Vísir - 06.01.1953, Síða 1
*
4
43. árg.
Þríðjudaginn 6. janúar 1953
U>I.
Minkurinn, scm Carlsen veiddi sl. sunnudag og silungarnir, er
fundust í bæli minksins við vatnsbakkann.
Minkurinn synti tvívegis
40 metra leið í kafi.
En í 3ja siíin kom hann upp, og varð það hans bani.
ÞaS er hægt að veiða mink
að vetrarlagi eins og um sumar,
þóít aflinn sé oftast rýrari í
skammdeginu.
Carl Carlsen minkabani tel-
ur veturinn eðlilega versta
óvin sinn við veiðarnar, en þó
fer hann á stúfana þegar hægt
er. Til dæmis leitaði hann að
mink við Lækjamót við Elliða-
vatn á sunnudaginn og varð
fengsæll. Veiddi hann þar karl-
dýr, sem var 61.5 sentimetrar
á lengd, en furðu digurt og
þungt miðað við lengdina. Vó
það 1970 grömm, og var ó-
venjulega þungt. Má óefað
þakka þetta góðu viðurværi,
því að í bæli minksins fann
Carlsen tvær litlar bleikjur,
,sem minkurinn hafði sýnilega
veríð búinn að veiða fyrir
skemmstu, en auk þess sáust
þar merki þess, að hann hefði
verið nýbúinn að torga bleikju,
þegar hann fékk heimsókn
Carlsens.
En minkurinn var nýkominn
þarna, því að þegar Carlsen
leitaði á þessum slóðum tveim
dögum áður — 2. þ. m. — sá-
ust eða fundust engin ummerki
eftir hann. Hann hefir því ekki
verið lengi að afla sér „í soðið“
þarna.
Annars gerði minkurinn
þrjár tilraunir til þess að kom-
ast undan á sundi, því að
munni var á holu hans undir
yfirborði Elliðavatns, og skauzt
hann þar út tvívegis, synti
langan sveig „til hafs“ í kafi,
en sneri þá jai'nan að landi aft-
ur, og hvarf inn í holuna á ný.
Gizkar Carlsen á, að minkur-
inn hafi synt 40 metra vegar-
lengd í hvort skipti. í þriðja
skipti synti hann beint frá landi
— í kafi eins og áður — en kom
þá' upp. Kom Carlsen þá skoti
á hann, og dasaðist mirikurinn
við það, svo að hundar Carlsens
gátu synt eftir honum og unnið
á honum.
ii r
arsenik*
N. York (AP). — Sex manna
fjölskylda í Guatemala hefur
beðið bana af að eta brauð, sem
gert var að nokkru úr arsenik-
blöndu.
Arsenikblanda þessi var frá
verksmiðju, sem notaði hana
við krossviðarframleiðslu, en
blandan er lík korni í útlíti. Er
álitið, að blöndunni hafi verið
stolið í þeirri trú, að þar væri
um korn að ræða.
De Gauíle-istar
taka ákvörðun í dag
S toki&se jr i ii gar
lalBiáskiirpari.
Skákmenn á Stokkseyri og
Ækranesi reyndu með sér í
fyrrinótt.
Var hér um símskák að ræða,
sem tefld var á 8 borðum, og
fóru leikar svo, að Stokkseyr-
ingar fcngu 4]/z vinning og
urðu hlutskarpari.
París. (A.P.). — René Mayer,
leiðtogi franskra radikala-
flokksins, flytur ræðu í full-
trúadeildinni í dag og fer fram
á traust hennar sem forsætis-
ráðhei-raefni.
René Mayer hefir verið tjáð
af vinveittum manni úr sam-
fylkingu De Gaulles að hún
muni ekki taka afstöðu til hans
fyrr en hann hefir flutt ræðu
sína. Er því allt í óvissu um
það þangað til, hvort René
Mayer getur myndað stjórn,
en það getur hann því aðeins,
að hann fái stuðning samfylk-
ingarinnar.
Kjölur lagður að
risaskipi.
«9
• />
1 pui
Útvarpað frá
bæjarstjórn-
Guirnar Thoroddsen borg-
arstjóri hefur ritað útvarps-
ráði bréf fyrir skemmstu,
þar sein spurzt er fyrir um
möguléika þess, að umræð-
um um fjárhagsáætlun bæj-
arins verðí útvarpað.
Mál þctta mun vera þann-
ig tilkomio, að Þórður
Björnsson bæjarfulltrúi,
flutti um þao tillögu að látið
yrði fara fram slíkt útvarp.
TiIIögu hans var vísað til
bæjarráðs, en síðan hefur
það gerzt, að borgarstjóri
hefur ritað fyrrnefnt bréf.
Mál þetta hefur enn ekki
verið rætt í útvarpsráði, að
því er Vísir vissi bezt í
morguii.
Samvinna við
vestur-þýzku
lögregluna.
Berlín. (A.P.). — Hernáms-
stjórar vesturveldamra í Ber-
lín liafa gert nieð sér sain-
komulag um aukna samvinnu
sín í milli.
Er miðað að því, að auka ör-
yggi á mörkum hernámssvæða
þeirra og hernámssvæðis
Rússa, og jafnframt að talca
upp nánari samvinnu við vest-
ur-þýzku lögregluna. Hinsveg-
ar hafa þeir neitað af nýju, að
vestur-þýzka lögreglan verði
búin hand-vélbvssum.
VerkfaiSið tefur verkið
ekki tll muna.
Inkning er
þ@ MokkiiH amclis*
veðri koiBiin.
