Vísir - 06.01.1953, Síða 4
4
VtSIH
Þriðjudaginn 6. janúar 1953
D4GBLAÐ
Kitatjórar: Kristján Guðiaugsson, Hersteinn Pálsson.
Skrifstoíur Ingólfsstrœti 3.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁPAJSÍ VlSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm linur).
Lausasala 1 króna
Félagsprentsmiðjan h.f.
Þegar hjiíin deila.
Yíðtækar hreinsanir fara nú fram víða um heun innan kom-
múnistaflokkanna, en í því sambandi er vert að minnast
aftakanna, sem fram fóru nýlega í Prag og vakið hafa heims-
athygli. Þá hefur gætt nokkurrar ólgu í Rúmeníu, þar sem
Anna Pauker og félagar hennar bíða síns dóms, ennfremur í
Póllandi, Austur-Þýzkalandi, Ungverjalandi og víðar. Á ítalíu
og í Frakklandi hefur hóp manna verið vikið úr flokknum, og
nú síðast Marty, sem er eimi af kunnustu forvígismönnum
flokksins í Frakklandi. Áður hefur allmörgum áhrifamönnum
verið vikið úr flokknum, og er komin upp einkennileg deiia
milli flokksbrotanna, sem óhjákvæmilega vekur mikla athygii.
Á dögum Vichy-stjórnarinnar vildi það til, er verið var að
flytja gífurlega mikla fjárhæð milli borga í Frakklandi, að á
smástöð einni var árás gerð á járnbrautarlest þá, sem fjárhæð
þessa flutti, og henni rænt. Stóð allfjölmennur og vel skipulagður
hópur manna að verki þessu, en ekki tókst að hafa hendur í
hári þeirra og ei heldur að hafa upp á fé því, sem rænt var,
enda hefur aldrei hafst upp á því. Einn af foringjum kommún-
ista, sem er borgars*jóri í smáborg einni í Frakklandi, hefur
reynzt valdamömm iokksins óhlýðmn og staðið uppi í hárinu
á þeim. Hefur þetta ieitt til, að manninum var vikið úr flokkn-
um, en jafnframt var hann krafinn um gífurlega fjárhæð, sein
fiokksstjórnin taldi að honum bæri að afhenda. Hefur nú komið
upp úr kafinu, að hér er um að ræða fjármagn það, sem í-ænt
var á dögum Vichv-stjórnarinnar, sem og að franskir kom-
'múnLstar voru þar að verki.
Borgarstjóri sá, sem hér á hlut að máli hefur snúist illa
við öllum kröfum flokksstjórnarinnar, og hefur jafnframt lýst
yfir því, að svo fjarri fari, að sér beri að svara til fjárkrafna
af flokksins hálfu, að hann eigi verulega fjárhæð, — sem skiptir
raunar nokkrum tugum milljóna franka, — hjá flokksstjórn-
inni. Telur hann að hinu rænda fé hafi sumpart verið vunð til
styrktar neðanjarðarhreyfingunni á styrjaldarárunum, en auk
þess hafi milljónatugum franka verið varið til kaupa á hús-
eignum fyrir foringja flokksins og ennfremur til flokksstarísins
eftir að styrjöldinni lauk. VirðisJ reikning'sfærslan öll frekar
vafasöm, engu síður en aoferðin, er fjárins var aflað. Kann svo
að fara að klofningurinn innan franska kommúnistaflokksins
• kunni að draga nokkurn dilk á eftir sér einkum vegna þessa
athygliverða máls, sen minnir dálítið á starfsaðferðir rússneska
kommúnistaflokksins fyrir byltinguna. Var sumum flokksmör.n-
um þar í landi taíið það helzt til ágætis, að þeir hefðu staðið
fyrir bankaránum og annarri ólöglegri fjáröflun flokknum til
handa, og hefði því hinn franski ræningjaíoringi einnig ált að
vera vél metin innan flokksins þar í landi.
Vistmenn Elliheimilisins
Grundar 300 í árslok ’52.
Konur voru 223 en karkr aðeins 77.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið hefur fengið hjá
Elli- og hjúlírunnrheimiMnu
Grund, voru vistmenn þar í
árslok 300, þar af konur 223 og
karlar 77.
í heiroilið komu á árinu 79
konur og 39 karlar eða 118, en
19 konur fóru og jafnmargir
karlar, samtals 38. Dauðsföll
voru 54, 41 kona og 13 karlar. -
Meðalaldur dáinna 1952
reyndist vera:
Vistmenn 65 ára og eldri:
Konur 83 ára og' 1 mán. Karlar
83 ára og 5 mánuðir. Meðalald-
ur 83 ár og 2 mánuðir.
