Vísir - 15.01.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 15.01.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Fimmtudaginn 15. janúar 1953. 11. tbl. Tekin voru fingraför 207 manns á Fáskrúðsfirði. Athugun fingrafaranna fer frarn hér ©g tekur væntanfega skamman tíma. Garðmeti ræktað við rafSjós í gróðurhúsum í Hveragerði, í nótt var lokið við að taka fingraför karlmanna á Fá- skrúðsfirði og í nærsveitum, og vcrður rannsókn málsins nú hraðað af kappi hér syðra. .Vísir átti í morgun tal við Axel Helgason lögreglumann, sem staddur er á Fáskrúðsfirði til þess að taka fingraförin og vinna að rannsókn málsins, á- samt sýslumanni. Sagði Axel, að hann hefði tekið fingraför allra karla á staðnum og nær- sveitum, allt til 60 ára aldurs, en þeir eru 207. Það, sem næst gerist í málinii er það, að Axel kemur hingað suður og vinnu hér að rann- sókninni, þar sem skilyrði öll eru betri til slíkra hluta. Hann hefur tekið ljósmyndir ai' rúðu- brotunum, sern fingraförin fundust' á, en fleiri myndir muri hann taka af þeim hér, og síðan mun hann bera stækkað- ar ljósmyndir af þeim se.man við fingraför hinna 207 rnanna, Risnukostnalur minni en áður. Árið 1951 nam risnukostnað- ur ríkisstjórnar íslands 146 þús. kr. og annar risnukostnaður, m. a. forseta Islands, nam 124 þús. kr. Risnukostnaður þessi er fyrst og f remst fólginn í veizlum, sem forsetinn, ríkisstjórnin eða skrif stofustjórar hennar • halda við ýmis tækifæri. Auk ríkisstjórnar, skrifstofu- stjóra hennar og forseta íslands fá eftiríarandi aðilar lítilshátt- ar risnufé: Aðalendurskoðendur ríkisins, forseti Hæstaréttar, biskupinn yfir íslandi, rektor Háskólans, rektor menntaskól- ans í Rvík og skólameistari merintaskólans á Akureyri. -— Nemur risna þessi samtals 54.200 krónum, en 70 þús. kr. til forseta íslands. Nokkrir aðilar hafa rétt til þess að fá áfengi frá Áfengis- verzlun ríkisins með sérstökum kjörum (álagningarlaust). Þess ir aðilar eru forseti íslands, ríkisstjórnin, forsetar og fyrstu varaforsetar Alþingis, íslenzk- ar sendisveitir erlendis og áfeng isverzlun ríkisins. Á árinu sem leið keyptu þessir aðilar áfengi fyrir röskar 86 þús. kr. í umræðum, sem urðu um þessi mál á alþingi í gær upp- lýsti forsætisráðherra að risna ríkisstjórnarinnar hefði árið 1951 verið sem næst 20 þús. kr. lægri en t. d. árið 1948, þrátt fyrir meiri dýrtíð’ nú. eða öllu heldur þeirra, sem til greina koma, því að fingraförin skiptast í flokka, og sést brátl, hvaða för getur verið um að ræða. Axel kvaðst mundu verða að vinsa úr þau fingraför, sem til greina koma, og er þetta nokkurt verk, sem hann mun vinna hér í Reykjavík. Hann bíður nú flugfars á Fáskrúðsfirði, eða tekur sér far með Esju, sem verður þarna á ferðinni á laugardag. j Voru 6 vikur í strömfuöu skipi. Danska varðskipið Haf- örninn, sem strandaði á sandrifi við England, í'yrir 6 vikum, var dregið á flot í gær. Skipherrann og nokkrir skipverjar yfirgáfu aldrei skipið, meðan það sat fast á rifinu. Stórmerkar tilraunir garðyrkju- skólans þar hófust fyrir 3 vikum. Geta leiíí til þess að, tómatar fást tveisn mánuðum fvrr en ella. Bretar bandtaka nazistafor- sprakka í V.-Þýzkalandi. Nazistar ætluðu að grípa völdin. Einkaskeyti frá AP. — Laust eftir kl. 7 í morgun tilkynnti brezka utanríkisráðu- neytið, að 6 fyrrverandi naz- istaleiðtogar í Vestur-Þýzka- landi hefðu verið handteknir. Menn þessir eru taldir vera forsprakkar nazista, sem hafa valdatöku í landinu að marki, er hentugt tækifæri gefst, og var tekið fram í tilkynning- unni, að kunnugt hefði veríð um þessi samtök um nokkurt skeið, þótt ekki hefði þótt fært að láta til skarar skríða fyrr. Handtökurnar voru fyrir- skipaðar með skírskotun til þess valds, sem hernámsstjórn- in hefur «étt til að beita, og er tekið fram, að hinir handteknu menn verði hafðir í haldi, með- an rannsókn fer fram á því, hvort hernámsliðinu og öryggi þess stafi hætta af samtökum þeirra. Samtökum nazistanna var stjórnað frá miðstöðvum í Vestur-Þýzkalandi og voi'u fyrrnefndu 6 forsprakkar hand- teknir í Hamborg og Dússel- dorf. . Sambandsstjórninni í Bonn var tilkynnt fyrirfram um handtökurnar og innanríkis- ráðherra hennar