Vísir


Vísir - 06.01.1953, Qupperneq 4

Vísir - 06.01.1953, Qupperneq 4
4 VtSIH Þriðjudaginn 6. janúar 1953 D4GBLAÐ Kitatjórar: Kristján Guðiaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstoíur Ingólfsstrœti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁPAJSÍ VlSIR H.F. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm linur). Lausasala 1 króna Félagsprentsmiðjan h.f. Þegar hjiíin deila. Yíðtækar hreinsanir fara nú fram víða um heun innan kom- múnistaflokkanna, en í því sambandi er vert að minnast aftakanna, sem fram fóru nýlega í Prag og vakið hafa heims- athygli. Þá hefur gætt nokkurrar ólgu í Rúmeníu, þar sem Anna Pauker og félagar hennar bíða síns dóms, ennfremur í Póllandi, Austur-Þýzkalandi, Ungverjalandi og víðar. Á ítalíu og í Frakklandi hefur hóp manna verið vikið úr flokknum, og nú síðast Marty, sem er eimi af kunnustu forvígismönnum flokksins í Frakklandi. Áður hefur allmörgum áhrifamönnum verið vikið úr flokknum, og er komin upp einkennileg deiia milli flokksbrotanna, sem óhjákvæmilega vekur mikla athygii. Á dögum Vichy-stjórnarinnar vildi það til, er verið var að flytja gífurlega mikla fjárhæð milli borga í Frakklandi, að á smástöð einni var árás gerð á járnbrautarlest þá, sem fjárhæð þessa flutti, og henni rænt. Stóð allfjölmennur og vel skipulagður hópur manna að verki þessu, en ekki tókst að hafa hendur í hári þeirra og ei heldur að hafa upp á fé því, sem rænt var, enda hefur aldrei hafst upp á því. Einn af foringjum kommún- ista, sem er borgars*jóri í smáborg einni í Frakklandi, hefur reynzt valdamömm iokksins óhlýðmn og staðið uppi í hárinu á þeim. Hefur þetta ieitt til, að manninum var vikið úr flokkn- um, en jafnframt var hann krafinn um gífurlega fjárhæð, sein fiokksstjórnin taldi að honum bæri að afhenda. Hefur nú komið upp úr kafinu, að hér er um að ræða fjármagn það, sem í-ænt var á dögum Vichv-stjórnarinnar, sem og að franskir kom- 'múnLstar voru þar að verki. Borgarstjóri sá, sem hér á hlut að máli hefur snúist illa við öllum kröfum flokksstjórnarinnar, og hefur jafnframt lýst yfir því, að svo fjarri fari, að sér beri að svara til fjárkrafna af flokksins hálfu, að hann eigi verulega fjárhæð, — sem skiptir raunar nokkrum tugum milljóna franka, — hjá flokksstjórn- inni. Telur hann að hinu rænda fé hafi sumpart verið vunð til styrktar neðanjarðarhreyfingunni á styrjaldarárunum, en auk þess hafi milljónatugum franka verið varið til kaupa á hús- eignum fyrir foringja flokksins og ennfremur til flokksstarísins eftir að styrjöldinni lauk. VirðisJ reikning'sfærslan öll frekar vafasöm, engu síður en aoferðin, er fjárins var aflað. Kann svo að fara að klofningurinn innan franska kommúnistaflokksins • kunni að draga nokkurn dilk á eftir sér einkum vegna þessa athygliverða máls, sen minnir dálítið á starfsaðferðir rússneska kommúnistaflokksins fyrir byltinguna. Var sumum flokksmör.n- um þar í landi taíið það helzt til ágætis, að þeir hefðu staðið fyrir bankaránum og annarri ólöglegri fjáröflun flokknum til handa, og hefði því hinn franski ræningjaíoringi einnig ált að vera vél metin innan flokksins þar í landi. Vistmenn Elliheimilisins Grundar 300 í árslok ’52. Konur voru 223 en karkr aðeins 77. