Vísir - 12.01.1953, Blaðsíða 1
43. árg.
Mánudaginn 12. janúar 1953.
8. tbl.
HöfuSkúpa finnzt á hatiguntim.
Hafði ftondizf þar í flæÖar-
máli fyrir nokkrum dögum.
I gærdag var lögreglunni til-
kynnt að P.étur Hoffmann fisk-
sáli í Selsvör hafi þá um dag-
inn fundið höfuðkúpu af marini
vestur á öskuhaugum.
i Lögreglan fór til Péturs og
sótti höfuðkúpuna, en síðan var
málið fengið rannsóknarlög-
reglunni í hendur.
í morgun kom svo maður að
máli við rannsóknarlögregluna
og kvaðst hafa gleymt höfuð-
kúpu af manni vestur á ösku-
haugum, en þegar hann setlaði
að sækja hana þangað aftur í-
morgun frétti hann að Pétur
Hoffniann hefði fundið hana og
fengið lögregl.unni hana íhend-
ur. Höfuðkúpu þessa kvaðst
maðurinn hafa fundið fyrir
nokkrum dögum í flæðarmálinu
undan öskuhaugunum og til
þess að bjarga henni undan sjó
kippti hann henni upp og lét
hana upp á öskuhaugana, en
gleymdi henni þar síðan. '..'-.
"Allt bendir til þess, að hér
sé um höfuðkúpu að ræða, sem
Kommúnistar áttu
sök á óeirðunum í
Karachi.
Karachi (AP). — Stjórnar-
völdin í Pakistan hafa endur-
tekið, að kommúnistar hafi átt
upptökin að óeirðunum, sem
urðu í Karachi, og stóðu sam-
fleytt í 3 daga.
Tugir manna meiddust eða
biðu bana, en mörg hundruð
voru teknir höndum.
Kyrrð er nú komin á og hef-
ur umferðarbannstíminn verið
styttur úr 14 í 9 klst. — Stjórn-
arvöldin segja, að kommúnistar
hafi verið upphafsmenn óeirð-
anna, en aðrir flokkar, sem
einnig . eru fjandsamlegir
stjórninni, hafi þá notað tæki-
fæxið til árása, rána og grip-
deilda. Mikið herlið var kvatt
til borgarinnar til að skakka
leikinn.
Eisenhower
ræðir við ráð-
Iterra sína.
New York (AP). —¦ Eisen-
hower ræðir í dag og á morgun
við ýmsa þeirra manna, sem
hann hefur tilnefrit í ráðherra-
stöður, eirinig mun hann ræða
við höfuðleiðtoga flokksins í
báðum þingdeildum.
Eisenhower hef ur tilnef nt
Lloyd A. Washburn aðstoðar-
verklýðsmálaráðherra. Hann
hefur lengi verið meðal 'for-
ystumanna verklýðsfélagasam*
bandsins AFL.
notuð hefir verið af lækni við
kennslu, því að hún er söguð
sundur um énnið. Kinnbein og
kjálka vantar og sömuleiðis
flestar tennur í efri góm, nema
nokkra jaxla.
Ekki er vitað með hverjum
hætti höfuðkúpan hefir komizt
á þann stað þar sem hún 'fannst.
Bardagar bbssa
upp á ný í Kóreu.
Stórárásir risaflugvfrkja.
Einkaskeyti frá AP. —
Fusan í morgun.
Bardagar hafa nú blossað
upp í Kóreu á nýjan Ieik og
risaflugvirki hafa gert árásir 3
nætur í röð á járnbrautir og
birgðastöðvar í Norðvestur-
Kóreu.
Það eru bandarísk risaflug-
virki frá Ökinawa, sem hafa
farið til þessara árása, að því
er talið til að ónýta áform
komniúnista um vorsókn, með
sprengjukasti á aðalflutninga-
leiðir þeirra. Skothríð kommún-
ista úr loftvarnabyssum var
víða mjög mikil og óvenjulega
margar af orustuflugvélum
kommúnista reyndu að hindra
árásirnar. Miklir eldar komu
upp í árásunum.
Árásum kommúnista á Chor-
won-vígstöðvunum og vestar
var hrundið, en að undanförnu
eða þár til nú um helgina, hefur
verið lítið barist á landi.