Mossadegh biður
um traust.
Snjór um allt
London (AP). — í nótt snjó-
aði tim allt í Breílanái og eru
umferðarörðugleikar talsverðir
af völduni fannkomunnar.
Mjög hefur dregið úr frosti
og mun verða þíðviðri í dag og
krap á vegum, en í kvöld er
aftur búizt við frosti í flest-
um héruðum landsins.
Teheran (AP). — FuIItrúa-
deild pefsneska þingsins mun
í dag greiða atkvæði um
traustsyfirlýsingu á Mossadegh.
Hann fór fram á slíka yfir-
lýsingu, er hann ávarpaði þjóð-
ina í gær í útvarpi. Hann kvað
hana hafa beðið svo lerigi eftir
róttækum umbótum, að hún
mundi ekki una biðinni lengu-r.
Sagði hann þetta með tilliti til
kosningalagabreytinganna, sem
hann hefur í huga, en sæta að
minnsta kosti nokkurri mót-
spyrnu í deildinni.
N. York (AP). — Lagður
hefur verið kjölur að öðru risa-
vöxnu flugstöðvarskipi fyrir
ameríska flotann.
Verður það 60,000 smálestir
að stærð, og verður gefið nafn
ið Saratoga. í júlímánuði i
fyrra var byrjað á smíði fyrsta
risaskipsins af þessu tagi vest-
an hafs — ForrestaH.
farast í flugsfysi fijá
Belfast á N.-Írlandi.
MZhin hr&fjHH flugvélar**
innur þeyttisi 33 metra.
Eínkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Seint í gærkvöldi fórst flug-
vél af Viking-gerð skammt frá
aðalflugbrautinni í flugstöðinni
í Belfast á Norður-írlandi.
27 menn biðu bana, en 8 kom-
ust lífs af, og höfðu þeir allir
meiðst meira og minna.
Um orsök slyssins verður enn
ekki sagt með neinni vissu, en
rannsókn er þegar hafin, og
þegar í nótt lagöi formaður
British European Airways, en
það félag á flugvélina, af stað
á slysstaðinn, ásamt sérfræð-
ingum félagsins.
Flugvélin kom niður um 180
metra f á aðalflugbraut stöðv-
arinnar af svo miklu afli, að
hréyfiil úr henni hentist 35
Vinna hófst afíur við Sogs-
virkjunina í gær, mánudaginn
5. janúar.
Verkfallið sjálft tafði verkið
um þrjár vikur eða svo, en hins
vegár taldi rafmagnsstjóri,
Steingrímur Jónsson, í viðtali
við Vísi í morgun, að þetta
þyrfti ekki að tákna, að hin.
nýja stöð yrði síðar komin í
notkun um það er lýkur.
Rafmagnsstjóri lagði á það
áherzlu, að framkvæmd verks-
ins færi mjög eftir tíðarfari.
Ef veður verða sæmilega hag-
stæð frameftir vetri og fram
á vor, standa vonir til, að hið
nýja orkuver taki til starfa í
júiímánuði í sumar, eins og áð-
ur hafði verið ráðgert.
Sumt af verkinu, svo sem
steinsteypufóðrun í jarðgöng-
unum , miklu ,tefur ekki að
stöðin taki til starfa, því að
það getur hún gert, án þess að
því verki sé fulllokið. Þá standa
vonir til, að útisteypuvinnu
ljúki í maí.
metra frá slysstaðnum. Kvikn-
aði þegar í flugvélinni. Af fjög-
urra manna áhöfn komst að-
eins einn lífs af eða flugvélar-
þjónninn.
Fannkoma var á Bretlands-
eyjum í gærltvöldi og nótt og
tíðast dimmt i lofti, en ekki
svo að mikil hætta stafaði af
við lendingu, að því er talið er,
ef allt væri í lagi með flugvél-
artæki og flugvallarþjónustu,
en þetta og fleira er til rann-
sóknar.
Heyzt hefur, að flugvélin hafi
rekizt á byggingu, þar sem
fjarskiptaeftirlit stöðvarinnar
var til húsa. Flugvélin var í
venjulegu áætlunarflugi frá
London, er slysið bar að hönd-
um.
Um 150 starfa
hjá Fosskraft.
Við Sogsvirkjunina vinna nú
um það bil 150 manns, og má
búast við, að sá fjöldi haldist
nokkurn veginn óbreyttur. .Að
vísu má gera ráð fyrir því,
að verktakinn Fosskraft, sem
hefur með sjálfar byggingar-
framkvæmdir að gera, fækki
eitthvað við .síg verkamönnum,
en að sama skapi verður þeim
fjölgað, sem fá ’vinnú við niður-
setningu véla.
Efnisútvegun til verksins hef-
ur gengið að óskum, og eru all-
ar meiri háttar vélar og véla-
hlutar komnir hingað, en vitað,
að ýmislegt smávegis, sem til
þarf við niðursetningu véla, er
á leiðinni til landsins.
Mest frost á Þingvöiium
- 12 stig.
f nótt kólnaði talsvert með
norðanátt víða um land og
björtu veðri.
Með ströndum fram fyrir
vestan og norðan er frostlítið,
en meira frost inn til fjalla,
Á Grímsstöðum var 10 stiga
frost í morgun kl. 8, en mest
frost var á Þingvöllum — 12
stig. Gert er ráð fyrir þykkn-
andi veðri og sunnan átt hér
syðra á næstunni og líklegt atf
bregði til snjókomu.
S