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið hefur fengið hjá Elli- og hjúlírunnrheimiMnu Grund, voru vistmenn þar í árslok 300, þar af konur 223 og karlar 77. í heiroilið komu á árinu 79 konur og 39 karlar eða 118, en 19 konur fóru og jafnmargir karlar, samtals 38. Dauðsföll voru 54, 41 kona og 13 karlar. - Meðalaldur dáinna 1952 reyndist vera: Vistmenn 65 ára og eldri: Konur 83 ára og' 1 mán. Karlar 83 ára og 5 mánuðir. Meðalald- ur 83 ár og 2 mánuðir. Skemmstur dvalartími var 1 dagur, en lengstur 12 ár og 296 dagar. Mcðáldvulartinú 3 ar og 160 dagar. Yfirlit um vistmenn 1935—1952: Komnir: 1062 konur og 578 karlar, samtals 1640, farnir: 503 konur og 297 karlar eða 800, dánir: 416 konur og 248 karlar, samtals 664. Þá er þess að geta, að í elli- og dvalarheimilinu, sem sett var á stofn í Hveragerði, eru 3 konur og 10 karlmenn, og eru það alveg öfug hlutföll við það -uo>[ mo uecj ípuniQ e ia uias urnar í miklum meiri hluta, en eystra karlmennirnir. Á Grund er nú hvert rúm skipað. Forstöðumaðurinn, Gísli Sigurbjömsson, sagði í stuttu viðtali við Vísi í morg- un, að það sem tilíinnanlegast vantaði væri, að ekki væri unnt að veita fleiri veikum gamal- mennurn viðtöku, þar sem heimilin skortir oft skilyrði til að annast þau svo að vel sé. Rétt sem dæmi nefndi forstöðu- maðurinn, að aðeins í morgun — fyrir klukkan hálfellefú, hefði verið búið að biðja um að taka við þremur veikum gam- almennum. N. Delhi (AP). — Fárviðri mikið gekk yfir strandhéru'ð Madras-fylkis í síðustu viku og olli feikilegu tjóni. Veðrið varð um 350 manns að bana, en að auki er áætlað, að það hafi drepið um 26,000 nai^tgripi og eyðilagt eða skemmt 300,000 hús. Um bessar nnmdir er verið að ljíika við að bólustja öll lömb, sem flutt voru úr Suður- Þingeyjarsýslu suður í Arnes- sýslu í haust. Lömb þessi eru 12,500 talsins og eru þau bólusett í öryggis skyni gegn garnaveiki. Nýlega er lokið húðprófun sauðfjár vegna garnaveiki- hættunnar frá Eyjafirði austur að Skjálfandafljóti. Mun haía verið húðprófað seinast á 1— bæjum Flateyjardal, sem eftir voru, og í Flatey. — Ekki hefur fundizt garnaveiki á Svalbarðs- strönd né í Grýtubakkahreppi frá því í október. Eólusett var á Aursturiandi vegna garnaveiki. Með'al bæuda á húðprófunarsvæðinu og víðar, er mikill áhugi fyrir bólusetn- ingu til aukins örvg'gis. Gera menn sér góðar vonir un.i á- rangur af notkun bóluefuis'ns. 11. O, II. Rydelsborg t klæðskerameistari er 70 ára í dag'.: Hann dvelur á sjúkrahúsi urn þessar mundir. Munu vinir hans senda honum kveðjur og árnaðaróskir í tilefni dagsins. "jl/feðah verkfallið stóð yfir í desembermánuði greiddi- Verka- ITJ. niannafélagið Dagsbrún nokkra verkfallsstyrki úr sjóðum sínum, en talið var að styrkurinn væri mjög skorinn við neglur. Þannig fengu hjónin í sinn hlut kr. 100,00 á viku, en íyrir h vérn ómaga kr. 50,00. Hrökk þetta fé að sjálfsögðu. eldd.fyrii nauðþurftum og sætti slík afg'reiðsla af félagsins hálfu nokk- urri -gagnrýni meðal almennings: Hinsvegar hömpuðu. komm- únistar í Dagsbrún því mjög, að verkamenn skyldu ókvíðnir haida verkfallinu áfram fram yfir áramótin, með því að alþjóða verkalýð'ssarnband kommúnista, hefði samþykkt ríflegan fjár- slyrk til verkfallsmanna, sem sumir töldu að nemá myndi unf 30 millj. kr., en aðrir ræddu um. lægri upphæð. Meðan á verkíallinu stóð var talið að' borist hefði greiðsia frá alþjóðasambandi verkalýðsfélaga kommúnista, sem heiur bækistöðvar í Vínarborg. Verkamenn sögðu að þétta væri fyrsta fjársendingin og næmi hálfri annarri milljón króna, en fénu myndi verða úthlu-tað verkfallsmörmum til styrktar. Um frekari fjárveitingar hefur ekki heyrst, og svo er jafnvel að sjá, sem ekkert fé hafi enn þá borist frá alþjóðasambandinu, nema því aðeins að það sé vel geymt og dult með farið aí konjmúnistum. Er full ástæða