Ffárhagsvandræði knýja dyra
hjá Rússum og ieppríkjunum.
mmss
George M. Humprey hefur
verið útnefndur fjármálaráð-
herra í stjórn Esenhowers, sem
tekur við völdum í þessum
mánuði.
HaitdknattSeiksmótið
kefst 1. febr. n. k.
Ákveðíð hefur verið að
Handknattleiksmeistaramót ís-
lands hefjist 1. febr. n.k.
Keppt verður í f jórum flokk-
um karla og tveimur flokkum
kvenna, og alls mun mótið
standa yfir í tvo mánuði.
Mótið hefst með meistara-
mótskeppni karla, er verður
tvísskipt í A- og B-deild. Fer
sú keppni fram á tímabilinu 1.
febr. til 10. marz n.k. "
Fi*a Altiareyrí:
Tunuusmíðar eru að hefjast —
fiskherzla hefsf í vor.
Hægf að berða 1000 lestir af
blauff iski sámtiuiis.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri á laugardaginn.
Tunnuverksmiðja ríkisins á
að taka til starfa hér í bænum
um helgina, og hafa 15 verka-
menn verið ráðnir til hennar.
Ætlunin er að smíða til að
byrja með 23,000 tunnur og er
til ef ni í þær, og verður hér um
þriggja mánaða vinnu að ræða
með þeim mannafla, sem að of-
an getur. Er talsverð atvinnu-
bót að þessu hér í bænum.
Þegar Arnarfell kom hingað
síðast lagði það á land efni í 120
fiskhjalla, sem Guðmundur
Jörundsson, útgerðarrnaður, og
Útgerðarfélag AkUreyringa —•
eða með öðrum orðum togara-
útgerðin í bænum —hefur fest
kaup á erlendis. Er ætlunin, að
afli togaranna, sem gerðir eru
héðan, verði hertur að ein-
hverju leyti fyrir Afríku-mark-
að, en þangað er nú selt talsvert
af skreið, eins og menn vita.
Hjallar þeir, sem komið verður
upp nú fyrir vorið, munu geta
tekið um það bil þúsund lestir
af blautfiski. Ekki er hægt að
byrja að herða fiskinn fyrr en
í apríl eða maí vegna frosta, en
þangað til verður unnið að því
að koma hjöllunúm upp.
Færð ágæt.
Færð hefur veríð með ein-
dæmum góð í haust og vetur.
Hefir það til dæmis aldrei kom-
ið fyrir, að hægt sé að aka við-
stöðulaust milli Akureyrar og
Reykjavíkur í janúarmánuði
fyir en nú. Innan héraðs eru
allir v"egir sem á sumardegi, og
fært er til Húsavikur um Kinn-
aréegj en-Fljótsheiði er ófær:
Akureyrarstöðin
fekin í ifotkun.
Hin nýja endurvarpsstöð —
407 m. — í Skjaldarvík viðAk-
ureyri var tekin í notkun síð-
degis í gær, eins og Vísir skýrði
frá í fyrradag, að gert yrði.
Hófst athöfnin kl. 15 með
því, að Björn Ólafsson mennta-
málaráðherra flutti ræðu, og
gat þess'm. a., hve ríkur þátt-
ur útvarpið væri nú orðinn á
daglegu lífi þjóðarinnar.
Þá tók til máls Gunnlaugur
Briém yfirvérkfræðingur út-
varpsins, og ræddi hann eink-
um hina tæknilegu hlið máls-
ins, rakti aðdraganda að bygg-
ingu hinnar nýju stöðvar og
lýsti henni að nokkru.
Þá tók til máls Jónas Þor-
bergsson útvarpsstjóri, er skýrði
frá því, að uppsétning þessar-
ar stöðvar væri einn þáttur-
inn í þeirri áætlun, sem gerð
hefði verið um útvarpsstöðva-
kerfi fslands árið 1948. Að lok-
um flutti ræðu Friðjón Skarp-
héðinsson, bæjarfógeti á Akur-
eyri, er þakkaði skilning þann,
sem Eyfirðingum hefði verið
sýndur með því að koma upp
stöð þessari.
