Vísir - 13.01.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 13.01.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Þriðjudaginn 13. janúar 1953. 9. tbl. Útvarpsstríðii nær til íslands. Kalda stríðið á öldum ljós- vakans nær einnig til Is- lands, þótt ekki sé það hið íslenzka útvarp, sem þar er að verki. í ræðu þeirri, er Gunn- laugur Briem, yfirverkfræð- ingur Kíkisútvarpsins, flutti í fyrradag við opnun endur- varpsstöðvarinnar á Akur- eyri, lýsti hann því nokkuð, við hverja örðugleika væri að etja í sambandi við út- varpsstarfsemi á Islandi. Bæði væri það, að til væru stöðvar á meginlandi álfunn- ar, sem útvörpuðu á sömu eða nær sömu bylgjulengd og okkar, en jafnframt væri stöð ein í austurhluta Berl- 'ínar, sem hefði bað markmið eitt að trufla útvarp Banda- ríkjamanna í Vestur-Berlín með því að senda frá sér væl og annan hávaða. Þessir væl- tónar kommúnistastöðvar- innar hafa m. a. orsakað verulegar truflanir hérlend- is, og má því segja, að kalda stríðið nái hingað einnig að þessu leyti. Wý ofsóknaralda að risas Rnssneskír læl&nar eru að ráða lorvíilismenii sakaðir um af dögum. Belgir sigra Frakks. Belgir og Frakkar háðu nýlega landsleik - knattspyrnu og sigruðu Belgir. Leikurinn var háðir í París, og voru áhorfendur alls 40,000. Settu Belgir mark á 6. mínútu fyrri hálfleiks, en Frakkar kom- ust oft í færi síðar, þótt ekki tækist að skora. Tíðindalaust í sjómannadeihmni. Enn hefur ekkert gerzt í deilu vélbátasjumanna og út- vegsmanna, er bent geti til þess, að lausn hennar standi fyrir dyrum. Enginn fundur var með deiluaðilum í nótt, né heldur í gær, og ekki hafði verið boð- aður fundur með þeim, er Vísir vissi síðast til. Situr því állt við sama í þessu máli. Sárafáir árekstrar þrátt mikla hálku í gær. KeSjulausir bilar áttu í erfiðlefkusu. fyrir I gær, er líða tók á daginn, myndaðist mikil hálka og ísing á götum bæjarins, er olli marg- háttuðlum um(ferðartruflunum, en án þess að kæmi til meiri- háttar árekstra eða slysa. Víða varð að ýta bílum, sem voru keðjulausir einkum í brekkum og þar sem hálkan var mest. Sama gegndi og um strætisvagna, að farþegarnir urðu að fara út og ýta á þá til þess að þeir kæmust leiðar sinnar. En ér séð varð að hverju stefndi munu keðjur hafa ver- ið settar á þá og úr því gekk allt vel. Þettta olli samt nokkr- um töfum á ferðum strætis- vagnanna um stundarsakir a. m. k. á sumum leiðunum. Keðjulausir bílar létu illa að stjórn og víða koma það fyrir, er þeir voru hemlaðir, að þeir snérust á götunum og töfðu við það umferðina. Þótt undarlegt megi virðast kom þó ekki til j xneiri háttar árekstra, og flest- ir þeirra urðu áður en hálkan myndaðist.. Sýnir þetta ljóslega að ef bifreiðastjórar sýna að- gætni og varúð við stýrið er hægt að forðast árektsra, jafn- vel við hin örðugustu og verstu skilyrði. Einn árekstur varð þó, og að nokkru sögulegur, í gær- kvöldi, er tvær bifreiðar rák- ust á á gatnamótum Víðimels og Furumels, Varð hann sögu- legur fyrir þá sök, að annar bif reiðarst j órapna kom sér undan áður en tal næðist af honum, en slíkt er brot á bif- reiðalögunum. Hinsvegar náð- ist númer bifreiðar hans og er málið í rannsókn. VerkfaSÍ á flfaiíu. 300.000 ítalskar járnbrautar- starfsmenn í félögum þeim, sem kommúnistar og óháðir jafnað- armenn stjórna, hófu sólar- hringsverkfall í morgun stuðnings launakröfum. Myndin er af Mártin P. Durkin, foresta sambands pípulagning- armanna í Bandaríkjunum, sem Eisenhower gerði að verkamálaráðherra. Gefa vísvitandi rangar sjúkdóms- lýsingar, beíta síðan röngum lækningaaðferðum. Aiidrei ZdhanoY meðal þeirra, er drepinu var með þesstina hætii. