Vísir - 07.01.1953, Side 1

Vísir - 07.01.1953, Side 1
43. árg. Miðvikudaginn 7. janúar 1953 4. tbl Bílar af þessu tagi koma frá Israel á næstunni. Atvinnubílstjórar fá 62 Kaiserbíla frá ísrael. Greití fyrir þá með hálfum fiskfarmi. Gert er ráð fyrir, að Kaiser- bílamir, sem íslendingar hafa fest kaup á í tsrael, komi hingað í loks þessa mánaðar eða fe- brúarbyrjun. Er hér um að ræða 62 fólks- bíla, sem atvinnubílstjórar munu fá, eins og Vísir hefur áður greint frá. Bílar þessii' verða greiddir með hálfum farmi af frystum fiski, en auk þess fáum við nokkurt magn af ýmislegum vörum frá ísrael upp í fisk- magnið, og hafa sendimenn héð- an veiið á ferð í ísrael til þess að velja þessar vörur, og mun þessu máli nú komið í höfn. Vísir hefur átt tal við Guð- mund Gíslason, fulltrúa hjá Gísla Jónssyni & Co., sem hefur söluumboð fyrir Kaiser-bíla hér, en umboðsmaður þeirra er Ingólfur Gíslason stórkaup- maður. Guðmundur er nýkominn frá ísrael, var um hálfan mánuð í förinni. Það er fyrirtækið „Kaiser-Frazer of Israel“, sem flytur þar inn bíla þessa eða öllu heldur hluta í bílana, sem síðan eru settir saman í borg- inni Haifa. Hafa þegar verið settir saman um 3000 þílar af þessari gerð, og hafa reynzt mjög vel. Þetta eru fjögurra dyra fólksbílar, hinir vönduðustu að öllum frágangi, að því er Guð- mundur segh', en hann fylgdist með vinnubrögðum, er þeir voru settir saman. M. a. gat hann þess, að sérstakar ráð- stafanir hafi verið gerðar til þess að hafa bílana íykþétta, þar sem þeii' verða notaðir í löndum, þar sem ekki eru alls staðar malbikaðir vegir. Emi- fremur er grindin sterkaii en títt er um ameríska bíla, bólstr- un mjög vönduð og fleira með traustari hætti en venja er til. Bílarnir verða fluttir heim í lest, að sjálfsögðu, en bæði Eimskipafélagsskipin, Katla og fleiri íslenzk skip geta annazt þá flutninga, þótt ennþá hafi ekki verið ákveðið, hvaða skip komi hér til greina. Kenyabændur reiðir yfirvöldunum. London (AP). — Gremja hvítra manna í Kenya gegn stjórnarvöldunum fer óðum vaxandi. Telja þeir, að landstjórnin eigi sök á því, hver óöld er nú í landinu, því að hún hafi ætlað að taka á óaldarseggjunum með silkihönzkum, en það hafi að- eins gert illt verra. Héldu hvít- ir bændur — 500 talsins -— fund í Nairobi i gær og gei-ðu enn kröfu um að lýst yrði hernað- arástandi i landinu. En svo alvarlegt þykir ástand ið nú, að Sir Brian Robertson hershöfðingi er kominn til þess að kynna sér það. Bíilcnn hrökk i tvo hfuti. Óvenjulegt bílslys varð ný- lega skammt frá New York, er bifreið rarm til á ísuðum vegi og lenti á 25 sm. gildu tré. Hrökk bifreiðin í tvennt og staðnæmdust hlutarnir sex metra hvor frá öðrum, en hægri framhurðin, sem varð fyrir mesta hnjaskinu við árekstur- inn, lagðist utan um tréð, eins og það væri vafið inn í pappír. Mayer lýkur stjómarmynd- un sinni í kvöld. Milljón naut- gripa féll. London (AP). — Fyrir nokkrum dögum brá til úr- komu í Norður-Ástralíu með komu Monsúnvindanna, Siðan hefur ekki orðið lát á úrkomu og er því talið, að úr- komutíminn sé raunverulega byrjaður. Talið er, að í fyrsta lagi eftir tvö ár, miðað við hagstæð skilyrði, komist iiaut- gripafjöldinn upp í það. sem hann var fyrir hið langviniia þm'rkatímabil, sem nú er á enaa. í Queensland og í norðurhlpta landsins er talið, að failið hafi af völdam þurrkanna milljón stórgri' á undanfoengnu;n 2 arum. Fékk fraust 389 atkv. Einkaskeyti frá AP. París í morgun. Rene Mayer, leiðtogi radi- kala flokksins, hefst í dag handa um val ráðherra í stjórn sína. Fulltrúadeildin samþykkti í nótt að veita honum traust sem forsætisráðherraefni. Líklegt er, að ráðherralistinn verði tilbú- inn í kvöld. Aður en Rene Mayer gerði grein fyrir stefnu sinni, voru menn mjög í vafa umí hvort traustsyfirlýsingin mundi verða samþykkt, þar sem þingflokkur samfylkingar De Gaulles hafði ákveðið að bíða átekta þar til flutningi ræðunnar væri lokið. En svo fóru leikar, að hún var samþykkt með 389 at- kvæðum gegn 205, og greiddu aðeins jafnaðar- menn og kommúnistar óg nokkrir óháðir þingmenn at- kvæði gegn henni. Rene Mayer tókst að koma í veg fyrir, að allt strandaði á andúð Gaulle-ista á vafnar- samningunum, með því að kref j ast þess eins, að þeir yrðu bráð- lega lagðir fyrir