hefur lýst yfir, að réttmætt hafi verið af hernámsyfirvöldunum að grípa til þessarra ráðstafana. Meðal hinna handteknu manna er dr. Werner Naumann, sem var yfirskrifstofustjóri í ráðunelti Göbbels, og Hitler hafði ákveðið sem eftirmann dr. Göbbels, og Gustav Scheel, sem Hitler hafði ákveðið að gera að menntamálaráðherra, en nazisti þessi tók þátt í Salz- borgarfundi þeirra Hitlers og Mussolini á sínum tíma. Hamborg og Dússeldorf eru taldar höfuðstöðvar samtak- anna og er eftirgrennslunum þar haldið áfram. Nýlega eru hafnar á vegum garðyrkjuskólans í Hveragerði merkilegar tilraunir með rækt- un garðávaxta og annarra plantna í gróðurhúsum við raf- magnsljós. Vísír hefur átt stutt viðtal við Unnstein Ólafsson skólastjóra í Hveragerði og fengið hjá hon- um nokkrar upplýsingar um málið, sem enn er á frumstigi, en bendir þó til þess, sem verða vill. Tilraunir þessar hófust fyrir þremur vikum, og eru notaðar 7 tegundir ljósá, m. a. fluores- centljós og kvikasilfurslampa- Töfðust bér vegns þoku ytra. Þoka grúfði yfir flugvöllum Norður-Evrópu í gærkveldi, og olli m. a. því, að Hekla og Gull- leiðis tilfaxi urðu báðar að fresta brottför þar til í dag. Gullfaxi fór héðan um 11- leytið áleiðis til Prestvíkur og Hafnar, en átti að fara í gær- kveldi, eins og Vísir sagði frá. Hekla lagði af stað frá Kefla- vík á hádegi í dag, en þar urðu farþegarnir, 64 að tölu, að láta fyrirberast í nótt, því að flug- vélin gat ekki haldið áfram til Norðurlanda í gær af fyrr- greindum sökum. Hekla átti að fara til Stafangurs, en annars til Hafnar, ef ekki reynist unnt að lenda í Noregi vegna þoku. Encfinn frjáls béndi að ári. Vín (AP). — Allt jarðnæði í Ungyerjalandi mun verða ræktað með samyrkjusniði ár- ið 1954. Stjórnin í Budapest hefur samþykkt, að hraðað skuli myndun samyrkjubúa og ekki annar búskapur stundaður eft- ir lok næsta árs. — Eins og stendur er aðeins 30% jarð- næðis ríkisjarðir og samyrkju- bú. — ljós í einum skála til að byi'ja með. Plönturnar, sem hér um ræð- ir, eru tómatar, salat og ilm- skúfur (levkoj“). Tilraunir þessar miða fyrst og' frerrist að því að lengja uppskerutímann og þar með' gera mögulegt að hafa lengur á boðstólum garðávexti, og má. vera, ef tilraunirnar gefast vel, að unnt verði að hafa salat á boðstólum allt árið og jafnvel tómata líka. Þó skiptir þetta ekki miklu máli um tómatana, þai' eð fundizt hafa nýjar að- ferðir til þess að hraðfrysta þá,. svo að þeir geta geymzt mjög vel milli uppskera. Tilraunir þessar geta a. m. k„ orðið til þess að flýta uppskeru: t. d. tómata um allt að tvo mánuði, þannig að þeir fáist í apríl í stað júní. Þetta táknar þá að sjálfsögðu aukið notagildi gróðurhúsanna fyrir garð- yrkjubændur, og meira og jafnara framboð garðávaxta fyrir allan almenning. Á þessu stigi málsins verður engu spáð um tilraunir þessar, sagði Unnsteinn Ólafsson að lokum, en allt lítur þetta vel. út enn sem komið er að minnsta kosti. Óskar Hall- dórsson, útgerðarntaður. Þessi ni.ynd er íu' Trunrsan ÍSan:' ai'ík jaíorsetu og Winston Chuchill, fnrsæti.'-ráðherra llretá, • er þeir hittust í Washington. Churchiil er cnn staddur í Eandarík.i«num, cn bar hefur hann rætt við alla helztu i'dðtoga bæoí demokrata og republikana. Þing fyrir Kína. Peking (AP). — Þjóðfulltrúa- þing fyrir allt Kína á að koma saman á þessu ári, eins og bo'ð- að hefur verið. Mao-tse-Tung forsætisráð- herra sagði í gær ,að hlutverk þess yrði að velja nýja ríkis- stjórn. Óskar Halldórsson útgerðar- maður lézt á sjúkrahúsi í nótt eftir stutta legu. Óskar,var tæplega sextugur að aldri, fæddur 17. júní 1893. á Akureyri. í æsku stundaði, Óskar búfræðinám, enda þótt hann helgaði sig síðar, að fullu og öllu, sjónum og sjávarút- vegsmáiuni. Á þvi sviði var Óskar í hópi athafnamestu út- gerðarmanna landsins, auk þess sem hann var brautryðjandi óg: forgöngumaður um ýmsar helztu stórframkvæmdir á sviði útvegsmála. Önnur mál hefur Óskar einn- ig látið til sín taka og er skemmst að minnast höfðings- skapar hans, er hann færði ís- lenzka rikinu vaxmyndasafn sitt að gjöf. Óskar Halldórsson var tví- kvæntur, en konur hans eru báð'ar dánar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.