Skemmstur dvalartími var 1
dagur, en lengstur 12 ár og 296
dagar. Mcðáldvulartinú 3 ar
og 160 dagar.
Yfirlit um vistmenn
1935—1952:
Komnir: 1062 konur og 578
karlar, samtals 1640, farnir:
503 konur og 297 karlar eða
800, dánir: 416 konur og 248
karlar, samtals 664.
Þá er þess að geta, að í elli-
og dvalarheimilinu, sem sett
var á stofn í Hveragerði, eru 3
konur og 10 karlmenn, og eru
það alveg öfug hlutföll við það
-uo>[ mo uecj ípuniQ e ia uias
urnar í miklum meiri hluta, en
eystra karlmennirnir.
Á Grund er nú hvert rúm
skipað. Forstöðumaðurinn,
Gísli Sigurbjömsson, sagði í
stuttu viðtali við Vísi í morg-
un, að það sem tilíinnanlegast
vantaði væri, að ekki væri unnt
að veita fleiri veikum gamal-
mennurn viðtöku, þar sem
heimilin skortir oft skilyrði til
að annast þau svo að vel sé.
Rétt sem dæmi nefndi forstöðu-
maðurinn, að aðeins í morgun
— fyrir klukkan hálfellefú,
hefði verið búið að biðja um að
taka við þremur veikum gam-
almennum.
N. Delhi (AP). — Fárviðri
mikið gekk yfir strandhéru'ð
Madras-fylkis í síðustu viku
og olli feikilegu tjóni.
Veðrið varð um 350 manns
að bana, en að auki er áætlað,
að það hafi drepið um 26,000
nai^tgripi og eyðilagt eða
skemmt 300,000 hús.
Um bessar nnmdir er verið
að ljíika við að bólustja öll
lömb, sem flutt voru úr Suður-
Þingeyjarsýslu suður í Arnes-
sýslu í haust.
Lömb þessi eru 12,500 talsins
og eru þau bólusett í öryggis
skyni gegn garnaveiki.
Nýlega er lokið húðprófun
sauðfjár vegna garnaveiki-
hættunnar frá Eyjafirði austur
að Skjálfandafljóti. Mun haía
verið húðprófað seinast á 1—
bæjum Flateyjardal, sem eftir
voru, og í Flatey. — Ekki hefur
fundizt garnaveiki á Svalbarðs-
strönd né í Grýtubakkahreppi
frá því í október.
Eólusett var á Aursturiandi
vegna garnaveiki. Með'al bæuda
á húðprófunarsvæðinu og víðar,
er mikill áhugi fyrir bólusetn-
ingu til aukins örvg'gis. Gera
menn sér góðar vonir un.i á-
rangur af notkun bóluefuis'ns.
11. O, II. Rydelsborg
t
klæðskerameistari er 70 ára í
dag'.: Hann dvelur á sjúkrahúsi
urn þessar mundir. Munu vinir
hans senda honum kveðjur og
árnaðaróskir í tilefni dagsins.
"jl/feðah verkfallið stóð yfir í desembermánuði greiddi- Verka-
ITJ. niannafélagið Dagsbrún nokkra verkfallsstyrki úr sjóðum
sínum, en talið var að styrkurinn væri mjög skorinn við neglur.
Þannig fengu hjónin í sinn hlut kr. 100,00 á viku, en íyrir
h vérn ómaga kr. 50,00. Hrökk þetta fé að sjálfsögðu. eldd.fyrii
nauðþurftum og sætti slík afg'reiðsla af félagsins hálfu nokk-
urri -gagnrýni meðal almennings: Hinsvegar hömpuðu. komm-
únistar í Dagsbrún því mjög, að verkamenn skyldu ókvíðnir
haida verkfallinu áfram fram yfir áramótin, með því að alþjóða
verkalýð'ssarnband kommúnista, hefði samþykkt ríflegan fjár-
slyrk til verkfallsmanna, sem sumir töldu að nemá myndi unf
30 millj. kr., en aðrir ræddu um. lægri upphæð.
Meðan á verkíallinu stóð var talið að' borist hefði greiðsia
frá alþjóðasambandi verkalýðsfélaga kommúnista, sem heiur
bækistöðvar í Vínarborg. Verkamenn sögðu að þétta væri
fyrsta fjársendingin og næmi hálfri annarri milljón króna, en
fénu myndi verða úthlu-tað verkfallsmörmum til styrktar. Um
frekari fjárveitingar hefur ekki heyrst, og svo er jafnvel að
sjá, sem ekkert fé hafi enn þá borist frá alþjóðasambandinu,
nema því aðeins að það sé vel geymt og dult með farið aí
konjmúnistum. Er full ástæða til að slíkri fj áraflastárfsemi sé
nokkur gaumur gefinn og kommúnistar krafðir sagna uni' styrk-
veitinguna. Ætti þetta að yera þeim auðveldara,. sem vitað er. að
íélagi Björn Bjarnason aflaði sjálfur fyrirheits um fjárstyrkinn
og lagði við nafn siit og æru, að hann yrði af hendi látinn.