þingið. Jafn- í gærkvöldi — gegti 205. framt tók hann fram, að stjórn- in mundi taka þessi mál og af- stöðu Breta til þeirra til sér- stakrar endurskoðunar. Rene Mayer kvaðst og mundu beita sér fyrir stjórnarskrárbreyt- ingu, svo að ríkisstjórnin gæti gefið út bráðabirgðalög og til- skipánir, ef þörf krefði. Þingið verður að fallast á ráð herralista Rene Mayer, til þess að honum heppnist stjórnar- myndunin, en horfurnar eru taldar þær, að ný stjórn verði skipuð í kvöld eða nótt. Bidault mun að líkindum verða utan- ríkisráðherra. Hæddu þeir um Kóreu? N. York (AP). — Ekkert er láti uppi um viðræður Churc- hills við foringja republikana. Þeim mun fleiri ágizkanir korna fram í blöðum um um- ræðuefnin, en þó eru þau sam- mála uríi, að Kórea hafi verið á dagskrá. Eisenhower hefur boð- að' nánustu samstarfsmenn sína á fund á mánudaginn. Hættan enn yfirvofandi, en Íýðræðisþjóðum vex máttur Eden flytur ræðu um heimsmálin. Eisenhower kom á fund Churchills. N. York (AP). — Eisenhow- er heimsótti Churchill í fyrrad. á heimili Bemards Baruchs. Churchíll er gestur Baruchs þá 2—3 daga, sem hann dvelst í New York. Ræddust þeir við eina og hálfa klukkustund, Churchill og Eisenhower. Síðar sátu þeir miðdegisverðarboð hjá Baruch. Fyrr um daginn ræddust þau við Churchill og Eleonore Roosevelt, ekkja Franklins Roosevelts. ■...- « Mokafli Sand- gerðisbáta. Tveir bátar fá 21 skpd. í róðri. Sjö bátar frá Sandgerði fóru í fyrsta róður sinn á vertíðinni í gær og var al'I- inn yfirleitt með ágætum. Tveir bátanna fengu 21 skippund, 103/2 lest, í róðrin- um, og er það nánast mok- afli. Afli bátanna var yfir- leitt góður, frá 5 Iestum. — Þykir sjdmönnum þetta spá góðu um afla á vertíðinni, og ræða um það sín á milli hvort friðunin muni ekki eiga sinn þátt í því, hve vel aflaðist. Nokkrir bátar frá Keflavík voru á sjó í gær og var afli þeirra svipaður og hjá Sandgerðisbátum frá 5 upp í 9 Iestir. ----4----- Ford græddi 87 millj. dollara. Árið 1951 seldu Ford-verk- smiðjurnar bifreiðir — Ford, Linsoln, Mercury — fyrir 2,952 miiljónir dollara. Ford-félagið er einkaeign Ford-fjölskyldunnar og hefur aldrei skýrt frá rekstri sínum, en þetta kemur fram í skatt- skýrslum. Hagnaðurinn af þessari veltu er tæplega 3% eða 87 milljónir dollara. Fyrsti japanski sendiherrann í Ástralíu eftir síðari heims- styrjöldina, kom þangað i morgun. Einkaskeyti frá AP. 1 London í morgun. Eden utanríkisráðherra Bret- lands flutti útvarpsræðu í gær- kveldi um stefnu brezku stjórn arinnar í utanríkismálum, á- stand og horfur. Hann kvað hin um frjálsu þjóðum enn hættu búna vegna stefnu Rússa. Eden kvað Breta miða að því, að koma á tryggum friði og stuðla að bættum efnahag þjóð anna og nýju kerfi til jafnvægis í þeim efnum. „Þegar vér segjum, að dreg- ið 'hafi úr ófriðarhættunni,“ sagði Eden, „eigum vér við það, að vér séum nú öflugri en áð- ur.“ Hann drap á það, sem er að gerast í löndum þeirra þjóða, sem knúðar hafa verið til þess að fylgja Rússum að málum. Sýnilegt væri, að þar ættu sér stað geigvænleg átök, og væri ekki sízt ískyggilegt, að nú væri farið inn á þá braut, að ala á Gyðingahatri. Trausíur efna- hagur nauðsyn. Hann kvað frjálsu þjóðirnar ekki mega draga af sér við að koma vörnum sínum og efna- hag á traustan grundvöll. Ef þær gerðu það gæti allt glat- ast, sem áunnist hefði. Hann. taldi mikilvæga samvinnu Grikkja og Tyrkja og upptöku þeirra í N.A.-varnarbandalag- ið, og aukin samvinna millL Jugoslava viðfyrrnefndar Balk- anþjóðir væri og mikilvæg. ■— Einnig ræddi Eden áformin um. varnarbandalag hinna nálægu Austurlanda. — Um Kóreu sagði hann, að þar hefði ofbeldL verið stöðvað. Indversku tillög- urnar til málamiðlunar bæru stjórnvizku vitni, en Rússar virtust staðráðnir í að hindra að' þessi tilraun til að koma á sam- komulagi bæri árangur. Svíar heldra Asgrítn Jonsson. Sænska listaakademían hefir Ásgrím Jónsson listmálai-ft heiðursfélaga sinn. Hefir nýleg'a borizt hingað *Bréf með tilkynningu um þenna vegsauka til handa Ás- grími. Geta má þess, að árlega útnefnir sænska akademían er- lenda heiðursmeðlimi, er þykja. hafa skarað fram úr á sviði sínu, en þetta er talin mesta viðurkenning, sem Svíar geta sýnt erlendum listamanni.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.