Vísir - 05.01.1953, Blaðsíða 7

Vísir - 05.01.1953, Blaðsíða 7
Mánudaginn 5. janúar 1953 VISIR wr 7f v i • ■>£ te elagið sv Sökum þess að eigendur Olíuíélagsíns h.f. eru fjölmenn samtök og félög í lanöinu. sem ekki verður náð til nema á opinberum vettvangi, telur félagið ,sig ekki geta komizt hjá því að gera nokkra grein fvrir afstöðu sinni til þess dóms, sem kveðinn hefur verið upp vegna olíufarms þess, sem olíuskipið „Esso Memphis" flutti til landsins í marzmánuði 1950. Gerir félagið þetta enda þótt því sé Ijóst, að almennt kann það að vera óæskilegt, að gerð séu að umtalsefni opinberlega mál, sem eru fyrir dómstólum landsins. En eökum blaðaskrifa og rógs um þetta mál á félagið ekki annarra kosta yöl. I. Málavextir. Olíufélagið h.f. hefur frá stofnun þess 1946 ílutt inn olíut' og benzín frá Esso Export Corporation í New York, en félagið sjálft og Hið íslenzka steinolíuhlutafélag hafa selt þessa vöru til innlendra aðila um land allt, svo og erlendra aðila á Kefla- víkurflugvelli. Sá háttur hefur, með samþykki innflutningsyf- irvaldanna, verið hafður á greiðslum fyrir þennan innflutning. að allar dollaratekjur fyrir sölu á Keflavíkurílugvelli hafa ver_ ið færðar í reikning Qlíufélagsins hjá Esso Export Corporation í New York. Innflutt olía frá þessu ameríska félagi hefur síð- an verið greidd úr þessum reikningi, auk þess sem gjaldeyris- leyfi hafa verið veitt fyrir þeim upphæðum, sem skort hefur til viðbótar. Gengi íslenzkrar krónu var lækkað 19. marz 1950. Voru þá kannaðar birgðir olíufélaganna, og breyttist olíuverð sam_ kvæmt ákvörðunum verðlagsyfirvaldanna til hækkunar 1. apríl. Nú hafði olíuskipið „Esso Memphis“ komið til landsins 10. marz, en þar sem Qlíufélagið átti ejíki dollara í reikning sín- um í New York til greiðslu á öðru en þeim hluta farmsins, sem ætlaður var erlendum aðilum á Keflavíkurflugvelli, en olía og benzín úr skipinu til innlendrar notkunar voru ógreidd 19. marz, var þessi farmur ekki talinn með þeim birgðum, sem keyptar höfðu verið á eldra genginu. Olíusalan á Keflavíkurflugvelli hefur hins vegar ekki áhrif á verð olíu til innlendra aðila, og var því ekki um það spurt, hvort sá hluti af farmi „Esso Memphis“, sem þangað fór, hefði verið greiddur fyrir eða eftir gengis'breytinguna. Úrskurður sá, sem Verðlagsdómur Eeykjavíku kvað upp fyr- ir nokkru, virðist byggjast á því, að dómurinn telur Olíufélag. ið 'hafa átt dollara fyrir öllum farminum, framkvæmdastjóra félagsins því hafa gefið verðlagsyfirvöldunum rangar upplýs- ingar og félagið hafa hagnazt ólöglega á innanlandssölu þessa farms. Byggir dómurinn þetta á því, að Olíufélagið hafi 19. marz átt til greiðslu á umræddum farmi bæði þá dollara sem því höfðu verið færðir til tekna í reikningi hjá Esso Export Corp., og þá dollara, sem búið var að afhenda olíuvörur fyrir á Keflavíkurvelli fram til 19. marz, enda þótt kaupendur hefðu ekki greitt þá, og þeir því verið ókomnir í reikning Olíufélags- ins. Augljóst má þó vera, að ekki gat félagið greitt vörur með peningum, sem því höfðu sjálfu ekki verið greiddir. í þessu sambandi skal tekið fram, að olíuvörur þær sem seldar eru á Keflavíkurflugvelli, eru aldrei greiddar við móttöku, heldur er reikningum til hvers kaupanda safnað saman á vissum fresti, sem getur verið mismunandi eftir því hvers konar reikn- ingsviðskipti kaupandinn hefur samið um og síðan sendir vest- ur um haf til innheimtu. Líður því að jafnaði talsverður tími frá þyí að varan er afhent á Keflavíkurflugvelli og þar til and- .virði hennar er komið í reikning Olíúfélagsins hjá Esso Export Corporation. Verðlagsdómur telur þamiig, að Olíufélagið hafi átt að koma til skila á ákveðnum degi gjaldeyri, sem því hafði sann. anlega eklii verið greiddur þann dag. Þó kom fram í máls- vörninni, að margir útflytjendur drógu, jafnvel svo mánuð. um skipti, að afþenda Landsbankanum gjaldeyri, sem þeir höfðu afhent útflutningsvörur fyrir og fengið greiddan frá erlendum aðiljum fyrir 19. marz 1950, til þess að geta eftir þann dag fengið hann greiddan á nýju