til að slíkri fj áraflastárfsemi sé nokkur gaumur gefinn og kommúnistar krafðir sagna uni' styrk- veitinguna. Ætti þetta að yera þeim auðveldara,. sem vitað er. að íélagi Björn Bjarnason aflaði sjálfur fyrirheits um fjárstyrkinn og lagði við nafn siit og æru, að hann yrði af hendi látinn. Virtust skeyti frá alþjóðasambandinu, sem birt vcru í Þjóð- yiljanurn, einnig styðja þá fUllyrðingu Björns að nokkurs . styrks væri áð vænta til verkfallsmanna af' samtakanna hálfu, sem rnjög dáðu baráttuna og loíuðu með íogrum orðum. En hvar fer íjárstyrurinn niður kominn, eða liefur hann aldrei verið veittur eða hingað sendur? Kæktarsemi cr virðliigarverfí. Ví^ir skýrði frá því i frétt- urn á þriðja degi jóla, að svo margir hefðu farið suður í Fossvogskirkjugarð eftir há- degi á aðfangadag, að af hefði orðið nokkur umferðartruflun, þar sem bílafjöldinn við Reykjanesbraut hefði verið svo mikill. Er það virðingarvert, er menn sýna horfnum ástvinum virðingu með því að skreyta leiði þeirra,' sem var erindi fléstra í kirkjugarðinn þenna dag öðrutn fremur. Þeim mun leiðinlegra er það, þegar slíkt atvik kem- ur fyrir, sem einn lesandi blaðsins skýrði frá, er hann hafði lesið. frásögn þéss af þess- um heimsóknum að legstöðum ástvina. Maður þessi hafði . í fyrra gróðursétt grenitré —• jólatré — á leiði móður sinnar og vonazt til þess, að þar mundi geta vaxið mikið: tré og í'agurt. En þeg'ar hann kom suður í kii'kjugarð á aðfangadag, var þar öðru vísi umhorfs, en hann hafði átt von á. Siðleysi. Tréð hafði verið skorið niður við rót, svo að ekkert sást af því. nema örlítill stúfur, sem náði rétt upp úr moldinni. Það þarf varla að lýsa því, hvernig manninum varð við, er hann sá leiði móður- sinnar svívirt á þenná hátt, en því miður er þetta ekki eins dæmi. Eg veit snnur á því, að þáð hefir kom- ið oftar fyrir, að gróður hefur veyið rifinn upp af leiðum. Glefíileg jóJ. íslenzk tunga á varla nægi- lega sterk orð til þess að lýsa slíku framferði manna, og vei'ð- ur sennilega — í þetta sinn — að láta nægja að skila kveðj- um um gleðileg jói til þess, er skar jólatréð niður, svo sem að íraman segir. í dag cr þrett- Yfirmaður Keflavíkurflug- vallar, Elkin ofursti, hafði ný- ársboð bar syðra á sunnudag- inn. Voru þar meðal boðsgesta Steingrímur Steinþórsson for- sætisráðherra, várnarmála- nefnd, fulltrúar erlendra ríkja og fleiri, auk æðstu manna varnarliðsins, Brownfields hers höfðingja og nánustu sam- starfsmanna hans og Elkins ofursta. Laugaraeshveríi íbúar þar þurfa ekki að fara lengra en í Bókabúðlna Laugarr.es, liailgaraesvegl 50 til að koma smáauglýs- ingu í Yísi. Smáauglýslngar Vísls borga sig bezt. Fyrirliggjandi hnoðaður mör Verzhm Sigfúsar Guðfinns&onar, Nönmigötu 5. Sími 5220. Sniðkennsla Námskeiö í kjólasniði hefst hjá mér að forfa'lla- latisu 12. janúar. Vænta'n- legir nemendiir gjöri svo vel og gefi sig fram slrax. Síðdegis og kvöldtímar. Sigríður Sveinsdóttir, Idæðskeramcistari Sími 80801. JÞ ándi dagur jóla, og síðustu for- vöð að biðja þann vesaling að njóta heilan handa.' Ótrúlegt en satt. Það er vissulega ótrúlegt, að þetta skuli eiga sér stað nieðál hinnar íslenzku menningar- þjóðar, en það er satt — því niiður! Maður skyldi sízt ætla, að vandalar legðu leið sína í kirkjugarð bæjarins, en þeim er sýnilega ekkert heilagt. Von- andi hafa þeir jafnan gleði af feng sínum. —■ kr. Nr. 332. llver er sá liluíur, sem Iieit- ir eins og einn gufís cigin- leiki? Svar við gátu nr. 331: Spónn.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.