Dreng bjargað
frá drukknun.
I gærmorgun, nokkru fyrir
hádegið var dreng bjargað frá
drukknun í skurði, sem hann
hafði dottið í.
Skurður þessi er skammt frá
Langholtsskólanum nýja og var
hann f ullur: af vatni. í gær-
morgun var kona, Jóhanna
Magnússon í Lynghaga þarna
á gangi og sá hvar ungur dreng-
ur var í skurðinum og var kom-
inn að því að drukkna. Fékk
hún bjargað drengnum og til-
kynnti síðari atvik þetta lög-
reglunni. Var lögregluvörður
síðan sendur þangað inneftir til
þess að gæta skurðsins, þar til
öruggur umbúnaður hefði verið
settur umhverfis hann til þess
að fyrirbyggja frekari slysa-
hættu.
Einvígí út a! bia5agreín.
Milano (AP). —ítalskur lög-
fræðíngur og nýfasistiskur rit-
höfundur háðu nýlega einvígi
með korðum. Tilefnið yar að
rithöfundurinn hafði móðgað
lögfræðinginn í blaðagrein.
Lögfræðíngurínn, Attilio Rom-
ano, var talinn hafa sigrað, er
honuhi tókst að særa andstæð-
ing sinn, Enzo Lleoni, á hand-
legg. ' . ,- ».
Bo5að til skyndiráð-
stefnu um efnahagsmái.
Öflug haráííat gegn
f*«»IIaBifIsst|«irii.
Einkaskeyti frá AP.
Boðuð hefur verið efnahags-
ráðstefna Austur-Evrópu og
verður hún haldin í Prag.
Talið er, að ákvörðun haíi
vei-ið tekin allskyndilega, um
ráðstefnu þessa, vegna versn-
andi efnahagsátsands og erfið-
leika í löndum þjóða þeirra,
sem kúgaðar hafa verið tií þess
að fylgja Rússum að málum.
í þessum löndum hefur verið
mikill matvælaskortur að und-
anförnu, einkum í Austur-
Þýzkalandi og Tékkóslóvakíu,
og er hald manna að ofsóknirn-
ar í Tékkóslóvakíu og frávikn-
ingar úr embættum í A.Þ. eigi
rætur sínar að rekja til hrað-
vaxandi óánægju almennings.
Er það gamalt ráð í einræðis- /
löndunum, að beina athygli
manna frá vandræðaástandi
með því að stofna til „hreins-
ana" eða ofsókna.
í blöðum í Tékkóslóvakíu
hefur verið birt bréf frá Zapo-
tocki, þar sem hann leggur
mikla áherzlu á aukinn aga með
al verkalýðsins, og aukinn út-
flutning og boðar breytingar á
skömmtunarfyrirkomulaginu,
'sem miða að því að þeir, sem
afkastamestir eru, verði for-
réttinda aðnjótandi, en aðrir
verði að framleiða sjálfir eða.
kaupa matvæli dýrara verði á
frjálsum markaði.
í Þýzkalandi er enn verið að
herða á eftirlitinu við landa-
mærin. í Austur-Berlín hefur
tveimur umferðaræðum inn í
Vestur-Berlín verið lokað. •—-
í seinasta mánuði flýðu til V.-
Berlínar úr sælunni austan
jámtjalds um' 16.000 manns.
Líflát
fyrir njósnir.
í tékknéskum rétti var nu
um helgina dæmdur maður
nokkur til lífláts fyrir njósnir
í þágu leyniþjónustu Banda-
ríkjamanna, en aðrir sakborn-
ingar fengu 5—25 ára fangelsi,
fyrir njósnir og samstarf. I
fregn um þetta var vikið a'ð
atviki því, sem gerðist í septem-
ber 1951, er járnbrautarlest
með 100 manns var ekið vestur
yfir landamærin inn i V.-Þ.,
en eimreiðarstjórinn og 20
menn aðrir báðu um hæli sem.
pólitískir flóttamenn. .
¦ í fregnum frá Póllandi er sagt
að 100.000 menn séu, starfandi
í leynisamtökum gegn stjórn-
inni, og njóti leynihreyfingin
stviðmngs Bandarikjamanna.