Virtust skeyti frá alþjóðasambandinu, sem birt vcru í Þjóð-
yiljanurn, einnig styðja þá fUllyrðingu Björns að nokkurs
. styrks væri áð vænta til verkfallsmanna af' samtakanna hálfu,
sem rnjög dáðu baráttuna og loíuðu með íogrum orðum. En
hvar fer íjárstyrurinn niður kominn, eða liefur hann aldrei
verið veittur eða hingað sendur?
Kæktarsemi
cr virðliigarverfí.
Ví^ir skýrði frá því i frétt-
urn á þriðja degi jóla, að svo
margir hefðu farið suður í
Fossvogskirkjugarð eftir há-
degi á aðfangadag, að af hefði
orðið nokkur umferðartruflun,
þar sem bílafjöldinn við
Reykjanesbraut hefði verið svo
mikill. Er það virðingarvert, er
menn sýna horfnum ástvinum
virðingu með því að skreyta
leiði þeirra,' sem var erindi
fléstra í kirkjugarðinn þenna
dag öðrutn fremur.
Þeim mun leiðinlegra
er það, þegar slíkt atvik kem-
ur fyrir, sem einn lesandi
blaðsins skýrði frá, er hann
hafði lesið. frásögn þéss af þess-
um heimsóknum að legstöðum
ástvina. Maður þessi hafði . í
fyrra gróðursétt grenitré —•
jólatré — á leiði móður sinnar
og vonazt til þess, að þar mundi
geta vaxið mikið: tré og í'agurt.
En þeg'ar hann kom suður í
kii'kjugarð á aðfangadag, var
þar öðru vísi umhorfs, en hann
hafði átt von á.
Siðleysi.
Tréð hafði verið skorið niður
við rót, svo að ekkert sást af
því. nema örlítill stúfur, sem
náði rétt upp úr moldinni. Það
þarf varla að lýsa því, hvernig
manninum varð við, er hann
sá leiði móður- sinnar svívirt á
þenná hátt, en því miður er
þetta ekki eins dæmi. Eg veit
snnur á því, að þáð hefir kom-
ið oftar fyrir, að gróður hefur
veyið rifinn upp af leiðum.
Glefíileg jóJ.
íslenzk tunga á varla nægi-
lega sterk orð til þess að lýsa
slíku framferði manna, og vei'ð-
ur sennilega — í þetta sinn —
að láta nægja að skila kveðj-
um um gleðileg jói til þess, er
skar jólatréð niður, svo sem að
íraman segir. í dag cr þrett-
Yfirmaður Keflavíkurflug-
vallar, Elkin ofursti, hafði ný-
ársboð bar syðra á sunnudag-
inn.
Voru þar meðal boðsgesta
Steingrímur Steinþórsson for-
sætisráðherra, várnarmála-
nefnd, fulltrúar erlendra ríkja
og fleiri, auk æðstu manna
varnarliðsins, Brownfields hers
höfðingja og nánustu sam-
starfsmanna hans og Elkins
ofursta.
Laugaraeshveríi
íbúar þar þurfa ekki að
fara lengra en í
Bókabúðlna Laugarr.es,
liailgaraesvegl 50
til að koma smáauglýs-
ingu í Yísi.
Smáauglýslngar Vísls
borga sig bezt.
Fyrirliggjandi
hnoðaður mör
Verzhm
Sigfúsar Guðfinns&onar,
Nönmigötu 5. Sími 5220.
Sniðkennsla
Námskeiö í kjólasniði
hefst hjá mér að forfa'lla-
latisu 12. janúar. Vænta'n-
legir nemendiir gjöri svo
vel og gefi sig fram slrax.
Síðdegis og kvöldtímar.
Sigríður Sveinsdóttir,
Idæðskeramcistari
Sími 80801.
JÞ
ándi dagur jóla, og síðustu for-
vöð að biðja þann vesaling að
njóta heilan handa.'
Ótrúlegt en satt.
Það er vissulega ótrúlegt, að
þetta skuli eiga sér stað nieðál
hinnar íslenzku menningar-
þjóðar, en það er satt — því
niiður! Maður skyldi sízt ætla,
að vandalar legðu leið sína í
kirkjugarð bæjarins, en þeim
er sýnilega ekkert heilagt. Von-
andi hafa þeir jafnan gleði af
feng sínum. —■ kr.
Nr. 332.
llver er sá liluíur, sem Iieit-
ir eins og einn gufís cigin-
leiki?
Svar við gátu nr. 331:
Spónn.