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Að undanförnu hafa borizt æ fleiri fregnir, sem sýna, að of sóknir og „hreinsanir“ eru að verða æ víðtækari í leppríkjun- um austan járntjalds, en nú eru ofsóknirnar hafnar heima fyrir í Ráðstjórnarríkjunum sjálfum, með ásökunum á hendur læknum fyrir áform um að ráða af dögum kunna stjórnmála- og hernaðarleiðtoga í Ráðstjórnarríkjunum. Eins og að líkum lætur, eftir það sem gerst hefur í lepp- ríkjunum, einkum Tékkósló- vakiu, eru sökudólgarnir taldir vera Gyðíngar eða handbendi þeirra. Segir að áform þessara manna, sem flestir séu áhang- Vaxaiidi flutisingar um Amsterdasu. Amsterdam (AP). Flutningar og skipakomur voru meiri til þessarrar borgar á árinu sem leið en nokkru sinni fyrr. Alls komu 4675 skip til hafnar hér á síðasta ári, sem voru um 26,5 milljónir smá- lesta. Var þetta 320 skipum fleiri — og 2,3 millj. stærri — en hér komu árið 1951. Það, sem einkum má þakka breyt- inguna, er það, að nýr skipa- skurður hefur verið tekinn í notkun, sem tengir Amsterdam beint við Rín. Brezk flugvél hrapaði til til jarðar á Súezeiði í morgun. Níu i manna áhöfn beið bana. Japan aövar- ar Rússa. Flugvélar itússa fremja hlufleysisbrot. Einkaskeyti frá AP. — Tokyo í morgun. Japanska stjórnin hefur var- að ónafngreint erlent stórveldi við afléiðingum þess, ef flug- menn þess haldi áfram ólögleg- um flugferðum j'fir hinar norð- lægari Japanseyjar. Er vakin áthygli á að það liafi orðið æ tíðara upp á síð- kastið, að slík brot væru fram- in með því að fljúga yfir Hokk- aido. Væri Japan tilneytt að grípa til gagnráðstafana, ef framhald yrði á þessu, og yrði stórveldið, sem flugvélarnar ætti, að taka á sig alla ábyrgð af afleiðingunúm. (Án vafa er hér átt við Ráðstjórnarríkin). ÞjóÖverjar hvatfir til að vinna sér framtíðarísfiskmarkað ■ Bretlandi. Það á af§ bæta Breftim missi islenzka fisksins endur félagsskapar nokkurs, í greinargerðinni er hann. ‘ nefndur alþjóðafélagsskapur Gyðinga, hafi áformað að ráða af dögum ýmsa kunna menn. Bandaríkjamenn eru sagðir hafa skipulagt félagsskapinn og stutt hann fjárhagslega. Allir læknarnir eru kallaðir laun- þegar erlends veldís. Aðferðin er sögð hafa verið sú, að gefa skakkar sjúkdóms- lýsingar og fyrirskipa á grund- velli þeirrá airangar lækninga- aðferðir í þeim tilvangi að sjúk- lingarnir bíði bana. Meðal. þeirra, sem nefndir eru, og; ■ losna átti við méð þessu móti, voru hershöfðingjarnir Vassi- ‘ lievsky, sem fyrir 3 árum varð hermálaráðherra, og Koniev,,. sem stjórnaði suðurarmi hers Ráðstjórnarríkjanna í innrás- inni í Þýzkaland í síðari heims- styrjöldinni. Báðir eru þeir meðal kunnustu hershöfðingja Rússa. Meðal þeirra sem drepnir voru með þessum hætti, að því er segir í Moskvafréttum, var fyrrverandi framkvæmdastjóri Kommúnistaflokksins, og einn.' af aðal skipuleggjurum Komin- form, Andrei Zdhavov, er dó á sóttarsæng 1948. í greinargerð Moskvuút- varpsins eru forstöðumenn og starfsmenn ýmissa félaga og. stofnana sakaðir um skort á árvekni og sagt, að ef ekki' væri sofið á verðinum, væri. ekki hægt að gera tilraun til að framkvæma slík áform, og alvarlega brýnt fyrir mönnum að sjá að sér. Þýzkir togarar hafa að und- anförnu selt mikið af isfiski í brezkum höfnum og fengið gott verð fyrir aflann, enda haft góð- an fisk. í brezkum blöðum kemur nú fram í fregnum, sem vafalaust eru runnar und.an j-ifjum tog- araeigenda og fisksala, að þýzku togurunúm er vel tekið. Er :béin línis tekið' fram. Uíð þýzkum togaraútgerðarmörmum -hafi verið gefin 'bénding urn að ba:*a Breturn upp það, sem þeir misstu vio að söluferðir ís- ionzkra íogara hættu, og tekið er fram, að þannig gætu Þjóðverjar byggt sér upp framtíðar- markað fyrir fisk í Bret- landi. Þessa afstöðú er svo reynt að réttlætá meS þvi að löndunar- bannið á íslenzka togara hafi verið sett, vegna þess að brezk- jíu togurum sé meinað að veiða þar sem þeir höfðu ávallt Eengið að veiða áður! ó í tveimur heimsstyrjöldum hættu íslenzkir sjómenn til lífi sínu við að færa Bretum fisk og fórust margir í þeim hættu- ferðum. Bretar áttu þá í styrj- öld við Þýóðverja, sem nú virð- ist vera vel fagnað í brezkum fiskibæjum, en gegn íslending- um er þar haldið uppi áróðri í blöðum og málstaður þeirra rangfærður. EtjtfpUtr sijjórnarskrámmi ? Egypzka stjórnin hefur skip- að 50 manna nefnd til þess aíí semja uppkast að stjórnarskrá. Meðal þeirra, sem eiga sæti í henni, eru Aly Maher fyrrv. forsætisráðherra og 5 af for- ystumönnum wafdista.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.