau ósköp,
sem þær óttuðust mest, og
þetta hlytu leiðtogar þeirra að
vita og skilja. í kjölfar slíkra
ógna mundi koma margra ára
átök lamaðra þjóða.
Churchill sagði, að reyndin
gæti vel orðið sú, að A.-banda-
lagið yrði sá hlífiskjöldur, sem
varnaði því, að ráðist yrði í of-
beldis- og árásarstyrjöld.
Ridgway yfirhershöfðingi
sagði, að NA-varnarsamsökin
hefðu ekki helming þess liðs,
er til þyrfti, ef stöðva ætti oí-
beldisárás, ef árásarþjóðin
beitti sér af alefli, en nægi-
lega öflugt til þess að gera á-
rásarþjóðinni slíkt fyrirtæki
dýrkeypt. Mikið væri undir
almenningi komið og hversu
hann brygðist við, ef á reyndi.
Ridgway taldi þátttöku Vest-
ur-Þýzkalands í samtökunum
nauðsynlega.
Meðal annarra gesta voru
þeir Alexander landvarnaráð-
herra og Montgomery mar-
skálkur, aðstoðar-hershöfðingi
Ridgways.
Sökum þess hve seint í gær-
kvöldi ræða Churchills var flutt
eh lítið á hana minnst í rit-
stjórnargréinum brezkra blaða
í morgun, en á fréttásíðum er
sagt frá henni undir stórum
fyrirsögnum.
í ritstjórnargrein í Daily
Telegraph segir, að orð
Churchills muni vekja athygli
manna um allan heim, þvi að
það sé viðurkennt að hann sé
framsýnn maður og vitur, og
hafi það oft komið í ]jós. —
Blaðið segir, að það verði aldrei
tekið fram of oft, að A.-banda-
lagið muni aldrei teíla fram liði
til árásar.
Hér hiríist mynd af áhöfn brezku flugvélarinnar, sem nauðlenti á Grænlandsjökli, og sem var
bjargað a£ bandarískum björgunarleiðangri. Myn din var tekin af áhöfninni í Englandi.