gengi. En bankinn hef- ur keypt allan gjaldeyri, sem til hans er skiíað, á því kaupgeng- isverði, sem er í gildi þann dag, sem skilin fara fram, án tillits til þess, hvenær gjaldeyrisins hefur verið aflað. Vitað er einnig, að þeim kaupsýslumönnúm, sem eignazt höfðu umboðslaun í erlendum gjaldeyri fyrir 19. marz, var ekki gert að skyldu að afreikna þau miðað.wið eldrá gengið. Framkyæmdastjóri* Olíufélagsins taldi í marz 1959, — tel- ur enn og hefur að sinni hyggju fært fullar sannanir fyrir þvi, að félagið hafi ekki átt erlendan gjaldeyri fyrir ö’ðru af farmi „Esso Memphis“ en því, sem fara átíi til erlendra lcaupenda. Annar hluti farmsins var allur ógreiddur eftir geng. isbreytinguna. Hann taldi sig þá og telur sig enn hafa gefið fullkomlega réttar upplýsingar og telur félagið á engan hátt hafa hagnazt ólöglega af sölu umrædds farms vegna gengis- breytingarinnar. , ^ II. Vörn Olíufélagsim. Það er skoðun Olíufélagsins, að lögfræðingur þess hafi fyrir réttinum fært fullar sönnur á eftirfarandi höfuðatriði þessa raáls: : i ;«&i4Si,il 1) Að framkvæmdastjóri félagsins -hafi talið þann hluta af farmi „Esso Memphis“, sem ætlaður var innlendum notendum, ógreiddan 19. marz 1950, og hafi eftir beztu samvizku hagað upplýsingum sínum til verðlagsyfirvaldanna eftir þeirri skoðun. 2) Að Olíufélagið skuldaði 19. marz 1950 í reikningi sínuin hjá Esso Export Corp. hærri upphæð en verðmæti .þess farms „Esso Memphis11, sem seldur var innlendum notendum. Enn- fremur er það óumdeilt, að heildsöluskattur, leyfisgjald, banka_ kostnaður, verðtollur, vörumagnstollur og smásöluskattur fyr- ir olíu þessa voru greidd miðað við hið nýja gengi. Farmurinn var þannig tollafgreiddur á nýja genginu og tryggingargjöld fyrir hann voru einnig greidd á nýja genginu. 3) Að það var mjög eðlilegt, að Olíufélagið ætlaði dollara- tekjur sínar af sölu á Keflavíkurflugvelli fyrst og fremst til greiðslu á vörum fyrir flug\bllinn, þar sem H.Í.S. var og er samningsbundið tií þess að hafa ávallt nægar birgðir af olíu og benzíni á vellinum. Auk þess hafa viðskiptin á flugvellin. um tryggt þjóðinni allmikinn gjaldeyri til kaupa á nauðsyn- legum olíum fyrir sjálfa sig, og því var mjög mikilvægt að tr>rggja, að þeim viðskiptum yrði haldið áfram. 4) Að áætlun Olíufélagsins um skiptingu á farmi „Esso Mem_ phis“ milli innlendra og erlendra notenda var í alla staði eðli- leg og heimil, enda var skiptingu þeirri fylgt í reyndinni. T 'T I III. Hinn „ólöglegi hagnaður”. Niðurstöður Verðlagsdóms Reykjavíkur hafa komið Olíufé- laginu og Hinu íslenzka steinolíuhlutafélagi rnjög á óvart, eins og séð verður af skýringunum hér að ofan, þar á meðal sú niðurstaða dómsins, að félögin hafi hlotið „óiöglegan gróða“ að upphæð 1.600,165 krónur. Það leiðir af því, sem hér hefnr verið sagt, og ítarlegum rökstuðningi lögfræðinga félaganna fyrir réttinum, að félögin hafa engan slíkan gróða hlotið. Við réttarhöldin kom ekkert fram, sem á nokkurn hátt bentj, til þess, að Olíufélagið eða H.Í.S. hefðu selt einn einasta líter af olíuvörum, hverju nafni sem nefnast, hærra verði en leyft var með tilkynningum' verðlagsyfirvaldanna, eða hækkað verð á vörum sínum, fyrr en slík hækkun var leyfð af sömu yfir_ völdum. Loks er það skoðun félagsins, að upphæðin, 1.600.165 kr. fái ekki staðist, og sýndi lögfræðingur Olíufélagsins fram á það fyrir rétfinum, að hún er byggð á útreikningum, sem eru í veru- legum atriðum rangir. , IV. Málinu cifrýjað. Hér er ekki hægt að gefa nema örstutt yfirlit yfir mjög umfangsmiki’ð mál, en það, sem sagt hefur verið, gefur vís- bendingu mn það, að Olíufélagið og' Hið íslenzka stcinolíuhluta. félag geta ekki sætt sig við úrskur’ð Verðlagsdóms og hafa því, svo sem framkvæmdastjórar félaganna og fyryrverandi fram- kvæmdastjóri Olíufélagsins, ekki hikað við að áfrýja honum til hæstaréttar í þeirri öruggu von, að þar fái þau leiðréttingtt mála sinna. F te ••• Tk’i f i •••h «iP p •••1> ••*R3 •"•ófe-> r rt r i . 4 ■- • ' i íufelagið h

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.